Skessuhorn - 22.03.2016, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016 21
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Reykhólahreppur óskar eftir
starfsmanni til starfa í Flatey í
sumar við almenn störf
Um er að ræða 100% starfshlutfall í tvo mánuði, eða eftir sam-
komulagi, við almenn störf í eyjunni, s.s. slátt og hirðingu, hreinsun og
tiltekt á opnum svæðum, viðhald stíga, aðstoð á höfn við komu Breiða-
fjarðarferjunnar Baldurs og almenn aðstoð og upplýsingagjöf við íbúa,
sumarhúsaeigendur og ferðamenn sem sækja eyjuna heim. Umsækjandi
þarf að vera sjálfstæður í störfum, lífsglaður og þægilegur í samskiptum
og vel að sér um eyjuna. Umsækjandi þarf að eiga sérstaklega góð
samskipti við íbúa eyjunnar. Þá þarf umsækjandi einnig að sjá sér fyrir
aðstöðu í eyjunni sjálfri og ferðum til og frá landi.
Starfið gæti verið upplagt sumarstarf fyrir háskólafólk með tengsl við
eyjuna. Í Flatey á Breiðafirði eru þrjú heimili, tvö af þeim með fastri
búsetu, fjöldi sumarhúsa, auk Hótel Flateyjar og Frystihússins, þar sem
rekin er vísir að upplýsingamiðstöð og verslun yfir sumartímann.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2015, umsækjandi sendi inn
umsókn ásamt helstu upplýsingum á skrifstofu Reykhólahrepps,
Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppur eða á netfangið
skrifstofa@reykholar.is.
Reykhólahreppur
Getum bætt við okkur verkefnum í alla
almenna smíðavinnu á vestur- og suðvesturlandi;
t.d. nýbyggingar, viðhald, sólpallar, gluggar, þök og
stækkun eða nýsmíði sumarbústaða.
Pálmi Þormóðsson, byggingafræðingur
Sími: 666-6305 S
K
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Pennagrein
Ýmsir telja sig knúna til að endur-
semja sögu Spalar, benda á „mý-
mörg tækifæri“ til að greiða upp
lán félagsins að fullu mun fyrr en
samningar gera ráð fyrir og „upp-
lýsa“ eða jafnvel „afhjúpa“ eitt og
annað ámælisvert varðandi Hval-
fjarðargöng. Þeim sem vilja kynna
sér aðdragandann og upphafsárin
skal bent á lesa bókina Undir keld-
una, sem Atli Rúnar Halldórsson
skrifaði og gaf út árið 2008. Þar
er verkefninu gerð greinargóð skil
og mörgu haldið til haga sem ein-
hverjir telja nú við hæfi að endur-
skrifa og afbaka í óljósum tilgangi.
Sumt sem nýlega var „afhjúpað“
hefur þannig verið opinberar stað-
reyndir um langt skeið.
„Afskriftabomban“
Eitt útspilið, sem reyndar var farið
sérstaklega yfir á aðalfundi Spal-
ar 15. mars sl., lýtur að afskriftum
félagsins og þeirri staðreynd að
síðustu rekstrarár Spalar þarf lög-
um samkvæmt að greiða tekjuskatt
af hagnaði. Því er sem sagt hald-
ið fram að breytingar á afskrift-
um fastafjármuna í ársreikningi
árið 2010 hafi leitt til óþarfa skatt-
greiðslna og þar með lengri líftíma
Spalar en þörf var á.
Endurskoðandi Spalar frá Pri-
cewaterhouseCoopers fjallaði að
þessu gefna tilefni um afskrifta-
málið á aðalfundinum og skilaði í
kjölfarið minnisblaði sem birt er á
Spalarvefnum, spolur.is. Þar kem-
ur eftirfarandi fram:
“Afskriftir fastafjár-
muna í ársreikningi
Spölur ehf. gerir ársreikninga sína
samkvæmt alþjóðlegum reiknings-
skilastöðlum þar sem félagið er með
skráð skuldabréf á skipulegum verð-
bréfamarkaði. Samkvæmt alþjóð-
legum reikningsskilastöðlum er af-
skrift fastafjármuna færð á kerfis-
bundinn hátt yfir áætlaðan nýtingar-
tíma viðkomandi eignar. Að minnsta
kosti árlega á að endurmeta áætlaðan
nýtingartíma eigna. Óháðir sérfræð-
ingar, ekki endurskoðendur félagsins,
geta aðstoðað stjórnendur félagsins við
að meta nýtingartíma eigna. Stjórn-
endur Spalar hafa nýtt sér það úrræði
undanfarin ár.
Afskriftir fastafjármuna
í skattframtali
Um skattalegar afskriftir gilda aðr-
ar reglur en reikningshaldslegar af-
skriftir. Þær reglur má finna í lögum
um tekjuskatt en þar eru skattaleg
afskriftahlutföll tilgreind. Skattaleg-
ar afskriftir eru skv. lögunum leyfi-
legar frá tilteknu lágmarki upp að
tilteknu hámarki, mismunandi eftir
eignaflokkum. Mismunandi afskrift-
arhlutföll milli reikningshalds annars
vegar og í skattskilum félagsins hins
vegar, mynda tímamismun sem hef-
ur áhrif á tekjuskattsskuldbindingu í
efnahagsreikningi.”
Í stuttu málið þýðir þetta að
með skattalegar afskriftir er far-
ið samkvæmt lögum og þó svo að
einhverjir telji að hægt sé að fabú-
lera með skattalegar afskriftir þá
hafa að minnsta kosti forráða-
menn Spalar ekki látið slíkt lög-
brot henda sig!
Rétt er að afskriftum í efnahags-
reikningi Spalar ehf. var breytt á
árunum 2009 og 2010. Árið 2009
hækkaði þáverandi endurskoðandi
félagsins afskriftir verulega. Af-
leiðingin hefði að óbreyttu orðið
hallarekstur og þörf á gjaldskrár-
hækkun. Stjórn Spalar ehf. lét
þá óháða aðila meta nýtingartíma
eigna, sem leiddi til lægri afskrifta
í efnahagsreikningi. Þar með var
jafnframt úr sögu sérstök þörf á
því að hækka veggjaldið.
Halda sig við staðreyndir
og horfa fram á veg
Umræða er jafnan góð og gagnleg en
þá þarf að halda sig við staðreyndir
og ræða þær en ekki gefnar forsend-
ur, eins og henta þykir hverju sinni.
Til dæmis virðast einhverjir nú hafa
áhyggjur af því að þegar Spölur lýk-
ur verkefni sínu muni ríkissjóður
halda áfram innheimtu veggjalds.
Í ársskýrslu Spalar 2015 má m.a.
lesa eftirfarandi: „Samningi Eign-
arhaldsfélagsins Spalar ehf. og rík-
isins frá árinu 1995, sem staðfestur
var af Alþingi, lýkur um leið og all-
ur kostnaður við göngin hefur feng-
ist endurgreiddur í samræmi við
ákvæði 6. greinar samningsins og
fellur þá sérleyfi félagsins og gjald-
tökuheimild þess niður.“
Það hefur sem sagt verið kýrskýrt
í meira en tvo áratugi að annarra
er að ákveða hvað gerist að lokn-
um rekstrartíma Spalar í samgöngu-
málum um Kjalarnes og undir Hval-
fjörð.
Ávinningur samfélagsins af Hval-
fjarðargöngum er ótvíræður og
ávinningur ríkissjóðs sömuleiðis
verulegur. Um hvorugt ætti að þurfa
að deila. Verkefnið til framtíðar er
hins vegar að tryggja öryggi vegfar-
enda um Kjalarnes og Hvalfjarðar-
göng til framtíðar, ekki síst í ljósi ört
vaxandi umferðar. Það snýr ekki að
Speli.
Áhugamenn um starfsemi Spal-
ar og rekstur ganganna ættu hvað úr
hverju að velta fyrir sér opinberlega
og spyrja þá sem eiga að svara: Hvar
er stefna stjórnvalda varðandi Kjal-
arnes og Hvalfjarðargöng?
Gísli Gíslason,
stjórnarformaður Spalar
Gylfi Þórðarson,
framkvæmdastjóri Spalar
Af afskriftum og
„afhjúpunum“
Í hlákunni síðustu vikuna ruddu
margar ár á Vesturlandi vetrar-
ísnum af sér. Meðal annars Laxá í
Dölum sem skilaði myndarlegum
klakabunkum í fjöruna við Búðar-
dal. sm
Klakabunkar
úr Laxá í
fjörunni
Eflaust bíða margir spenntir eft-
ir páskunum og öllu því sem þeim
fylgir. Það gera börnin á leikskól-
anum í Stykkishólmi ekki síst. Nú á
dögunum var foreldrum barnanna
boðið í leikskólann að fylgjast
með þeim í páskaeggjaleit. Mál-
uðum steinum var dreift hingað og
þangað um lóð leikskólans og gátu
börnin svo skipt út fyrir lítið súkk-
ulaðiegg, eitt á mann. Börnin voru
hæstánægð með uppátækið.
jse
Páskar á
næsta leiti
Hafdís Birna tveggja ára tók súkkulaðinu fagnandi.
Átta hurða farsi! Útspekúleruð gildra!
Illskiljanlegur leigumorðingi, góðgjarn borgarstjóri, tregar
en ákaflega viljugar löggur, kynsveltur endurskoðandi,
dauðhræddur yfirmaður öryggismála, gæðaleg borgarstjórafrú.
Þegar þannig hópur kemur saman þá er ekki víst að neitt klikki!
SÍÐUSTU SÝNINGAR:
8. sýning, miðvikudag ...............................23. mars kl. 20.00
9. sýning, fimmtudag.................................24. mars kl. 20.00
10. sýning, laugardag ................................26. mars kl. 20.00
Ekki missa af þessari sprenghlægilegu sýningu!
Miðapantanir í síma 435 1182 / 691 1182
Fosshótel Reykholt býður þriggja rétta leikhúsmatseðil og
sértilboð á gistingu. Nánari upplýsingar í síma 435 1260 og á
netfanginu: addi@fosshotel.is
Ungmennafélag Reykdæla
ÓÞARFA
OFFARSI
Sýnt er í Logalandi í Reykholtsdal
eftir Paul Slade Smith
í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6