Skessuhorn - 29.04.2015, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015
Einn reynslumesti leikmaður Ska-
galiðsins fyrir komandi sumar er
markahrókurinn Garðar Berg-
mann Gunnlaugsson sem á dögun-
um fagnaði sínum 32. afmælisdegi.
Garðar átti geysilega gott tíma-
bil í fyrstu deildinni síðasta sumar
þar sem hann var markakóngur og
reyndar sá markahæsti í öllum deild-
um á Íslandi, með 19 mörk í 21 leik
á Íslandsmótinu. Þar sem við Garð-
ar sitjum og spjöllum á kaffihúsinu
Skökkinni við Akratorg á sumardag-
inn fyrsta hefur blaðamaður orð á því
að síðasta sumar hafi einmitt komið
þessi tíu-fimmtán marka maður sem
Skagaliðinu hafði skort í nokkur ár.
„Já, þá sýndi hann sig loksins,“ seg-
ir Garðar og brosir. „Og núna erum
við tveir framherjarnir í Skagalið-
inu sem þessar kröfur eru gerðar til
og ég er vongóður um að við stönd-
um undir. Félagi minn í framlínunni
Arsenij, sem við köllum Sjenna, hef-
ur komið gríðarlega sterkur inn í
liðið og skoraði sjö mörk í Lengju-
bikarnum, þar af þrennu í tveimur
leikjum í röð,“ segir Garðar.
Finnur sig sterkari en í
fyrra
Spurður um stöðuna hjá honum
sjálfum segir Garðar að hann sé í
fínu standi um þessar mundir. „Þetta
er annar veturinn sem ég er nánast
meiðslalaus eftir langt meiðslatíma-
bil þar á undan. Mér gekk vel í vetur,
var að spila ágætlega og lék margar
90 mínútur með liðinu. Mér finnst
ég vara sterkari núna en nokkru
sinni fyrr, talsvert sterkari en ég var
á sama tíma í fyrra.“ Garðar segir að
hann og Arsenij Buinickij falli mjög
vel saman í framlínunni. Gunn-
laugur Jónsson þjálfari hafi greini-
lega lesið vel út úr því þegar hann
fékk Litháann til ÍA. „Já, hann var
hugsaður sem minn „partner“ og
við virðumst passa mjög vel saman.
Sjenni er mjög skemmtilegur bæði
innan vallar og í búningsklefanum.“
Garðar segist hafa góða tilfinn-
ingu fyrir sumrinu. „Þetta er mikið
í okkar höndum, hvort við höldum
góðu leikskipulagi og sköpum góða
liðsheild. Ég held við getum unnið
öll liðin en ef við mætum ekki rétt
stemmdir þá getum við tapað fyrir
öllum. Við höfum sýnt það í vetur
að við erum ekki síst sterkir sóknar-
lega, höfum verið að skora bæði eftir
góðar sóknir og föst leikatriði. Ég er
bjartsýnn á að við munum gera það í
sumar. Við erum með fullt af mönn-
um sem geta skorað mörk.“ Garð-
ar býr og starfar í Reykjavík og ekur
á milli á æfingar og í leiki. Er hann
svona mikill Skagamaður að þetta sé
leggjandi á sig? „Já, mig langar ekki
til að spila með öðru liði í efstu deild
en ég hef fengið nokkur tilboð. Það
er lítið mál að leggja þetta á sig fyrir
klúbbinn sinn.“
Fáum strax tækifæri að
sýna getuna
Garðar segist vera spenntur fyrir
fyrsta leik og kvíði því ekki að mæta
Íslandsmeisturunum. Hann von-
ast eftir góðri mætingu á völlinn og
vill að stuðningsmenn ÍA liðsins og
liðið fari að skapa þá stemningu að
það verði virkilega erfitt að koma
á Skagann og sækja þangað stig.
„Undanfarin ár hafa liðin peppast
upp á að koma á Skagann og sum
átt sína bestu leiki hér. Við verðum
að fara að snúa þessu við þannig að
liðin óttist virkilega að koma hing-
að. Það verður bara gaman að taka á
móti Stjörnunni í fyrsta leik og gott
fyrir okkur að geta strax sýnt getu
okkar á móti Íslandsmeisturunum,“
segir Garðar.
Spurður um breiddina í leik-
mannahópnum segir Garðar að hún
sé nokkuð góð. „Við erum með leik-
menn sem geta spilað nokkrar stöð-
ur og það er samkeppni í liðinu.
Hallur Flosa var til dæmis að koma
inn á hægri kantinn og átti stórkost-
legan leik á móti Fjölni um daginn
þar sem hann lagði upp þrjú mörk.
Þórður Þorsteinn, sem var að spila
á kanti áður, hefur komið sterkur út
í bakvarðarstöðunni þannig að það
er margt jákvætt að gerast.“ Spár
hafa margar hverjar gert ráð fyrir
að ÍA verði í neðri hluta deildarinn-
ar og að berjast fyrir sinni tilveru í
deildinni. En hefur Garðar kannski
trú á að liðið verði ofar? „Það gæti
alveg gerst og þetta ræðst mikið af
því hvernig við komum inn í mót-
ið og útkoman verður fyrsta mán-
uðinn fram að landsleikjahléi. Núna
eins og síðustu árin er hálfgert hrað-
mót í byrjun, 5-6 leikir í bunu. Það
getur allt gerst en það er klárlega
spennandi sumar framundan,“ sagði
Garðar að endingu. þá
Fótboltinn í sumar
Fyrirliði Skagaliðsins í sumar verð-
ur líkt og síðasta sumar hinn stóri
og stæðilegi Ármann Smári Björns-
son, enda aldursforsetinn og einn
mesti reynsluboltinn. „Sumarið
leggst mjög vel í mig. Ég held að
framundan sé spennandi keppnis-
tímabil. Við erum með góða blöndu
í liðinu, yngri og eldri leikmanna og
flestir strákarnir Skagamenn. Það
er margt jákvætt í því að vera mikið
með heimamenn í liðinu. Mér sýnist
að einir átta heimastrákar eigi mjög
raunhæfa möguleika á byrjunarliðs-
sæti í sumar. Þau eru fá ef einhver
liðin sem geta státað af svo mörg-
um uppöldum leikmönnum í sínum
leikmannahópum. Í leikjunum í vet-
ur hefur liðið verið að spila í heildina
vel. Þessir þrír sem fengnir voru til
að styrkja hópinn, erlendu leikmenn-
irnir tveir og Ásgeir kantmaður, hafa
verið að smella inn og mér sýnist þeir
vera tilbúnir í slaginn með okkur.“
Greinileg framför í
hópnum
Ármann Smári segir að greinleg
framför sé í hópnum og til að mynda
séu nokkrir ungir leikmenn að banka
á dyrnar hjá meistaraflokknum. „Það
er strákar eins og Þórður Þorsteinn í
bakverðinum sem ég er mjög ánægð-
ur með, Albert á miðjunni, Stein-
ar Þorsteinsson hefur verið að fá
tækifæri og fleiri strákar.“ Spurður
hvernig honum finnist að fá Íslands-
meistarana strax í fyrsta leik og það
á Akranesvelli, segir Ármann Smári
að sér finnist það flott. „Það er gam-
an að byrja strax á alvöruleik og sýna
hvers við erum megnugir. Ég hef líka
trú á því að Skagamenn séu tilbúnir
að fjölmenna á völlinn. Stemningin
er að byggjast upp smátt og smátt.
Núna í vikunni, á fimmtudagskvöld-
ið, verður stuðningsmannakvöld þar
sem bæði karla- og kvennaliðið verð-
ur kynnt. Stemningin og eftirvænt-
ingin á bara eftir að magnast eft-
ir þetta. Ég hef fulla trú á því að við
munum standa okkur vel í sumar og
verða bæjarfélaginu til sóma.“
Stuðningur áhorfenda
mikilvægur
Aðspurður segist Ármann Smári
ekkert vera að velta sér upp úr því í
hvaða sæti Skagaliðið komi til með
að lenda þegar upp verður staðið í
haust. „Ég fylgist ekkert með spán-
um og hef engan áhuga á þeim. Þær
eru eins og veðurfræðingarnir segja;
bara spár. Það sem skiptir öllu máli er
að við náum að halda sætinu og festa
okkur í sessi í efstu deild. Það er það
sem Skagamenn vilja fyrst og fremst.
Ég vil hvetja fólk til að mæta vel á
völlinn og styðja við bakið á okkur.
Liðið hefur alla burði til að gera góða
hluti en það er mjög mikilvægt fyr-
ir okkur að byrja vel. Þetta er mik-
ið undir okkur sjálfum komið. Ef við
stöndum vel saman og sköpum góða
liðsheild falla hlutirnir áreiðanlega
frekar með okkur. Stundum þarfs
smáheppni til að vel gangi en stuðn-
ingur áhorfenda hefur líka gríðarlega
mikið að segja,“ segir Ármann Smári
fyrirliði Skagaliðsins. þá
Gunnlaugur Jónsson þjálfari er
á sínu öðru keppnistímabili með
Skagaliðið. Hann kom til starfa
hjá ÍA haustið 2013 þegar allt var
í molum eftir fall úr Pepsídeildinni
niður í þá fyrstu. „Það var ákveðið
að byggja upp og ráðast í breyting-
ar. Við breyttum leikmannahópn-
um talsvert og ákváðum að byggja
liðið upp á heimamönnum. Stefn-
an var sett á sterka liðsheild og fara
upp að nýju. Þrátt fyrir að hiksta í
byrjun og um miðbik síðasta sum-
ars komum við til baka, sýndum
sterkan karakter og náðum að end-
urheimta sætið í efstu deild. Það er
aðall góðs liðs að takast á við mót-
lætið og ég held það hafi verið lyk-
ilatriði hjá okkur hérna á Skagan-
um að fara beint upp aftur,“ segir
Gunnlaugur og bætir við: „Undir-
búningstímabilið núna hefur verið
gott. Gengið var ágætt hjá okkur í
Lengjubikarnum þó við höfum tap-
að í vítaspyrnukeppni í undanúr-
slitum gegn KA. Ég held við höfum
gott veganesti inn í Íslandsmótið.“
Ætla að trufla titilvörn
Stjörnumanna
Gunnlaugur segir að síðasta haust
hafi verið ákveðið að treysta að
mestu á leikmannahópinn en
styrkja hann aðeins fyrir sterkari
deild. „Ég held að flestir ef ekki
allir leikmenn hafi verið að taka
skref fram á við í vetur og liðið sé
betra núna en þegar við byrjuðum
í fyrstu deildinni fyrra. Við erum
með skipulagðara og þéttara lið en
fyrir ári. Við megum samt ekki við
miklum skakkaföllum. Hópurinn
hjá okkur er ekki stór og heilt yfir
þurfum við á öllum okkar mann-
skap að halda, sérstaklega yrði það
slæmt að missa lykilleikmenn út
vegna meiðsla.“ Spurður hvort að
byrjunarliðið sé klárt í fyrsta leik,
segir Gunnlaugur að svo sé ekki,
enda tíu dagar í mót þegar blaða-
maður Skessuhorns hitti hann að
máli. „Nei, það er hörð keppni
um nokkrar stöður og það á eftir
að taka ákvarðanir með þær. Von-
andi verða allir heilir þegar kem-
ur að leiknum. Við þurfum á öllu
að halda í þennan fyrsta leik á móti
Íslandsmeisturunum. Ég held það
verði ekki erfitt að undirbúa liðið
fyrir þennan leik sem verður opn-
unarleikur í deildinni og í beinni
útsendingu í sjónvarpi. Við ætlum
að trufla titilvörnina hjá þeim,“
segir Gunnlaugur.
Svörum spádómunum
á vellinum
Þegar Gunnlaugur er spurður
hvernig honum lítist á spádómana
fyrir tímabilið, þar sem Skagalið-
inu er ekki spáð góðu gengi, seg-
ir hann: „Við erum ekki að missa
svefn yfir þeim en það er kannski
bara eðlilegt að nýliðum sé ekki
spáð sæti ofarlega í deildinni. Við
svörum öllum hrakspám best á
vellinum, ekki gerum við það í við-
tölum í fjölmiðlum,“ segir Gunn-
laugur. Hann segir ekkert launung-
armál að mörg félög í Pepsídeild-
inni hafi mjög öfluga leikmanna-
hópa og sum hver fleiri stjörnur
í sínum liðum en Skagaliðið. „Ég
held að styrkur okkar verði góð
liðsheild og það verður það sem
við leggjum upp með. Það þekkja
allir sitt hlutverk á vellinum og að-
all sterks liðs er að allir leikmenn
séu tilbúnir að berjast fyrir hvern
annan. Við erum með marga leik-
menn sem geta spilað fleiri en eina
stöðu. Markmið okkar eru skýr.
Við teljum okkur nógu góða til að
standa okkur í efstu deild. Við ætl-
um að byggja upp sterkan kjarna
sem nær fótfestu í efstu deild og
ná þeim stöðugleika að Skaginn
eigi lið í efstu deild til frambúð-
ar. Leikmennirnir mínir vilja sýna
sig og sanna. Margir hafa reynslu í
efstu deild og ungu strákarnir vilja
ná sér í hana líka og komast á legg
sem framtíðar fótboltamenn. Við
vonumst síðan efir að Skagamenn
verði duglegir að mæta á völlinn
og eigi skemmtilegt fótboltasum-
ar með okkur,“ segir Gunnlaugur
Jónsson.
þá
Styrkur okkar verður góð liðsheild
Gunnlaugur Jónsson þjálfari.
Garðar Gunnlaugsson var markahæsti maður yfir allar deildir Íslandsmótsins í
fyrra.
„Við erum með fullt af mönnum sem geta skorað“
„Spárnar bara spár eins og
veðurfræðingarnir segja“
Ármann Smári Björnsson fyrirliði ÍA liðsins í Pepsídeildinni.