Skessuhorn - 22.03.2016, Qupperneq 19
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016 19
BÚÐU VEL
UM GESTINA
ÞÍNA
Verið velkomin í verslun okkar
að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Hafðu samband við sölufólk okkar í síma 580 3900 sem aðstoðar þig með ánægju.
Fastus býður upp á vandað lín fyrir hótel, ferða-
þjónustur og heilbrigðisstofnanir á sanngjörnu verði.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
Tilkynning
Föstudaginn 1. apríl næstkomandi verður bæjarskrifstofa
Akraneskaupstaðar lokuð frá kl. 12:00 á hádegi
vegna starfsdags starfsmanna.
Leikdeild Umf. Skallagríms kynnir gamanleikinn:
Blessað barnalán
Höfundur: Kjartan Ragnarsson- Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson
Bráðfyndinn gamanleikur sýndur í Lyngbrekku
7. sýning miðvikudaginn 23. mars kl. 20:30
8. sýning mmtudaginn 24. mars kl. 20:30
9. sýning laugardaginn 26. mars kl. 20:30
10. sýning mmtudaginn 31. mars kl. 20:30
SÝNINGUM FER FÆKKANDI!
Miðaverð kr. 2.500 - Miðapantanir í síma 846 2293 og á midi.is
Veitingasala á sýningum - enginn posi á staðnum
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
PISTILL
Ég hef upp á síðkastið heillast æ
meir af hæstvirtum forsætisráðherra
og hvernig er hægt að orða það -
skósveini hans, honum Karli Garð-
arssyni. Ég er ennþá hissa á honum,
hann ákvað allt í einu að verða eins-
konar enforcer fyrir Framsóknar-
flokkinn. Enforcer eða framfylgjari
í beinni þýðingu er staða í íshokkí
og hefur hann eitt hlutverk og það
er að verja liðsfélaga sína með öll-
um tiltækum ráðum. Mér finnst
hann standa sig ágætlega í því,
ágætt er betra en gott. Ástæða mín
fyrir þessari þannig séð nýtilkomnu
hrifningu á honum Sigmundi á sér
þó dýpri rætur. Framkoma hans í
máli konu sinnar var dropinn sem
fyllti mælinn hjá mér. Þar var stig-
ið djarft til jarðar og reynt að snúa
nautið niður áður en það réðist til
atlögu, hann sá það nefnilega leggja
til atlögu og eins og hver annar
nautabani reyndi hann að snúa sér
frá árásinni. Eitt sinn kröfuhafa-
baninn Sigmundur, nú nautaban-
inn, var mættur á svæðið. Nú er
beitt öllum snúningum og öllum
ráðum til að fella nautið, þetta er
allt saman með Hemingway-ískum
blæ. Löglegt en siðlaust. Þessi flétta
sem opnast hefur fyrir augum okk-
ar minnir á reyfara svo slæman að
gamla konan í Murder She Wrote
hefði ekki einu sinni dottið hann í
hug. Allt í lagi, þetta verður búið
fljótt ef umræðuhefðin er samkvæm
sjálfri sér því mér finnst ekkert hafa
verið rætt um þessa 10-12 forseta-
frambjóðendur sem hafa gefið kost
á sér. Guðmundur Franklín sá mikli
meistari er sá nýjasti til að stökkva
á vagninn og allt stefnir í að næsti
kjörni forseti verði með ca. 12-15
prósent atkvæða.
En aftur að manninum, stjórn-
málamanninum og lífskúnstnern-
um Sigmundi, Georg Bjarnfreðar-
syni íslenskrar pólitíkur. Við fyrstu
sýn sér fólk venjulegan mann sem
gengur og talar líkt og við hin, ef
skyggnst er ögn nánar kemur ann-
að í ljós. Sigmundur er nefnilega
marglaga og margslunginn ein-
staklingur með snert af Munchau-
sen heilkenninu. Hugsa að hann
trúi því sjálfur að hann gæti dregið
sig úr keldu með því að grípa í hár-
ið sitt, svo viss held ég að hann sé í
sinni sök um sjálfan sig. Það er ekki
hægt að benda á einn hlut þegar
Sigmundur er rannsakaður nánar,
hann virðist eyða dögum sínum í að
ferðast um landið og skoða gömul
hús, deila því svo á snapchat. Hann
er örugglega að elta einhvern hips-
ter sem er að gera upp gömul hús
á instagram líka og svo annarsveg-
ar er hann að stjórna landi við ann-
an flokk. Bréfið sem Kári skrifaði til
hans um daginn fullvissaði mig enn
meir í þeirri trú að þeir endi sem
bestu vinir einhvern tímann, svona
eins og Roy Keane og Patrick Viera
gerðu í seinni tíð. En aftur að um-
ræðuefni mínu. Sigmundur Dav-
íð er í raun misskilinn listamaður,
gjörningalistamaður nánar tiltekið.
Hann er maðurinn í kassanum, há-
setinn á dekkinu og bóndinn í fjós-
inu. Hann ætlar að varðveita allt
það sem íslenskt er, krónuna þar
með talið, gömlu húsin, slátrið og
Ég og Sigmundur
sinuna því ef við töpum því þá hvað
er eftir til að verja? En eins og hann
sagði sjálfur einhvern tímann þá er
hann ekki á flæðiskeri staddur ef
allt fer til andskotans hérna, meiri-
hluti eigna betri helmingsins eru
nefnilega geymdar einhvers staðar
á skeri suður með sjó.
Gleðilega páska,
Axel Freyr Eiríksson
Það hefur skapast hefð fyrir því
að á pálmasunnudegi sé kirkju-
skóli í Grundarfjarðarkirkju og eft-
ir kirkjuskólann sé hoppukastala-
fjör uppi í íþróttahúsi bæjarins. Það
var engin breyting á að þessu sinni
þegar ærslafullir krakkar hoppuðu
af gríð og erg í íþróttahúsinu. Séra
Aðalsteinn Þorvaldsson hefur séð
um hoppukastalafjörið og var engin
breyting á því í þetta skiptið. Þegar
ljósmyndari Skessuhorns kíkti við
var mikið fjör og ljóst að krakkarnir
skemmtu sér vel.
tfk
Hoppukastalafjör á pálmasunnudegi