Skessuhorn - 22.03.2016, Síða 24
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 201624
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akra-
nesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi
á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum
lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessu-
horni.
53 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Eigi veldur sá er varir (varar).“
Vinningshafi er: Bára Sigurjónsdóttir, Skipalóni 4,
220 Hafnarfirði. mm
Matur
Rölt
Þverslá
Daprar
Mylja
Röskur
Amboð
Smávik
Kostur
Atferli
Angan
Eggja
Berg-
mál
Púki
Kona
Reisn
Slíta
Borð-
stokkur
Vær
Skjögr-
ar
9
Baggi
Hugur
Kl.3
Grjót
Vigtaði
Tók
Kæpa
Depill
Athuga
Risa
Óttast
8
Rimla-
kassi
Planta
Plöntu-
ríki
Raustin
For-
faðir
Skap
Dinamór
Atgervi
Fákar
Heilsu-
vernd
5
Huldu-
verur
Hagnað
Lögur
Samhlj.
Kann
Átt
Málmur
Sigtar
Dýra-
ríki
1 Alda
Laga-
grein
3
Kimi
Uppskrift
Haka
Þegar
Hímir
Leir
Meiðsli
Korn
Fang
Ólund
Reita
arfa
Brask
Rödd
Slétta
Titill
Ögn
Makindi
Dæld
Okkur
Frísk
Bygging
Örn
Ástund-
un
Bogi
Sál
Ljóð
Álít
6 Blása
Keyrð-
um
Þreyttur
1000
2
Raus
Loðna
Rölt
Sérstök
Sk.st.
Átt
Athygli
Sáðlönd
Tangi
4
Leifar
Flana
Sér-
hljóðar
Fersk
Of lítið
Mynni
Þakop
7
1 2 3 4 5 6 7 8 9
Pennagrein
Umræður um hausaþurrkun hafa
staðið lengi á Akranesi. Þó hefur
sú umræða aldrei farið mjög hátt,
í það minnsta ekki á landsvísu og
löngum náði hún ekki athygli fjöl-
miðla utan Akraness. Mörgum
íbúum Akraness var þó löngum
ljóst að margt mátti betur fara í
vinnslunni. Samt sem áður er stað-
reyndin sú að vinnslan hefur fram
að þessu haft vinnsluleyfi, þ.e. hún
hefur uppfyllt þau skilyrði sem
til hennar eru gerðar lögum sam-
kvæmt. Reksturinn hefur nokkrum
sinnum skipt um eigendur og hús-
bændur þar hafa verið margir.
Framfarir breytast í
vandamál
Þegar HB Grandi festi kaup á
rekstri Laugafisks og lagði í kjöl-
farið fram stórhuga hugmyndir
um stórbætta aðstöðu við hausa-
þurrkun og uppbyggingu hennar á
einum stað lifnaði yfir umræðunni
að nýju. Umræðan snérist ekki um
þær ánægulegu breytingar sem í
vændum væru heldur hversu slæmt
ástandið hefði verið í gegnum tíð-
ina. Innan skamms var sú umræða
komin úr böndum. Og nú fór að
lifna yfir Ríkisútvarpinu okkar og
varð málið fyrsta frétt í sérstökum
fréttatíma sem settur var upp í til-
efni Írskra daga í sumar. Er nú svo
komið að stór hluti landsmanna
telur að ólíft hafi verið um árabil á
Akranesi vegna ólyktar.
Fyrst í stað var málflutningur
andstæðinga framfaranna í fisk-
þurrkun á þann veg að ekkert væri
að marka fyrirætlanir HB Granda.
Með tíð og tíma kom í ljós að að-
eins með því að bæta húsakost
mætti stórbæta vinnsluna og þeg-
ar við bættist betri tækni fór stað-
an að þrengjast. Þegar síðan í ljós
kom að á stöðum eins og Sauðár-
króki, Grindavík og Vestmanna-
eyjum fer þessi vinnsla fram í sátt
við íbúa var orðið erfitt um vik að
halda því fram að ekki væri hægt
að bæta vinnsluna.
Hugtakið loftgæði
verður til
Um síðir varð til í munni and-
stæðinga framfara í hausaþurrkun
á Akranesi hugtakið „Sömu loft-
gæði fyrir alla“ og mun þar átt við
alla íbúa Akraness, í það minnsta.
Andstæðingarnir segjast ekki vera
á móti hausaþurrkun eða atvinnu-
uppbyggingu. Hins vegar þurfi að
tryggja þessi sömu loftgæði og því
þurfi starfsemin að vera á einhverj-
um öðrum stað.
Veltum aðeins fyrir okkur þessu
hugtaki og kröfunni á bak við hana
í bæjarfélagi eins og Akranesi sem
státar af fjölbreyttu mannlífi og
fjölskrúðugu atvinnulífi, ennþá að
minnsta kosti. Fylgir ekki þéttbýli
að maður verði var við nágrann-
ann að ekki sé talað um atvinnu-
lífið, sem þéttbýlið hefur myndast
í kringum?
Sömu „loftgæði“
fyrir alla?
Getur þéttbýli yfir höfuð tryggt
„Sömu loftgæði fyrir alla“? Þeir
sem það hugtak bjuggu til hafa
ekki skilgreint nein mörk á þeirri
kröfu og því má álykta að ávallt
skuli jafnt yfir alla ganga. Hausa-
þurrkunin er því væntanlega aðeins
fyrsta málið. Skoðum þau mál sem
fylgt gætu á eftir í nafni jafnræð-
is og munum að upplifun manna
á lykt er alls ekki sú sama. Fjöru-
lykt getur orðið mikil á Akranesi
eins og öllum stöðum við sjávar-
síðuna. Mörgum finnst hún afleit.
Hvernig eigum við að bregðast við
henni í framtíðinni? Fiskimjöls-
verksmiðjuna þekkja allir. Hún er
ekki með öllu lyktarlaus. Á hún að
víkja? Loðnulöndun fylgir stund-
um loðnulykt sem sumum finnst
ekki góð. Eigum við að koma
henni eitthvað annað? Matvæla-
framleiðslu fylgir lykt sem getur
orðið talsverð. Allir þekkja lykt-
ina frá bakaríum og veitingastöð-
um. Til að tryggja sömu loftgæði
þyrfti sú starfsemi að vera utan
íbúðabyggðar ekki satt? Hvað með
járniðnað af ýmsu tagi? Af honum
berst lykt. Þurfu við að færa hann?
Bensínstöðvum fylgir stundum
hvimleið lykt að ekki sé talað um
eldhættuna. Eigum við að koma
þeim annað? Hvað með landbún-
aðinn. Frá honum berst nú ekki
alltaf ilmvatnslykt heldur þvert á
móti. Hvernig tryggjum við íbúm
Ásabrautar og Víðigrundar sömu
loftgæði og annarra íbúa Akra-
ness? Hvað með lifrarvinnslu? Eru
loftgæðin frá henni ávallt í lagi að
allra mati? Hrognavinnslan? Bif-
reiðaverkstæðin? Fiskmarkaður-
inn? Þéttbýli fylgir umferð. Um-
ferð fylgir bæði lyktarmengun og
hávaðamengun. Hvar skyldu menn
draga mörkin í þeim efnum?
Hvar liggja mörkin?
Ég veit að nú finnst mörgum ég
vera kominn út í öfgar og farinn
að gera úlfalda úr mýflugu. Það er
að sumu leyti rétt. Það sem í dag er
talið sjálfsagt verður það ekki endi-
lega á morgun. Í umræðum undan-
farinna vikna hefur æ oftar heyrst
sú skoðun hjá fullorðnu fólki að
ekki sé forsvaranlegt að vöru-
flutningar fari fram í gegnum bæ-
inn! Við þurfum að hugsa málin til
enda þegar við í hita leiksins búum
til hugtök þar sem engin mörk eru
dregin. Einmitt þess vegna eru
búnar til leikreglur í lýðræðisþjóð-
félögum. Skipulagslög eru hluti af
þeim leikreglum. Hugmyndir HB
Granda um mikla uppbyggingu á
starfsemi félagsins á einum stað
eru nú í eðlilegu skipulagsferli.
Afar brýnt er að þeirri vinnu ljúki í
samræmi við lög og reglur. Þessar
hugmyndir eru fagnaðarefni.
Styðjum framfarir
Undirskriftastöfnunin www.upp-
byggingakranesi.is var sett á fót til
þess að íbúar á Akranesi sem styðja
þá uppbyggingu og vilja áfram
búa í þéttbýli með kostum þess
og göllum geti lýst stuðningi við
þau. Stutt þannig þau framfara-
skref sem þar verða stigin. Styð-
um framþróun atvinnulífs en vís-
um því ekki „eitthvað annað“ með
handahófskenndum hætti.
Halldór Jónsson
Höfundur er ábyrgðarmaður
www.uppbyggingakranesi.is
Er þéttbýli án
lyktar til?
Nemendur Auðarskóla í Dölum
héldu sína árlegu árshátíð síðastlið-
inn fimmtudag. Að venju tóku öll
aldursstig grunnskólans þátt í dag-
skránni en leiksýningum var skipt
eftir stigum. Yngsti hópurinn sýndi
leikþátt um Bakkabræður, miðstig
var með Eurovisionþema og elsta
stig var með leikverk um ávaxta-
körfuna. Að auki sýndu stúlkur úr
dansvali brot úr sinni vinnu. Eft-
ir sýningu tók við glæsilegt kaffi-
hlaðborð en gömul hefð er fyrir því
að foreldrar komi með bakkelsi að
heiman og er það ávallt í höndum
elstu nemenda skólans og starfs-
manna að bera fram veitingarnar.
sm
Árshátíð Auðarskóla í Dölum
Elsta stig sýndi leikverk um Ávaxtakörfuna.
Eftirvænting eftir að komast á svið.
Miðstig lagði til að Búðardalur ætti sitt Eurovision lag.