Skessuhorn - 11.11.2015, Page 26
Breyttir tímar kalla á breyttar
áherslur og breyttar aðgerðir.
Með auknu vægi skapandi
er litið til vaxtarmöguleika
Akraness, sem stendur frammi
fyrir þéttbýlisendurnýjun með
endurbótum á gömlu stóru
iðnaðarsvæði í hjarta bæjarins.
Framundan eru spennandi
tímar hjá iðnaðarbænum
Akranesi, sem liggur í útjaðri
stórhöfuðborgarsvæðisins og
hefur gengið í gegnum nokkrar
-
jir eru möguleikar Akraness á
tímum sköpunar?
Velt er upp framtíðarmögulei-
bjartsýni og styrkja sjálfsmynd
íbúa, og þar með framgangi
atvinnu- og menningarlífs og
samfélagsins í heild. Vonast
skírskotun til annarra sveitar-
-
blástur og veitt breiðari sýn
og styrkt heildræna nálgun til
skipulagsvinnu.
Með því að sameina eigindle-
gar og megindlegar aðferðir
við skipulagsfræði, félags-
og efnahagsmál og skoða
samband skapandi starfsemi,
staðsetningar og vaxtarmögu-
leika, þá er niðurstaða
rannsóknarinnar að skapandi
starfsemi þrífst á Akranesi, en
betur má ef duga skal. Hægt
er að auka vaxtarmöguleika
Akraness með því byggja upp
innviði sem styðja við skapandi
starfsemi og skapa félagslegar
og efnahagslegar aðstæður
fyrir skapandi fólk til að starfa
í. Mikil sóknarfæri felast í
nálægðinni við Reykjavík og
góðu framboði af húsnæði á
Akranesi, sem er ódýrara en á
höfuðborgarsvæðinu. Endur-
bætur á gömlu iðnaðarsvæði
geta gegnt veigamiklu hlutver-
ki í þéttbýlisendurnýjun Akra-
starfsemi aðstöðu og skapa
fjölbreytt og lifandi athafn-
asvæði með góðum tengingum
Vesturlands langar mig að skrifa hér smá
grunnskólaárum mínum en ég ólst upp á
bóndabænum Einarsnesi og gekk í skóla í
Varmalandi. Ég upplifði það að fara í gegnum
grunnskóla árin svolítið hissa á því að ég
passaði að einhverju leyti ekki inn í hið
hefðbundna form. Ég upplifði það að ég væri
eitthvað öðruvísi þenkjandi en skildi ekki
alveg hvernig, þar sem sá heimur sem ég
þekki og hrærist í nú, var mér algjörlega
framandi þá. Skólinn var með hefðbundnu
á þessum tíma. Allt gekk sinni vanagang, eftir
bókinni. Við það að upplifa þessi 10 ár, þar
sem mér leið eins og ég væri klædd í föt
sem voru nokkrum númerum of lítil eða
of stór þá kviknaði hjá mér einskonar
frelsisþrá og var ég snemma á unglingsárum
harðákveðin í að sækja mér framhalds-
menntun í Reykjavík, væntanlega í leit að
sjálfri mér. Ég fer í framhaldsskólann eins og
í fjöldanum þar sem ég þekkti ekki sjálfa mig,
enn sem komið var. Ég vissi ekki hvert ég átti
ekki fyrr en ég var orðin 27 ára gömul, komin
í örugga vinnu hjá olíufyrirtæki á ágætis
þvert á móti. Ég sagði því upp vinnunni og
þreyti inntökupróf fyrir fornám í Myndlis-
tarskóla Reykjavíkur og við það hófst 6 ára
námsferill minn. Í vor stend ég uppi
með Diploma í keramik og BA í myndlist
og reynslunni ríkari. Á síðustu árum og fram
að þessu hef ég tekið þátt í fjölmörgum
sýningum af ýmsum toga og hef stýrt
og rifja upp krókaleið mína í átt að þeim
stað sem ég er á í dag þá velti ég því fyrir
mér hvernig þetta hefði allt verið ef ég
hefði fengið innsýn inn í hinn skapandi heim
á mínum yngri árum. Í framhaldi leiði ég
hugann að því hvað hægt er að gera hluti
áhugaverða í grunnskólum í dag, sér í lagi
fyrir börn sem leggja mikið á sig við að passa
inn í kennsluformið í stað þess að uppgötva og
leika sína
t.d. á sviði
listsköpunar.
Hér með
enda ég þessa ferðasögu mína á
þessum hugleiðingum sem er að
það að krakkar máti sjálfa sig og
spegli sig í víðara samhengi en ella.
Opnar umræður, vangaveltur og
heimspekilegar pælingar sem listir
bjóða upp á er mikilvægt hei-
einstakling og gerir honum kleift að
staðsetja sig innan samfélagins, á
sínum upplýstu forsendum. Í þessu
samhengi hefur það verið virkilega
spennandi að fylgjast með Vit-
brigðum Vesturlands verða til og
sjá slíkan hóp skapandi einstaklinga
sýnileiki skapandi greina ýtir undir
hugmyndina um möguleikann sem
stækkar heim einstaklingsins og ýtir
undir forvitni og gefur honum frelsi
nefnilega frumkvöðlar. Ég hlakka til
að fylgjast með þessari mikilvægu
grasrót sem Vitbrigðin eru og sjá
jákvæð áhrif hennar breiðast út í
samfélagið, þarna út í stóra sam-
hengið og til komandi kynslóða.
Geir Konráð er hugmynda-
hönnuður sem starfar á frum-
kvöðlasetrinu Hugheimum
í Borgarnesi. Eftir að hafa
ferðast, prufað hin ýmsu
háskólanám, unnið hér og
þar og leitt teymi í kringum
til topp 10 úrslita í frum-
kvöðlakeppninni um
Gulleggið, endaði hann í
heimabænum sínum þegar
Hugheimar voru opnaðir.
Með styrk og stuðning frá
Nýsköpunarsjóði námsmanna,
KPMG, Arion banka og Impru
hefur verið mögulegt að taka
verkefninu hans. Hugmyndin
að verkefninu er sprottin upp
úr vandræðunum með verjast
á þægilegan máta öskufalli og
menguninni sem fylgdi eld-
gosum síðustu ára. Hugmyndin
þróaðist síðan hægt og rólega
eru með innbyggðan búnað til
að vernda öndunarfæri gegn
svifryki sem og öðru óæskilegu
sem fylgir mengun í stór-
borgum. Vonin er að hönnunin
sé notendavænni og líklegri til
að falla að klæðarburði fólks en
hefðbundnar mengunargrímur,
það er að segja að koma í veg
fyrir að fólk stingi í stúf þegar
það ver sig gegn þessu vaxandi
vandamáli í heiminum, svifryk-
og gasmengun í andrúmslofti.
Ásamt verkefninu vinnur Geir
að öðrum skapandi verkefnum
sér til skemmtunar, allt frá því
að þrívíddaprenta varahlut
úr plasti í sundlaugaryksugu
gallerí sem hægt væri að
nota í fjörum bæjarins.
UPPLIFUN
SKYNJUNAR
GEIR KONRÁÐ
SINDRI BIRGISSON
Skipulagsfræðingur
& leikari
HUGMYNDAHÖNNUÐUR
SIGRÍÐUR ÞÓRA
ÓÐINSDÓTTIR
Myndlist
FYRIRLESTUR / KL.9.40
| 6 | Ráðstefnuhlé
ÚR SEMENTSSTÉTT
Í SKAPANDI STÉTT
FYRIRLESTUR / KL.10.20
AKRANES Á TÍMUM SKÖPUNAR
FYRIRLESTUR / KL.13.30
VINNUSTOFA / KL.15.00