Skessuhorn - 29.04.2015, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015
Dagskrá:
Hátíðin sett: 1. Eiríkur Þór Theódórsson, stjórnarmaður í ASÍ-UNG og
trúnaðarmaður hjá Stéttarfélagi Vesturlands
B2. arnakór Borgarness syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur
Ræð3. a dagsins: Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands
N4. emendur úr þriðja bekk Grunnskóla Borgarness
Sö5. ngfjölskyldan úr Kveldúlfsgötunni flytur nokkur lög, Zsuzsanna
Budai leikur með á flygilinn
Int6. ernasjónalinn
Kynnir: Hrefna Ásgeirsdóttir trúnaðarmaður Kjalar
Félögin bjóða samkomugestum upp á kaffiveitingar að lokinni dagskrá.
Útskriftarnemar Menntaskólans sjá um kaffihlaðborðið.
Tvær kvikmyndasýningar verða fyrir börn í Óðali kl. 13:30 og 15:30,
boðið verður upp á popp og ávaxtasafa.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
1. MAÍ 2015
Í BORGARNESI
Hátíðarhöldin verða í Hjálmakletti
og hefjast kl. 14.00
GRUNDARGÖTU 30, 350 GRUNDARFIRÐI
SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501
Grundarfjarðarbær
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi
Grundarfjarðar 2003-2015
Aðveitustöð – Aðalskipulagsbreyting
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 20. mars 2015 að auglýsa breytingu
á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015 samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meginmarkmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að bæta afhendingaröryggi raforku á svæðinu með færslu
tengivirkis í aðveitustöð og lagningu jarðstrengja, auk þess að færa aðveitustöðina fjær íbúðabyggð.
Markmiðið er einnig að breytingin valdi sem minnstri röskun á umhverfinu til lengri og skemmri tíma.
Aðalskipulagsbreytingin verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og
byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 29. apríl 2015 til 11. júní 2015. Þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér aðalskipulagsbreytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á
framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður eða
á netfangið bygg@grundarfjordur.is í síðasta lagi 11. júní 2015.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði.
Auglýsing um nýtt deiliskipulag vestan Kvernár - Aðveitustöð
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 20. mars 2015 að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu samkvæmt
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillaga er auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi 2003-2015.
Skipulagssvæðið er áætlað fyrir eina iðnaðarlóð og aðkomu að henni. Á lóðinni sem er 4.900 m² að stærð, er heimilt að
reisa allt að 620m² byggingu. Hámarkshæð húss er 8.25 m frá gólfi jarðhæðar. Skipulagssvæðið sem er rúmir 7.6 ha er
suðaustan þéttbýlisins og liggur á milli ánna Gilóss og Kvernár. Sjá nánar í deiliskipulagstillögu og greinagerð.
Deiliskipulagstillagan og greinagerðin verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu
skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 29. apríl 2015 til 11. júní 2015.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér deiliskipulagstillöguna og koma ábendingum eða
athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar,
Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður, í síðasta lagi 11. júní 2015.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Ljómalind Sveitamarkaður verður
opnaður á nýjum stað í Borgarnesi
föstudaginn 1. maí. Sveitamark-
aðurinn er rekinn af tíu konum af
Vesturlandi sem allar selja vörur í
versluninni. Ljómalind hefur nú
hreiðrað um sig á Brúartorgi 4, við
hlið Framköllunarþjónustunnar og
gegnt N1. Á nýja staðnum verður
enn fjölbreyttara úrval handverks
og matvöru af Vesturlandi og nýj-
ar vörur í hverri viku. Í sumar verð-
ur opið alla daga á milli klukkan 11
og 18.
-fréttatilkynning frá Ljómalind-
arkonum
Vilhjálmur Birgisson formaður
Verkalýðsfélags Akraness og trún-
aðarmenn HB Granda á Akranesi
funduðu á þriðjudaginn í síðustu
viku með forstjóra HB Granda. Á
fundinum var lagt fram tilboð frá
stjórn VLFA um hækkun á bón-
uskerfi starfsmanna fyrirtækisins.
Varð niðurstaðan sú að stjórnend-
ur HB Granda gengu að því til-
boði nánast óbreyttu. Þessi hækk-
un bónusgreiðslna er óháð hækkun
almennra kauptaxta sem enn á eftir
að semja um. Þessi hækkun bónus-
greiðslna skilar starfsmönnum HB
Granda frá 9% upp í 18% launa-
hækkun, en launahækkunin mið-
ast við að bónusinn taki mið af
starfsaldurshækkunum. Má áætla
að þessi launahækkun nái til allt
að 250 starfsmanna í fiskvinnslu á
Akranesi sem eru auk frystihúss
HB Granda, Laugafiskur, Norð-
anfiskur og Vignir G. Jónsson. Auk
þess mun þessi bónushækkun vænt-
anlega einnig gilda fyrir öll önn-
ur fiskvinnslufyrirtæki sem HB
Granda á, eins og í Reykjavík og
Vopnafirði.
Vilhjálmur Birgisson formaður
VLFA segir að hér sé um umtals-
verða kjarabót að ræða fyrir starfs-
menn HB Granda, en ítrekar að
einungis sé um breytingu á bónus-
kerfi starfsmanna að ræða. Samn-
ingurinn hafi ekkert með þær kjara-
viðræður að gera sem félagið á í við
Samtök atvinnulífsins. Þessar breyt-
ingar á bónuskerfinu séu því hrein
viðbót við það sem um mun semjast
á því samningsborði. „Verkalýðs-
félag Akraness hefur ætíð gagnrýnt
fyrirtæki harðlega þegar þau hafa
ekki staðið sig sem skyldi en félagið
er svo sannarlega tilbúið að fagna
því sem vel er gert og í þessu til-
felli er full ástæða til að fagna því að
fyrirtækið hafi verið tilbúið að deila
góðri afkomu sinni með starfs-
mönnum með nokkuð myndarleg-
um hætti í formi hækkunar á bón-
uskerfinu,“ segir Vilhjálmur. Tafla
um bónushækkanirnar má sjá inn á
vef VLFA. þá
Ljómalind opnuð á
nýjum stað 1. maí
Samið um umtals-
verðar bónushækkanir
við HB Granda
Trúnaðarmenn og forstjóri HB Granda skrifa undir samninginn síðastliðinn
miðvikudag. Ljósm. vlfa.is