Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2015, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 11.11.2015, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 201512 Félagsmálaráðherra hefur sett nýja reglugerð sem kveður á um aðgerðir gegn einelti, kynferðis- legri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Öll- um vinnustöðum verður nú skylt að gera áætlun um aðgerðir til að sporna við þessum þáttum og um viðbrögð ef á reynir. „Samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum er öllum vinnustöðum skylt að gera áhættu- mat með því að greina hugsan- lega áhættuþætti sem ógna öryggi. Í nýju reglugerðinni er með skýr- um hætti kveðið á um að við gerð áhættumatsins skuli meðal annars greina áhættuþætti eineltis, áreitni og ofbeldis á vinnustað, líkt og til- tekið er í reglugerðinni, þar sem tekið skuli tillit til andlegra og félagslegra þátta, svo sem aldurs starfsmanna, kynjahlutfalls, ólíks menningarlegs bakgrunns starfs- fólks, skipulags vinnutíma, vinnu- álags og fleira. Áhættumatinu er þannig ætlað að taka mið af að- stæðum á hverjum stað,“ segir í til- kynningu frá ráðueytinu. mm Setti reglugerð um einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum Síðustu tvö sumur hefur orðið vart við fjöldadauða meðal fugla í æðarvarp- inu í Rifi. Í maí og júní 2014 fundust 53 æðarkollur og sjö blikar dauð eða deyjandi. Á sama tíma í ár fundust svo 31 æðarkolla og sjö blikar. Þessi mikli dauði hefur leitt til fækkunar hreiðra í varpinu. Á árabilinu 2013 – 2015 fækkaði þeim um 66 hreiður eða um 13 %. Eldri árgangar merktra fugla í æðarvarpinu sem voru frá 1993 - 2002 hurfu að mestu úr endurheimt- um 2014-2015. Þetta gerðist þó vit- að væri að eldri fuglar á þessum aldri séu ekki líklegri að drepast heldur en yngri árgangar. Það bendir til þess að óeðlileg afföll hafi komið upp hjá þessum fuglum. Dauðir fuglar rannsakaðir Líffræðingar vita ekki hvað olli þess- um dauða meðal fullorðins æðarfugls í Rifi. „Í júní 2014 voru fjögur hræ send til krufninga á Keldur að beiðni Matvælastofnunar. Önnur fimm voru svo send á vegum Háskóla Íslands til National Wildlife Health Center í Madison í Bandaríkjunum. Í krufn- ingum beggja aðila fundust merki um bráðar vefjabreytingar og vökva- söfnun í brjóst- og kviðarholi. Ekk- ert fannst sem gaf til kynna ákveð- inn sjúkdómsvald. Þyngd hræjanna gaf ekki til kynna að sjúkdómsvald- urinn legðist frekar á horaða einstak- linga heldur en þá holdugri. Flest- ir einstaklingarnir vógu 1500 - 2000 grömm,“ segir dr. Jón Einar Jónsson forstöðumaður Rannsóknarseturs Ís- lands á Snæfellsnesi. Alvarlegt mál Jón Einar segir að tilgátur um or- sakir æðarfugladauðans beinist nú einkum að því hvort að orsakirnar megi finna í tjörnunum í Rifi en æð- arvarpið er á hólmum í þeim. Vís- bending um þetta er að blikar voru einungis 14 af 98 fuglum (14%) sem fundust dauðir. Blikarnir eru í miklu minna mæli á tjörnunum heldur en kollurnar. Þó vekur furðu að aðrar tegundir svo sem kríur, óðinshanar, stokkendur, skúfendur, og fleiri virð- ast ekki drepast á tjörnunum við Rif. „Það eru heldur engar vísbending- ar um álíka dauðsföll hjá æðarfugli í öðrum breiðfirskum æðarvörpum. Starfsmenn okkar fóru um sjö æð- arvörp í vor og eru í sambandi við fólk sem fer í dúnleitir. Enginn varð var við neitt óvenjulegt. Næsta varp við varpið í Rifi er við Akurtraðir í Grundarfirði. Á fundi Æðarræktar- félags Snæfellinga í síðustu viku var þessi fugladauði í Rifi til umræðu en allt virtist með felldu á Akurtröð- um hvað þetta varðar. Líkamsstaða fuglana við dauða og vefjabreyting- ar bendir til þess að hér sé á ferð- inni bráðdrepandi sjúkdómsvaldur. Menn eru viðbúnir þriðja sumrinu með þessum hætti 2016 og við mun- um rannsaka þetta enn frekar. Það er augljóst að hér er eitthvað á seyði sem ber að taka alvarlega,“ segir Jón Einar. mþh Dularfullur æðarkolludauði í Rifi Heilbrigður æðarfugl í fjöru á Snæfellsnesi. Fátítt er að fullorðinn æðarfugl drepist í stórum stíl í varpi. Dr. Jón Einar Jónsson flutti í síðustu viku erindi um æðardauðann í Rifi á Líf- fræðiráðstefnunni í Háskóla Íslands. Síðastliðin laugardag efndu starfs- menn Heilbrigðisstofnunar Vest- urlands til svokallaðs Hittings í til- efni fimm ára afmælis stofnunar- innar. Komið var saman í Hjálma- kletti í Borgarnesi. Að sögn Guð- jóns Brjánssonar forstjóra voru þetta starfsmenn af öllum átta starfsstöðv- um stofnunarinnar, alls meira en 160 manns. Í upphafi ávarpaði Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri Borgar- byggðar gestina og síðan var snædd- ur saman kvöldverður. Guðjón S. Brjánsson forstjóri rakti aðdraganda og sögu sameiningar heilbrigðis- stofnana á Vesturlandi og þakkaði starfshópi sem vann að undirbún- ingi samkomunnar fyrir vel skipu- lagt verkefni. Fjölbreytt dagskrá var að hætti starfsmanna af öllu svæðinu. Þá voru starfsmenn með 25 – 40 ára samfelldan starfsaldur í heilbrigðis- þjónustu í umdæminu heiðraðir en þeir eru 79 talsins, þar af eru þrettán starfsmenn HVE sem unnið hafa í 40 ár eða lengur. mm/ Ljósm. þb. Starfsfólk HVE átti hitting í Borgarnesi Hluti starfsmanna HVE sem fékk viðurkenningu fyrir tryggð og hollustu við stofnunina í 30 ár eða lengur. Hluti hópsins sem á að baki 40 ára starfsaldur eða meira. F.v. Bára Garðarsdóttir og Elísabet Bjarnadóttir frá Hvammstanga en þær hafa starfað lengst allra eða í rúm 49 ár; Skagakonurnar Jóna María Örlaugsdóttir, Jónsína Ólafsdóttir, Kristjana Kristjánsdóttir, Ólöf Hannesdóttir og Svanhildur Pálsdóttir, Ólafsvík. Á myndina vantar Skagakonurnar Guðfinnu Magnúsdóttur, Hrefnu Grétarsdóttur, Ingibjörgu Guðjónsdóttur, Ríkey Andrésdóttur og Þórönnu Halldórsdóttur en þær hafa allar náð þessum sama áfanga. Undirbúningshópur starfsmanna frá öllum starfsstöðvum kom að verkefninu á laugardag. F.v. Guðmundur Haukur Sigurðsson Hvammstanga en hann var veislustjóri; Guðmunda Wiium Ólafsvík; Jóhann Björn Arngrímsson Hólmavík; Kristín G. Ólafsdóttir Búðardal; Þórný Alda Baldursdóttir Stykkishólmi; Ásgeir Sæmundsson Borgarnesi; Sigurður Már Sigmarsson Akranesi og Ásthildur Erlings- dóttir Grundarfirði. Sönghópurrinn Blær frá Stykkishólmi sem að mestu leyti er skipaður starfs- mönnum HVE söng í hófinu á laugardaginn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.