Skessuhorn - 22.03.2016, Qupperneq 22
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 201622
Einstaklingskeppni KB mótaraðar - stig.
13.feb 5.mar 19.mar
Barnaflokkur Fjórgangur Tölt Tölt/fimmg Alls
Aníta Björk Björgvinsdóttir 6,4 5,67 4,23 16,3
Andrea Ína Jökulsdóttir 5,5 4,77 4,07 14,34
Kolbrún Katla Halldórsdóttir 4 5,17 3,8 12,97
Fjóla Rún Sölvadóttir 3,7 4,43 3,9 12,03
Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir 3,8 4,83 0 8,63
Unglingaflokkur
Annabella R Sigurðardóttir 5,83 6,7 6,4 18,93
Berghildur Björk Reynisdóttir 5,87 6,23 5,67 17,77
Húni Hilmarsson 5,83 5,6 5,63 17,06
Ísólfur Ólafsson 5,7 5,46 5,57 16,73
Inga Dís Víkingsdóttir 5,83 3,67 5,6 15,1
Ungmennaflokkur
Máni Hilmarsson 6,47 6 5,8 18,27
Guðný Margrét Siguroddsdóttir 7 6,7 0 13,7
Louise Maria Adrianzon 5,5 4,43 0 9,93
Ólafur Axel Björnsson 5,23 4,37 0 9,6
Thelma Björk Jónsdóttir 0 4,1 3,1 7,2
2. flokkur
Inga Vildís Bjarnadóttir 5,57 6,37 5,4 17,34
Helgi Baldursson 6,3 6,23 4,23 16,76
Veronika Osterhammer 5,4 5,77 5,5 16,67
Herborg Sigríður Sigurðardóttir 5,1 4,27 3,83 13,2
Vaka Helga Ólafsdóttir 4,53 4,07 3,77 12,37
1. flokkur
Ólafur Guðmundsson 6,23 5,9 5,47 17,6
Hrefna Rós Lárusdóttir 6,9 5,67 3,93 16,5
Ulrika Ramundt 6,13 5,1 5,07 16,3
Gunnar Tryggvason 6 6,5 3,6 16,1
Hlynur Þór Hjaltason 6,03 4,7 4,8 15,53
Opinn flokkur
Siguroddur Pétursson 7,2 7,2 5,03 19,43
Benedikt Þór Kristjánsson 6,7 6,43 5,97 19,1
Iðunn Svansdóttir 6,47 6,87 4,4 17,74
Halldór Sigurkarlsson 6,43 0 5,9 12,33
Haukur Bjarnason 0 5,59 5,77 11,36
Liðið Garðatorg eignamiðlun &
ALP/GÁK gerði góða hluti í áhuga-
mannadeild Glugga- og glerdeildar í
hestaíþróttum, en keppninni í fimm-
gangi lauk í síðustu viku. Allir knap-
ar liðsins eru frá og/eða búa á Vest-
urlandi. Liðið náði þeim frábæra ár-
angri síðustu tvö mót að vinna liða-
bikarinn, þ.e.a.s. var efst í fimmgangi
og í síðustu viku endurtók það leik-
inn og sigraði í slaktaumatölti. Til að
vinna liðabikarinn þurfa allir knapar
liðsins að ná góðum árangri og þurfa
að vera vel fyrir ofan miðju. Alls eru
45 keppendur úr 15 liðum á hverju
móti og er baráttan hörð, góðir hest-
ar og snjallir knapar.
Í liðinu Garðatorg eignamiðlun &
ALP/GÁK eru félagsmenn frá Snæ-
fellingi, Skugga og Faxa á Vestur-
landi. Styrktaraðilar eru frá Reykja-
vík en hafa tengingar á Vestur-
land svo sem eru með ræktun sína
í Saurbæ í Dölum. „Gaman er að
segja frá því að í fyrra heyrðum sög-
ur af því að sumir keppendur kölluðu
okkur sveitalubbana. Ja, ekki urð-
um við beint sár yfir þessari nafnbót
heldur kannski þvert á móti þá efldi
hún okkur í því að gera það vel að
sveitalubbarnir myndu koma, sjá og
sigra. Og það höfum við svo sannar-
lega gert síðustu tvö mótin nú í vet-
ur. Mikil gleði ríkir í liðinu í dag en
líka spenna fyrir síðasta og örugglega
erfiðasta mótinu sem verður í tölti.
Það verður hart barist um efstu sæt-
in því margir góðir hestar eru bæði
innan liðsins og í hinum liðunum.
Þangað til ætlum við að njóta þess
að liðið okkar er núna liðsmeistari í
fimmgangi og slaktaumatölti,“ seg-
ir Anna Berg Samúelsdóttir liðsstjóri
og knapi. Anna Berg er í Skugga og
býr á Hvanneyri.
Aðrir liðsfélagar eru: Aníta Lára
Ólafsdóttir í Faxa, en hún varð í öðru
sæti í fimmgangi og fjórða sæti í slak-
taumatölti. Ámundi Sigurðsson er
í Skugga. Hann varð í fimmta sæti
í Treck og þriðja sæti í fimmgangi.
Gunnar Tryggvason frá Brimilsvöll-
um er í Snæfellingi og Stefán Hrafn-
kelsson er í Skugga og býr á Hvann-
eyri. Þjálfarar liðsins eru Ragnheið-
ur Samúelsdóttir, tamingakona og
reiðkennari og Ragnar Hinriksson,
tamningarmaður og reiðkennari, er
eins og kunnugt er einn sigursælasti
knapi okkar Íslendinga.
mm
Sigursælt lið í hestaíþróttum sannar
að gott er að vera „sveitalubbi“
Síðasta mótið í KB mótaröðinni í
hestaíþróttum fór fram í Faxaborg
um liðna helgi. Mótið gekk vel fyrir
sig í alla staði og var árangur kepp-
enda góður, að sögn mótshaldara.
Það var LIT liðið (lið Lögfræði-
stofu Inga Tryggvasonar) sem bar
sigur úr býtum í liðakeppninni en
skammt á hæla þess kom lið Líf-
lands, Berserkir urðu í þriðja sæti,
Sólargeislar í fjórða og Brimhestar
fimmtu. Siguroddur Pétursson var
svo stigahæstur allra keppenda.
mm/kg
KB mótaröðinni
lokið þetta árið
Þeir tóku við verðlaunum fyrir liðakeppnina. Ingi Tryggvason lengst til hægri.
Ljósm. kg.
Siguroddur Pétursson var stigahæstur allra keppenda. Ljósm. kg.
Annabella Sigurðardóttir var stigahæsti knapinn í unglingaflokki. Ljósm. iss.
Aníta Björk hefur staðið sig vel í vetur og var stigahæsti knapinn í barnaflokki.
Ljósm. iss.
Kolbrún Katla var valin skemmtilegasti
knapinn af áhorfendum. Ljósm. iss.
Húni Hilmarsson sigraði í fimmgangi
ungmenna og var stigahæsti knapi í
ungmennaflokki. Ljósm. iss.