Skessuhorn - 22.03.2016, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 20164
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Heimsmet í
sofandahætti
Í Skessuhorni í dag eru þrjár fréttir þar sem sagt er frá óförum íbúa og veg-
farenda vegna óviðunandi ástands vega. Það er staðreynd að peningar til
viðhalds og endurbyggingar þjóðveganna hafa verið af skornum skammti
síðustu ár og jafnvel áratugi. Aukin umferð og þungi bíla er þannig í engu
samræmi við þær krónur sem fjárveitingavaldið lætur til vegagerðar. Í
blaðinu í dag er sagt frá því að hótel íhugar lokun vegna viðhaldsleysis á
Hvítárbakkavegi í Borgarfirði. Bændur á Mýrum fara ekki af bæ nema á
vel búnum jeppum þegar aka þarf um Hítardalsveginn af því hann er eitt
risastórt forarsvað. Þá lenti ökumaður flutningabíls með fisk í verulegum
ógöngum á Hjallahálsi í Gufudalssveit í síðustu viku. Hér er vafalaust ein-
ungis fjallað um brot af þeim vegum sem nú í vorleysingum eru ófærir eða
í það minnsta illfærir til umferðar.
Hér á Íslandi er kerfið þannig uppbyggt að Alþingi úthlutar peningum
til vegagerðar. Vegagerðin sjálf er í höndum stofnunar sem ber ábyrgð á
að skynsamlega sé farið með vegaféð sem til úthlutunar er. Þegar menn
fyllast réttlátri reiði yfir ástandi ónýtra vega er mikilvægt að reiðin bitni
ekki á starfsmönnum Vegagerðarinnar. Það eru ekki þeir sem bera ábyrgð
á þessu ástandi. Reiði fólks á að mínu áliti að beinast gegn alþingismönn-
um. Þeir einir bera ábyrgð á því hvernig opinberum statttekjum er úthlut-
að. Þeir bera ábyrgð á því að auknar tekjur ríkissjóðs, sem til dæmis eru að
koma af stóraukinni komu ferðamanna til landsins, renna ekki til styrking-
ar innviða ferðaþjónustunnar. Nú er talað um að á annar milljarður króna
berist til landsins á dag í gjaldeyristekjur vegna ferðaþjónustu. Þar af eru
skatttekjur ríkissjóð gríðarlegar. Nýverið sá ég tölur um hvernig gjaldeyris-
tekjum landsins er skipt eftir atvinnugreinum. Á síðasta ári var 31% gjald-
eyristekna okkar að koma af ferðaþjónustu, 26% af stóriðju og 22% af sjáv-
arútvegi. Þannig hefur veldisaukning ferðaþjónustunnar hér á landi líklega
verið heimsmet og að sama skapi kæmi mér ekki á óvart að líka væri heims-
met hversu seint og illa er brugðist við til að mæta þessum aukna fjölda.
En það er greinilega ekki nóg að fá auknar tekjur af ferðaþjónustu, ef
þær týnast bara í einhverri hít. Það nefnilega kostar að byggja upp og við
verðum að færa fórnir til að geta með góðri samvisku haldið áfram á sömu
braut. Tekjur af atvinnugreininni verða að fara til uppbyggingar þessara
innviða hvort sem það er til vegagerðar, upplýsingamiðlunar, öryggismála
eða hvaðeina sem þarf til að við sem þjóð getum skammlaust boðið ferða-
menn velkomna. Skortur á peningum til uppbyggingar er að verða þjóð-
arskömm. Skömmin er alþingismanna sem ekki sýna þá snerpu sem nauð-
synleg er til að mæta þeirri áskorun sem 20-30% fjölgun ferðamanna er
milli ára. Snerpa þeirra er engin og engu líkara en að þetta fólk sé ekki í
nokkru sambandi við fólkið í landinu, fólkið sem til dæmis er að vinna við
að byggja upp ferðaþjónustu. Að hótelstjóri verði að loka hótelinu sínu af
því það eru vorleysingar, er forkastanlegt. Að ekki náist að flytja nýjan fisk á
markað af því flutningabíllinn situr fastur á ónýtum fjallvegi, er forkastan-
legt. Að bóndinn geti ekki pantað fóðurbæti fyrir kýrnar sínar af því vegur-
inn er ófær, er forkastanlegt. Skömmin er Alþingis sem nú er að setja nýtt
heimsmet í sofandahætti.
Magnús Magnússon
Sveitarstjórn Borgarbyggðar tók
í liðinni viku ákvörðun um ráðn-
ingu sveitarstjóra. Alls bárust 26
umsóknir um starfið, eftir að það
var auglýst laust til umsóknar í síð-
asta mánuði. Hagvangur var síðan í
kjölfar útboðs fenginn til að greina
umsóknir og stýra væntanlegu
ráðningarferli. Niðurstaðan varð
sú að sveitarstjórn samþykkti á for-
sendu mats á umsóknum að ganga
til samninga við Gunnlaug A Júlí-
usson hagfræðing um að taka við
starfi sveitarstjóra. Ráðning hans
var formlega staðfest á aukafundi í
sveitarstjórn síðastliðinn föstudag.
Gunnlaugur Júlíusson er frá Mó-
bergi á Barðaströnd, fæddur 1952.
Hann er giftur Sigrúnu Sveinsdótt-
ur lyfjafræðingi og eiga þau þrjú
uppkomin börn. Þekktur er Gunn-
laugur hér um slóðir sem mesti
langhlaupari landsins og í huga
margra fyrir að vera bróðir Hauks
Júl á Hvanneyri. „Ég er fæddur í
september 1952. Í grunninn er ég
menntaður í landbúnaði, með B.Sc
gráðu í almennri búfræði. Síðan
stundaði ég framhaldsnám í land-
búnaðarhagfræði í Svíþjóð og Dan-
mörku. Einnig hef ég lokið löggild-
ingu í verðbréfamiðlun og stundað
meistaranám í fjármálum við HÍ.
Ætli ég geti ekki kallast hagfræð-
ingur. Ég starfa sem sviðsstjóri hjá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga en
áður en ég hóf störf þar var ég t.d.
sveitarstjóri á Raufarhöfn,“ segir
Gunnlaugur.
Auk beinna starfa við sveitar-
stjórnun er Gunnlaugur hokinn af
reynslu af vettvangi sveitarstjórnar-
mála á landsvísu. Hann er nú sviðs-
stjóri hag- og upplýsingasviðs Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga. Sem
slíkur hefur hann borið ábyrgð á og
stýrt verkefnum sem lúta að upplýs-
ingaöflun, úrvinnslu, miðlun og út-
gáfu á rekstrar-, efnahags- og hag-
rænum upplýsingum úr starfsemi
sveitarfélaganna. Auk þess hefur
hann sinnt margvíslegri hagsmuna-
gæslu fyrir sveitarfélögin og tekið
þátt í samstarfi ríkis og sveitarfé-
laga á sviði efnahagsmála og reikn-
ingsskila sveitarfélaga.
Flytur í héraðið
Gunnlaugur tekur við starfi sveit-
arstjóra eins fljótt og auðið er en
býst við að einhver tími í apríl fari
í að ganga frá á núverandi vinnu-
stað. Hann kveðst flytja í Borgar-
byggð, annað kæmi aldrei til greina
en að hafa búsetu í því sveitarfé-
lagi sem hann stýrir. „Stjórnsýsl-
an er í Borgarnesi en það hefur
ekki enn unnist tími til að ákveða
hvort ég flyt þangað eða t.d. á
Hvanneyri, þar sem ég er hnútum
kunnugur,“ sagði Gunnlaugur en
hann stundaði nám á Hvanneyri
í fimm vetur, árin 1970 til 1975.
Hann kveðst spenntur fyrir störf-
um í héraðinu enda hefur honum
líkað vel við Borgarfjörðinn allar
götur frá því hann kynntist svæð-
inu fyrst. „Þetta er áhugavert og
magnað svæði sem ég hef löngun
til að kynnast betur, bæði Borgar-
firðingum en ekki síður Vestur-
landi öllu. Þetta er svæði sem býr
yfir alveg ótrúlegum möguleikum
og mikil gerjun er í gangi í upp-
byggingu á sviði ferðaþjónustu. Þá
er landbúnaður með blóma, skól-
starf fjölbreytt og margt áhuga-
vert í gangi,“ segir Gunnlaugur að
endingu.
mm
Gunnlaugur Júlíusson ráðinn
sveitarstjóri í Borgarbyggð
„Það er mjög alvarleg staða kom-
in upp hjá okkur. Nú er svo kom-
ið að Hvítarbakkavegur númer 514
er ófær fyrir almenna umferð og við
sjáum okkur ekki fært annað en loka
hótelinu meðan þetta ástand varir,“
segir Ólafur Gunnarsson sem rekur
Icaland guesthouse Hvítá á Hvítár-
bakka í Borgarfirði. Hann segir að á
síðasta ári hafi a.m.k. þrír bílar farið
útaf á veginum vegna ástands hans
og í einu óhappanna hafi orðið slys á
fólki. „Hér á Hvítárbakka eru rekin
tvö hótel og gistiheimili og það hlýt-
ur að teljast alvarlegt að loka verði
ferðaþjónustufyrirtækjum vegna
skorts á viðhaldi héraðsvega. Þarna
beini ég orðum mínum til fjárveit-
ingavaldsins á Alþingi. Ríkissjóð-
ur er að fá milljarða í auknar tekjur
af ferðaþjónustu en er ekki að láta
aukið fjármagn í viðhald og endur-
byggingu vegakerfisins. Hér verð-
ur því eitthvað að láta undan, eða
þingmenn að viðurkenna að við svo
búið verður ekki unað lengur,“ seg-
ir Ólafur.
„Það er engu líkara en að hér
þurfi að verða dauðaslys til að eitt-
hvað verði gert í lagfæringum á veg-
inum. Við verðum vör við afbókan-
ir á hótelgistingu því skipuleggjend-
ur ferða treysta sér ekki til að beina
fólki til okkar. Tjón verður á bílum
ferðamanna og bílaleigur vilja ekki
að bílum þeirra sé ekið um vegleys-
ur. Það er skylda Vegagerðarinn-
ar að halda þessum málum í lagi, en
starfsmenn hennar bera því við að
ekki séu til peningar, möl eða jafnvel
vegheflar til að ráðast í þessi verk.
Þetta er grafalvarlegur hlutur sem
er í gangi og mér er ekki skemmt að
þurfa að loka mínu fyrirtæki vegna
slóðagangs fjárveitingavaldsins,“
segir Ólafur Gunnarsson á Hvítár-
bakka. mm
Í nýjasta tölublaði af Glefsum, raf-
rænu riti sem Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi gefa út, er sagt frá könn-
un þar sem mældar voru væntingar
stjórnenda fyrirtækja í landshlutan-
um um rekstrarhorfur. Í fréttabréf-
inu segir Vífill Karlsson hagfræðing-
ur m.a.: „Bjartsýni fyrirtækja á Vest-
urlandi færist áfram í aukana á milli
ára þegar horft er til svara við spurn-
ingum sem lúta að væntingum þeirra
um framtíðina.“ Könnunin var gerð í
desember 2015. Spurt var um breyt-
ingar á starfsmannafjölda, fjárfest-
ingar, framtíðartekjur og aðstæður
í efnahagslífinu. Skýrslan byggir á
svörum 262 fyrirtækja.
Fram kemur að aukinn vilji, mið-
að við sama tíma árið áður, er til ný-
ráðninga og fjárfestinga á Vestur-
landi. Vilji til nýráðninga og fjárfest-
ingar eykst mest á milli ára hjá fyr-
irtækjum sem starfa á Borgarfjarðar-
svæði. Fyrirtæki í Dölunum virðast
vera svartsýnni en á öðrum svæðum
Vesturlands ef frá er talið hvort þau
telji sig þurfa að fækka fólki. Þetta
kann að tengjast óvissu sem skapað-
ist í rekstrarumhverfi landbúnaðar-
ins vegna væntanlegrar endurnýjun-
ar á búvörusamningum. Annars stað-
ar hefur bjartsýni aukist á milli ára.
„Nánari greining gaf til kynna að það
væru helst fyrirtæki í byggingaiðnaði
og ferðaþjónustu sem vildu ráða fólk.
Ferðaþjónusta og fiskvinnsla höfðu
hins vegar mestan áhuga á fjárfest-
ingum,“ segir í Glefsum SSV.
mm
Stjórnendur fyrirtækja spá fjölgun
starfa og aukinni fjárfestingu
Þurfa að loka hóteli tímabundið
vegna ónýts vegar
Þessi mynd var tekin niður Hvítárbakkaveg í gær.
Skilti þetta var sett upp fyrir nokkrum árum af Jóni Friðrik Jónssyni á Hvítárbakka.
Þrátt fyrir skiltið hefur lítið gerst í vegabótum á Hvítárbakkavegi.