Skessuhorn - 11.11.2015, Page 35
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2015 35
www.skessuhorn.is
Þeim sem vilja nýta sér blaðið til auglýsinga er bent á að
hafa samband við markaðsstjóra í síma 433-5500 eða
senda tölvupóst á emilia@skessuhorn.is
Sökum þess hversu stórt blaðið er að þessu sinni er
skilafrestur auglýsinga föstudaginn 20. nóvember
Aðventublað
Skessuhorns
kemur út 25. nóvemberNámskeið um eldvarnir við svo-nefnda heita vinnu eða logavinnu
verður haldið á slökkvistöðinni á
Akranesi þriðjudaginn 17. nóvem-
ber næstkomandi kl. 13-18. Nám-
skeiðið er á vegum Iðunnar fræðslu-
seturs í samvinnu við Eldvarna-
bandalagið. „Veruleg hætta get-
ur skapast þegar iðnaðarmenn og
ófaglærðir vinna heita vinnu. Fjöl-
mörg dæmi eru um að svo ógæti-
lega sé farið að stórtjón hljótist af,“
segir í tilkynningu. Heit vinna er
meðal annars lagning þakpappa,
logsuða, rafsuða, lóðning málma,
vinna með slípirokk og vinna með
hitabyssu og öðrum hitatækjum.
Starfsmenn slökkviliða og trygg-
ingafélaga þekkja mörg dæmi um
að reglur um eldvarnir við loga-
vinnu séu virtar að vettugi, stund-
um með alvarlegum afleiðingum.
Oft eru að verki menn sem skortir
þekkingu á því hvernig eldur getur
kviknað og breiðst út.
„Skráning á námskeiðið er á idan.
is. Það er ætlað þeim sem vinna
heita vinnu en getur jafnframt ver-
ið mjög gagnlegt fyrir þá sem kaupa
slíka vinnu og hafa umsjón með
henni, svo sem umsjónarmenn fast-
eigna. Markmið námskeiðsins er
að þátttakendur öðlist hæfni til að
vinna heita vinnu af öryggi með því
að lágmarka áhættu við vinnuna og
þekkja hvernig bregðast skuli við
henni. Farið er yfir kröfur til starfs-
manna, hegðun elds og slökkvistarf
og slökkvibúnað. Einnig eldvarn-
ir og fyrirbyggjandi aðgerðir til að
hindra eldsvoða og slys við heita
vinnu. Fjallað er um eldfim efni og
sprengifimt umhverfi og kennd er
meðferð og notkun slökkvitækja.“
mm
Námskeið á Akranesi um
eldvarnir við heita vinnu
Ærslaleikurinn Þjónn í súpunni verð-
ur nú tekinn til sýninga á Hernáms-
setrinu á Hlöðum á Hvalfjarðar-
strönd. Nú í nóvember og desember
verður boðið upp á jólahlaðborð um
leið og leikurinn verður framkvæmd-
ur með gestum. Blaðamaður Skessu-
horns var viðstaddur forsýningu, svo-
kallaða generalprufu, síðastliðinn
laugardag þar sem salurinn var full-
ur af gestum. Óhætt er að segja leik-
ritið kom mjög skemmtilega á óvart.
Fólk bókstaflega grét af hlátri yfir
matnum.
Leikritið Þjónn í súpunni var skrif-
að af Árna Ibsen en hann ólst upp á
Akranesi. Árni var afkastamikið ljóða-
og leikritaskáld en lést 2007. Þessi
gamanfarsi var fyrst sýndur í Iðnó
sumarið 1998 þar sem Bessi Bjarna-
son, Edda Björgvinsdóttir, Kjart-
an Guðjónsson, Margrét Vilhjálms-
dóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
og Stefán Karl Stefánsson fóru með
hlutverk. Þar sló leikritið í gegn og
hefur síðan verið sýnt víðar um land.
Nú verður boðið upp á Þjón í súp-
unni á Hernámssetrinu á Hlöðum á
Hvalfjarðarströnd. Leikstjóri er María
Sigurðardóttir en hún stýrði einnig
verkinu þegar það var fyrst sett upp
í Iðnó. María hefur nú endurskrif-
að verkið og lagað það að aðstæðum
í Hernámssetrinu. Sýnt verður fram
undir jól þar sem gestum verður jafn-
framt boðið upp á jólahlaðborð. Í
hlutverkum fyrsta kastið verða þau
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Kjartan
Guðjónsson, Aðalbjörg Árnadótt-
ir og Jónmundur Grétarsson. Seinna
munu svo feðginin Edda Björgvins-
dóttir og Björgvin Franz Gíslason
stíga inn sem leikendur ásamt fleir-
um. Allir leikarar sem koma að sýn-
ingunni eru atvinnufólk sem starfar
alla jafna í leikhúsum landsmanna.
Hlátur og gleði
Þjónn í súpunni er öðrum þræði
spunaverk þar sem leikararnir þjóna
til borðs meðan áhorfendur sitja að
snæðingi. Það gerir ákveðnar kröfur
til þeirra um að lesa í gestina hverju
sinni, bregðast við viðbrögðum þeirra
og spinna frítt út frá þeim aðstæð-
um sem geta komið upp. Þetta get-
ur skapað mjög fyndnar uppákomur.
Leikararnir sem stóðu fyrir sprellinu
á Hernámssetrinu fóru á kostum og
kunnu að nýta sér það til hins ýtrasta.
Gestir skemmtu sér konunglega og
það var mikið hlegið.
Hernámssetrið á Hlöðum hentar
sömuleiðis ákaflega vel fyrir leikrit af
þessu tagi þar sem jafnframt er boð-
ið upp á veislumat og aðrar veiting-
ar. Sem gamalt félagsheimili er húsið
útbúið með sviði sem kemur sér vel
þegar svona stykki er sett upp. Her-
námssetrið er sömuleiðis vel búið af
ýmsum áhugaverðum munum sem
gaman og fróðlegt er að skoða áður
en sest er að borðum og fjörið hefst.
Það er alveg óhætt að mæla með því
að fólk fari og njóti Þjónsins í súp-
unni um leið og bæði bragðlaukar og
hláturtaugar eru kitlaðar á aðvent-
unni. Þetta er hin besta skemmtun.
mþh
Glens og gaman í Hernámssetrinu að Hlöðum
Matur er snæddur í sal Hernámssetursins á Hlöðum þar sem þjónustan er á tíðum
afar skrautleg.
Gestir eru þátttakendur í leiknum og geta átt von á ýmsu óvæntu.
Leikarar fóru á kostum. Hér eru þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Kjartan Guðjónsson
og Aðalbjörg Árnadóttir.
Það var mikið hlegið á forsýningu
Þjóns í súpunni og margir þurftu
hreinlega að þerra hláturstárin, meðal
annarra Matti á Leirárgörðum.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
Demparahús við dælustöð
Veitna í Deildartungu
Útboðsverkið felst í að byggja steinsteypt mannvirki fyrir
Þrýstidempara II við dælustöðina í Deildartungu.
Byggingin kemur sunnan við núverandi dælustöð Veitna, við
Deildartungu og verður öll neðanjarðar.
Mannvirkið er fyrir demparann og lagnir frá honum munu tengjast
annars vegar aðveituæð og hins vegar gastækjum sem staðsett verða
í dælustöðinni.
Saga á fyrir hurðargötum í dælustöð og inn í eldra demparahús,
kjarnabora fyrir fyrirhugaðar lagnir frá nýja demparanum.
Lagnir frá nýja demparanum tilheyra ekki þessu verki.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með þriðjudeginum
10.11.2015 á vefsíðu Orkuveitunnar www.or.is/UmOR/Utbod.
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „ORV-2015-22
Demparahús við dælustöð Veitna í Deildartungu útgefin í
nóvember 2015“
Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf. Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, fimmtudaginn 26.11.2015 kl. 11:00.
ORV-2015-22 07.11.2015
Bílaréttingar - Bílasprautun
Framrúðuskipti - Bílaleiga - Tjónaskoðun
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Þjónustum öll tryggingafélög