Skessuhorn - 29.04.2015, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015
Laugardaginn 2. maí mun Erna
Hafnes bæjarlistamaður Akraness
opna myndlistarsýninguna sína
Óskasteina í Guðnýjarstofu, Safn-
asvæðinu á Akranesi. Þetta er þriðja
myndlistarsýningin en jafnframt sú
stærsta sem Erna heldur sem bæj-
arlistamaður Akraness. Með henni
munu nemendur úr 4. bekk Brekku-
bæjarskóla sýna myndir sínar sem
þeir hafa málað undir hennar leið-
sögn. Hanna Þóra Guðbrandsdótt-
ir sópransöngkona og Samúel Þor-
steinsson tón- og leiklistarkennari
koma fram á opnuninni sem verður
kl. 14:00 - 16:00. Sýningin stend-
ur til 31. maí og er opin alla daga
kl. 13-17.
-fréttatilkynning
Leikskólarnir í Borgarnesi; Kletta-
borg og Ugluklettur, héldu í fyrsta
skipti Leiðtogadag hátíðlegan mið-
vikudaginn 22. apríl. Leiðtogadag-
urinn er haldinn í tengslum við leið-
togaverkefnið „Leiðtoginn í mér“
(e. Leader in me) sem hefur ver-
ið innleitt í leikskólum og grunn-
skólum Borgarbyggðar. Leiðtoga-
deginum er ætlað að vera nokkurs
konar uppskeruhátíð og gefa börn-
unum tækifæri á að sýna afrakstur
mikilla æfinga og innleiðing venj-
anna sjö sem leiðtogaverkefnið
byggir á. Innleiðing venjanna er í
samstarfi við FranklinCovey á Ís-
landi. Venjunum er ætlað að stuðla
að því að allir, börn og fullorðnir,
geti verið besta útgáfan af sjálfum
sér. Ekki séu allir með sömu styrk-
leika og veikleika og mikilvægt sé
að vinna með sína eiginleika.
Venjurnar eru:
Venja 1: Taka af skarið
Venja 2: Í upphafi skal endinn
skoða
Venja 3: Forgangsraðaðu
Venja 4: Sigrum saman
Venja 5: Skilningsrík hlustun
Venja 6: Samlegð
Venja 7: Brýndu sögina
Á leiðtogadeginum tóku börn-
in að sér leiðtogahlutverk og voru
hlutverkin mörg og misjöfn. Börn-
in skipulögðu sjálf daginn og komu
að undirbúningi og framkvæmd
dagskrár. Meðal leiðtogahlutverka
voru ljósmyndaleiðtogi sem mynd-
aði skemmtunina, nafnaleiðtog-
ar sem fundu límmiða með nafni
gestanna svo allir væru vel merktir.
Leirleiðtogar sýndu hvað þeir eru
duglegir að leira og kynningarleið-
togar sem leiddu hóp gesta um leik-
skólann sinn og sögðu frá starfsem-
inni. Dagurinn er ekki opinn heldur
var hann aðeins fyrir boðgesti. Þar
með skapast tækifæri til að kynna
starfsemina fyrir þeim sem sjaldan
eiga leið í skólana.
eha.
Í upphafi þessa mánaðar rann út
umsóknarfrestur um leigu á fjár-
búinu Hesti í Borgarfirði. Samtals
bárust Landbúnaðarháskólanum
tólf umsóknir. Valnefnd á vegum
LbhÍ skilaði niðurstöðum sínum til
rektors sem ákvað í síðustu viku að
bjóða Snædísi Önnu Þórhallsdótt-
ur og Helga Elí Hálfdánarsyni til
samninga um búreksturinn. Áætlað
er að þau taki við rekstri sauðfjár-
búsins 1. júní næstkomandi.
Þá óskaði LbhÍ einnig eftir um-
sóknum um rekstur félags- og veit-
ingaaðstöðu í gömlu húsunum á
Hvanneyri. Umsóknarfrestur rann
út 10. apríl og bárust fimm um-
sóknir. Ákveðið var að ganga til
samninga við hóp fólks sem Stef-
anía Nindel fer fyrir um starfsemi
á Gömlu Hvanneyrartorfunni en
umsókn þeirra þótti falla best að
framtíðarhagsmunum LbhÍ, nem-
endum skólans og Hvanneyrarstað-
ar í heild, eins og segir í tilkynningu
frá skólanum. Auk Stefaníu eru í
hópnum; Árni Ólafur Jónsson mat-
reiðslumaður, Bryndís Geirsdótt-
ir kvikmyndaframleiðandi, Guðni
Páll Sæmundsson kvikmyndagerð-
armaður, Jónas Björgvin Ólafs-
son matreiðslumaður, Kevin Mart-
in fornleifafræðingur, Rósa Björk
Sveinsdóttir hönnuður, Sigursteinn
Sigurðsson arkitekt, Arnar Hólm-
arsson rafvirkjameistari og Kristján
Ingi Pétursson smiður. mm
Samið um búrekstur á Hesti og leigu
gömlu húsanna á Hvanneyri
Erna Hafnes opnar myndlistarsýningu
Björn Ýmir Kristófersson er kubbaleið-
togi. Ljósm. eha.
Leiðtogadagur í Borgarnesi
Vel var tekið á móti gestunum, hér mætir Kolfinna Jóhannesdóttir sveitar-
stjóri á leiðtogadaginn í Uglukletti. Ljósm. eha.
Börnin sungu fyrir gesti, þar á meðal lag um venjurnar
sjö sem Sigrún Katrín Halldórsdóttir tónlistakennari á
Uglukletti samdi. Ljósm. eha.
Hlutverk leirleiðtoganna var að sýna gestum færni sína í að leira. Þau
stóðu sig öll með stakri prýði. Ljósm. eha.
Eftir að gestir voru farnir frá Uglukletti var haldin veisla og meðal skemmtiatriða var þetta skemmtilega blindandi skyrát
starfsmanna. Ljósm. Sunna Gautadóttir.
Á Klettaborg var ekki síður vel tekið á móti gestunum.
Ljósm. eha.
Ásthildur Magnúsdóttir stjórnsýslufulltrúi Borgarbyggðar fékk
hlýjar móttökur frá móttökuleiðtogunum. Ljósm. eha.
Nafnaleiðtogarnir Ída Jóhanna Eiríksdóttir og Agla Dís Adolfsdóttir rétta hér
Elínu Maríu Björnsdóttur frá FranklinCovey nafnspjald. Ljósm. eha.