Skessuhorn - 25.03.2015, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2015
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Pennagrein
Frelsi til að
gera mistök
Þann 15. mars síðastliðinn birtist
greinin „Hugsjón eða tálsýn?” þar
sem fjallað var um starfsþróun og
hugmyndafræði þroskaþjálfa. Stór
hluti af þeirri hugmyndafræði er val-
defling sem fjallað verður um í þess-
ari grein. Grein þessi birtist upphaf-
lega á vísi.is þann 16. mars.
Þrátt fyrir að Ísland teljist velferð-
arríki er ljóst að margir einstaklingar
í okkar samfélagi búa við kröpp kjör
og njóta ekki fullra mannréttinda.
Til þessa hóps telst meðal annars
margt fatlað fólk sem býr við þann
veruleika að hafa lítil áhrif á eigið
líf og skipulag þess. Mörg heimili
fatlaðs fólks eru einnig vinnustaður
starfsfólks. Það krefst þess að starfs-
fólk sé meðvitað um sjálfsákvörðun-
arrétt einstaklinga og láti ekki skipu-
lag vinnustaðarins skerða vald ein-
staklingsins á sínu eigin heimili. Í
dag eru enn um það fjölmörg dæmi
að baðferðir einstaklinga séu skipu-
lagðar fyrirfram. Eitthvað sem fæst-
ir myndu vilja láta bjóða sér.
Á síðustu árum hefur orðið auk-
in umræða um hugtakið valdeflingu
(e. empowerment). Ekki eru þó allir
á eitt sáttir um nákvæma skilgrein-
ingu á hugtakinu og hvað felist í því.
Með valdeflingu er átt við að að-
stæðum og umhverfi einstaklinga
sé breytt þannig að þeir fái vald yfir
sínu eigin lífi. Gengið er út frá því
að einstaklingurinn sé sérfræðing-
ur í eigin lífi og taki ákvarðanir sem
hann snerta án tillits til þess hvað
kann að henta öðrum eða starfsemi
stofnana. Segja má að valdefling hafi
keðjuverkandi áhrif vegna þess að
eftir því sem einstaklingurinn fær
fleiri tækifæri til að stjórna eigin lífi
verður einstaklingurinn færari um
að velja og taka ákvarðanir og skapa
sér sína eigin framtíðarsýn. Að hafa
eitthvað um eigið líf að segja lætur
manni líða vel. Þá á maður sér rödd
sem heyrist!
Hugtakið valdefling felur vissu-
lega í sér vald en hefur hlotið já-
kvæðan hljómgrunn innan félags-
vísinda. Þar er valdefling álitin verk-
færi, sem auðveldar fólki að spyrna
fótum við nauðung og þvingunum.
Mikilvægt er að huga að því að horfa
á valdeflingu út frá einstaklingum og
umhverfi hans. Til þess að viðkom-
andi nái að eflast sem persóna þarf
hann að mæta skilningi frá aðilum í
umhverfinu. Hér er ekki aðeins ver-
ið að vísa til fjölskyldu og vina held-
ur allra sem koma að lífi viðkom-
andi, beint eða óbeint.
Meginkjarni valdeflingar ligg-
ur í því að einstaklingur taki ábyrgð
á þeim ákvörðunum er varða eig-
ið líf og rísi gegn hvers konar for-
ræði sem hann kann að búa við. For-
senda þessa er að viðkomandi sé fær
um að tjá sig svo aðrir skilji enda á
vald efling sér stað með félagslegum
samskiptum. Það er hlutverk starfs-
fólks svo sem þroskaþjálfa, vina,
fjölskyldu og fleiri aðila, að gera allt
sem í þeirra valdi stendur til að leita
leiða fyrir viðkomandi að koma máli
sínu á framfæri þarfnist hann að-
stoðar við það.
Okkur er eðlislægt að vilja ráða
okkur sjálf og hafa stjórn á aðstæð-
um okkar og því lífi sem við lif-
um. Í þjónustu við fatlað fólk hefur
löngum verið talið að farsælast sé að
hafa vit fyrir fötluðu fólki. Þetta eru
leyfar af gömlum hugsunarhætti.
Fatlað fólk á rétt á að gera mistök
eins og aðrir og þar með að draga
lærdóm af þeim. Almennt telst það
eðlilegur lífsins gangur að læra af
reynslunni. Forræðishyggja starfs-
manna, sem í huga sínum vilja vel,
getur ógnað sjálfstæði og vilja fatlaðs
fólks. Þarna reynir á fagmennskuna
enda þarf að sjálfsögðu að tryggja
velferð einstaklinga. Hins vegar
er hver fötluð manneskja fyrst og
fremst manneskja sem, líkt og hver
þjóðfélagsþegn, á sinn rétt til að
stjórna eigin lífi. Það er ekki meitlað
í stein að raddir og skoðanir fagfólks
hafi meira vægi en skoðanir og orð
fatlaðs fólks líkt og áður þótti sjálf-
sagt. Þvert á móti. Nú á dögum er
það hlutverk fagfólks að hjálpa fötl-
uðu fólki að skilja hvað felst í því vali
sem því stendur til boða.
Við búum í jafnréttissamfélagi þar
sem hver einstaklingur á að fá að
njóta sín óháð stöðu og atgervi líkt
og mannréttindasáttmáli Samein-
uðu þjóðanna kveður á um. Jafnrétti
merkir þó ekki að við séum öll eins.
Fatlað fólk er ekki einsleitur hópur
en sú mýta hefur þó svo sannarlega
staðið í vegi fatlaðs fólks. Við höfum
öll, hvort sem við erum fötluð eða
ekki, ólíkar væntingar til lífsins og
það dugir ekki að eitt sé látið yfir alla
ganga. Við eigum öll rétt á frelsi til
að stjórna eigin lífi. Hins vegar hafa
ekki allir þetta frelsi í reynd. Hvers
virði er frelsi til athafna fái einstak-
lingur ekki frelsi til að gera mistök?
Fanney Þorkelsdóttir og
Sylvía Ósk Rodriguez
Höfundar eru nemar á 3. ári í
þroskaþjálfafræði við
Háskóla Íslands.
Grundarfjörður er óumdeilanleg
skemmtiferðaskipahöfn Vestur-
lands númer eitt. Það er ljóst þeg-
ar listinn er skoðaður yfir áætlaðar
komur þessara skipa í sumar. Fyrsta
skipið, MV Voyager, hafði boð-
að komu sína síðastliðinn mánu-
dag en skilaði sér svo ekki þegar
til kom. Engu að síður eru 29 skip
væntanleg á þessu ári, það fyrsta
16. maí og það síðasta í lok sept-
ember. Eins og lesa má á meðfylgj-
andi töflu þá eru skipin af ýmsum
stærðum. Veglegast er Costa For-
tuna sem kemur og leggst við fest-
ar á Grundarfirði laugardaginn 27.
júní.
mþh
Þrjátíu komur skemmtiferðaskipa til
Grundarfjarðar í sumar
Hér koma starfsmenn Grundarfjarðarbæjar Discovery í landfestar.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.
!
Nafn skips: Brúttótonn: Lengd: Breidd: Dagsetning komu: Tími í
Grundarfirði
Amadea 29 008 193 25 16. maí 13 – 22
Fram 11 647 114 24. maí 8 – 14
Saga Pearl 2 18 591 164 23 27. maí 7 – 18
Sea Spirit 4 200 90 15 1. Júní 12 – 20
Fram 11 647 114 3. Júní 8 - 16
Sea Spirit 4 200 90 15 3. Júní 8 - 18
Amadea 29 008 193 25 12. júní 7 – 13
Albatros 28 518 205 25,5 18. júní 7 – 14
Sea Explorer 4 200 90 15 22. júní 13- 20:30
Costa Fortuna 102 587 273 36 27. júní 8 – 20
Hanseatic 8 378 123 18 1. júlí 8 – 19
Albatros 28 518 205 25,5 6. júlí 7 – 14
Berlín 9 570 139 17,5 6. júlí 8 – 20
Berlín 9 570 139 17,5 10. júlí 7 – 20
Fram 11 647 114 13. júlí 14 - 20
Le Solelal 10 700 142 15. júlí 11 - 18:30
Le Solelal 10 700 142 22. júlí 11 – 18:30
Saga Pearl 2 18 591 164 23 23. júlí 9 – 17
Ocean Princess 30 277 181 25. júlí 9 – 18
LE Boreal 10 700 142 28. júlí 13 – 20
Costa Fortuna 102 587 273 36 29. júlí 8 – 20
Le Boreal 10 700 142 30. júlí 11 – 18:30
Le Boreal 10 700 142 6. ágúst 11 – 18:30
Star Legend 9 961 135 19 12. ágúst 13 – 20
Silver Explorer 6 130 108 15,6 14. ágúst 7 – 18:30
The World 43 188 196 30 20. ágúst
Fram 11 647 114 9. september 8 – 18
Fram 11 647 114 11. september 8 – 18:30
Sea Spirit 4 200 90 15 26. september 8 – 17