Skessuhorn - 22.03.2016, Qupperneq 12
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 201612
Undanfarnar tvær vikur hafa Borg-
nesingar heyrt hamarshögg berast
frá Hrafnakletti 1b, þar sem veit-
ingastaðurinn Vinakaffi var áður
til húsa. „Við byrjuðum að vinna
að breytingunum fyrir tveimur vik-
um og stefnum á að opna veitinga-
staðinn La Colina í byrjun maí,
segir Jorge Ricardo sem stend-
ur að rekstrinum ásamt eiginkonu
sinni Alicia Guerrero. „Við hefð-
um gjarnan viljað opna fyrr en hús-
ið þarfnast viðhalds bæði að inn-
an sem utan og því næst það ekki
fyrr,“ bætir hann við. Því er unnið
hörðum höndum að breytingum og
viðhaldi hússins þessa dagana, en
allir sem koma að framkvæmdum
eru heimamenn.
Verður La Colina fyrsta veit-
ingahúsið sem þau Ric-
ardo og Alicia reka á Íslandi en bæði
hafa þau reynslu úr veitingageiran-
um, sem rekstraraðilar og almenn-
ir starfsmenn. Eru þau þegar farin
að leggja drög að matseðli staðar-
ins. Þar verður meðal annars boðið
upp á kaffi og ástarpunga en einnig
eldbakaðar pitsur og kjötsúpu, svo
dæmi séu tekin. Þar að auki verða
kólumbískir smáréttir á boðstóln-
um. Við ætlum að vera með emp-
anadas, sem eru litlir hálfmán-
ar, fylltir með kjúklingi eða nauta-
hakki og grænmeti. Þá er bæði hægt
að djúpsteikja eða ofnbaka. Emp-
anadas eru bornir fram með ají, sem
er chili sósa og eru alveg svakalega
góðir, segir Ricardo.
Ber óvenjulegt nafn
Þar sem við sitjum og ræðum sam-
an í miðjum framkvæmdum vek-
ur einn smiðanna mál á nafni Ric-
ardo og ekki að ástæðulausu. Hann
fékk íslenskan ríkisborgararétt fyr-
ir tuttugu árum síðan og þurfti að
breyta nafninu sínu, í samræmi við
þágildandi reglur. Já, ég heiti sem-
sagt Eilífur Friður, segir hann og
brosir. Ég þurfti að taka upp ís-
lenskt nafn eins og allir sem fengu
íslenskt vegabréf þurftu að gera
þá,“ segir Ricardo og bætir því við
að honum hafi verið bent á að taka
upp nafnið Jörgen Ríkharður því
það líktist Jorge Ricardo. Hann var
hins vegar ekki á þeim buxunum,
það væri einfaldlega ekki nafnið
hans. Mér fannst alveg fáránlegt að
ég mætti ekki halda nafninu mínu
en ég varð að gera það. Enn vitlaus-
ara fannst mér þetta allt saman eftir
að ég keypti nafnaskrá og sá öll fá-
ránlegu nöfin sem ég mátti bera. Ég
var fyrst að spá í að taka upp „Ljót-
ur Bolli“ eða eitthvað slíkt en varð
svo hugsað til barnanna minna, það
myndi ekki gera þeim neinn greiða
að vera Ljótsson eða Ljótsdóttir,“
segir hann. „Því ákvað ég að taka
upp nafnið Eilífur Friður og gefa
aðeins skít í reglurnar.“ Skömmu
síðar var umræddum reglum breytt
og kveðst Ricardo hafa tekið því
fagnandi, þrátt fyrir að hafa þurft
að breyta um nafn sjálfur. Ég lít á
það sem mannréttindi að fólk fái að
halda nafninu sínu, segir hann og
bætir því við að hann skrifi sig alltaf
sínu upprunalega nafni.
Hlýðir á óskir
heimamanna
Að útúrdúr um nafn Ricardo lokn-
um tökum við upp þráðinn það-
an sem frá var horfið. Aðspurð-
ur hvers vegna þessi staðsetn-
ing varð fyrir valinu en ekki ein-
hver önnur kveðst Ricardo allt-
af hafa hrifist af húsinu. Ég virti
það fyrir mér í hvert skipti sem ég
keyrði í gegnum Borgarnes. Á end-
anum ákvað ég að spyrjast fyrir um
húsið, hringdi í eigandann, fékk að
skoða það og leist strax vel á, seg-
ir Ricardo. Auk þess að þykja húsið
fallegt er hann ánægður með hvar
það stendur í Borgarnesi. „All-
ir sem keyra hér í gegn sjá okkur,
hvort sem þeir eru á leið norður
eða suður. Svo skemmir ekki hvað
útsýnið er fallegt þegar veðrið er
gott,“ segir Ricardo og bendir út á
Borgarvoginn.
Eins og áður sagði er áætlað að
opna La Colina í byrjun maí og til
stendur að hafa það opið allan árs-
ins hring. Kveðst Ricardo gjarn-
an vilja fá ábendingar heimamanna
og fá að heyra óskir þeirra varð-
andi matseðil og hvaðeina sem við-
kemur staðnum. „Við höfum þeg-
ar fengið nokkrar fyrirspurnir um
hvort þetta verði pöbb á kvöldin,
segir hann. „Það höfum við ekki
ákveðið enn en munum skoða það
þegar þar að kemur,“ bætir hann
við. Vitanlega verði þó boðið upp
á léttvín og bjór með matnum.
Koma muni í ljós þegar nær dregur
hvort opið verði fram eftir kvöldi
og veitt vín á barnum. „Fyrst og
fremst munum við leggja áherslu á
að hér verði hægt að fá góðan mat
og drykk,“ segir Ricardo að lok-
um.
kgk
Veitingastaðurinn La Colina brátt opnaður í Borgarnesi
Jorge Ricardo, veitingamaður á La Colina en staðurinn verður opnaður í Borgar-
nesi í maí.
Veitingastaðurinn er við Hrafnaklett 1b, þar sem Vinakaffi var áður til húsa.
Mikill framkvæmdabragur var á staðnum þegar blaðamann bar að garði, bæði
innan húss og utan.
Ólafur Axel Björnsson smiður mundar sögina.
Mjög góður afli var við Snæfellsnes
í síðustu viku og kom línubáturinn
Gullhólmi með 20 tonn að landi í
Ólafsvík eftir eina lögn. Að sögn
Péturs Erlingssonar skipstjóra var
langt stím á miðinn. „Við vorum
langt vestur í rassgati,“ sagði Pét-
ur og bætti við til nánari útskýring-
ar að þetta hefði verið sjö tíma stím
í land. „Það þarf að fara langt eftir
fiskinum þegar maður er á línuveið-
um þar sem fiskurinn liggur í loðnu
á heimamiðunum,“ sagði Pétur.
Einnig gerði línubáturinn Kvika
SH góðan túr eða 13 tonn á eina
lögn og var vel siginn og lestin
stútfull af fiski þegar komið var að
landi.
Nokkrir línubátar hafa þegar
haldið til veiða við Suðurland og
landa í Sandgerði. Hefur línuafli
þar aukist og bátar verið með um
tíu tonn í róðri.
Mokveiði hefur verið hjá neta- og
dragnótarbátum og nokkrir þeirra
komnir í langt páskafrí. Eru sum-
ir þeirra að spara kvótann en verð
á fiskmörkuðum hefur farið lækk-
andi og menn halda að sér höndum
vegna þess. af
Góð aflabrögð í liðinni viku
Pétur Erlingsson skipstjóri á Gullhólma SH ánægður með aflabrögðin, þrátt fyrir að langt þurfi að fara
eftir fiskinum.
Lestin vel full á Kviku SH.
Kvika SH kemur að landi vel sigin.