Skessuhorn - 11.11.2015, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2015 17
Þessa dagana vinnur HB Grandi
að gerð kynningarmyndbands um
bolfiskvinnslu fyrirtækisins á Akra-
nesi. Undanfarin ár hefur vinnslan
þar einkum beinst að því að fram-
leiða ferskar afurðir úr þorski og
ufsa. Nú síðast hefur svo staðið
yfir þróunarvinna við að búa til
og markaðssetja formaða fiskbita
sem eru framleiddir úr blokk og
fiskhakki sem fellur til við fersk-
fisksvinnslu fyrirtækisins á þorski
og ufsa. Um tvö þúsund tonn verða
til af slíku hráefni í bolfiskvinnslu-
húsum HB Granda í Reykjavík og
á Akranesi árlega. Það er því eft-
ir þó nokkru að slægjast takist að
auka verðmætið á þessu með form-
vinnslu, auk þess sem slíkt getur
skapað ný störf við fiskvinnsluna.
Horfa til mötuneyta og
matvælavinnsla
Þröstur Reynisson vinnslustjóri
í landvinnslu HB Granda hef-
ur unnið ötullega að því að koma
formvinnslunni á fót í fiskvinnslu-
húsi fyrirtækisins á Akranesi.
„Vinnslan er tilbúin. Til þessa
höfum við unnið úr þorski og ufsa.
Við höfum þegar framleitt og selt
eitthvað af afurðum til að mynda
til Spánar og Noregs. Mest hefur
reyndar farið til Norðmanna. Síð-
an horfum við til annarra Evrópu-
landa svo sem Þýskalands. Aðilar
frá ýmsum mörkuðum hafa sýnt
afurðunum áhuga, m.a. frá Jap-
an. Við formum ákveðna bita úr
blokk og hakki í sérstakri vél frá
Marel sem kallast RevoPortioner.
Við notum engin íblöndunarefni.
Formaðar afurðir sem aðrir fram-
leiðendur bjóða innihalda oft ým-
isleg íblöndunarefni en við erum
einungis með 100% fisk í okkar af-
urð. Síðan lausfrystum við þenn-
an formaða fisk og pökkum í fimm
eða tíu kílóa kassa,“ segir Þröst-
ur. Framleiðslan er fyrst og fremst
hugsuð sem tilbúin beint til mat-
reiðslu eða þá seld til verksmiðja
sem nota hana sem hráefni í fisk-
rétti. Vonir standa til að hluti af
framleiðsunni fari fyrst til Norð-
anfisks í brauðun. Eitthvað af
sendingum hafa þegar farið þá leið
og þaðan í útflutning. „Við erum
fyrst og fremst að framleiða fyrir
mötuneyti eða matvælavinnslur.
Þess vegna fer þetta í stórar um-
búðir. Við erum ekki að framleiða
litla skammta fyrir heimili.“
Myndband um vinnslu-
línu fyrir formaðar
afurðir
Í síðustu viku var unnið að því á
Akranesi að gera kynningarmynd-
band um bolfiskvinnsluna þar.
Áhersla er lögð á að sýna hina nýju
formvinnslu og afurðir frá henni.
„HB Grandi hefur þegar gert
kynningarmyndband um Vopna-
fjörð og vinnsluna þar. Nú er verið
að gera hið sama varðandi vinnsl-
una á Akranesi. Það má segja að
áherslurnar séu tvær hér á Akra-
nesi. Við viljum eiga gott heim-
ildaefni um vinnsluna og síðan
langar okkur til að kynna sérstak-
lega þessa nýju vinnslulínu sem við
höfum verið að byggja upp. Þar
erum við að vinna úr ódýrari þætt-
inum af hráefninu okkar, það er að
segja úr fiskhakki og afskurði. Nú
höfum við eldað rétti úr þessum
formaða fiski hér á veitingastaðn-
um Galito á Akranesi og kvik-
myndum þá. Með þessu sýnum við
fram á að þessi vara á alveg heima
sem hráefni beint í vandaðar mál-
tíðir,“ segir Þröstur.
„Við ætlum að gera fimm mín-
útna myndband um fiskformunina
þar sem við rekjum allt ferlið frá
veiðum og í gegnum fiskvinnsluna
þar til afurðin liggur fyrir neyt-
endum sem fiskréttir. Við sýnum
fram á það að sá hluti fisksins sem
fer í afskurð, blokk og hakk er í
raun af sama fiski og fer í dýrari af-
urðir svo sem flök og flakabita. Við
erum því þannig að tala um afurð-
ir sem eru af fiski sem er af sömu
gæðum út í gegn.“
Góður gangur á
Akranesi
Aðspurður segir Þröstur að bol-
fiskvinnsla HB Granda á Akra-
nesi gangi mjög vel. „Það er nóg
að gera. Nú eru á bilinu 80 og 90
manns sem starfa í bolfiskvinnslu
HB Granda hér á Akranesi. Við
erum með gott starfsfólk og af-
köstin eru góð. Reksturinn geng-
ur vel og söluhorfur góðar. Veið-
arnar hafa sömuleiðis gengið vel.
Sem fyrr erum við fyrst og fremst
í því að framleiða ferskan fisk sem
fer þá til kaupenda erlendis bæði
í flugi og með skipum. Við sjáum
fyrir okkur að sérstaða okkar hér
verði áfram í fersku og svo form-
uðum lausfrystum bitum,“ segir
Þröstur Reynisson vinnslustjóri.
mþh
íslensk hönnun . íslensk framleiðsla
Ármúli 17a . Reykjavík . sími: 588 9933 . fax: 588 9940 | Miðás 9 . Egilsstaðir . sími: 470 1600 . fax: 471 1074 | www.brunas.is
* Flytjandi ytur vöruna á þá
stöð sem næst er viðskiptavini
FRÍR FLUTNINGUR
Hvert á land sem er*
Komdu í sýningarsali okkar og fáðu faglega þjónustu
og ráðgjöf innanhússarkitekta við val á Brúnás innréttingum
HB Grandi gerir kynningarmyndband um nýja vinnslulínu fiskafurða
Sæmundur Árni Hermannsson starfsmaður markaðsdeildar og Þröstur Reynis-
son vinnslustjóri HB Granda á Akranesi við gerð kynningarmyndbandsins á
veitingastaðnum Galito á Akranesi í síðustu viku.
Þröstur Reynisson leggur einn af
fiskréttunum sem matsveinar Galito
bjuggu til úr formaða fiskinum á borð
fyrir framan kvikmyndatökuvélina hjá
Daníel Bjarnasyni hjá „Silent fram-
leiðslufyrirtæki.“
Djúpsteiktur fiskur með frönskum kartöflum (Fish & chips) myndaður.