Skessuhorn - 22.03.2016, Side 20
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 201620
Um helgina fór fram Vormót Ár-
manns í sundi í 25 metra laug.
Sundfélag Akraness sendi um 30
keppendur til þátttöku á mótinu
undir merkjum ÍA. Stóðu þeir sig
að vanda með stakri prýði og verð-
launapeningarnir sem þeir komu
með heim skiptu tugum.
Auk ógrynni af verðlaunum í
einstökum keppnisgreinum kom
í ljós við lok móts, þegar heildar-
stig keppenda voru tekin saman, að
Sundfélag Akraness átti stigahæstu
keppendurna á mótinu. Sólrún Sig-
þórsdóttir var stigahæst í flokki
kvenna og Sævar Berg Sigurðsson
í karlaflokki.
kgk/ Ljósm. SA.
Sundfélag Akraness átti
stigahæstu keppendurna
Sólrún Sigþórsdóttir var stigahæst
kvenna á Vormóti Ármanns.
Sævar Berg Sigurðsson var stiga-
hæstur karla á mótinu.
Mikil gleði ríkti hjá nemendum og
starfsfólki Grunnskóla Snæfells-
bæjar í liðinni viku, þegar árshátíð
skólans var haldin.
Nemendur 1. til 4. bekkjar héldu
árshátíð sína um miðja vikuna. Að
þessu sinni var þema árshátíðarinn-
ar hin eina sanna Lína Langsokkur.
Undanfarið hafa nemendur unn-
ið að gerð leikmyndar í hringekju-
vinnu með kennurum og var hún
mjög flott og vel unnin. Nemendur
2. bekkjar hófu sýninguna á því að
segja frá höfundi Línu rithöfundin-
um Astrid Lindgren, einnig sögðu
þau aðeins frá Línu sjálfri. Þá var
komið að nemendum 1. bekkjar
en þau kynntu Línu og sungu um
hana. Nemendur 3. og 4. bekkj-
ar léku svo valin atriði úr sögunni
um Línu.
Nemendur í 5. til 7. bekk skól-
ans héldu árshátíð sína síðasta
fimmtudag. Krakkarnir höfðu dag-
ana á undan æft leikþætti og unn-
ið að búningum með kennurum
sínum. Afraksturinn sýndu þau svo
foreldrum sínum og öðrum gest-
um í Félagsheimilinu Klifi við góð-
ar undirtektir. Fimmti bekkur kíkti
á Fólkið í blokkinni, Rauðhettu og
útiskóg. Sjötti bekkur kíkti á Fróða
og alla hina gríslingana og sjöundi
bekkur á Öskubusu í uppreisn.
Að leiksýningunni lokinni var svo
slegið upp diskóteki og skemmtu
bæði nemendur og starfsmenn sér
vel. Það voru því glaðir en þreytt-
ir nemendur sem mættu í skólann
daginn eftir sem var síðasti dagur
fyrir páskafrí.
þa
Héldu árshátíð
Grunnskóla Snæfellsbæjar
Nemendur af miðstigi. Ljósm. Valgerður Margrét Ægisdóttir.
Svipmynd frá árshátíð yngsta stigs. Ljósm. þa.
Sannkallað vor var í lofti á Akra-
nesi um síðastliðna helgi. Miðað
við árstíma var veðrið milt og ljúft
og nýtti fólk sér það til hins ýtr-
asta, sinnti vorverkum og nýtti tím-
ann til útiveru. Jónas H. Ottósson
tók þessar vorlegu myndir sem sýna
Akurnesinga njóta sín við mjög svo
ólík verk í blíðunni. grþ
Vor í lofti á Akranesi
Góðviðrisdagur nýttur til vorverka. Þegar hlýnar í veðri og vorið nálgast nýtir fólk tímann til ýmis konar útiveru.
Síðustu dagar fyrir páskafrí voru
viðburðaríkir í Grundaskóla á Akra-
nesi. Árshátíð skólans var haldin í
síðustu viku með pompi og prakt
þar sem nemendur sýndu öðr-
um nemendum, foreldrum, kenn-
urum og leikskólabörnum fjöl-
breytt tónlistar- og dansatriði. Þá
var haldið upp á Mannréttindadag-
inn 17. mars síðastliðinn. Sem tákn
um samstöðu mynduðu nemend-
ur, starfsmenn og hollvinir skólans
hring um skólann, sungu saman og
gengu einn hring. Hringurinn var
stór enda voru það um 700 manns
sem tóku höndum saman og mynd-
uðu samstöðukeðjuna. grþ
Árshátíð og Mannréttindadagur í Grundaskóla
Alls mynduðu um 700 manns hring um Grundaskóla á Mannréttindadaginn. Nemendur, starfsfólk og hollvinir Grundaskóla mynduðu samstöðukeðjuna.
Nemendur í 2. bekk að flytja sitt atriði. Á árshátíðarsýningunni mátti sjá ýmis dans- og söngatriði.