Skessuhorn - 29.04.2015, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015
Lionsmenn á Akranesi héldu aðal-
fund sinn í fundastofu Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands á Akranesi
þriðjudaginn 21. apríl. Þar afhentu
þeir slysadeild sjúkrahússins að gjöf
gjörgæslutæki af nýjustu tegund frá
framleiðandanum General Electric
Health. Tækið kostar um 2,5 millj-
ónir króna. Þessi búnaður leysir af
hólmi eldri og einfaldari tækjabúnað
á slysadeild sem reyndar hefur ver-
ið bilaður um hríð. Tækjabúnaður-
inn þjónar því hlutverki að fylgjast
með lífsmörkum sjúklinga sem koma
til meðferðar og veitir heilbrigðis-
starfsfólki aukið öryggi í umönn-
un og viðbrögðum. Tækið er sam-
ræmt öðrum búnaði sem er á legu-
deild og ef til flutnings kemur yfir á
legudeild, þá þarf ekkert rof að verða
á mælingum á lífsmörkum, svo sem
hjartslætti, blóðþrýstingi og súrefnis-
mettun. Heilbrigðisstarfsfólk sjúkra-
hússins kynnti tækið á fundinum og
Guðjón Brjánsson forstjóri ávarpaði
gefendur og færði þeim þakkir fyr-
ir ríkulegan stuðning Lionsmanna
við stofnunina í áratugi. Benti Guð-
jón á að það ætti við bæði karla- og
kvennaklúbb Lionsmanna.
Þá má geta þess að auk þess að færa
sjúkrahúsinu þetta tæki að gjöf, þá
tók Lionsklúbburinn verulegan þátt
í söfnun fyrir nýju tölvusneiðmynda-
tæki sem afhent var á aðalfundi Holl-
vinasamtaka HVE síðastliðinn laug-
ardag og sagt er frá í annarri frétt í
blaðinu í dag. mm
Lionsmenn gefa
gjörgæslubúnað
Fulltrúar gefenda og þiggjenda þegar slysadeild HVE var afhentur gjörgæslu-
búnaðurinn.
Þegar vorið ber að með þeim hætti
sem nú, aukast enn vangavelt-
ur okkar Íslendinga um veður og
loftslag og varla hittist fólk þessa
dagana að ekki sé minnst á veðr-
ið. Næstu gestir fyrirlestraraðar
Snorrastofu verða í takt við þetta
umhugsunarefni. Astrid Ogilvie
veðurfarssagnfræðingur og Trausti
Jónsson veðurfræðingur fjalla um
veðurfar á Íslandi frá siðaskiptum.
Erindi þeirra verða í Bókhlöðu
Snorrastofu þriðjudagskvöldið 5.
maí næstkomandi kl. 20:30.
Í erindunum, sem bæði verða
flutt á íslensku, verður fjallað um
ritaðar heimildir um veðurfar á Ís-
landi á síðari öldum og greiningu á
þeim. Nokkur áhersla verður á ha-
fískomur hér við land. Astrid Ogil-
vie segir frá greiningum Þorvald-
ar Thoroddsen, Lauge Koch, Páls
Berþórssonar og fleiri og síðan frá
eigin vinnu við heimildir um veð-
urfar og ís allt til síðari hluta 19.
aldar. Þar kemur fram mat henn-
ar á áreiðanleika og gildi heim-
ildanna og hvað læra megi af þeim
varðandi veðurfarssveiflur á síð-
ari öldum. Trausti Jónsson fjallar
um hérlendar veðurathuganir með
mælitækjum á 18. og 19. öld sem
og hafískomur á 20. öld.
Dr. Astrid Ogilvie er veðurfars-
sagnfræðingur, sem vinnur nú við
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar á
Akureyri. Doktorsritgerð henn-
ar frá Háskólanum í East Anglia
í Bretlandi fjallar um veðurfar
og samfélag á Íslandi í ljósi sagn-
fræði og raunvísinda. Hún legg-
ur áherslu á að brúa bilið á milli
vísindagreina og koma á samstarfi
milli þeirra um málefni norður-
slóða. Hún hefur skrifað fjölda
greina, ritstýrt bókum og stjórnað
ráðstefnum víða um heim um ofan-
greind málefni.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
býr í Borgarnesi og hefur starfað
á Veðurstofu Íslands síðan 1979.
Hann vann þar fyrstu árin við veð-
urspár en hefur allar götur síð-
an unnið við úrvinnslu veðurat-
hugana og veðurfarsrannsóknir
auk þess að taka þátt í verkefnum
tengdum mati á náttúruvá. Hann
hefur m.a. unnið við skráningu og
samræmingu veðurathugana frá
fyrri tíð, allt aftur til 1749.
Aðgangseyrir er að venju kr. 500
og boðið verður til kaffiveitinga og
umræðna.
-fréttatilkynning
Rætt um veðurfar frá því um siðaskipti í
fyrirlestri í Snorrastofu
Silja Eyrún Steingrímsdóttir tekur
við sem skrifstofustjóri Stéttarfélags
Vesturlands 15. maí næstkomandi.
Silja er með bakkalár gráður í heim-
speki, hagfræði og stjórnmálafræði
– HHS, frá Háskólanum á Bifröst
og mastersgráðu í opinberri stjórn-
sýslu, með áherslu á mannauðsstjór-
nun frá Háskóla Íslands. „Ég er fædd
og uppalin á Akranesi, dóttir Maríu
Bjargar Hreinsdóttur og Steingríms
Guðjónssonar, heitins. Ég er búin að
vera með annan fótinn í Borgarnesi
frá 1998 en flutti alfarið árið 2006,“
útskýrir Silja. Hún er gift Pálma Þór
Sævarssyni, byggingatæknifræðingi
hjá Verkís.
Eignaðist fjögur börn á
námstímanum
„Við Pálmi byrjuðum saman um
verslunarmannahelgina 1998. Ég var
í námi í Fjölbrautaskóla Vesturlands
og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
og útskrifaðist með stúdentspróf
2003. Á námstímanum eignuðumst
við Pálmi okkar fyrsta dreng, Mar-
inó Þór sem er fæddur í desember
2002. Í júlí 2005 fluttum við til Dan-
merkur og vorum þar í hálft ár og
Pálmi byrjaði í byggingatæknifræð-
inni. Við komum heim í janúar 2006
og þá fljótlega vorum við alflutt í
Borgarnes og ég hóf nám við Há-
skólann á Bifröst. Við eignumst ann-
an dreng, Sævar Alexander í nóvem-
ber 2007 og ég held náminu áfram
og útskrifast árið 2009. Eftir útskrift
fór ég að vinna í búsetuþjónustu fatl-
aðra þar til ég eignast þriðja soninn,
Birgi Ívar í nóvember 2009. Ári síð-
ar byrjaði ég í mastersnáminu í HÍ
og var í fullu námi þar til að ég varð
ólétt af stelpunni okkar henni Rak-
el Maríu. Vegna veikinda á með-
göngunni varð ég að taka hlé á námi
og varð að stoppa þegar aðeins rit-
gerðin var eftir. Eftir að Rakel María
fæðist í september 2012, þá grein-
ist ég með sortuæxli sem ég er enn
í eftirfylgni með. Þetta var alvarlegt
og ég var heppin að það var skurð-
tækt og krabbameinið ekkert farið
að dreifa sér. Við greininguna voru
gerð nokkur læknamistök sem urðu
til þess að þetta vatt upp á sig og varð
þannig í raun dramatískara en ella,“
rifjar Silja upp og heldur áfram. „En
að ég skyldi vera með sortuæxli kom
mér rosalega á óvart. Svona ung kona
eins og ég sem var ný búin að eiga
barn fengi ekki krabbamein,“ segir
Silja með lýsandi hætti. „Að auki er
ég ekki í þeim hópi sem telst í meiri
áhættu en aðrir, það er að segja ég
sólbrenn ekki auðveldlega, fer ekki
í ljósabekki eða óhófleg sólböð. En
það sem ég komst að eftir þetta er
hvað það er mikilvægt að fara reglu-
lega í blettaskoðun til húðsjúkdóma-
læknis, mælt er með að gera það ár-
lega eða annað hvert ár.“
„Hættið þessu
kapphlaupi“
Stuttu eftir að Silja fór í aðgerð þar
sem sortuæxlið var fjarlægt með
góðum árangri dundu fleiri áföll yfir
fjölskylduna. „Pabbi greindist með
lungnakrabbamein sem hafði dreift
sér víða og okkur var strax gerð
grein fyrir því að það væri mjög lítil
von um að hann myndi lifa krabba-
meinið af. En hann lést aðeins fjór-
um mánuðum eftir greining þann-
ig að þetta gekk mjög hratt yfir og
var mjög erfitt tímabil. Ég tók mér
alveg hálft ár í að jafna mig eftir
þessi áföll. Ég reyni að draga lær-
dóm af þessu og vera hamingju-
söm, lífið er ævintýri og við verð-
um að njóta hvers dags. Pabbi vildi
að við drægjum lærdóm af öllum
þessum veikindum og áföllum.
Pabbi sagði: „Skilboðin eru kær-
leikur, haldið utan um hvort ann-
að, hjálpið hvort öðru. Peningarn-
ir skipta ekki öllu máli og hættið
þessu kapphlaupi“ og mér þykja
þetta góð skilaboð.“
Markviss uppbygging
Silja gerði sér grein fyrir því að mik-
ið hefði gengið á og að hún þyrfti að
byggja sig markvisst upp aftur. „Ég
ákvað að árið 2014 væri árið mitt og
ég reyndi að gera sem mest til að
byggja mig upp aftur. Ég fór í Mátt
kvenna námskeið hjá Háskólanum
á Bifröst, á Dale Carnegie nám-
skeið og síðast en ekki síst kláraði
ég mastersritgerðina mína og út-
skrifaðist í október 2014 með mast-
ersgráðu í opinberri stjórnsýslu frá
HÍ.“ Hún byrjaði svo í maí 2014
sem afgreiðslufulltrúi hjá Borgar-
byggð og á sama tímapunkti hóf
Pálmi maður hennar störf í Noregi.
„Það þýðir að hann vinnur í burtu
í þrjár vikur og vinnur svo heima
eina viku. Þetta er ekki fjölskyldu-
vænt fyrirkomulag, en maður getur
lagt þetta á sig í smá stund. Lífið er
stundum þannig að maður þarf að
leggja á sig til að uppskera. En við
gætum þetta ekki án þess góða bak-
lands sem við eigum og alls góða
fólksins í kring um okkur.“
Silja segist hlakka til að taka við
nýja starfinu og þeim verkefnum
sem því fylgi. „Mitt hlutverk verð-
ur að sjá um daglegan rekstur stétt-
arfélagsins og samskipti við félags-
menn. Vinnan leggst vel í mig og ég
er mjög spennt að byrja,“ segir Silja
glaðlega að endingu.
eha
Silja er nýr skrifstofustjóri Stéttarfélags Vesturlands
Silja við tilvitnunina góðu sem hún hefur á áberandi stað á heimilinu, til að minna sig á þessi mikilvægu skilaboð.
Hjónin á góðri stundu í Bergen, þegar
Silja fór með krakkana og heimsótti
Pálma um páskana.
Marinó Þór, Sævar Alexander, Birgir
Ívar og Rakel María stilltu sér upp í
myndatöku fyrir blaðamann.