Skessuhorn - 27.01.2016, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 2016 15
Snæfellsbær
Álagning fasteignagjalda 2016 er nú í vinnslu. Eigendum fasteigna
er bent á að tilkynna breytingar er lúta að álagningu og
innheimtu, sem fyrst til sveitarfélagsins.
Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2016 verða sem fyrr ekki
sendir út í pappír, heldur munu þeir verða aðgengilegir rafrænt í gegnum
www.island.is. Ef óskað er eftir því að fá álagningarseðil sendan,
vinsamlegast hafið samband við bæjarritara í síma 433-6900
eða á netfangið lilja@snb.is
Greiðsluseðlar verða heldur ekki sendir út í pappír til þeirra sem fæddir
eru eftir 1948, nema þess sé sérlega óskað. Ef óskað er eftir því að fá
senda greiðsluseðla, vinsamlegast hafið samband í síma 433-6900 eða á
netfangið lilja@snb.is
Gjalddagar fasteignagjalda verða átta, frá 1. febrúar til og með
1. september 2016. Ef fasteignagjöld eru gerð upp að fullu fyrir
15. mars 2016 fæst 3% staðgreiðsluafsláttur.
Hægt er að greiða fasteignagjöld með boðgreiðslum, og ef þess er óskað,
vinsamlegast hafið samband við skrifstofur Snæfellsbæjar sem fyrst.
Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð
við álagningu fasteignagjalda. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu
tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali. Ekki er þörf á að
sækja sérstaklega um þennan afslátt.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið
lilja@snb.is eða hringja í síma 433-6900.
Auglýsing um álagningu
fasteignagjalda í Snæfellsbæ 2016
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Álagning fasteignagjalda ársins 2016
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Álagningu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2016 er nú lokið.
Greiðsluseðlar vegna fyrsta gjalddaga
verða póstlagðir næstu daga.
Gjalddagar fasteignagjalda sem eru umfram kr. 15.000 fyrir árið
2016 eru 15. hvers mánaðar frá janúar til og með október.
Gjalddagi fasteignagjalda sem eru undir kr. 15.000 er 15. apríl.
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteignamatsnefndar
og skal kæra borin fram innan þriggja mánaða frá álagningu.
Álagning á sorphirðu- og sorpeyðingargjaldi er kæranleg
til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er
kærufrestur einn mánuður frá álagningu.
Nánari upplýsingar er að
finna á www.akranes.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í
UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS
Veittir verða styrkir í eftirfarandi verkefni:
1) Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
2) Verkefnastyrkir á sviði menningar
3) Stofn- og rekstrarstyrkir menningarmála
Styrkjum til menningarmála er úthlutað einu sinni á ári (2 og 3).
Upplýsingar veitir Elísabet Haraldsdóttir í síma 433-2312 eða 892-5290
(netfang: menning@vesturland.is )
Styrkjum til atvinnuþróunar og nýsköpunar (1) er úthlutað tvisvar á ári, núna og í haust.
Upplýsingar veitir Ólafur Sveinsson í síma 433-2312 eða 892-3208 (netfang: olisv@ssv.is )
Frestur til að skila umsóknum er til 15. febrúar 2016
Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
www.ssv.is, er að finna upplýsingar um umsóknarferli,
reglur og viðmið varðandi styrkveitingar undir hnappi
vinstra megin á síðunni sem lítur svona út:
Eins og fram kom í 2. tölublaði
Skessuhorns þá sendu Íbúasamtök
Hvanneyrar formlegt erindi til sveit-
arstjórnar Borgarbyggðar 12. janúar
síðastliðinn með ósk um samþykki
fyrir stofnun sjálfstætt starfandi
grunnskóla á Hvanneyri. Byggðar-
ráð Borgarbyggðar tók erindið fyr-
ir á fundi sínum síðastliðinn fimmtu-
dag. Þar var samþykkt að hafna þess-
ari beiðni. Í fundargerð segir að
fræðslunefnd hafi lagt fram tillögu
um að samrekinn leik- og grunnskóli
á Hvanneyri verði fyrir nemendur frá
18 mánaða aldri til loka þriðja bekkj-
ar í Andabæ og að skólaakstur verði
að Kleppjárnsreykjum. Þessi tillaga
sé nú til umfjöllunar í byggðarráði og
fræðslunefnd og umsagnir skóla- og
foreldraráða liggi fyrir. Byggðarráð-
ið telur að sjálfstætt starfandi skóli á
Hvanneyri þar sem gert sé ráð fyr-
ir fjölgun bekkjadeilda upp í 7. bekk
og að Borgarbyggð leggi fram fjár-
muni til hans eins og lög um grunn-
skóla kveði á um, sé ekki í samræmi
við fyrirliggjandi tillögu um samrek-
inn leik- og grunnskóla.
Byggðarráð samþykkti því að
hafna framkominni beiðni Íbúa-
samtaka Hvanneyrar og nágrenn-
is um heimild til að stofna sjálfstæð-
an skóla á Hvanneyri. Fundinn sátu
Björn Bjarki Þorsteinsson varafor-
maður, Geirlaug Jóhannsdóttir að-
almaður, Ragnar Frank Kristjáns-
son áheyrnarfulltrúi, Kolfinna Jó-
hannesdóttir sveitarstjóri og Finn-
bogi Leifsson varamaður.
mþh
Höfnuðu ósk um sjálfstæðan
grunnskóla á Hvanneyri
Laugardaginn 23. janúar var hald-
ið örskotmót í loftskammbyssu-
fimi hjá Skotfélagi Vesturlands. Var
þetta fyrsta mót ársins. Fimm tóku
þátt og urðu úrslit þau að Jón Arn-
ar varð efstur með 345 stig, Stef-
án Ingi annar með 347 stig og Er-
lendur þriðji með 348 stig. Næsta
mót er svo sem hér segir: Nýárs-
mót Skotfélags Vesturlands í 25
m. braut með .22 cal. riffli verður
laugardaginn 30. janúar klukkan
10:00 í æfingaaðstöðu skotfélags-
ins í Brákarey í Borgarnesi. Skot-
ið verður af borði með tvífæti, en
stuðningur með afturpúða ekki
leyfður. Skotið verður á alþjóðlega
BR skífu sem ætluð er fyrir 50 m.
færi með .22 cal. riffli. Mótsgjald er
þúsund krónur og greiðist við mæt-
ingu. Skyttur hafi pening meðferð-
is þar sem að ekki er posi á staðn-
um. „Félagsmenn, jafnt konur sem
karlar, eru hvattir til að taka þátt,
síðasti dagur til skráningar er 28.
janúar á motanefndskotvest@gma-
il.com Verðlaun verða veitt fyrir 1.
2. og 3. sæti.
fréttatilkynning
Fréttir frá
Skotfélagi
Vesturlands