Skessuhorn - 22.03.2016, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016 25
Freisting vikunnar
Ljúffeng súkkulaðikaka
Hér er uppskrift að góðri köku
sem nota má við öll tækifæri.
Efni:
5 msk smjör
100 gr suðusúkkulaði
3 egg
3 dl sykur
1 tsk vanilludropar
1,5 dl hveiti
1 tsk salt
4 msk smjör
1 dl púðursykur
2 msk rjómi
1 poki pekanhnetur (eða valhnetur)
100-150 gr saxað suðusúkkulaði.
Aðferð:
Bræðið smjör og súkkulaði sam-
an yfir vatnsbaði og geymið. Þeyt-
ið egg og sykur vel saman. Bætið
vanilludropunum út í eggjablönd-
una. Þá er þurrefnunum bætt var-
lega samanvið. Hellið nú súkkul-
aðinu saman við deigið og hellið því
svo í hringlaga form. Kakan er bök-
uð í 15 mínútur við 175 gráður. Á
meðan kakan er í ofninum hitið þá í
potti 4 msk af smjöri, 1 dl. af púður-
sykri og setjið síðast í rjómann. Lát-
ið blönduna sjóða í eina mínútu.
Þegar kakan er tilbúin er ein-
um poka af pekanhnetum (eða val-
hnetum) dreift yfir kökuna og síð-
an er púðursykurs-karamellunni
hellt yfir. Kakan er síðan sett aftur
í ofninn og bökuð áfram í u.þ.b. 20
mínútur. Þegar hún er fullbökuð er
100-150 gr af söxuðu suðusúkkulaði
stráð yfir kökuna. Mjög gott er að
bera þessa köku fram með vanillu-
ís eða rjóma.
Theódóra Friðbjörnsdóttir kennir
5. bekk í Grunnskóla Snæfellsbæj-
ar í Ólafsvík. Hún hefur frá áramót-
um notað Mystery Skype til kennslu
í landafræði. Mystery Skype er leik-
ur sem byggir á samskiptaforritinu
Skype, sem gerir fólki kleift að eiga
vídjósamtal, þ.e. tala saman en einnig
fylgjast hvort með öðru gegnum vef-
myndavél.
Áður en leikurinn getur hafist finna
kennarar tíma fyrir bekki sína að
hittast, en lykilatriði er að börnin viti
ekki hvar hinn bekkurinn er staddur
á jarðkúlunni og er því nokkurs kon-
ar feluleikur. „Leikurinn gengur út á
að láta bekkina leita að hvorum öðr-
um. Krakkarnir spyrja hinn bekkinn
spurninga eins og til dæmis „eruð
þið á Norðurlandi?“ og ef svarið er
„já“ fær bekkurinn að spyrja aftur.
Sé svarið hins vegar neikvætt fær-
ist svarréttur yfir,“ segir Theódóra
í samtali við Skessuhorn. Sá bekkur
fer með sigur af hólmi sem fyrr getur
staðsett hinn. Áður en leikurinn hefst
þarf að fara fram rannsóknarvinna og
nokkrar spurningar þarf að undir-
búa. Krakkarnir taka svo að sér mis-
munandi hlutverk á meðan leikurinn
stendur yfir. Spyrlar sjá um að fara
að myndavélinni og bera upp spurn-
ingar bekkjarins og svarfólk sér um
að svara þeim spurningum sem ber-
ast. Skrásetjarar halda utan um alla
þá vitneskju sem bekkurinn aflar og
kortafólkið sér um að leita í landa-
bréfabókum og á Íslandskorti. Einn-
ig hafa verið gúgglarar, sem leita á
internetinu eftir upplýsingum sem
nýst gætu bekknum við leitina.
Horfa inn í önnur
bæjarfélög
Theódóra segir börnin hafa af leikn-
um bæði gagn og gaman. „Krökkun-
um finnst þetta rosalega skemmti-
legt og leikurinn getur kennt þeim
ótrúlega margt. Þetta er ekki að-
eins landafræðikennsla heldur líka
samfélagsfræði, rannsóknarvinna og
kennir þeim að vinna í hóp þar sem
allir hafa afmarkað hlutverk en sam-
eiginlegt markmið. Það næst aðeins
með því að vinna saman sem ein
heild og það kennir krökkunum sam-
skipti og gagnrýna hugsun,“ segir
hún. En umfram allt segir Theódóra
að Mystery Skype getir gert landa-
fræðikennsluna lifandi. „Í þessum
tímum nota krakkarnir hugtök sem
tengjast landafræðinni,“ segir hún og
nefnir landshluta og bæjarfélög sem
dæmi. „En í þessum tímum er ein-
hvern veginn allt lifandi fyrir framan
okkur á skjánum. Þarna erum við að
tala við fólk sem býr annars staðar á
landinu og fáum jafnvel að sjá hvern-
ig er umhorfs út um glugga kennslu-
stofunnar gegnum vefmyndavélina.
Þá horfa krakkarnir inn í önnur bæj-
arfélög. Ég held að þau fái dýpri lær-
dóm af þessu en þau fengju gegn-
um hefðbundna kennslu eingöngu,“
bætir hún við.
Orðinn fastur liður
Aðspurð kveðst Theódóra fyrst hafa
komist í kynni við Mystery Skype
gegnum Hugrúnu Elísdóttur, sem er
verkefnisstjóri í upplýsingatækni við
Grunnskóla Snæfellsbæjar. „Hún er
alveg frábær og hugmyndarík. Hún
hefur verið að viða að sér alls kon-
ar öppum og hugmyndum og læt-
ur okkur vita þegar hún rekst á eitt-
hvað sniðugt,“ segir Theódóra.
„Hún benti mér á Mystery Skype og
mér fannst það mjög spennandi. Ég
fór því að lesa mig til um leikinn og
ákvað að haf samband við fleiri kenn-
ara, kanna áhuga fyrir þessu og í kjöl-
farið komum við á fyrsta fundinum.
Síðan þá er þetta orðinn fastur liður
í kennslunni,“ bætir hún við og þar
skipta undirtektir nemenda miklu
máli. „Þetta eru skemmtilegustu
skóladagarnir, þegar við eigum Mys-
tery Skype fundi. Þá er mikil spenna
og gleði í kennslustofunni og krökk-
unum þykir gaman að tala við jafn-
aldra sína annars staðar á landinu,“
segir Theódóra.
Hver leikur tekur um það bil 20
mínútur og spilað er einu sinni til
tvisvar í mánuði. Enn sem komið er
hefur aðeins verið spilað innanlands
en Theódóra segir næsta skref að
prófa að hafa samband við skóla er-
lendis. „Þegar krakkarnir verða orðn-
ir öruggir með sig í leiknum stefni
ég að því að koma á fundi við bekk
í öðru landi. Þá fengju krakkarnir að
spreyta sig á ensku og þá myndi enn
einn lærdómurinn bætast við leik-
inn,“ segir Theódóra. „En það er
rökrétt að byrja innanlands, svona á
meðan allir er að læra á þetta, bæði
nemendur og kennarar.“
Leikurinn er að sögn Theódóru
gagnlegt tæki til að brjóta upp hefð-
bundna kennslu og segir hún að
áhugasamir kennarar geti gengið í
hópinn „Mystery Skype í íslensku
skólasamfélagi“ á Facebook. Það sé
umræðuvettvangur fyrir kennara
sem hafa áhuga á að nýta sér leikinn
í sinni kennslu. „Það er um að gera
að kennarar séu óhræddir við að fikra
sig áfram og prófa nýja hluti,“ seg-
ir Theódóra Friðbjörnsdóttir að lok-
um. kgk
Notar Mystery Skype til að
lífga upp á kennsluna
Nemendur 5. bekkjar Grunnskóla Snæfellsbæjar fylgjast spenntir með gangi mála
í fyrsta Mystery Skype kennslutímanum.
Theódóra Friðbjörnsdóttir kennari
ásamt spyrli hópsins, sem hefur það
hlutverk að bera upp spurningar til
bekksins á hinum enda vídjósam-
talsins. Krakkarnir vita ekki hvar hinn
bekkurinn er og er markmið Mystery
Scype leiksins að komast að því.
Nemendur í Grunnskóla Grundar-
fjarðar héldu árshátíð sína 17. mars
síðastliðinn þegar þeir gerðu sér
glaðan dag í Samkomuhúsi Grund-
arfjarðar. Þá var sett upp leiksýn-
ingin um Pétur Pan hjá yngsta
stiginu og krakkarnir á miðstig-
inu sýndu tvö frumsamin leikverk
ásamt skemmtilegum myndbrotum
þar sem kennararnir fengu að kenna
á því, ef svo mætti að orði komast.
Fréttaritari Skessuhorns gat ekki
séð betur en að mikill metnað-
ur hafi verið lagður í öll atriðin og
skilaði það sér vel til áhorfenda.
tfk
Árshátíð Grunnskóla
Grundarfjarðar
Í síðustu viku var frétt hér í blaðinu
um bikarmeistaramót Íslands í dansi
og greint frá góðum árangri barna
og ungmenna bæði frá Akranesi og
Borgarfirði. Þrátt fyrir ítarlega frétt
af mótinu láðist að geta um frábær-
an árangur 14 ára ungmenna úr
Borgarnesi. Í grunnsporakeppninni
var keppt um bikarmeistaratitil hjá
þeim sem eru í efsta styrkleikaflokki
í grunnsporum og dansa fjóra dansa.
Þau Anton Elí Einarsson og Arna
Jara Jökulsdóttir urðu bikarmeistar-
ar í Latín dönsum í flokki „ungling-
ar II“. Í fréttinni var sagt að annað
danspar, Helgi Reyr og Heiður Dís
frá Akranesi, hafi orðið í þriðja sæti í
þeim flokki, en þau urðu í öðru sæti
á eftir Anton Elí og Örnu Jöru. Þetta
leiðréttist hér með og beðist velvirð-
ingar á að nafn þeirra féll niður. Jafn-
framt skal áréttað að þegar upplýs-
ingum um fjölmenn mót sem þetta
er komið til ritstjórnar, er æskilegt að
alls heimafólks sé getið í ábendingu,
til að svona óhöpp hendi síður.
mm
Viðbót við
dansfrétt
Arna Jara Jökulsdóttir og Anton Elí
Einarsson urðu bikarmeistarar í Latín
dönsum í flokki „Unglingar II.“