Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2015, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 11.11.2015, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 20156 Villtum rjúpna- skyttum komið til bjargar BORGARFJ: Björgunar- sveitin Ok var um síðustu helgi fengin til að leita að tveimur rjúpnaskyttum á Kaldadal eftir að einn úr þeirra hópi hafði samband við lögregluna. Mennirnir höfðu farið fjórir saman til veiða á svæðinu við Fanntó- fell, Lyklafell og Hrúður- karla en lent í þoku og villu með bilað gps tæki og í slæmu símasambandi. Tveir þeirra komust þó að lokum í bílinn og létu þá lögregluna vita af hinum tveimur sem voru þá ennþá villtir. Björg- unarsveitarmenn voru fljótir að finna mennina sem voru orðnir þreyttir og illa áttað- ir. Voru skytturnar fegnar að komast til byggða. Ekki fer neinum sögum af afla- brögðum, að sögn lögreglu. –mm Ný heimasíða Hollvina- samtakanna BIFRÖST: Á dögunum var ný heimasíða Hollvinasam- taka Bifrastar tekin í notkun og leysir af hólmi eldri síðu sem var komin vel til ára sinna. Á nýju síðunni eru margir möguleikar í boði og meðal annars hægt að skrá sig á póstlista til að fylgjast með fréttum. Þá er varning- ur til sölu og hagnýtar upp- lýsingar vegna atvinnuleitar eins og t.d. gerð ferilskrár og upplýsingar um atvinnu- viðtöl. Það var Hallur Jón- asson formaður Hollvina- samtakanna sem átti veg og vanda að uppbyggingu síð- unnar en það er vefumsjón- arfyrirtækið Dacoda held- ur utan um gögn og vistun þeirra. Síðuna má skoða hér hollvinir.bifrost.is –mm Ráðin á Akrasel AKRANES: Guðrún Braga- dóttir leikskólasérkennari hef- ur verið ráðin í stöðu aðstoð- arleikskóla- og sérkennslu- stjóra Akrasels frá og með 1. desember nk. Staðan var aug- lýst í Skessuhorni eftir að Sig- urður Sigurjónsson fyrrver- andi aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóri óskaði eft- ir launalausu leyfi frá 1. des- ember 2015 til 31. ágúst 2016. Guðrún hefur starfað á Teiga- seli síðastliðin 17 ár, ýmist sem aðstoðarleikskóla- og sér- kennslustjóri eða leikskóla- stjóri. –eo Fengu bréf frá eftirlitsnefnd SNÆFELLSBÆR: Eftirlits- nefnd með fjármálum sveit- arfélaga sendi Snæfellsbæ bréf í október. Tilefnið var að nefndin hafði rekið augun í að Snæfellsbær hefur verið ötull við fjárfestingar á síðasta ári. Í ákvæðum sveitarstjórnar- laga má finna ákvæði varðandi miklar fjárfestingar sveitarfé- laga, líklega sett svo að sveit- arfélög fari sér ekki of geyst í þeim efnum en það hefur sem kunnugt er gerst oftar en einu sinni. Bæjarstjórn Snæfellsbæj- ar tók bréf eftirlitsnefndarinn- ar fyrir á fundi sínum í síðustu viku og svaraði því. Þar kemur fram að bæjarstjórnin hafi litið svo á að ákvæði 66. gr. sveitar- stjórnarlaga um fjárfesting- ar sem nema hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveit- arfélags eigi við um einstaka fjárfestingu, en ekki heildar- fjárfestingar innan sveitar- félagsins, en þannig hafi raun- in verið varðandi árið 2014. Í fundargerð segir svo orðrétt: „Fjárfestingar sveitarfélagsins á árinu 2014 fóru í 21,3% af skatttekjum sveitarfélagsins. Stærsta einstaka fjárfesting ársins 2014 voru framkvæmdir við sundlaugina í Ólafsvík, og nam hún rúmum 118,5 millj- ónum króna, sem er 12,4% af skatttekjum ársins 2014. Næst þar á eftir komu vatnsveitu- framkvæmdir upp á tæpar 46 milljónir, eða 4,9% af skatt- tekjum. Aðrar fjárfestingar voru mun minni, t.a.m. fram- kvæmdir við göngustíg milli Ólafsvíkur og Rifs fyrir rúmar 10 milljónir, framkvæmdir við sundlaugina á Lýsuhóli fyrir um 17 milljónir, tjaldstæðið í Ólafsvík fyrir rúmar 14 millj- ónir og framkvæmdir við án- ingarstað í Rifi fyrir rúmar 8 milljónir.“ Þetta svar var svo sent til eftirlitsnefndarinnar. -mþh Veiðigjöldin lækka LANDIÐ: Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um álögð veiðigjöld vegna fisk- veiðiársins 2014/2015 og birt á vef sínum. Heildarfjárhæð al- menns og sérstaks veiðigjalds vegna úthlutaðra veiðiheim- ilda og afla utan aflamarks, að teknu tilliti til lækkunar á sér- stöku veiðigjaldi, nemur 7,7 milljörðum króna samanborið við 9,2 milljarða á fyrra fisk- veiðiári. -mþh Það ríkti mikil gleði hjá nemendum í 1. til 4. bekk í Grunnskóla Snæ- fellsbæjar í síðustu viku. Þennan dag kom Séra Óskar Ingi Óskars- son sóknarprestur í heimsókn til að taka á móti framlagi barnanna til verkefnisins „Jól í skókassa.“ Er þetta í annað sinn sem börnin taka þátt í þessu verkefni. Þau komu með að heiman það sem til þurfti í kassana. Fengu þau líka góða að- stoð frá fleirum en foreldrum sín- um sem þau vilja líka þakka kær- lega fyrir. Verslunin Blómsturvell- ir safnaði skókössum fyrir þau, Þín verslun Kassinn gaf þeim jólapapp- ír, Ari Bjarnason tannlæknir út- vegaði þeim tannbursta og tann- krem frá O.Johnson og Kaaber og Landsbankinn í Snæfellsbæ veitti þeim peningastyrk fyrir kostnaði sem af verkefninu hlýst. Nemendur gáfu sér svo góðan tíma til að útbúa kassana. Vönd- uðu sig mikið og spunnust oft um- ræður um hvað ætti að fara í hvern kassa og af hverju. Þetta árið út- bjuggu börnin 45 kassa og afhentu nemendur í 4. bekk Óskari þá fyrir hönd allra nemenda í 1. til 4. bekk stolt og glöð. „Jól í skókassa“ geng- ur út á að fá börn og fullorðna til að gleðja börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Til þess að börnin fái sem líkastar gjafir er mælst til þess að allt sé sett í skó- kassa og mælst til þess að ákveð- inir hlutir séu í hverjum kassa. Það er hópur ungs fólks á vegum KFUM og KFUK sem hefur stað- ið að verkefninu á Íslandi frá árinu 2004. Starfsfólk og nemendur 1. til 4. bekkjar eru ákveðin í að taka aft- ur þátt í þessu fallega verkefni. þa Jól í skókassa er framlag yngstu Snæfellinganna til hjálparstarfs Engan sakaði þegar flutningabíll með farm af trjábolum olli tjóni á Hvalfjarðargöngum sl. miðviku- dag. Bíllinn var með hærri farm en löglegt er að flytja og rakst farmur- inn upp í stálbita yfir syðri ganga- munnanum. Nokkrir bolir rákust upp í loft og hrundu síðan niður á akbrautina. Þetta kemur fram á vef- síðu Spalar, þar sem einnig er birt myndband af atvikinu. Í frétt Spal- ar segir að lögregla hafi verið kvödd á vettvang og skýrsla tekin af öku- manni. „Eignatjón í göngunum er stórfellt og er í milljónum talið. Trjábolirnir eyðilögðu meðal ann- ars leiðslur og ljós í lofti, myndavél og kapalstiga,“ segir meðal annars í frétt Spalar. Marinó Tryggvason, öryggisfulltrúi Spalar segir atvikið eitt það alvarlegasta sem hann hafi séð upptöku af í eftirlitskerfi gang- anna. Umræddur flutningabíll var á leið með trjáboli úr nytjaskógum á Suðurlandi og á Grundartanga. Þar eru bolirnir kurlaðir og kurlið notað til brennslu í ofnum járnblendiverk- smiðjunnar. grþ Stórfellt eignatjón í Hvalfjarðargöngum Á þessu skjáskoti úr myndbandi Spalar sést bíllinn rétt áður en trjábolirnir rákust upp í stálbitann.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.