Skessuhorn - 11.11.2015, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2015 29
Hún segist hafa byrjað að semja
lög fyrir fimm árum þegar hún
byrjaði að spila á gítarinn. „Ég
spilaði aldrei á neitt hljóðfæri en
þegar ég byrjaði var ég allt í einu
komin með eitthvað verkfæri í
hendurnar til þess að semja lög. Ég
hafði ekki einu sinni velt því fyrir
mér að þetta væri eitthvað sem ég
gæti gert. En svo fóru lögin ein-
hvern veginn bara að flæða,“ seg-
ir Soffía.
Myndbandinu leikstýrt
í gegnum Skype
Myndband við lagið Back & Back
Again var frumsýnt síðasta mið-
vikudag. Því var leikstýrt af Snorra
Sturlusyni. Hann starfar í Banda-
ríkjunum fyrst og fremst, er bú-
settur í Brooklyn-hverfi í New
York og gat ekki verið viðstaddur
tökur. Hópurinn dó ekki ráðalaus,
setti upp tölvu og hátalara í mynd-
verinu og Snorri leikstýrði hand-
an í gegnum Skype. „Svona lagað
hefur örugglega verið gert áður
án þess að ég viti til þess en þetta
var í fyrsta skipti sem ég tek þátt í
svona ferli. Þetta gekk ótrúlega vel
og það var eins og hann hefði verið
á settinu. Þetta var allt mjög eðli-
legt,“ segir Soffía.“
Aðspurð um framtíðina segir
Soffía að á næstu mánuðum muni
hún vinna við áðurnefnda sóló-
plötu sem áætlað er að komi út
næsta sumar. „Svo kemur fram-
haldið bara í ljós,“ segir hin unga
söngkona að endingu.
kgk
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
Rafvirki í Stykkishólmi
Starfssvið
Eftirlit
Hnitamælingar
Samskipti við viðskiptavini
Spennugæðamælingar
Verkundirbúningur
Nánari upplýsingar veita Björn Sverrisson, deildarstjóri rekstrarsviðs á Vesturlandi og
starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember n.k. og skal
skila umsóknum með ferilskrá á netfangið atvinnuumsokn@rarik.is.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að
afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20
starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið.
Hæfniskröfur
Sveinspróf í rafvirkjun
Þekking og reynsla af háspennukerfum er kostur
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
RARIK ohf auglýsir eftir rafvirkja á rekstrarsvið fyrirtækisins með aðsetur í Stykkishólmi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hér er um ölbreytt starf að ræða við
dreifikerfi fyrirtækisins.
Rekstrarsvið ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi á dreifikerfi RARIK. Meginverkefni sviðsins eru
hönnun, nýframkvæmdir, breytingar, viðhald og rekstur dreifikerfis fyrirtækisins.
Félagsmálaráðherra hefur sett reglu-
gerð sem kveður á um 20% hækkun
uppbóta og styrkja til hreyfihamlaðra
einstaklinga vegna bifreiða. Gildis-
tími reglugerðarinnar er afturvirkur
frá 1. nóvember síðastliðnum. Fjár-
hæðir uppbóta og styrkja vegna bif-
reiðakaupa samkvæmt reglugerð
voru síðast hækkaðar í byrjun árs
2009 en höfðu þá verið óbreyttar til
langs tíma. Þar sem kaupverð bif-
reiða hefur hækkað mjög á síðustu
árum er frekari hækkun þessara fjár-
hæða orðin tímabær og til þess fall-
in að auðvelda þeim bifreiðakaup
sem mest þurfa á að halda. Uppbæt-
ur vegna kaupa á bifreiðum er heim-
ilt að greiða elli- og örorkulífeyris-
þegum og örorkustyrkþegum vegna
kaupa á bifreið sem nauðsynleg er
vegna hreyfihömlunar. Eins er heim-
ilt að veita uppbót vegna hreyfihaml-
aðra barna sem njóta umönnunar-
greiðslna. Samkvæmt reglugerðar-
breytingunni hækka uppbætur til
þeirra sem uppfylla skilyrði reglu-
gerðarinnar úr 300.000 kr. í 360.000
kr. og uppbætur til þeirrra sem eru
að kaupa bifreið í fyrsta sinn hækka
úr 600.000 kr. í 720.000 kr.
Heimilt er að veita hreyfihöml-
uðum einstaklingum styrk til kaupa
á bifreið til eigin nota að uppfyllt-
um tilteknum skilyrðum og einn-
ig er heimilt að veita styrk þeim sem
bera ábyrð á framfærslu hreyfihaml-
aðra barna sem njóta umönnunar-
greiðslna, s.s. vegna aksturs í reglu-
bundna þjálfun, meðferð eða í skóla.
Þessir styrkir hækka úr 1.200.000 kr.
í 1.440.000 kr.
Samkvæmt reglugerðinni er í sér-
stökum tilfellum heimilt að veita
styrk vegna mikið fatlaðra barna
yngri en tíu ára ef barnið sem í hlut
á þarf sannarlega sambærilega bif-
reið og fullorðinn einstaklingur í
sambærilegri aðstöðu. Með þessu
ákvæði, sem er nýmæli í reglugerð-
inni, er verið að staðfesta fram-
kvæmd Tryggingastofnunar á veit-
ingu styrkja í kjölfar úrskurða frá úr-
skurðarnefnd almannatrygginga.
mm
Hækkun styrkja til hreyfi-
hamlaðra vegna bifreiðakaupa
Nýverið sendi Soffía Björg Óðins-
dóttir, tónlistarkona frá Einarsnesi
í Borgarfirði, frá sér lagið Back &
Back Again, hið fyrsta af væntan-
legri sólóplötu. „Þetta lag er for-
smekkurinn þess sem koma skal af
plötu sem kemur út næsta sumar,“
segir Soffía í samtali við Skessu-
horn. „Ég var reyndar búin að taka
upp heila plötu í fyrra, hljóðblanda
og allt en svo ákvað ég að mig lang-
aði að gera þetta öðruvísi. Þannig
að platan verði meira í takt við lif-
andi flutning með bandi. Kraft-
meiri og hrárri þar sem það á við.
Ég var ekki alveg sannfærð,“ bæt-
ir hún við. Úr varð að Soffía setti
gömlu plötuna á ís og hóf upptök-
ur að nýju. „Ég á allar gömlu upp-
tökurnar þannig að þetta er ekki
töpuð vinna. Ég mun nota eitt-
hvað af gömlu lögunum en ég ætla
að taka þau upp aftur.“
Soffía er lagahöfundur, söng-
kona og gítarleikari með BA
gráðu í almennum tónsmíðum frá
Listaháskóla Íslands. Hún hefur
á síðustu árum getið sér gott orð
sem meðlimur hljómsveitarinnar
Brother Grass, sem sent hefur frá
sér tvær plötur. Enn fremur hefur
hún samið tónlist við kórverk fyrir
Dómkórinn í Reykjavík, dansverk
auk stuttmyndatónlistar og sungið
bakraddir á tónleikum fyrir Emil-
íönu Torrini, Boogie Trouble og
KK.
Hópurinn sem vann að upptöku myndbandsins við lagið Back & Back Again. Leik-
stjórann Snorra Sturluson má sjá á tölvuskjá fyrir framan hópinn. Hann leikstýrði
frá New York í gegnum Skype.
Soffía Björg sendir frá sér fyrsta
lagið af væntanlegri sólóplötu
Soffía Björg Óðinsdóttir, tónlistarkona
frá Einarsnesi.