Skessuhorn - 11.11.2015, Síða 41
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2015 41
Fjölbreytt dag-
skrá verður í Safna-
húsi Borgarfjarðar nú
í nóvember. Árlegt
sagnakvöld hússins
verður kl. 20 fimmtu-
daginn 12. nóvember.
Það er árlegur við-
burður á vegum Hér-
aðsbókasafns þar sem
það helsta í borgfirskri
útgáfu er kynnt og les-
ið upp úr nokkrum nýj-
um bókum. Dagskrá-
in tekur um klukku-
tíma og heitt verð-
ur á könnunni á eftir.
Að venju verða bæk-
ur seldar á staðnum og áritaðar sé
þess óskað. Lesið verður upp úr eft-
irtöldum bókum: Þá hló Skúli - ævi-
saga Skúla Alexanderssonar alþing-
is- og athafnamanns á Hellissandi,
eftir Óskar Guðmundsson; Undir
Fíkjutré - saga af trú, von og kær-
leika eftir Önnu Láru Steindal og er
saga innflytjandans Ibrahem Al Da-
nony Mousa Faraj og bókin Sind-
ur - ljósbrot frá eyðibýli eftir Ólöfu
Þorvaldsdóttur þar sem fjallað er um
Narfastaði í Melasveit. Fjórða atrið-
ið á dagskránni er tónlist eftir unga
tónlistarkonu úr Borgarfirði; Soffíu
Björgu Óðinsdóttur. Soffía er með-
limur í Vitbrigðum Vesturlands, er
með BA gráðu í almennum tónsmíð-
um og hefur vakið athygli fyrir fal-
lega rödd og ríka tónlistargáfu. Soffía
vinnur nú að upptökum á plötu með
eigin tónsmíðum og flytur hún efni
af henni á sagnakvöldinu.
Laugardaginn 14. nóvember kl.
11 verður fyrirlestur og kynning á
bókinni Utangarðs? Ferðalag til for-
tíðar eftir Halldóru Kristinsdóttur
og Sigríði H. Jörundsdóttur. Bókin
er myndskreytt af Hall-
dóri Baldurssyni. Fyr-
irlesturinn er á vegum
Héraðsskjalasafns og er
efnt til hans í tilefni af
norræna skjaladeginum
sem haldinn er hátíðleg-
ur af skjalasöfnum víða á
Norðurlöndum. Í fyrir-
lestrinum verður m.a.
sagt frá Svani Jónssyni
frá Grjóteyrartungu og
Kristínu Pálsdóttur sem
fædd var að Eystri-Leir-
árgörðum og var síðar
víða í Borgarfirði, m.a. á
Gilsbakka. Boðið verð-
ur upp á kaffi að lokinni
dagskrá.
Að lokum skal þess getið að kl. 13
laugardaginn 21. nóvember verð-
ur opnuð ný sýning í Hallsteins-
sal. Hún hefur hlotið heitið „Leik-
ið með strik og stafi“ og þar sýnir
Bjarni Guðmundsson forstöðumað-
ur Landbúnaðarsafnsins á Hvann-
eyri verk sem hann kallar myndyrð-
ingar. Verður það verkefni nánar
kynnt síðar.
Aðgangur að viðburðunum er
ókeypis en söfnunarbaukur á staðn-
um. mm/ fréttatilk.
Safnahúsið stendur fyrir
menningarveislu í nóvember
Síðdegis á fimmtudaginn var hald-
ið útgáfuteiti vegna útkomu bókar-
innar „Þá hló Skúli – ævisaga Skúla
Alexanderssonar alþingismanns og
oddvita undir Jökli“. Bókin er skrif-
uð af Óskari Guðmundssyni rit-
höfundi og fræðimanni að Véum
í Reykholti í Borgarfirði. Útgáfu-
teitið var haldið í bókaverslun Ey-
mundsson í Austurstræti í Reykja-
vík og var önnur hæð hennar þar
sem viðburðurinn fór fram fullset-
in fólki. Þar las Óskar Guðmunds-
son valda kafla úr bók sinni og vakti
lukku. Á eftir áritaði hann bækur í
gríð og erg. Ævisaga Skúla er nú
komin í verslanir. Óskar og Skúli
unnu saman að þessari bók síð-
ustu misserin sem Skúli lifði. Þeim
auðnaðist að ljúka við hana örfáum
dögum áður en Skúli lést 23. maí
síðastliðinn.
„Eftir að hafa hlustað á Óskar
lesa úr bókinni hlakka ég mjög til að
lesa hana. Skúli var eftirminnileg-
ur maður. Rótfastur Strandamaður
að uppruna en helgaði heimabyggð
sinni á Snæfellsnesi krafta sína; og
svo auðvitað pólitíkinni. Ég kynnt-
ist honum best eftir að hann lét af
þingmennsku. Það voru eftirminni-
leg kynni og öll ánægjuleg. Þvílíkur
eldhugi sem hann var fram til hinstu
stundar - og sagnamaður. Þó árin
hefðu færst yfir var hann sem ung-
ur maður í anda og sífellt að huga
að framtíðinni,“ segir Einar Krist-
inn Guðfinnsson alþingsmaður og
forseti Alþingis sem var í útgáfuteit-
inu ásamt fjölda annarra. mth
Húsfyllir í útgáfuteiti
ævisögu Skúla Alexanderssonar
Óskar les upp úr bókinni.
Þingbræðurnir; Jón Bjarnason, Einar Kristinn Guðfinnsson og Össur Skarphéðins-
son voru mættir.
Hér er Óskar að árita bók fyrir Hauk Júlíusson gamlan samherja Skúla úr
pólitíkinni.
Dætur Skúla, þær Drífa (t.v.) og Hulda voru mættar í útgáfuteitið og fengu höf-
undinn til að árita ævisögu föður síns. Þess má geta að Drífa Skúladóttir á og
rekur Hraðbúðina á Hellissandi og þar er bókin til sölu.
Bragi Þórðarson sagnamaður og
fyrrverandi bókaútgefandi á Akra-
nesi hefur að undanförnu unnið að
því í samstarfi við fyrirtækið emma.
is að koma höfundarverkum sínum
út á rafbókaformi. Alls eru nú ell-
efu bækur hans fáanlegar hjá Ama-
zon.com, sem er eins og kunnugt
er þekktasta og stærsta netverslun
sinnar tegundar á veraldarvefnum.
Bragi má muna tímana tvenna
þegar bækur eru annars vegar. Fer-
ill hans í bókageiranum er ein-
stakur þar sem hann hefur kom-
ið að skrifum, hönnun, vinnslu og
útgáfu bóka á nánast öllum form-
um sem tíðkast hafa á hinum miklu
breytingatímum sem við lifum á.
Hann hefur tekið hverja tækniþró-
un traustataki allt frá því hann byrj-
aði í blýsetningu texta til prentun-
ar, tók til við undirbúning til prent-
unar í tölvum og er nú kominn í út-
gáfu á rafbókaformi þar sem blekið
er orðið rafrænt á skjá lesbretta.
Bragi, sem nú er 82 ára, hóf
nám í setningu í Prentverki Akra-
ness þegar hann var 16 ára. Hann
keypti sig síðar inn í fyrirtækið og
starfaði sem prentsmiðjustjóri fram
undir fertugt, er hann hætti í prent-
smiðjurekstri, seldi hlut sinn og
stofnaði verslunina Bókaskemm-
una á Akranesi ásamt eiginkonu
sinni Elínu Þorvaldsdóttur. Þau
ráku síðan verslun m.a. með bækur
og tölvur í áratug. Samhliða þess-
um störfum stofnaði Bragi Hörpu-
útgáfuna árið 1960 ásamt Elínu
og ráku þau fyrirtækið í 45 ár. Þau
gáfu á þeim tíma út um 500 bóka-
titla, þar til þau seldu Bókaforlag-
inu Sölku Hörpuútgáfuna fyrir um
áratug síðan. Samhliða áðurnefnd-
um störfum hefur Bragi skrifað yfir
20 bækur, þar af er ritsafnið Borg-
firsk blanda í átta bindum og Lífs-
reynsla í þremur bindum skrifuð í
félagi við fleiri höfunda og níu aðr-
ar bækur sem komið hafa út síðar.
Efni bóka hans er yfirleitt á sviði
þjóðlegs fróðleiks tengt mannlífi á
Akranesi og í Borgarfjarðarhéraði,
þar af þrjár ævisögur.
Það er hins vegar afar óvenju-
legt hvernig einn og sami maður-
inn hefur unnið bækurnar á öllum
stigum og komið þeim út á ólíku
formi. Upphaflega fór hann að
skrifa frásöguþætti fyrir útvarp, alls
60 þætti, sem hann flutti í Ríkisút-
varpinu. Þættirnir urðu síðan efni
í bækur sem hann setti eins og þá
tíðkaðist á setjaravél í prentsmiðju
en hann er lærður vélsetjari. Á þeim
tíma voru línurnar steyptar í blý og
síðar raðað saman í bók til prentun-
ar. Auk þess að koma þáttunum út
í prentuðum bókum, var efni þeirra
oft gefið út síðar í formi hljóð-
bóka þar sem hann var sjálfur les-
ari. Fyrst var útgáfan á kassettum,
síðar á geisladiskum.
Bækur Braga hafa alls komið út
hjá fjórum forlögum. Fyrst komu
flestar út hjá forlagi hans Hörpu-
útgáfunni, en eftir sölu útgáfunn-
ar fyrir áratug hélt hann áfram
að skrifa og komu næstu bækur
út hjá Uppheimum, Sölku og ein
eingöngu sem rafbók hjá Emma.
is. Reynslan af rafbókarútgáfunni
leiddi til þess að nokkrar bækur til
viðbótar voru færðar yfir á rafbóka-
form. Þegar Amazon Kindle fór
hins vegar að styðja við útgáfu raf-
bóka á fleiri tungumálum en ensku,
meðal annars með nýjum veflausn-
um, fékk hann þá hugmynd að
koma bókum sínum á rafbókaform
fyrir Kindle lestækin hjá Amazon,
með yfirfærslu á mobi skráarsnið
vefverslunarinnar og miðla þeim
þannig til sölu á Netinu. Bragi hélt
í því efni áfram samstarfi við Ósk-
ar Þór Þráinsson upplýsingafræð-
ing sem á og rekur emma.is.
Frá því síðastliðið sumar hafa ell-
efu af bókum Braga verið fáanlegar
á sanngjörnu verði á rafbókasöluvef
Amazon Kindle. Efni tveggja þeirra
eru valdir kaflar úr ritsafninu Borg-
firsk blanda, en sú framsetning
var áður aðeins til sem hljóðbæk-
ur. Auðvelt er að nálgast rafbæk-
urnar á Amazon.com undir kafl-
anum „Kindle store“ og leitarorð-
inu Bragi. Þeir sem eiga Amazon
Kindla geta hlaðið bókunum niður
beint, eða hlaðið niður Kindle Appi
á spjaldtölvur eða snjallsíma til að
geta lesið efni bókanna.
Helsti ávinningur þess að setja
bækurnar á þetta form, er að bæk-
urnar verða nú sýnilegar og að-
gengilegar öllum hvar og hvenær
sem er, hvort sem þeir eru stadd-
ir innanlands eða utan. Bækurnar
voru allar nema ein áður gefnar út
á pappírsformi af þremur forlögum
sem öll hafa annað hvort haft eig-
endaskipti eða eru hætt starfsemi.
Flestar bókanna eru löngu upp-
seldar og ófáanlegar og því nán-
ast eingöngu aðgengilegar á bóka-
söfnum. Fyrirhugað er að koma
bókunum jafnframt út á næsta ári í
formi hljóðbóka sem hægt yrði að
fá á Netinu. Hægt er að kaupa ell-
efu bækur Braga Þórðarson á sölu-
vefnum amazon.com.
mm/ fréttatilk.
Borgfirskar rafbækur á Amazon.com
Bragi Þórðarson fyrrverandi útgefandi og Óskar Þór Þráinsson upplýsinga-
fræðingur. Ljósm. Carsten J Kristinsson.