Skessuhorn - 22.03.2016, Page 14
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 201614
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Síðastliðinn miðvikudag brá frétta-
ritari Skessuhorns sér í siglingu yfir
Breiðafjörð með ferjunni Baldri.
Skipstjórinn Sigmar Logi Hin-
riksson og stýrimaðurinn Mattí-
as Arnar Þorgrímsson sitja saman í
brú ferjunar þessa dagana en aldrei
hafa verið yngri skipstjórnarmenn á
Baldri. Sigmar er 33 ára en Mattí-
as 29 ára. Báðir eru þeir mennt-
aðir úr Stýrimannaskólanum, Sig-
mar útskrifaðist þaðan árið 2012
og Mattías 2015. Meðalaldurinn
í brúnni var ekki hár þennan dag
og létt andrúmsloftið ilmar af ný-
löguðu kaffi. „Það er dýrari týpan,“
eins og skipstjórinn orðar það, Sen-
seo classic kaffipúðar sjá um að fylla
bolla áhafnarinnar af ilmandi kaffi.
Menn skiptast á skemmtisögum úr
Stýrimannaskólanum og njóta sam-
veru hvers annars.
Yfir vetartímann fer Baldur eina
ferð frá Stykkishólmi yfir á Brjáns-
læk og til baka sex daga vikunnar og
stoppar í Flatey þegar tilefni er til.
Veturinn er rólegur tími á ferjunni.
Lítið, en þó eitthvað, af ferðafólki
og svo þurfa vöruflutningabílar að
komast sína leið. Yfir sumarið er
öllu meira að gera, þá eru ferðirnar
tvær yfir fjörðinn og alltaf stoppað
í Flatey.
Aðspurðir segjast Sigmar og-
Mattías báðir ætla að búa í Stykkis-
hólmi um ókomna tíð. Þeir stefna
ótrauðir að því að verða einn dag-
inn elstir um borð, ólíkt því sem
er í dag, en saman eru þeir félagar
gjarnan kallaðir Unglingavaktin
af samstarfsfólki sínu. Auk þess að
sigla saman á Baldri eru þeir báðir
skipstjórar á Særúnu sem siglir um
Breiðafjörðinn og kynnir gestum
sínum fyrir eyjum og umhverfi.
jse
Unglingavaktin á Baldri
Sigmar og Mattías við störf í Baldri.
Á Ungmennaráðstefnu UMFÍ,
Ungt fólk og lýðræði, sem hald-
in var á Selfossi dagana 16. - 18.
mars síðastliðna var skorað á íslensk
stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfé-
lög, að leita meira til ungmenna og
taka tillit til þeirra skoðana á mál-
efnum samfélagsins. Einkum mála
sem varða ungmennin sjálf. Yfir-
heiti ráðstefnunnar var „Niður með
grímuna, geðheilbrigði ungmenna“
og fjallaði hún um stöðu geðheil-
brigðismála barna og ungmenna á
Íslandi í dag. Þátttakendur á ráð-
stefnunni voru fulltrúar ungs fólks í
sínum samfélögum og þekkja vel til
aðstæðna ungmenna á sínu heima-
svæði auk þess að vera það sem
mætti kalla sérfræðingar í málefnum
ungmenna, verandi ungmenni sjálf.
Í ályktun ungmennaráðs sagði m.a.:
Geðheilbrigðismál
í ólestri
„Biðtími eftir sér- og ítarþjónustu
geðheilbrigðiskerfisins getur verið
allt að 18 mánuðir. Við lok síðasta
árs voru 718 börn og ungmenni á
biðlistum eftir þess háttar þjónustu,
en það eru þeir sem þegar höfðu
sótt grunnþjónustu en ekki fengið.
Á grunnþjónustustigi geðheilbrigð-
iskerfisins er löng bið veruleiki sem
bitnar á mjög stórum hópi barna og
ungmenna. Heildarbiðtími barna og
ungmenna eftir þjónustu getur því
orðið allt að þrjú til fjögur ár. Það er
fullkomlega óásættanlegt. Í skýrslu
Ríkisendurskoðunar kemur fram
að þessir löngu biðlistar ganga ekki
einungis gegn lögbundnum skyld-
um ríkisins heldur stofna þeir vel-
ferð borgara í hættu. Það teljum við
algjörlega óviðunandi og krefjumst
þess að stjórnvöld átti sig á mikil-
vægi þessa málaflokks, ekki bara í
orði heldur verki, strax í dag.“
Fordómar vegna aldurs
Síðar í ályktun ungmennaráðs segir:
„Það er mikill vilji meðal ungmenna
að taka virkan þátt í lýðræðinu en
við upplifum fordóma vegna aldurs
og meints reynsluleysis. Við viljum
benda á að reynsla einstaklinga er
mjög fjölbreytt og að ungt fólk býr
margt yfir reynslu og upplifunum
sem þeir sem eldri eru þekkja ekki.
Okkur er stórlega misboðið yfir
áhugaleysi stjórnmálamanna til þess
að höfða til ungmenna og minnum
á það að ungmenni á aldrinum 16 -
30 ára eru 76.000 manns á Íslandi í
dag. Fjórði hver Íslendingur er ung-
menni en það endurspeglast hins-
vegar ekki á alþingi, æðsta stjórn-
valdi á Íslandi. Til þess að styrkja
stöðu ungmenna í lýðræðinu kemur
lækkun kosningaaldurs í 16 ár sterk-
lega til greina.
Ungt fólk er ekki bara framtíð-
in, við erum til núna og höfum áhrif
í dag. Biðtími eftir þjónustu í geð-
heilbrigðismálum barna og ung-
linga hefur náð hættustigi. Í dag eru
hundruðir barna og ungmenna sem
hljóta skaða af þeim langa biðtíma
sem úrræðaleysi stjórnvalda árum
saman hefur valdið. Ef stjórnvöld
eru ekki tilbúin til þess að setja mál-
efni barna og ungmenna í forgang
strax, þá mun það halda áfram að
valda óafturkræfum skaða fyrir sam-
félagið allt.“ mm
Ungmenni vilja taka virkari þátt í lýðræðinu
Svipmynd frá ungmennaráðstefnu UMFÍ þar sem menntamálaráðherra var meðal
gesta.
Garðaþjónustan Sigur-Garðar
Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu
Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð
Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663
Hellulagnir - Hleðsla - Þökulagnir - Jarðvegsskipti
Trjáklippingar - Gróðursetningar - Garðsláttur - Plöntusala
Þjónusta í yfir 25 ár
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Myndlistasýning í Átthagastofu Snæfellsbæjar
Guðjón Stefán Kristinsson,
hleðslumeistari frá Dröngum á
Ströndum mun sína verk sín í
Átthagastofu Snæfellsbæjar frá og með 24 mars
næstkomandi.
Guðjón mun sýna málverk og skúlptúra sem hann
hefur unnið í hvalbein meðal annars.
Sýningin verður opin á opnunartíma Átthaga-
stofunnar og mun standa yfir til 15 apríl.
Opnunarhátíð verður 24 mars kl 14– 17 og eru allir
velkomnir.
Boðið verður uppá léttar veitingar.