Skessuhorn - 11.02.2015, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Í hálfleik síðastliðinn fimmtu-
dag í körfuboltanum í Hólminum
var lýst kjöri Íþróttamanns Snæ-
fells fyrir nýliðið ár. Það er Hild-
ur Sigurðardóttir, fyrirliði deild-
ar- og Íslandsmeistara kvennaliðs
Snæfells síðastliðið vor sem hlýtur
það sæmdarheiti. Hildur var einn-
ig valin besti leikmaður síðustu
leiktíðar, með 15,4 stig að meðal-
tali í leik, 7,7 fráköst og 7,5 stoð-
sendingar. Hún var auk þess val-
in í landslið Íslands sem keppti í
C-keppni Evrópukeppninnar þar
sem hún var með 7,4 stig að með-
altali og 3,8 stoðsendingar í leik.
Hildur er í dag með 336 leiki að
baki og hvorki fleiri né færri en
4444 stig í efstu deild. Þá eru ein-
ungis taldir deildarleikir en ekki
leikir í úrslitakeppni eða bikar-
keppnum.
mm/ Ljósm. Eyþór Ben.
Bárumótið í sundi,
sem haldið er af Sund-
félagi Akraness, fór
fram föstudaginn 30.
janúar. Mótið er fyrir
sundmenn 8-12 ára og
er haldið í Bjarnalaug
í janúar ár hvert. Það
er haldið til minn-
ingar um Báru Daníels-
dóttur. Veittur er bikar
fyrir bestan árangur
samanlagt hjá hvoru
kyni. Að þessu sinni
eru Bárumeistararnir
þau Alex Benjamín
Bjarnason og Ngozi
Jóhanna Eze.
tg
Lið ÍA í fyrstu deild-
inni í körfuboltanum
vann sætan og mjög
mikilvægan sigur þeg-
ar Ísfirðingar komu
í heimsókn í íþrótta-
húsið í Vesturgötuna á
sunnudaginn. Framan
af leit alls ekki út fyrir
að Skagamenn myndu
fara með sigur af hólmi
í leiknum. Gestirn-
ir voru mun betra lið-
ið í fyrri hálfleiknum,
höfðu átta stiga forystu
eftir fyrsta leikhluta
19:11 og voru tólf stig-
um yfir í hálfleik, 39:27.
Allt annar bragur var á Skagalið-
inu í seinni hálfleiknum þótt það
tæki sinn tíma að vinna upp þetta
forskot gestanna. Þannig mun-
aði enn tíu stigum á liðunum fyrir
lokafjórðunginn en þá
fór allt að gerast. Há-
spenna var á lokamín-
útunum og með mikilli
seiglu og baráttuvilja
tókst Skagamönnum
að sigra með eins stigs
mun; 79:78.
Jamarco Warren
skoraði 27 stig fyr-
ir ÍA, Áskell Jónsson
22, Ómar Örn Helga-
son 12, Birkir Guðjóns-
son 6, Fannar Freyr
Helgason 4 og Oddur
Helgi Óskarsson 2. ÍA
er þar með aftur kom-
ið í fimmta sæti deild-
arinnar með 12 stig eftir 12 leiki.
Í næstu umferð mæta Skagamenn
neðsta liðinu í deildinni, Þór, norð-
ur á Akureyri, og fer leikurinn fram
næstkomandi sunnudag. þá
Skallagrímsmenn eru nú
komir algjörlega með
bakið upp við vegg eftir
tap gegn Fjölni í Graf-
arvoginum sl. föstudags-
kvöld í Dominosdeildinni. Leik-
urinn var gríðarlega mikilvægur
báðum liðum sem standa í harðri
fallbaráttu ásamt ÍR. Fjölnir sigr-
aði í leiknum með tíu stiga mun;
88:78. Með sigrinum er Fjölnir
með 8 stig og Skallagrímur og ÍR
með 6 stig þegar sex umferðir eru
eftir af deildarkeppninni. Ljóst er
að Skallagrímur þarf að vinna tvo
leiki af þessum sex til að halda sæt-
inu sínu og fleiri ef Fjölnismönnum
tekst að hala inn fleiri stig.
Leikurinn í Dalhúsum í Grafar-
vogi á föstudagskvöldið var hníf-
jafn framan af. Heimamenn unnu
fyrsta leikhluta 20:18 en Skalla-
grímsmenn snéru taflinu við í öðr-
um leikhluta þannig að jafnt var í
hálfleik 38:38. Það var í þriðja leik-
hluta sem Fjölnir náði að slíta sig
frá gestunum og var níu stigum
yfir fyrir lokafjórðunginn, 61:52.
Skallagrímsmönnum tókst ekki að
rétta sinn hlut á lokakaflanum og
það voru því Grafvarvogsbúar sem
fögnuðu að leik loknum.
Tracy Smith skoraði 23 stig fyr-
ir Skallagrím, Magnús Þór Gunn-
arsson og Sigtryggur Arnar Björns-
son 16 stig hvor, Egill Egilsson 8,
Trausti Eiríksson og Daði Berg
Grétarsson 6 stig hvor og Davíð
Ásgeirsson 3.
Skallagrímsmenn mæta næst í
Dominosdeildinni Stjörnumönn-
um í Garðabænum annað kvöld,
fimmtudag.
þá
Snæfellingar lágu fyrir Þór frá
Þorlákshöfn þegar liðin mættust í
Hólminum í Dominosdeildinni í
körfuknattleik síðastliðinn fimmtu-
dag. Leikurinn var mikilvægur báð-
um liðum sem fyrir umferðina voru
með jafnmörg stig í 5.-7. sæti deild-
arinnar. Þau berjast um að komast
upp í fjögurra liða pakkann á toppn-
um sem gefur heimaleikjaréttinn
þegar úrslitakeppnin hefst. Leik-
urinn var jafn framan af og mikil
barátta í fyrri hálfleiknum þar sem
Snæfell var yfir 23:21 eftir fyrsta
leikhluta en Þór yfir í hálfleik 49:47.
Gestirnir komu svo mun ákveðnari
til seinni hálfleiks á meðan Snæfell-
ingar spiluðu lélega vörn og virt-
ist skorta leikgleðina. Ellefu stigum
munaði á liðunum fyrir lokafjórð-
unginn í stöðunni 76:65 og heima-
mönnum tókst ekki að snúa leikn-
um sér í vil á lokakaflanum. Síðustu
mínútur leiksins voru tíðindalitl-
ar og eftirleikurinn tiltölulega auð-
veldur fyrir Þór sem sigaði 101:86.
Hjá Snæfelli var Chris Woods at-
kvæðamestur með 21 stig og 13 frá-
köst, Sigurður Þorvaldsson setti 20
stig, tók 5 fráköst og átti 4 stoð-
sendingar, Austin Magnús Bracey
15 stig, 6 fráköst og 4 stoðsend-
ingar, Pálmi Freyr Sigurgeirsson
og Snjólfur Björnsson 8 stig hvor,
Óli Ragnar Alexandersson 4, Stefán
Karel Torfason og Sindri Davíðsson
3 stig hvor og þeir Sveinn Arnar og
Viktor Marinó 2 stig hvor. Grétar
Ingi Vilbergsson var langatkvæða-
mestur í liði Þórs með 31 stig.
Snæfell er eftir tapið í 6. sæti
deildarinnar með 16 stig. Í næstu
umferð, þeirri sautjándu, fara Snæ-
fellingar í Frostaskjólið og mæta Ís-
landsmeisturum og toppliði KR.
Leikurinn er á dagskrá fimmtu-
dagskvöldið 12. febrúar.
þá/ Ljósm. Eyþór Ben.
Snæfellskonur stigu
ekki feilspor í topp-
baráttunni í Dom-
inosdeild kvenna
síðastliðinn laugar-
dag þegar Grinda-
v í k u r s t ú l k u r
komu í heimsókn.
Heimaliðið byrjaði
mjög vel í leiknum
og Snæfellskonur
gerðu nánast út um
leikinn í fyrri hálf-
leik. Niðurstaðan
var stórsigur Snæ-
fells, 101:76. Með
sigrinum er Snæ-
fell með 34 stig og
tveggja stiga for-
skot á Keflavík sem
er í öðru sætinu. Langt er í liðin í
þriðja og fjórða sætinu en það eru
Grindavík og Haukar með 24 stig.
Snæfell var komið í stöðuna
28:15 eftir fyrsta leikhluta og yf-
irburðirnir voru svipaðir í öðrum
leikhluta. Staðan var 57:29 í hálf-
leik og því forms-
atriði fyrir Snæ-
fellskonur að klára
leikinn. Þær héldu
reyndar áfram að
auka muninn með
því að vinna þriðja
leikhluta 27:14
en töpuðu síð-
an lokafjórðungn-
um 17:23. Hjá
Snæfelli var Krist-
en McCarthy at-
kvæðamest með
42 stig, Hild-
ur Sigurðardótt-
ir 19, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 12,
Berglind Gunnars-
dóttir 9, Hugrún
Eva Valdimarsdóttir 6, Alda Leif
Jónsdóttir 5 og María Björnsdótt-
ir og Helga Hjördís Björgvinsdótt-
ir 4 stig hvor.
Næsti leikur hjá Snæfellskonum
verður í Hveragerði í kvöld, mið-
vikudag, gegn Hamri. þá
Skallagrímur í erfiðri
stöðu eftir tap gegn Fjölni
Áskell Jónsson í þann
veg að leggja boltann
í körfu Ísfirðinga. Ljós-
mynd: Jónas Hallgrímur
Ottósson.
Skagamenn sigruðu
í háspennuleik
Stórsigur Snæfells-
kvenna á Grindavík
Helga Hjördís Björgvinsdóttir í
baráttu um boltann. Ljósm. eb.
Slakur seinni hálfleikur og tap gegn Þór
Sigruðu á Bárumótinu í sundi
Hildur Sigurðardóttir er
íþróttamaður Snæfells 2014