Skessuhorn - 11.02.2015, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Hvernig hefur
veturinn verið?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Stykkishólmi)
Skarphéðinn Ólafsson:
Helvíti rysjóttur.
Friðþjófur Orri Jóhansson:
Svolítið stórviðrasamur, maður
hefur séð þá skárri.
Katrín Elísdóttir:
Búinn að vera frekar blautur og
vindasamur, en samt ekki svo
slæmur í heildina.
Helena María Jónsdóttir:
Hann er búinn að vera mjög
erfiður. Mikið um breytingar,
sveiflur í veðrinu.
Margrét Hjálmarsdóttir:
Leiðinlegur á allan hátt.
Badmintonfélag Akraness hefur
staðið fyrir tveimur mótum á þessu
ári ásamt því að senda keppend-
ur á mót hjá öðrum félögum. Mini-
tonnámskeið er að hefjast og stelpu-
æfingar að fara af stað í fyrsta sinn.
Grislingamótið er byrjendamót fyr-
ir yngstu spilarana og var það hald-
ið sunnudaginn 11. janúar. Til leiks
mættu 50 keppendur frá fimm fé-
lögum. Krökkunum var skipt í lið og
liðin öttu svo kappi hvert við annað
í einliðaleik. Eldri spilarar ÍA komu
og voru liðsstjórar og stóðu sig með
prýði. Allir keppendur fengu medal-
íur við mótslok og bæði keppendur
og foreldrar voru ánægðir með dag-
inn.
Á fyrri keppnishelgi Reykjavik Int-
ernational Games fór fram unglinga-
mót í badminton. Badmintonfélag
Akraness og Badmintondeild Skalla-
gríms áttu marga keppendur á mótinu
og spiluðu þeir marga erfiða leiki. Á
mótinu voru 40 keppendur frá Fær-
eyjum sem gerði mótið fjölbreyttara
og skemmtilegra. Á sunnudeginum
var efnt til keppni í u11. Skaginn átti
tvo keppendur þar og var gaman að
fylgjast með næstu kynslóð badmin-
tonspilara keppa á svo stóru móti. Á
mótinu hrepptu Vestlendingar fimm
verðlaun. Steinar Bragi Gunnarsson,
ÍA, átti gott mót og sigraði í einliða-
leik u17 og tvíliðaleik með Andra
Árnasyni, TBR. Elvar Már Stur-
laugsson, ÍA fékk silfur í tvíliðaleik
u17 með Andras Danjálsson Færeyj-
um, Úlfheiður Embla Ásgeirsdóttir
fékk silfur í einliðaleik u17 og Brynj-
ar Már Ellertsson sigraði aukaflokk
einliðaleiks u15.
Iceland International, alþjóð-
legt badmintonmót, var haldið í
TBR dagana 22.-25. janúar. Fé-
lagið átti tvo keppendur á mótinu
að þessu sinni, þá Egil Guðlaugs-
son og Ragnar Harðarson. Met var
slegið í þátttöku erlendra keppenda
á mótinu og voru þeir um hundrað.
Egill og Ragnar komust ekki upp
úr forkeppninni í einliðaleik enda
margir sterkir erlendir keppendur.
Vestlendingar komu að framkvæmd
mótsins, landsliðskrakkarnir okk-
ar voru línuverðir á mótinu og svo
var Danmerkurhópurinn með veit-
ingasölu í fjáröflunarskyni.
Landsbankamót ÍA var haldið
helgina 7.-8. febrúar og mættu 74
keppendur til leiks í fjórum aldurs-
flokkum. Landsbankinn gaf íþrótta-
töskur og handklæði í verðlaun á
mótinu og kunnum við þeim bestu
þakkir fyrir það. Mótið heppnað-
ist mjög vel og leikirnir voru marg-
ir hverjir mjög jafnir. Allir vildu
ná í síðustu stigin fyrir Íslands-
mót unglinga sem er í mars. Fjór-
ir náðu þeim árangri að verða þre-
faldir Landsbankameistarar, vinna
einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndar-
leik. Jón Hrafn Barkarson, Andrea
Nilsdóttir, Andri Árnason og Arna
Karen Jóhannsdóttir, öll frá TBR
eru þrefaldir Landsbankameistar-
ar 2015.
Skagamenn fóru alls ekki tóm-
hentir heim. Fimm gull, níu silfur
og sex verðlaun í aukaflokki í ein-
liðaleik. Andri Snær Axelsson sigr-
aði einliðaleik u15 og fékk silfur
með Davíð Erni Harðarsyni í tví-
liðaleik. Úlfheiður Embla Ásgeirs-
dóttir sigraði einliðaleik u17 og
hreppti silfur í tvenndarleik með
Símoni Orra Jóhannssyni. Elvar
Már Sturlaugsson sigraði tvennd-
arleik u17 ásamt Dalrós Söru Jó-
hannsdóttur, hún hlaut silfur í ein-
liðaleik. Steinar Bragi sigraði tví-
liðleik u17 ásamt Andra Árnasyni,
TBR, og þar hreppti Elvar Már
Sturlaugsson silfur ásamt Hauki
Gíslasyni, Samherjum. Stein-
ar Bragi fékk svo silfur í einliða-
leik u19. Daníel Þór Heimisson og
Halldór Axel Axelsson fengu silf-
ur í tvíliðaleik u19. Í aukaflokkum
í einliðaleik fengu Daníel Þór, Sím-
on Orri, Katla Kristín og Tristan
Sölvi silfurverðlaun og Þorgils Sig-
urþórsson fékk gull.
Æfingar og námskeið
framundan
Framtíðin er svo sannarlega björt
hjá Badmintonfélagi Akraness. Fé-
lagið er að fara af stað með Mini-
tonnámskeið fyrir 4-7 ára börn og
foreldra þeirra. Á námskeiðinu eru
kennd grunnatriðin í badminton í
gegnum leiki og þrautir. Sex vikna
námskeið sem kostar aðeins 3000
kr. og fer skráning fram í Nóra.
Kennt er í íþróttahúsinu við Vest-
urgötu á sunnudögum kl. 12. Þjálf-
ari er Helgi Magnússon. Fyrsti tím-
inn á námskeiðinu er sunnudaginn
15. febrúar.
Félagið ætlar einnig að fara af
stað með stelpuæfingar í badmin-
ton. Æfingarnar eru einu sinni í
viku og eru ætlaðar stelpum á aldr-
inum 7-12 ára. Opnar æfingar verða
svo á sunnudögum kl. 13-15 og þá
geta foreldrar komið með. Æf-
ingarnar verða í íþróttahúsinu við
Vesturgötu á fimmtudögum og eru
kl. 14:50-15:40. Þjálfari er Helgi
Grétar Gunnarsson. Skráning fer
fram í Nóra og kosta þessar æfing-
ar 10.000 kr. fram að lokum vetrar-
starfs í maí. Við hvetjum allar stelp-
ur til að koma og prófa þessar æf-
ingar.
-fréttatilkynning
Lífshlaupið er heilsu- og hvatn-
ingarverkefni Íþrótta- og Ólymp-
íusambands Íslands. Var það ræst
með formlegum hætti fyrir þetta
ár um miðja síðustu viku. Markmið
Lífshlaupsins er að hvetja almenn-
ing til að hreyfa sig og huga að sinni
daglegu hreyfingu í frítíma, vinnu,
skóla og við val á ferðamáta. Skrá
má alla hreyfingu inn á vefinn svo
framarlega sem hún nær ráðlegg-
ingum Embættis landlæknis um
hreyfingu. Börnum og unglingum
er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60
mínútur á dag og fullorðnir a.m.k.
30 mínútur á dag. Það voru ráð-
herrarnir Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra og Ill-
ugi Gunnarsson mennta- og menn-
ingarmálaráðherra ásamt Lárusi R.
Blöndal forseta ÍSÍ og Önnu Bergs-
dóttur skólastjóra Hamraskóla sem
hófu átakið formlega síðastlið-
inn miðvikudag með skemmtilegri
þraut í anda Skólahreysti.
mm
Sigurður Smári Kristinsson, marg-
faldur Íslandsmeistari og keppnis-
maður með íþróttafélaginu Þjóti
á Akranesi um margra ára skeið,
hélt upp á fimmtugsafmæli sitt fyrir
skömmu. Við það tilefni flutti for-
maður Íþróttabandalags Akraness
afmæliskveðju frá Íþróttabandalag-
inu og veitti Sigurði Smára Starfs-
merki bandalagsins. Merkið er veitt
þeim sem unnið hafa íþróttaafrek
á vegum ÍA, skarað fram úr með
einhverju aðildarfélagi eða unnið
landsmót undir merkjum ÍA. Merk-
ið má aðeins veita félaga einu sinni.
„Sigurður Smári er vel að þessum
heiðri kominn og þess má geta að
hann er fyrsti íþróttamaðurinn í
Þjóti sem hlýtur þennan heiður.
Við óskum Sigurði Smára til ham-
ingju með afmælið og Starfsmerk-
ið,“ segir Sigurður Arnar Sigurðs-
son formaður ÍA.
mm
Nafnarnir Sigurður Arnar, formaður ÍA og Sigurður Smári í afmæli þess síðar-
nefnda.
Sigurður Smári fimmtugur og
heiðraður með Starfsmerki ÍA
Lífshlaupinu 2015
hleypt af stokkunum
Frá Grislingamóti 2015.
Fréttir frá Badmintonfélagi Akraness
Andri Árnason og Arna Karen Jóhannsdóttir.
Þorgils og Tristan Sölvi.