Skessuhorn - 22.03.2016, Qupperneq 2
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 20162
Páskarnir eru á næsta leiti en þeim fylgir
gjarnan mikið súkkulaðiát. Það er gott og
blessað að leyfa sér dagamun í tilefni hátíð-
arinnar en hófsemi er dyggð, þrátt fyrir að
vera ekki ein af höfuðdyggðunum sjö. Gæt-
um hófs í súkkulaðieggjaátinu, sjálfra okkar
vegna. Sjáumst í göngutúr!
Á morgun spáir austanátt, 3-8 m/s og
víða dálítilli rigningu eða skúrum. Hiti 2-8
stig. Norðaustan- og austanátt, 5-15 m/s á
fimmtudag, hvassast á Vestfjörðum. Rigning
eða slydda með köflum en þurrt að mestu á
Suðvestur- og Vesturlandi. Hiti 0-7 stig, mild-
ast syðst. Norðaustanátt, víða 10-15 m/s og
kólnandi veður á föstudag. Snjókoma og
él á Norðurlandi en rigning og slydda fyrir
sunnan, einkum suðaustanlands. Norðlæg
átt og snjókoma á laugardag en úrkomu-
lítið sunnan heiða. Hiti 0-5 stig við suður-
strönd landsins en annars 0-5 stiga frost.
Á sunnudag spáir norðanátt og éljum en
þurru og björtu veðri á Suður- og Suðvest-
urlandi. Kalt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvernig ferðast þú til vinnu eða skóla
á morgnana?“ Flestir, 27,33% svöruðu
„á einkabíl“ en 18,99% „gangandi“. „Hjól-
andi“ sögðu 13,58% og „á hestbaki“ sögðu
12,44%. 11,62% fara „með strætó“ en 9,49%
sögðu ferðamátann „mismunandi“. „Fer ekki
til skóla eða vinnu“ sögðu 6,55%.
Í næstu viku er spurt:
Hvað hefur þú í matinn á páskadag?
Theódóra Friðbjörnsdóttir kennari í Grunn-
skóla Snæfellsbæjar er ein þeirra fjölmörgu
kennara á Vesturlandi sem eru ófeimn-
ir að brydda upp á nýjungum til að auðga
kennsluna og gæða auknu lífi. Rætt er við
hana í Skessuhorni í dag. Theódóra er Vest-
lendingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Komin í úrslit
BORGARFJ: „Þú ert Borgfirð-
ingum til sóma, nær og fjær,“
sagði Borgfirðingurinn Jakob
Frímann Magnússon, einn dóm-
ara í þættinum Ísland Got Tal-
ent, í þættinum á sunnudaginn
á Stöð2. Þetta sagði Stuðmað-
urinn eftir magnaða frammi-
stöðu söngkonunnar Evu Mar-
grétar í þriðja og síðasta undan-
úrslitaþættinum. Eva Margrét
er ættuð úr Borgarnesi, alin upp
í Reykholtsdalnum en stundar
nám við Landbúnaðarháskóla
Íslands á Hvanneyri. Var hún
eftirminnilega send beint í und-
anúrslitin þegar Marta María
ýtti á gullhnappinn í áheyrnar-
prufunum og sagði jafnframt að
Eva Margrét væri fædd stjarna.
Auk Evu Margrétar eru Skaga-
fólkið Símon Orri Jóhanns-
son og Halla Margrét Jónsdótt-
ir komin í úrslit og er því hlut-
ur Vestlendinga býsna góður á
þessu stigi keppninnar.
-mm
Lítið af óhöppum
í umferðinni
VESTURLAND: Aðeins urðu
þrjú minniháttar umferðar-
óhöpp í umdæmi Lögreglunnar
á Vesturlandi í síðustu viku og
telst það mjög vel sloppið. Í einu
óhappinu var ekið á ljósastaur á
Akranesi [sjá mynd] og var far-
ið með ökumanninn á sjúkra-
hús til skoðunar en hann hafði
hlotið minniháttar meiðsl við
höggið. Í tveimur óhappanna
áttu erlendir ferðamenn hlut að
máli. Þá kölluðu erlendir ferða-
menn eftir aðstoð eftir að hafa
fest bílaleigubílana sína í snjó
uppi á Uxahryggjum og vestur á
Snæfellsnesi. Nokkrir ökumenn
voru sektaðir fyrir að vera ekki
með öryggisbelti spennt og aðr-
ir fyrir að tala í síma án hand-
frjáls búnaðar.
–mm/ Ljósm. Finnur Andr-
ésson.
STYÐJUM
FRAMLEIÐSLU Á
VESTURLANDI
OPIÐ DAGLEGA
12-17
Ljómalind Sveitamarkaður, Brúartorgi 4, Borgarnesi.
Sími 437-1400. Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Flutningabíll með fullfermi fest-
ist í forarsvaði á Hjallahálsi í Gufu-
dalssveit í síðustu viku. Frá þessu er
greint á vefnum bb.is. Hjallaháls, sem
liggur á milli Þorskafjarðar og Djúpa-
fjarðar, er hluti af þjóðvegi 60 og var
samkvæmt merkingum Vegagerðar-
innar skráður opinn og greiðfær en
af myndum af vettvangi að dæma má
álykta að vegurinn hafi verið nánast
ófær flutningabílum.
Bíllinn sem um ræðir var á suður-
leið, á leið upp hálsinn Djúpafjarðar-
megin, með fullan tengivagn af laxi
frá eldisstöðvum á sunnanverðum
Vestfjörðum þegar hann festist. Á vef
bb.is er sagt frá því að eigandi bíls-
ins að óskað hafi verið eftir hjálp en
Vegagerðin hafi ekki talið það hlut-
verk sitt að aðstoða fastan bíl á þjóð-
vegi sem skráður hafi opinn og greið-
fær samkvæmt merkingum hennar.
Því fór að lokum svo að eigandinn
sjálfur kom fékk jarðýtu á staðinn og
losaði bílinn, en þeim aðgerðum lauk
ekki fyrr en tæpum sólarhring eftir að
bíllinn festist.
Þjóðvegur 60 um Gufudalssveit er
erfiður að vetri en einnig í leysinga-
færð eins og var í síðustu viku þeg-
ar flutningabíllinn festist. Þar eru
Hjallaháls og Ódrjúgsháls helstu far-
artálmarnir. Í vetur var til að mynda
sagt frá því í Skessuhorni þegar flutn-
ingabíll með fullfermi af fiski fór út
af við Ódrjúgsháls með þeim afleið-
ingum að tengivagn hans valt á hlið-
ina. Björgunarsveitarmenn úr Reyk-
hólasveit eyddu þá drjúgum part næt-
ur í að bjarga farminum. Ökumaður
flutningabílsins sem festi sig á Hjalla-
hálsi í síðustu viku er því langt því
frá að vera sá fyrsti sem kemst í hann
krappann á hálsunum í Gufudals-
sveit og yfirgnæfandi líkur eru á því
að hann verði ekki sá síðasti. kgk
Flutningabíll sat fastur í tæpan sólarhring
Bíllinn sökk í forarsvað sem myndast hafði á Hjallahálsi í Gufudalssveit og sat þar
fastur í tæpan sólarhring. Jarðýtu þurfti til að losa bílinn.
Ljósm. Jóhanna Ösp Einarsdóttir.
Óskar Þór Óskarsson fékk rós vik-
unnar í Vetrar-Kærleik Blómaset-
ursins – Kaffi kyrrðar í Borgar-
nesi. Rósina fékk Óskar fyrir, eins
og segir í tilnefningunni: „Að safna
heimildum í máli og myndum og
varðveita þannig, á skemmtileg-
an og mannlegan hátt, sögu liðins
tíma. Hann er snillingur og frábær
náungi.“
mm
Óskar Þór
er rósahafi
vikunnar
Saltskipið Flinterdijk kom til Ólafs-
víkurhafnar aðfararnótt laugardags-
ins. Björgunarbáturinn Björg fylgdi
skipinu síðasta spölinn inn í höfn-
ina. Þúsund tonnum af salti var skip-
að upp úr Flinter að þessu sinni. Það
eru fiskverkanirnar Valafell ehf og
KG fiskverkun sem nota mest allt
saltið en einnig er töluvert magn af
því geymt á lager á hafnarsvæðinu.
Frá Ólafsvík fór Flinterdijk í
Grundarfjörð og til Stykkishólms en
það kom til Ólafsvíkur frá Grundar-
tanga. Ekki er von á næsta saltskipi
fyrr en í haust. þa
Salti landað á Snæfellsnesi