Skessuhorn - 11.11.2015, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 20152
uðu SALEK-samkomulagi sem gert
var af heildarsamtökum launafólks
og atvinnurekenda á almennum og
opinberum vinnumarkaði í lok októ-
bermánaðar. Fulltrúar þessara sam-
taka unnu síðustu þrjú ár undir for-
ystu ríkissáttasemjara að því að inn-
leiða samkomulag sem á að fela í sér
bætt vinnubrögð við gerð kjarasamn-
inga á Íslandi til að tryggja atvinnu-
lífinu stöðugleika og launafólki aukn-
um ávinningi að norrænni fyrirmynd.
Með samkomulaginu á að tryggja
varanlega aukningu kaupmáttar á Ís-
landi á grundvelli lágrar verðbólgu,
stöðugs gengis krónunnar og lægri
vaxta. Aðilar samkomulagsins telja að
með því sé lagður grunnur að sátt á
vinnumarkaði, auknu samstarfi og
minni átökum. Ennfremur er stefnt
að auknum efnahagslegum og félags-
legum stöðugleika í landinu.
Forysta Verkalýðsfélags Akraness
telur hins vegar að þetta samkomu-
lag feli í sér brot á lögum um stétt-
arfélög og vinnudeilur því með því sé
verið að taka frjálsa samningsréttinn
af einstökum stéttarfélögum. Gylfi
Arnbjörnsson forseti Alþýðusam-
bands Íslands hafnar því að SALEK-
samkomulagið brjóti á rétti stéttar-
félaga. Hið sama gerir Þorsteinn Víg-
lundsson framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins. Í samtali við Morg-
unblaðið í gær segir hann að stefna
Verkalýðsfélags Akraness sé algerlega
tilhæfulaust og byggð á grundvallar-
misskilningi.
Stefna Verkalýðsfélagsins var af-
hent Félagsdómi á mánudag sem fer
yfir það hvort á henni séu einhverjir
annmarkar. Eftir að niðurstaða á því
mati liggur fyrir verður hún afhend
fulltrúum Sambands íslenskra sveit-
arfélaga. mþh
Safnahús Borgarfjarðar stendur fyrir mikilli
menningarveislu í nóvembermánuði með
fjölbreyttum viðburðum. Menningarveisl-
an hefst með árlegu sagnakvöldi á morg-
un, fimmtudaginn 12. nóvember. Nánar er
sagt frá dagskrá Safnahússins í Skessuhorni
vikunnar.
Það verður suðlæg átt 3-10 m/s á morgun,
fimmtudag. Skúrir eða él sunnan- og vest-
anlands en léttskýjað fyrir norðan. Hiti 0-8
stig, víðast frostlaus á suðvestan til. Norð-
an 5-13 m/s á föstudag og dálítil él á Norð-
urlandi en suðvestlæg átt og stöku él suð-
vestanlands fram eftir degi, annars bjart
með köflum. Hiti 0-5 stig. Hæg norðlæg- eða
breytileg átt og víða bjart þegar líður á laug-
ardag en líkur á éljum með suður- og suð-
vesturströnd landsins. Kalt í veðri. Gengur í
stífa norðaustanátt á sunnudag með éljum
um norðanvert landið en léttskýjað syðra.
Áfram kalt í veðri, einkum inn til sveita. Á
mánudag er útlit fyrir áframhaldandi norð-
austanátt og snjókomu fyrir norðan og jafn-
vel slyddu á Austurlandi. Úrkomulítið syðst.
Hægt hlýnandi veður.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hversu mikið reiðufé geymi þú að jafnaði
í veskinu?“ Flestir eða 35,2% sögðu„fáein
þús.“ en örlítið færri, 34,69% sögðust ekkert
reiðufé geyma í veskinu. „5-10 þús.“ sögðu
13,78% og „nokkur hundruð kr.“ sögðu
6,63%. 3,06% geyma „5-10 þús.“ og sami
fjöldi geymir „yfir 50 þús.“ í veskinu hverju
sinni. „16-20 þús.“ sögðu 2,55% og 1,02%
kváðust geyma „21-50 þús.“ í veskinu.
Í næstu viku er spurt:
Hvað borðarðu í morgunmat?
Um liðna helgi fór sala Neyðarkallsins fram í
tíunda sinn, en með henni fjármagna björg-
unarsveitir á Vesturlandi og landinu öllu
óeigingjarna og stöðugt umfangsmeiri
starfsemi sína. Fórnfúst björgunarsveitarfólk
er Vestlendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Leiðrétt
Í aðsendri grein og frétt á bls.
30 í síðasta tölublaði, um þátt-
töku barna af Akranesi í fim-
leikamóti á Akureyri, var mis-
ritað nafn á einni stúlkunni.
Hún heitir Alexandra Ósk
Reynisdóttir en í fréttinni stóð
að hún héti Andrea Reynis-
dóttir. Alexandra Rós varð í
3. sæti á dýnu í A-flokki. Þetta
leiðréttist hér með.
–mm
Óhöpp í ísingu
VESTURLAND: Mánudag-
inn 9. nóvember gerði mikla
hálku á vegum á Vesturlandi.
Af þeim sökum urðu nokkur
óhöpp og slys í umferðinni.
Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi
við Kaldármela. Ökumað-
urinn, sem var einn í bílnun,
var fluttur slasaður á sjúkra-
hús í Reykjavík. Bílvelta varð
á Skorradalsvegi í ísingu og
hálku. Ökumaður í því óhappi
var fluttur á heilsugæslustöð-
ina í Borgarnesi til skoðun-
ar. Þá varð bílvelta í ísingu á
Holtavörðuheiði en ökumað-
urinn slapp ómeiddur.
–mm
Minnast Gutta
á flokksstjórnar-
fundi
AKRANES: Flokksstjórn
Samfylkingarinnar kemur um
næstu helgi saman til fundar á
Akranesi. Staðarval er ekki til-
viljun, en flokksfélagar munu
minnast Guðbjartar Hann-
essonar þingmanns og ráð-
herra sem nýlega féll frá. „Við
munum minnast Gutta okkar
og ræða saman um stefnu og
áherslur Samfylkingarinnar.
Við munum ræða sérstaklega
málefni ungs fólks í flokkn-
um og hvernig við sköpum ný
og verðmæt störf til að standa
undir velferðarsamfélagi sem
tryggir öllum jöfn tækifæri og
líf með reisn,“ segir í tilkynn-
ingu frá Samfylkingunni. Búið
er að útbúa myndband um
Gutta og hans störf sem sýnt
verður á fundinum á sérstakri
minningarstund.
–mm
Dæmalaus fjölg-
un ferðamanna
LANDIÐ: Um 99 þúsund
erlendir ferðamenn fóru frá
landinu í október síðastliðnum
samkvæmt talningum Ferða-
málastofu í Leifsstöð. Eru það
32 þúsund fleiri en í október
á síðasta ári. Aukningin nem-
ur því 48,5% milli ára og hef-
ur hún ekki mælst svo mik-
il milli ára í október frá því
Ferðamálastofa hóf talningar.
Fjöldinn frá áramótum er nú
kominn vel yfir 1,1 milljón.
Aukning hefur verið alla mán-
uði ársins á milli ára, þó aldrei
jafn mikil og nú í október.
Aukningin var 34,5% í janú-
ar, 34,4% í febrúar, 26,8% í
mars, 20,9% í apríl, 36,4% í
maí, 24,2% í júní, 25,0% í júlí,
23,4% í ágúst og 39,4% í sept-
ember. Af einstaka þjóðernum
fjölgaði Bretum, Bandaríkja-
mönnum, Þjóðverjum, Kín-
verjum og Pólverjum mest
milli ára í október.
–mm
Að kvöldi síðasta fimmtudags lenti
flutningabíll frá Nönnu ehf. á Pat-
reksfirði utan vegar skammt sunn-
an við Ódrjúgsháls í Gufudalssveit.
Bíllinn var á suðurleið, nýkominn
niður af hálsinum þegar óhapp-
ið átti sér stað. Bíllinn sjálfur valt
ekki en tengivagn sem hann hafði í
eftirdragi, drekkhlaðinn fiski, lagð-
ist nær alveg á hliðina. Menn úr
björgunarsveitinni Heimamönnum
í Reykhólasveit voru ræstir út á ní-
unda tímanum til að ná fiskinum.
Annar flutningabíll kom á stað-
inn um miðnætti og lauk verkinu á
fimmta tímanum aðfararnótt föstu-
dags. Bílstjóri flutningabílsins slapp
ómeiddur og fiskurinn var fluttur
óskemmdur á brott. Tengivagninn
er hins vegar ónýtur.
kgk/ Ljósm. Ágúst
Már Gröndal.
Flutninga-
bíll útaf við
Ódrjúgsháls
Tengivagninn lagðist nær alveg á hliðina og er talinn ónýtur.
Björgunarsveitarmenn unnu klukkustundum saman að því að koma fiskinum í
annað flutningatæki.
Matvælastofnun vinnur að undir-
búningi þess að halda áfram rann-
sóknum á ástæðum sauðfjárdauða
í fyrravetur og fyrravor, sem varð
eins og margir þekkja á sauðfjárbú-
um víða um land. Rannsóknin er
unnin í samvinnu við Landssam-
tök sauðfjárbænda, Ráðgjafarmið-
stöð landbúnaðarins, Bændasam-
tökin og Tilraunastöð Háskóla Ís-
lands. Rannsóknir sem gerðar hafa
verið fram að þessu hafa ekki gef-
ið afgerandi svör um ástæður van-
halda í sauðfé. Svo virðist sem
samspil margra þátta sé skýring-
in en í tilkynningu Matvælastofn-
unar segir að ekki sé hægt að úti-
loka undirliggjandi orsakir og því
sé þörf á frekari rannsóknum. Nú
verða valdir bæir víða um landið
sem urðu fyrir miklum afföllum úr
bústofni sínum og þeim fylgt náið
eftir. Tekin verða sýni og þau bor-
in saman við þá bæi þar sem eng-
in vandamál voru til að kanna hvort
einhverjir þættir finnist sem geti
skýrt þennan mun. Beðið er svara
frá ráðuneytinu varðandi fjárhags-
legan stuðning við verkefnið áður
en rannsóknin getur hafist af full-
um krafti.
Út frá svörum í spurningakönnun
sem lögð var fyrir sauðfjárbændur í
sumar, voru valdir níu bæir sem síð-
an voru heimsóttir af dýralæknum.
Þeir skoðuðu féð, tóku blóðsýni og
sendu kindur í krufningu að Keld-
um, þegar það átti við. „Niðurstöð-
ur þessara rannsókna gáfu engin af-
gerandi svör. Blóðsýnin gáfu engar
vísbendingar um að um smitsjúk-
dóm væri að ræða. Þær kindur sem
sendar voru í krufningu sýndu svip-
aða heildarmynd, kindurnar voru
mjög horaðar þótt þær hafi aug-
ljóslega étið fram á síðustu stundu
og benda krufningsniðurstöður til
næringarskorts. Til viðbótar þess-
um rannsóknum tók Ráðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins heysýni
sem sýndu há gildi af ómeltanlegu
tréni.“
Þá segir í tilkynningu frá Mat-
vælastofnun að þegar heildarmynd-
in hafi verið skoðuð, út frá þeim
rannsóknum sem framkvæmdar
hafa verið hingað til, bendi allt
til þess að vandamálið sé samspil
margra þátta og má þar einna helst
nefna tíðarfar. „Sökum mikillar
vætutíðar síðasta sumar var erfitt að
heyja og má ætla út frá fóðursýna-
niðurstöðum að víða hafi heyforð-
inn samanstaðið af úr sér sprottnu
grasi sem dugar skammt til að við-
halda þeirri orku sem fé þarf til að
dafna, og ekki síst þegar fóstrin hjá
ánum fara að taka til sín. Í kjölfarið
tók við afar kaldur vetur og vor sem
kallaði enn frekar á orku sem að
fóðrið innihélt ekki. Þó er ekki hægt
að útiloka undirliggjandi orsakir og
er því þörf á frekari rannsóknum.
Við rannsóknina munu ýmsar hug-
myndir að skýringum verða hafðar
til hliðsjónar, m.a. hvort um sé að
ræða áhrif mengunar frá eldgosinu
í Holuhrauni, en enn er ekkert sem
styður þá tilgátu.“
mm
Matvælastofnun er enn engu nær um orsök ærdauðans
Fjárrekstur. Myndin er ótengd efni fréttarinnar.
Verkalýðsfélag Akraness ætlar að
stefna Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga. Forsaga málsins er að félagið á í
kjaradeilu við launasnefnd sambands-
ins. Þar brýtur á ákvæði í svoköll-
VLFA stefnir Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Frá kröfugöngu á Akranesi 1. maí síðastliðinn.