Skessuhorn - 22.03.2016, Page 10
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 201610
Ársreikningur Dalabyggðar var
lagður fram til fyrri umræðu á
fundi sveitarstjórnar í síðustu viku.
Þar kemur fram að rekstrartekjur
sveitarfélagsins á síðasta ári námu
755,2 milljónum króna fyrir A og B
hluta en rekstrargjöld 691 milljón.
Rekstrarniðurstaða án fjármagns-
liða var jákvæð um 35,1 milljón-
ir en fjármagnsgjöld umfram fjár-
munatekjur námu 15,1 milljónum.
Rekstrarniðurstaða Dalabyggðar
fyrir árið 2015 er því jákvæð um
sem nemur 20,8 milljónum króna.
Í A hluta voru rekstrartekjur 625,6
milljónir., rekstrargjöld 558,5
og fjármagnsgjöld 2,8 milljónir.
Rekstrarniðurstaða A hluta var já-
kvæð um sem nemur 44,3 milljón-
um króna, að teknu tilliti til fjár-
magnsgjalda.
Fastafjármunir sveitarfélags-
ins voru í árslok 866,7 milljón-
ir, veltufjármunir 171,9 og eignir
alls rúmur milljarður króna. Lang-
tímaskuldir voru 290,7 milljónir,
skammtímaskuldir 126,7 milljónir,
lífeyrisskuldbinding 83,6 og heild-
arskuldir því alls um 501,0 milljón-
ir króna.
Veltufé frá rekstri fyrir A hluta
var 75 milljónir og handbært fé frá
rekstri 79,8 milljónir. Fyrir A og
B hluta var veltufé frá rekstri 63,7
milljónir og handbært fé frá rekstri
69,9 milljónir. Veltufjárhlutfall var
1,91, eiginfjárhlutfall 0,57, skulda-
hlutfall 66% og skuldaviðmið
56,6%.
Fjárfesting í varanlegum rekstr-
arfjármunum nam 56,5 milljónum
króna. Tekin voru ný langtímalán
að upphæð 25 milljónir. Handbært
fé í ársbyrjun var 118,8 milljón en í
árslok 116,4 milljón króna.
kgk
Jákvæð rekstrarafkoma
Dalabyggðar á síðasta ári
Horft yfir Búðardal. Ljósm. sm.
Áhugamenn um skíðasvæðið í
Grundarfirði hittust í Sögumið-
stöðinni 16. mars síðastliðinn. Þá
var fundargestum tjáð að vel hefði
gengið að safna fyrir diskum á lyft-
una en 15 diskar eru komnir og 55
á leiðinni og að búið að greiða fyr-
ir alla diskana. Þessu var safnað á
örskotsstundu með dyggri hjálp
bæjarbúa og fyrirtækja. Diskarnir
verða ekki settir upp fyrr en það fer
að snjóa aftur því að það á einungis
að hafa þá uppi á meðan lyftan er í
gangi og verða þeir settir í geymslu
þess á milli. Þá var ný stjórn skip-
uð og hana skipa Rósa Guðmunds-
dóttir formaður, Hólmfríður
Hildimundardóttir og Guðmund-
ur Pálsson gjaldkerar, Rut Rúnars-
dóttir ritari og Jón Pétur Péturs-
son meðstjórnandi. Ákveðið var að
hafa vinnudag í lyftunni dagana 28
- 29. maí næstkomandi en þá á að
klæða skíðaskálann og dytta að því
sem þarf að gera. Það er því ljóst að
mikill hugur er í skíðaáhugamönn-
um á Snæfellsnesi en til stendur að
fjárfesta í snjótroðara og húsi undir
hann við fyrsta tækifæri. Það verð-
ur áhugavert að fylgjast með fram-
vindu mála og vona að í framtíðinni
megi búast við snjóþyngri vetrum!
tfk
Í gær var undirritaður samstarfs-
samningur milli Ritari.is og Fé-
lags eldri borgara á Akranesi og ná-
grenni um símsvörun fyrir FEBAN.
Á samningstímanum tekur Ritari.
is að sér að svara í síma félagsins á
tímabilinu frá klukkan 9 til 17 alla
virka daga. Þar geta innhringjend-
ur aflað upplýsinga um dagskrár-
atriði hjá félaginu, sent inn erindi
og skráð sig á viðburði hjá félaginu.
Símanúmerið er 431-2000. Samn-
ingurinn tekur gildi 1. apríl næst-
komandi.
mm
Taka að sér símsvörun og
upplýsingagjöf fyrir FEBAN
Hér er stjórn FEBAN við undirritun samningsins. Við borðið eru Ingibjörg Valdi-
marsdóttir framkvæmdastjóri Ritari.is og Jóhannes Finnur Halldórsson formaður
FEBAN. Ljósm. Þjóðbjörn Hannesson.
Fréttir af skíðamálum í Grundarfirði
Á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur Pálsson, Rósa Guðmundsdóttir, Rut Rún-
arsdóttir og Jón Pétur Pétursson. Á myndina vantar Hólmfríði Hildumundardóttur.
Í lok síðasta árs skilaði Jónína
Hólmfríður Pálsdóttir BS verk-
efni sem hún skrifaði við Landbún-
aðarháskóla Íslands og bar heit-
ið: „Hefur friðlýsing áhrif á nær-
samfélagið? Viðhorf heimamanna
til Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.“
Leiðbeinandi Jónínu Hólmfríðar
við verkefnið var Arnheiður Hjör-
leifsdóttir. Í útdrætti um verkefnið
segir: „Náttúruvernd er ein tegund
af landnýtingu og nauðsynlegt er að
hafa alla hagsmunaaðila með í ráð-
um um alla landnýtingu. Mikilvægt
er að stefnumörkun stjórnvalda um
landnotkun sé skýr og að gerðar séu
verndaráætlanir fyrir friðlýst svæði.
Snæfellingar eru framarlega í um-
hverfismálum og samvinnuverkefn-
um eins og stofnun Svæðisgarðsins
Snæfellsnes ber vott um.“
Tilgangur verkefnis Jónínu
Hólmfríðar var að afla upplýsinga
um viðhorf íbúa í fimm sveitarfé-
lögum á Snæfellsnesi til Þjóðgarðs-
ins Snæfellsjökuls. Könnun var sett
upp á netkönnunarformi og not-
aðar voru lokaðar spurningar, þar
sem allir svarkostir voru fyrirfram
gefnir. Heimamenn voru spurð-
ir um hvort þeir telji þjóðgarðinn
skipta máli fyrir samfélagið. Einnig
var kannað hvort þeir hefðu fylgst
með undirbúningsvinnu við stofn-
un þjóðgarðsins og gerð verndar-
áætlunarinnar.
Helstu niðurstöður voru þær að
um helmingur svarenda telja þjóð-
garðinn mikilvægan fyrir atvinnu-
lífið en meirihluti svarenda telur
að hann hafi ekki áhrif á starf sitt
og tekjur eða flutning fólks á svæð-
ið. „Í ljós kom að meirihluti þátt-
takenda fylgdist lítið með vinnu-
ferlinu við stofnun þjóðgarðsins.
Minnihluti svarenda höfðu kynnt
sér verndaráætlunina fyrir þjóð-
garðinn og fáir fylgdust með gerð
hennar. Viðhorfin voru greind nið-
ur eftir búsetu nær og fjær þjóð-
garðinum og búsetu á sunnanverðu
og norðanverðu nesinu. Niður-
stöður sýna að viðhorfin voru harla
lík. Mikilvægt er að standa vel að
kynningu meðal heimamanna um
stækkun þjóðgarðsins því þriðjung-
ur svarenda er ósammála stækkun
hans. Aukið kynningarstarf og efl-
ing samráðs er tækifæri fyrir þjóð-
garðsyfirvöld til að auka jákvæðni í
garð þjóðgarðsins. Þekkingu á til-
gangi friðlýsinga þarf að auka með
markvissu fræðslustarfi,“ segir Jón-
ína Hólmfríður í niðurstöðukafla
um verkefnið.
mm
Auka þarf þekkingu á tilgangi friðlýsingar
Við „innganginn“ í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul.
Hagnaður Rarik samstæðunnar á
árinu 2015 var ríflega 2,2 milljarð-
ar króna, nokkru lakari afkoma en
árið á undan. Á aðalfundi félagsins
í síðustu viku var ákveðið að greiða
350 milljónir króna í arð til eigand-
ans sem er íslenska ríkið. Rekstrar-
tekjur Rarik voru 13.252 milljónir
króna en rekstrargjöld 10.755 millj-
ónir. Heildareignir í árslok voru
57,7 milljarðar króna og hækkuðu
um 9.215 milljónir á milli ára. Eig-
ið fé samstæðunnar nam 35,6 millj-
örðum í árslok og er eiginfjárhlut-
fallið 62%. Fjárfest var fyrir 2.432
milljónir króna á árinu, sem er
heldur minna en áætlað var og um
137 milljónum króna lægri upphæð
en árið áður.
Á aðalfundinum kom fram að
áætlað er að á núverandi verðlagi
muni kosta um 17 milljarða króna
að færa það sem eftir er af loftlín-
um í dreifikerfi Rarik í jarðstrengi.
Unnið hefur verið að endurnýj-
un kerfisins undanfarin ár, eins og
greint var frá í Skessuhorni ný-
verið, og eru nú 55% dreifikerfis-
ins komin í jarðstrengi. Enn er eft-
ir að endurnýja um 3.700 km. af
loftlínum og gera ætlanir RARIK
ráð fyrir að því verði lokið á næstu
20 árum. Á fundinum kom fram
að jarðstrengjavæðing undanfar-
inna ára hefur aukið mjög rekstrar-
öryggi dreifikerfisins og dregið úr
truflunum.
mm
Áætlað að taki tuttugu ár að
koma öllum raflínum í jörð
Raflína plægð í jörð. Ljósm. Rarik.