Skessuhorn - 11.11.2015, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 201510
Miðvikudaginn 4. nóvember voru
liðin 60 ár frá stofnun Tónlistar-
skólans á Akranesi. Af því tilefni
mætti fjöldi fólks í tónlistarskólann
þegar haldið var upp á daginn með
tónlistar- og kökuveislu. Haldn-
ir voru þrennir nemendatónleikar
í Tónbergi og boðið upp á súkkul-
aðiköku og drykkjarföng í anddyri
skólans. Um kvöldið voru tónleik-
arnir Þá og nú, þar sem núverandi
og fyrrverandi nemendur stigu á
stokk.
grþ
Ung kona hringdi til lögreglunnar
á Vesturlandi í vikunni og sagði far-
ir sínar ekki alveg rennisléttar. Milli
kl. 19 og 20 á mánudagskvöldið
hefði hún verið að koma að sunnan
og verið á leiðinni norður í land, ein
á gamla, litla fólksbílnum sínum.
Þegar hún var stödd á veginum við
Hafnarfjall var skyggni slæmt, myrk-
ur og vegurinn blautur og hefði hún
séð illa hvað var framundan og því
ekið fremur hægt. Töluverð umferð
hefði verið á móti og nokkrir bílar
hefðu því safnast upp á eftir henni
og þrír flutningabílar þar fremst-
ir. Síðan hafi stórri flutningabif-
reið með eftirvagni skyndilega ver-
ið ekið mjög nærri henni, ljósunum
hefði verið blikkað og ökumaður-
inn legið á flautunni. Konan kvaðst
hafa orðið hrædd við þessa ofbeldis-
fullu hegðun og reynt að auka hrað-
ann til að vera ekki fyrir. Síðan hafi
þessum þremur flutningabílum ver-
ið ekið fram úr henni með flauti og
ljósagangi en hún hefði náð skrán-
ingarnúmerinu á fremsta bílnum.
Konan stöðvaði síðan för sína á N1
í Borgarnesi til að jafna sig og þá
hafi hún séð bílana þar fyrir utan og
síðan bílstjórana þar sem þeir voru
að panta sér mat. Hún kvaðst hafa
gefið sig á tal við þá og spurt hvað
hefði eiginlega gengið á hjá þeim
og hvers lags framkoma þetta eig-
inlega væri í umferðinni. Þeir hafi
brugðist reiðir við og öskrað á hana
að hún ætti að reyna að „drulla sér
áfram og vera ekki fyrir öðrum í
umferðinni og réttast væri að snúa
upp á hendurnar á henni og tuska
hana til.“ Konan kveðst hafa orðið
hrædd og forðað sér út eftir þessa
gusur. Þegar hún kom heim var hún
ákveðin í að þegja ekki yfir þessu og
ræða málin við lögregluna sem hún
og gerði.
Lögreglan setti sig í samband
við flutningafyrirtækið og forsvars-
maður þess ætlaði að kanna hverj-
ir hefðu verið þarna á ferðinni en
svona framkoma, ef rétt væri sagt
frá, væri auðvitað ekki boðleg.
mm
Meint umferðarofbeldi trukkabílstjóra
Mánudaginn 26. október hófst að-
altvímenningur Briddsfélags Borg-
arfjarðar. Til leiks mættu 16 galvösk
pör. Einræðisherra mótanna und-
anfarin ár, Ingimundur frá Deild-
artungu, afsalaði sér völdum fyr-
ir mótið til ungstirnisins Heiðars
Árna Baldurssonar frá Múlakoti sem
stjórnaði sínu fyrsta (heppnaða) móti
þetta kvöld. Eftir að nýi keppnis-
stjórinn áttaði sig á að tölvubúnaður-
inn gekk fyrir rafmagni og stakk öllu
„klabbinu“ í samband, gekk mót-
ið smurt fyrir sig og var æsispenn-
andi og kaflaskipt fram til síðustu
setu. Eyjólfur Kristinn á Skálpastöð-
um og Magnús B. Jónsson á Hvann-
eyri stigu vart feilspor þetta kvöld og
urðu í efsta sæti með 62,2% skor.
Nýi keppnisstjórinn og makker hans
Logi Sigurðsson í Steinahlíð tóku
fyrstu seturnar rólega enda tók sinn
toll að hugsa um tölvuna og spilin.
Þeir gáfu þó heldur betur í og verma
nú annað sætið með 59,5%. Jöfn í
þriðja til fjórða sæti sitja Borgnesing-
arnir Guðmundur Arason og Elín og
nýpússaðir makkerar Jón Einarsson
og Unnsteinn Arason með 58,3%.
Aðaltvímenningi félagsins var síð-
an framhaldið á mánudaginn. Nokkr-
ar innáskiptingar voru framkvæmdar
milli lota og nokkur pör sem voru
að spila saman í fyrsta skipti. Eitt af
þeim voru Anna Heiða frá Múlakoti
og Einar „vigtari“ á Skaganum. Þau
létu eins og þau hefðu spilað saman
til margra ára og enduðu efst, með
rétt tæplega 60% skor. Fast á hæla
þeirra komu rollukallarnir úr Tung-
unum, Jói á Steinum og Kristján í
Bakkakoti, með 59% skor. Baldur
í Múlakoti fór að ráði dóttur sinn-
ar og sótti sér varamann út á Skaga,
Magnús Magnússon sem oftast spil-
ar við Leó. Þeir félagar smullu sam-
an í fyrsta spili og óvíst hvort Jón á
Kópa komist að aftur eftir Þýska-
landsför. Enduðu þeir Baldur og
Magnús í þriðja sæti með um 57%
skor. Í heildarkeppninni leiða Borg-
nesingarnir Guðmundur Arason og
Elín Þórisdóttir með 381 stig, áður-
nefndir Baldur - Magnús og Jón eru
í öðru sætinu með 377 stig og Borg-
nesingarnir Jón Einarsson og Unn-
steinn Arason eru þriðju með 371
stig. Enn eru tvö kvöld eftir af þess-
ari keppni og ljóst að spennan á eft-
ir að magnast.
ahb/ij
Fyrsta briddsmót nýs keppnisstjóra hjá BB
Heiðar Árni Baldursson keppnisstjóri
BB.
Þessa dagana er unnið að end-
urnýjun hitaveitulagnarinnar frá
Mið-Fossum og niður fyrir Ausu í
Andakíl. Þetta er hluti af aðveitu-
lögninni sem liggur frá stóru hita-
veitulögninni milli Deildartungu
og Akraness og sér Hvanneyri fyr-
ir heitu vatni. Verktakafyrirtæk-
ið Borgarverk sinnir þessu verk-
efni. „Þarna er verið að skipta út
hluta af gömlu asbestslögninni
sem var lögð þarna í upphafi þeg-
ar ráðist var í gerð hitaveitunnar
og setja plastlögn í staðinn. Þetta
eru alls 2,1 kílómetri. Verkinu á að
ljúka núna í desember. Það er hluti
af því sem Orkuveitan hefur verið
að gera að undanförnu í endurnýj-
un á þeim köflum aðveitukerfisins
frá Deildartungu sem hafa verið
verstir hvað varðar leka og bilan-
ir,“ segir Óskar Sigvaldason fram-
kvæmdastjóri Borgarverks í samtali
við Skessuhorn. mþh
Hitaveitulögn að
Hvanneyri endurnýjuð
Grafið fyrir nýju lögninni við þjóðveginn skammt frá tengivirki Andakílsárvirkj-
unar.
Þeir Valdimar Guðmundsson á gröfunni og Þórir Aðalsteinsson voru glaðbeittir
við að grafa fyrir nýju lögninni í grennd við Mið-Fossa á laugardaginn.
Tónlistarskólinn á
Akranesi sextugur
Gestir og gangandi gæddu sér á afmælistertu í anddyri tónlistarskólans.
Prúðbúnar og spenntar að bíða eftir því að stíga á svið.
Nemendur tónlistarskólans fluttu margskonar tónlistaratriði á tónleikum dagsins.