Skessuhorn - 11.02.2015, Síða 25
25MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Nýlega var bætt við mannauð
Húsasmiðjunnar í Borgarnesi.
Gauti Sigurgeirsson tók við sem
rekstrarstjóri verslunarinnar eft-
ir að Skúli Hreinn Guðbjörnsson
hafði stýrt versluninni síðastliðin
tvö ár samhliða verslun Húsasmiðj-
unnar á Akranesi, þar sem hann er
rekstrarstjóri. Gauti hóf störf nú
um áramótin og er ánægður með
viðbrögð viðskiptavina. „Fólk hef-
ur verið mjög jákvætt og ég hef
fengið mjög góð viðbrögð. Maður
hefur heyrt að breytingin væri orð-
in tímabær og nú er rétti tíminn til
að byggja upp,“ segir Gauti í sam-
tali við Skessuhorn.
Öllum hollt að prófa
eitthvað nýtt
Gauti er Reykvíkingur en hefur þó
sterka tengingu við landshlutann.
Hann er ættaður úr Dölunum og
Skagafirði og bróðir hans er Sindri
Sigurgeirsson, formaður Bænda-
samtakanna og bóndi í Bakkakoti.
Einnig var Gauti í sveit í Borgar-
firðinum í nokkur ár. Síðustu átj-
án ár hefur Gauti starfað hjá Ískraft
í Kópavogi, sem er dótturfyrirtæki
Húsasmiðjunnar. „Ég var í birgða-
stýringu og innkaupum og stýrði
birgðahaldi fyrir fimm lagera. Ég
vann þarna með einstaklega góð-
um hópi fólks, ferðaðist og var í
fjölbreyttu og skemmtilegu starfi.
En það er öllum hollt að prófa eitt-
hvað nýtt á tuttugu ára fresti, eða
fimm ára fresti,“ segir Gauti og
hlær. Hann segist upphaflega hafa
lært rafvirkjun og að hann hafi allt-
af verið iðnarmannamegin í líf-
inu. „Ég þekki þennan bransa vel.
En vissulega er vöruúrval Húsa-
smiðjunnar fjölbreyttara en það
sem tengist iðnaði á einhvern hátt.
Það eru til dæmis pottar og pönn-
ur hinum megin í búðinni sem er
ákveðin áskorun fyrir mig,“ segir
hann og brosir.
Líkar vel í Borgarnesi
Gauti fluttist í Borgarnes þegar
hann tók við starfinu. Hann segist
kunna ágætlega við sig í Borgarnesi
enn sem komið er. „Það er auðvi-
tað ekki komin mikil reynsla á það
enn, en mér líst vel á þetta, þó ég sé
kannski ekki enn kominn mikið inn
í félagslífið. En hér er allt sem þarf
til að lifa af.“ Gauti á eina dóttur
sem stundar nám í menntaskóla í
Reykjavík. Hann segir að hún hafi
strax samþykkt að hann tæki við
þessu starfi og verið áhugasöm um
tækifærið. „Hún var fyrsta mann-
eskjan sem ég ræddi við um þetta
og hún tók mjög jákvætt í þetta.
Hún hefur stutt mig heilshug-
ar og hvetur mig áfram. Hún ætl-
ar svo að reyna að finna sér vinnu
hér í Borgarnesi í sumar þannig að
ég hlakka mikið til þegar skólanum
lýkur,“ útskýrir Gauti.
Blikur á lofti
Svæðið sem tilheyrir Húsasmiðj-
unni í Borgarnesi er stórt og víð-
feðmt. Það nær vestur í Reykhóla-
hrepp, um allt Snæfellsnes og upp
Norðurárdalinn. „Svo bætist það
við að við þjónustum sumarhúsa-
byggðirnar hér í kring á sumr-
in. Mér líst gríðarlega vel á þetta.
Þetta er spennandi verkefni og ég
hlakka til að takast á við það. Það
eru blikur á lofti og verkefni fram-
undan víða um landshlutann sem
gerir það að verkum að það er
mjög bjart framundan á þessu sviði
í byggingageiranum.“ Gauti seg-
ir að ekki séu fyrirhugaðar neinar
rekstrarlegar breytingar á verslun-
inni heldur sé einungis uppbygg-
ing framundan. „Við ætlum að ein-
beita okkur að því sem við erum
góð í og stefna að því að gera það
enn betur.“
grþ
Kvenfélagið Fjóla í Dölum kom
færandi hendi á Héraðsbóka-
safn Dalasýslu í síðustu viku og
afhenti Hugrúnu Hjartardóttur
bókaverði gjafabréf upp á 150.000
krónur til kaupa á húsgögnum
fyrir safnið.
-fréttatilkynning
Dagur kvenfélagskonunnar var 1.
febrúar síðastliðinn. Að því tilefni
óska kvenfélagskonur í Kvenfé-
laginu 19. júni í Borgarfirði öllum
konum til hamingju með daginn!
Starfsemi kvenfélaga snýst um að
styrkja og efla samfélagið á hverjum
stað. „Við í kvenfélaginu 19. júní
sem starfar á Hvanneyri, Skorradal
og Bærjarsveit í Borgarfirði, höfum
aflað fjár til að styrkja góð málefni.
Á síðastliðnu ári gaf kvenfélagið
850.000 krónur til hinna ýmsu mál-
efna. Ungur drengur, Bjarki Fann-
ar Hjaltason, sem þurfti að fara til
Boston í læknismeðferð, fékk ágóð-
ann af jólabingóinu 2013. Heil-
brigðisstofnun Vesturlands í Borg-
arnesi fékk blóðtökustól og vinnu-
koll og Hjúkrunarheimilið Brákar-
hlíð fékk súrefnissíu. Grunnskóli
Borgarfjarðar Hvanneyrardeild
fékk fjárhæð til að kaupa kennslu-
áhöld til útikennslu. Leikskólinn
Andabær á Hvanneyri fékk fjárhæð
til að kaupa leikföng. Ungmenna-
félagið Íslendingur fékk fjárhæð til
endurbóta á Hreppslaug og Holl-
vinasamtök Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands fékk fjárhæð til kaupa á
sneiðmyndatæki. Fjársöfnun kven-
félagskvenna hefur því sannanlega
komið að góðum notum víða í sam-
félaginu.
„Þessar gjafir væru ekki mögu-
legar nema fyrir óeigingjarnt starf
kvenfélagskvenna. Vill stjórn Kven-
félagsins 19. júní þakka þeim frá-
bært starf. Einnig vonast stjórnin til
að þessar gjafir hafi komið sér vel,“
segir í tilkynningu. mm
Valdís Magnúsdóttir og börn í Andabæ
taka hér við styrk kvenfélagsins úr
hendi Rósu.
Kvenfélagið 19. júní stýrkir
ýmis góð málefni
Meðal styrkþega kvenna í 19. júní var Bjarki Fannar Hjaltason og fjölskylda hans.
Hér er Rósa Marinósdóttir formaður félagsins ásamt fjölskyldunni.
Fjólan færði Héraðsbóka-
safninu peningagjöf
Gauti Sigurgeirsson nýr rekstarstjóri Húsasmiðjunnar í Borgarnesi.
Segir bjart framundan í
bygginga rgeiranum á Vesturlandi
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 17. febrúar 2015
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Íslenskunámskrá í Borgarfirði á
Sturlungaöld: Hvað kenndi Snorri í
Reykholti og Ólafur hvítaskáld í Stafholti?
Kristján Árnason prófessor við Íslensku- og menningar-
deild Háskóla Íslands flytur
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Fyrirlesturinn er fluttur
í samvinnu við Miðaldastofu
Háskóla Íslands