Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2015, Side 30

Skessuhorn - 11.11.2015, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 201530 Segja má að Guðmundur Hall- grímsson á Hvanneyri hafi ýmis járn í eldinum og yfirleitt er hann ekki að feta í spor annarra. Nýsköp- un í brunavörnum, bætt vinnuskil- yrði bænda og aðbúnaður búpen- ings eru hans ær og kýr. Undan- farin misseri segir Guðmundur að verkefnin sem tekið hafi hug hans séu einkum þrjú. Í fyrsta lagi hef- ur hann þróað og prófað færanlegt úðakerfi sem hægt er að leggja út komi upp sinu- eða gróðureldar, í því skyni að hefta útbreiðslu þeirra. Hin verkefnin snúa að bændum og búskap til sveita og má segja að Guðmundur búi vel af reynslu því hann var um langt árabil bú- stjóri kennslubúsins á Hvanneyri, var þá aldrei kallaður annað en Guðmundur ráðsmaður og titlar sig reyndar sem slíkur í símaskrá. Hann ferðast milli fjósa og fræsir hálkuvarnir fyrir kýr í sleip fjós- gólf. Loks hefur Guðmundur á síðustu misserum þróað verkefnið sem hefur vinnuheitið „Búum vel – öryggi, heilsa, umhverfi.“ Verk- efnið snýst um að heimsækja bændur sem ráðgjafi, ekki eftir- litsmaður, og ræða við þá um ör- yggis-, heilsu- og umhverfisþætti í víðustum skilningi. Sitthvað kem- ur þar upp og ekki laust við að gott geti reynst að vera mannþekkjari og ekki skemmdi grunnþekking í sálfræði heldur. Skessuhorn fékk að heyra undan og ofan af þessum verkefnum sem Guðmundur ráðs- maður er að fást við. Farið í brunavarnaátak í dreifbýli Um árabil hefur Guðmundur starfað að slökkviliðsmálum og brunavörnum. Sem slökkviliðs- maður í Slökkviliði Borgarfjarð- ardala og síðar Borgarbyggðar fékk hann áhuga fyrir ýmsu sem fylgir því að koma í veg fyrir elds- voða og ráða svo niðurlögum elda komi þeir upp. Þannig tók hann ásamt fjölmörgum öðrum þátt í hinni þriggja sólarhringa baráttu við Mýraeldana vorið 2006 og hef- ur komið að slökkvistarfi í Skorra- dal og víðar. „Fyrir nokkrum árum var komið af stað verkefni sem bar heitið „Brunavarnaátak í dreif- býli.“ Það var verkefni sem ég byrjaði með á eigin vegum, en sá fljótlega að það myndi vaxa mér yfir höfuð. Búnaðarsamtök Vest- urlands tóku við verkefninu og gerðu samstarfssamning við flest sveitarfélög á Vesturlandi. Allir bæir í þeim sveitarfélögum voru heimsóttir. Öll hús voru merkt inn á loftmynd og útbúin var lýsing á húsunum; úr hvaða byggingarefni þau væru og útbúin mappa fyrir slökkviliðið um aðstæður á bæjum. Svo sem hvar væri hægt að komast í vatn, hver vegalengdin væri og hver hæðarmunur væri með tilliti til þess hvort þyrfti millidælingu ef ekkert vatn væri fyrir hendi, hvert styst væri að sækja það og svo framvegis.“ Þar sem eldarnir loga Nú er það svo að lausaganga bú- fjár heyrir víða sögunni til. Því vex allskonar gróður óáreittur þann- ig að úr verður mikil gróðurflækja sem er mikill eldsmatur. „Í sam- starfi við Huldu Guðmundsdótt- ur á Fitjum í Skorradal og fleiri er búið að þróa og prófa úðakerfi sem hugsað er í þeim tilgangi að skipta landi í brunahólf og hefta út- breiðslu skógarelda. Hin þétta og mikla sumarhúsabyggð í Skorradal og allur sá gróður sem þar sprett- ur eykur nauðsyn þess að menn finni upp ráð til að hægt sé að stöðva útbreiðslu elda blossi þeir upp. Nú stendur til að setja upp línu slökkvikerfis í Fitjalandi sem virkar þannig að vatni er hleypt á svera lögn komi upp eldur og við hana tengdir úðarar með ákveðnu millibili. Hægt er að hleypa vatni á kerfið komi upp eldur og bleyta upp allt að 54 metra breiða land- ræmu. Það er því ekki beinlín- is verið að slökkva eldinn, heldur koma í veg fyrir óhefta útbreiðslu hans frá einu svæði til annars,“ út- skýrir Guðmundur. Með slöngu og úðara í jeppakerru Auk þessarar tilraunar í Skorradal er Guðmundur nú búinn að koma sér upp sambærilegu slökkvikerfi sem rúmast í jeppakerru. Kerr- an verður til taks þegar sinu- eða gróðureldar kvikna og hægt að fara með búnaðinn á staðinn og tengja við dælur slökkvibíla og í læki eða vatnsból. Nýverið var Guðmund- ur einmitt að kynna fyrir slökkvi- liðsmönnum á Akranesi þennan búnað. Var dregin út 380 metra lögn, fjögurra tommu sver, og úð- arar settir með 50 metra bili og vatni dælt úr Berjadalsánni inn á lögnina. Tilraunin tóks ágætlega og náði þetta úðakerfi að bleyta vel í jarðveginum og hefði vafalít- ið heft útbreiðslu gróðurelds hefði hann verið til staðar. „Hugsun- in með þessu er að geta á stuttum tíma farið á staðinn í nálægð gróð- urelda, komið búnaðinum fyrir og varið mannvirki eða skóga. Með þessu er verið að búa til brunahólf á skömmum tíma.“ Vonandi koma fleiri sér upp slíkum búnaði Guðmundur segir að þessi til- raunastarfsemi sín hafi smám sam- an orðið til og framan af kostuð al- farið úr eigin vasa. „Ég hef nú bent mönnum á, þegar þeir spyrja mig út í kostnað við þetta brölt, að ég reyki ekki, drekk ekki, stunda ekki hestamennsku, golf eða aðrar dýr- ar íþróttagreinar og hef því getað verið að leika mér að kaupa eitt og annað sem þarf til að gera svona tilraunir. Það kom mér reyndar skemmtilega á óvart að þeir sem halda um fjárráðin í Vaxtarsamn- ingi Vesturlands ákváðu að styrkja þetta brölt mitt og þá gat ég komið mér upp búnaði í eina kerru. Vissu- lega hjálpar slíkur styrkur mik- ið við svona tilraunastarf og það er hvatning að aðrir sjái einhverja skynsemi í þessu.“ Guðmundur segir að mjög auðvelt sé að lengja lögnina, breyta henni og bæta. „En ég held að þarna sé að verða til ör- yggistæki sem menn munu gjarn- an viljað geta gripið til þegar eldar kvikna. Landið okkar er að breyt- ast. Það eru færri skepnur að halda gróðri í skefjun og það skapar mikla hættu. Vonandi taka slökkvi- lið þessa tækni upp og koma sér upp viðlíka búnaði. Ekki síst getur þetta verið til gagns í sumarhúsa- hverfum þar sem mikið liggur við að verja mannvirki og jafnvel fólk þegar eldar blossa upp.“ Eru eins og beljur á svelli En Guðmundur hefur á síð- ari árum mest verið að vinna fyr- ir bændur. Hann ferðast meðal annars um með klaufskurðarbás og snyrtir klaufir á kúm, en slíkt er jafnvel enn mikilvægara fyrir kýr en fótsnyrting er fyrir okkur mannfólkið. Við þessa vinnu varð hann fyrir margt löngu var við að kýr gátu átt erfitt með að fóta sig á hálum fjósgólfum. „Víða þar sem kýr eru mikið á hreyfingu, svo sem til að komast af legubásum yfir í mjaltaþjónana, voru þær ragar við að ganga eftir fjósgólfum ef þau voru hál. Ég las viðtal við Hol- lending sem hafði þá nýverið fund- ið upp tækni til að fræsa í fjósgólf- in og innleiddi einfaldlega þessa tækni hér á landi og kom mér upp búnaði. Kýrnar þurfa að komast með góðu móti milli staða í lausa- göngufjósum. Á mjög hálum gólf- um voru þær eins og segir í mál- tækinu, eins og beljur á svelli. Það hafa verið gerðar mælingar á áhrif- um þess að fræsa gólfin og það sýnir sig að hreyfanleiki kúnna stóreykst við að þær þurfi ekki að hræðast hálkuna. Sums staðar þar sem fjós voru hvað hálust voru kýrnar jafn- vel hættar að sýna yxniseinkenni, en slíkt er, sjáðu til, afar bagalegt fyrir frjósemina.“ Verkefnið Búum vel – öryggi, heilsa, umhverfi Það að reka bú til sveita krefst fjölbreyttrar þekkingar af hálfu bænda. Trúlega er búrekstur með fjölbreyttari atvinnurekstri yfir- leitt og þurfa bændur að kunna skil á ótalmörgu sem snýr að fjármál- um, upplýsingatækni, vinnuvernd, hreinlæti, brunavörnum, umhverf- ismálum og áfram mætti lengi telja. Guðmundur Hallgrímsson vann um árabil að úttekt á bruna- vörnum í útihúsum og starfaði þá með búnaðarsamböndum og sveit- arfélögum víða um land. En við úttektir á ástandi brunavarna varð hann þess fljótt áskynja að sitt- hvað fleira þarf að leiðbeina bænd- um með. Nú er verið að þróa verk- efni sem heitir „Búum vel - ör- yggi, heilsa og umhverfi“ og felst það í gerð almenns áhættumats í búrekstri. „Í samstarfi við Bænda- samtökin og búnaðarsamtök á nokkrum svæðum hef ég verið að heimsækja bændur og vinna í sam- ráði við þá áhættumat fyrir búin. Þetta er nokkurs konar innra eftir- lit og snýr að fjölmörgum atriðum í vinnuumhverfi bænda. En þetta byggir allt á góðum samskiptum við bændur. Ég lít ekki á mig sem eftirlitsmann af hálfu hins opin- bera og er það alls ekki, heldur heimsæki ég bændur miklu frem- ur sem ráðgjafi og er einhver sem bændur geta leitað ráða hjá til að bæta vinnuskilyrði, öryggi og um- hverfið. Þeir þurfa að geta treyst viðkomandi ráðgjafa og litið á hann sem trúnaðarvin.“ Glöggt er gests augað Þessi ráðgjöf getur að sögn Guð- mundar snúið að fjölmörgum at- riðum. „Til dæmis að vélum, raf- magni í útihúsum, aðstöðu í gripa- húsum, lýsingu, loftræstingu og sitthverju öðru. Eins er rætt um ásýnd býlisins, frágang túna og girðinga, uppröðun véla og tækja, rúllubaggaplön og fleira. Oft er glöggt gests augað þegar til dæm- is umhverfismál eru annars vegar. Sumt átta menn sig jafnvel ekki á að getur flokkast sem rusl eða sóðaskapur, því þeir sjá notagild- ið í hlutunum með öðrum augum en þeir sem ekki til þekkja. Þann- ig kom í ljós að á bæjarhlaðinu hjá einum hafði bílhræ verið á toppn- um í ein sjö ár af því alltaf stóð til að hirða úr því náinn til að búa til kerru. Tími hafði hins vegar ekki gefist til þess, en áfram var bílhræ- ið verðmæti í augum bóndans. Að sama skapi virkaði hluturinn hins vegar á gesti eins og sóðaskapur. Sinnir verkefnum sem snúa að eldvörnum, nýsköpun og bættu vinnuumhverfi Ráðsmaðurinn heimsækir bændur í verkefninu Búum vel Guðmundur Hallgrímsson. Nýverið kynnti Guðmundur færanlega úðakerfið fyrir slökkviliðsmönnum á Akranesi. Hér er hann ásamt Þráni Ólafssyni slökkviliðsstjóra. Færanlega úðakerfið sem Guðmundur hefur þróað rúmast í jeppakerru. Útdregið getur það bleytt upp í 50 metra breiðu landi og heft gróðureld. Myndin er tekin þegar kerfið var prófað við Berjadalsá nýverið.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.