Skessuhorn - 11.11.2015, Page 37
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2015 37
Um 170 manns mættu til veislu og
skemmtunar þegar haldið var upp
á 50 ára afmæli Laugargerðisskóla
sem var haldið síðastliðinn laugar-
dag. Fyrrum skólastjórar skólans,
kennarar, gamlir nemendur með
mökum og börnum ásamt öðr-
um velunnurum skólans áttu þar
góða stund. Nemendahópinn skip-
aði fólk allt frá fyrstu árum skól-
ans til þeirra sem eru nýútskrifaðir.
Einnig komu menn sem tóku þátt í
því að byggja skólann fyrir rúmum
fimm áratugum síðan.
Haldin var skemmtileg sýning
á verkum nemenda skólans. Bæði
voru sýnd verk núverandi nemenda
og hinna eldri. Skoða mátti gott
safn ljósmynda sem teknar hafa
verið í gegnum tíðina af skólastarf-
inu. Þótti greinilega mörgum gam-
an að skoða þær og jafnframt að
fletta í gegnum gömul skólablöð og
sjá þar æskuverk á borð við sögur
og myndir eftir sig síðan í „gamla
daga.“
Einnig var haldin stutt skemmti-
dagskrá í sal. Lítið var þar um ræðu-
höld en mikið um skemmtileg tón-
listaratriði. Nefna má að nemend-
ur 1. – 4. bekkjar tóku nokkur lög,
fyrrum nemendur komu og spiluðu
og sungu og síðan sungu allir sam-
an afmælissöng Laugargerðisskóla.
Eftir skemmtidagskrá bauð Eyja-
og Miklaholtshreppur upp á kaffi
og meðlæti sem var í umsjón kven-
félagskvenna úr Eyja- og Mikla-
holtshreppi og Kolbeinsstaðar-
hreppi. mþh/iss/ Ljósm. iss.
Fjölmenni í fimmtugsaf-
mæli Laugargerðisskóla
Á mánudag voru liðin nákvæmlega
50 ár frá því að Heiðarskóli í Hval-
fjarðarsveit tók til starfa. Þann 9.
nóvember 1965 renndi fyrsti skóla-
bíllinn þar í hlað með fyrstu nem-
endur skólans. Þessa var minnst í
skólanum á mánudag með því að
halda opnunarhátíð afmælisárs-
ins 2015. Í hádeginu var nemend-
um og starfsmönnum boðið upp
á lambalæri til hátíðarbrigða. Eft-
ir hádegi var svo hátíðardagskrá í
sal skólans. Fjöldi velunnara komu
í heimsókn til skólans til að sam-
gleðjast með nemendum og starfs-
fólki.
Einar Sigurðsson, fyrrverandi
nemandi skólans og núverandi
starfsmaður, flutti erindi þar sem
meðal annars var komið inn á sögu
skólans. Marteinn Njálsson ræddi
um mikilvægi þess að varðveita
söguna og færði skólanum gamlan
skólastól frá tímum farskólans að
gjöf. Daníel Ottesen, sveitarstjórn-
armaður og formaður fræðslu- og
skólanefndar Hvalfjarðarsveitar af-
henti skólanum gjafabréf fyrir þrí-
víddarprentara frá sveitarfélaginu.
Börnin í 1.-4. bekk sungu afmæl-
issönginn, Hrönn Eyjólfsdóttir og
Ester Elfa Snorradóttir sungu lag.
Örn Arnarson kynnti niðurstöður
könnunar sem hann framkvæmdi
nú í vor meðal útskrifaðra nem-
enda, gamlar myndir voru sýnd-
ar og að lokum var boðið upp á af-
mælistertu. „Þetta gekk ljómandi
og dagurinn var ótrúlega skemmti-
legur. Við fengum nokkuð af gest-
um. Þetta verður þó aðeins upp-
hafið. Nú verður skipuð afmælis-
nefnd. Hún mun skipuleggja við-
burði sem haldnir verða á árinu.
Við verðum vör við að það er mikill
áhugi á því að haldin verði afmæl-
ishátíð þar sem eldri nemendur,
fyrrum starfsfólk, núverandi nem-
ar og starfsfólk og aðrir velunnarar
skólans geti komið saman og fagn-
að þessum tímamótum,“ segir Sig-
ríður Lára Guðmundsdóttir kenn-
ari við Heiðarskóla.
mþh
Haldið upp á hálfrar aldar
afmæli Heiðarskóla
Afmælissöngurinn var sunginn af 1.-4. bekk Heiðarskóla.
Katrín Rós Sigvaldadóttir kennari sker afmælisköku fyrir nemendur Heiðarskóla.
Skúffukaka og marengskaka voru höfð með kaffinu þennan dag en áður höfðu
allir fengið íslenskt lambalæri í hádegismat.
Ýmsir gestir komu í Heiðarskóla á mánudag til að fagna því að nú er runnið
upp 50. afmælisár skólans. Á myndinni eru m.a. Fríða Þorsteinsdóttir á Vestri-
Leirárgörðum og hjónin Anton Ottesen og Ingileif Daníelsdóttir á Ytra-Hólmi.