Skessuhorn - 22.03.2016, Side 6
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 20166
Veiðikortið
kynnir
silungsveiðina
VESTURLAND: Innan vé-
banda Veiðikortsins eru fjöl-
mörg vötn um allt land. Nú
hefur Veiðikortið kynnt hvenær
opnað verður til silungsveiða
í vor. Af vötnum á Vesturlandi
má nefna að Baulárvallavatn og
Hraunsfjarðarvatn á Snæfells-
nesi eru opnuð þegar ísa leysir á
vorin og er veiði í þeim leyfð til
30. september. Eyrarvatn, Þór-
isstaðavatn og Geitabergsvatn
í Svínadal verða opnuð 1. apríl
næstkomandi og verða opin til
25. september. Hraunsfjörður
á Snæfellsnesi verður opnaður
1. apríl til 30. september. Með-
alfellsvatn í Kjós er opið frá 1.
apríl til 20. september. Hítar-
vatn verður opnað til veiða 31.
maí og verður út ágúst.
–mm
Fjölluðu um
úrgangsmál
BORGARBYGGÐ: Í síðustu
viku var haldinn opinn fundur
um úrgangsmál í Borgarbyggð.
Á fundinum kynnti formaður
umhverfis-, skipulags- og land-
búnaðarnefndar fyrirkomu-
lag sorphirðu og úrgangsmála í
sveitarfélaginu og að því loknu
voru flutt nokkur áhugaverð er-
indi um málefnið. Meðal þess
sem kom fram er að ekki þarf
lengur að setja endurvinnsluúr-
gang í glæra plastpoka, heldur
er í góðu lagi að setja hann beint
í grænu tunnuna. Ný flokkun-
artafla fyrir grænu tunnuna er
aðgengileg á vef Borgarbyggð-
ar þar sem jafnframt má lesa um
það sem fram fór á fundinum.
-mm
Keppa í
Útsvari á
morgun
SNÆFELLSBÆR: Ann-
að kvöld, miðvikudaginn 23.
mars, hefst á ný keppni í Út-
svari, spurningakeppni sveitar-
félaganna á RÚV, en venju sam-
kvæmt var gert hlé á keppninni
vegna Gettu betur. Aðeins ein
viðureign er eftir í 16 liða úrslit-
um og þar eigast við Snæfells-
bær og Rangárþing ytra. Lið
Snæfellsbæjar skipa þeir Sigfús
Almarsson, Örvar Marteinsson
og Guðmundur Reynir Gunn-
arsson. Sem kunnugt er unnu
þeir í fyrstu umferð keppninnar
stórsigur á Rangárþingi eystra,
103-32 og munu freista þess
annað kvöld að leggja nágranna
þeirra í Rangárþingi ytra að
velli.
–kgk
Fóru í
örnefnagöngu
AKRANES: Síðastliðinn
fimmtudag stóðu Landmæling-
ar Íslands fyrir örnefnagöngu.
Tilefnið voru írskir vetrardag-
ar, sem nú voru haldnir í fyrsta
skipti. Það voru þau Rannveig
Benediktsdóttir, Guðni Hann-
esson og Eydís Finnbogadóttir
sem miðluðu af fróðleik sínum
í göngunni sem farin var í blíð-
skaparveðri. Lagt var af stað frá
Aggapalli þar sem sagðar voru
sögur af Langasandi, Þjótnum,
Jaðarsbökkum að ógleymdum
Agga, sem pallurinn er nefndur
eftir. Þaðan lá leiðin að Kross-
víkurvita og síðan á Sólmund-
arhöfða þar sem göngumenn
fundu fornan neysluvatnsbrunn
innan um kúmenplöntur sem
vaxa í miklu magni á höfðanum.
Næst var gengið í kirkjugarðinn
og sagðar sögur og endað för
við írska steininn.
–mm/ Ljósm. akranes.is
Jafnir á toppnum
AKRANES: Félagar í Bridds-
félagi Akraness byrjuðu Akra-
nesmótið í tvímenningi síðast-
liðinn fimmtudag. Spilaður er
barómeter, tvöföld umferð á
kvöldi með forgefnum spilum,
fjögur spil á milli para. Staðan
eftir fyrsta kvöld af þremur er
sú að jafnir í efstu sætunum með
56,4% skor eru Guðmundur
Ólafsson og Hallgrímur Rögn-
aldsson annars vegar en Borg-
firðingarnir Logi Sigurðsson
og Heiðar Árni Baldursson hins
vegar. Í þriðja sæti með 56,1%
skor eru Magnús Magnússon og
Leó Jóhannesson. Næst verður
spilað hjá félaginu fimmtudag-
inn 31. mars.
–mm
Föstudaginn 11. mars var hald-
inn sameiginlegur deildarfund-
ur þriggja deilda Auðhumlu svf. í
Snæfellsness- og Mýrasýsludeild,
Borgarfjarðardeild og Hvalfjarð-
ardeild. Fundurinn var haldinn
að Hótel Hamri í Borgarnesi. Eg-
ill Sigurðsson, stjórnarformað-
ur Auðhumlu, Garðar Eiríksson
framkvæmdastjóri Auðhumlu, Ari
Edwald forstjóri MS og Björn
Baldursson mjólkurbússtjóri á Sel-
fossi fóru yfir rekstur Auðhumlu
og MS á síðalstliðnu ári.
Fram kom að aldrei hefur verið
vigtuð inn jafnmikil mjólk á lands-
vísu og á síðasta ári, eða 146 millj-
ónir lítra. Framleiðsla mjólkur var
langt umfram það sem spáð hafði
verið en salan gekk engu að síður
mjög vel. Birgðastaða var í upphafi
liðins árs í lágmarki en er komin
í viðunandi horf. Miklar umræð-
ur urðu á fundiunum um málefni
mjólkuriðnaðarins og kynnt voru
drög að samþykktarbreytingum
Auðhumlu sem verða lagðar fyrir
aðalfund félagsins sem fram fer á
Akureyri 15. apríl næstkomandi.
Framleiddu úrvalsmjólk
Undanfarin ár hefur verið venja að
mjólkurbússtjóri veiti þeim inn-
leggjendum viðurkenningar sem
framleiða úrvalsmjólk allt árið. Í ár
var eftirfarandi búum veittar við-
urkenningar:
Úr Hvalfjarðardeild: Bakki.
Úr Borgarfjarðardeild: Hægindi,
Mófellsstaðir og Skálpastaðir.
Úr Snæfellsness- og Mýrasýslu-
deild: Jörfi, Stakkhamar, Furu-
brekka og Nýja-Búð.
mm/lb
Fengu verðlaun fyrir
framleiðslu úrvalsmjólkur
Þau fengu verðlaun fyrir úrvalsmjólk árið 2015.
Annað forgjafarmót í pútti hjá eldri
borgurum í Borgarbyggð fór fram í
Eyjunni í Brákarey þriðjudaginn 15.
mars. Þátttakendur voru 13 talsins.
Leiknar voru 36 holur. Verulegar
framfarir voru sýnilegar frá sams-
konar móti sem haldið var í febrúar
og margir hafa lækkað forgjöf sína,
sem byggðist á meðalskori á æf-
ingum í febrúar. Hlutskarpastur án
forgjafar varð Þórhallur Teitsson
með 60 högg. Annar varð Þorberg-
ur Egilsson með 62 högg og þriðji
Ingimundur Ingimundarson með
63 högg. Hugrún B. Þorkelsdóttur
stóð uppi sem sigurvegari með for-
gjöf. Lék hún á 58 höggum nettó.
Í öðru sæti varð Ágúst M. Har-
aldsson með 60 högg og Sigurður
Þórarinsson þriðji með 60 högg.
Að sögn Ingimundar Ingimundar-
sonar er stefnt að þriðja forgjafar-
mótinu innanhúss um miðjan apríl.
En væntingar eru að upp úr því geti
æfingar farið að hefjast utan húss.
mm/ii/
Þórhallur og Hugrún sigurvegarar á púttmóti
Verðlaunahafar á öðru forgjafarmóti eldri borgara í Borgarbyggð.
Ljósm. Guðmundur Bachmann.