Skessuhorn - 22.03.2016, Side 28
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Vélsmiðja BA
Nýsmíði • Vélaviðgerðir
Breytingar • Viðhald
Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is
Björn Kristjánsson 894 – 3336
Arnar Björnsson 849 – 9341
Skólahópur frá Leikskólanum
Hnoðrabóli í Reykholtsdal kom í
heimsókn í Kleppjárnreykjadeild
Grunnskóla Borgarfjarðar í síðustu
viku. Heimsóknin hófst á skynjun-
arverkefni sem fram fór úti á Lækn-
istúni. Þar var unnið með skynjun-
arlíffærin sem sjá um sjón, heyrn,
lykt, snertingu og bragð. Eftir það
var hádegismatur og síðan sam-
verustund þar sem nemendur í 5.
bekk lásu fyrir gestina.
Samstarf þetta hófst árið 2008
og hefur gengið vel að sögn kenn-
ara við skólann. Þá hefur skólahóp-
ur komið a.m.k. þrisvar sinnum í
heimsókn yfir skólaárið og er það
5. bekkur í grunnskólanum hverju
sinni sem tekur á móti hópnum,
heldur utan um hann og leiðbein-
ir áfram. Skólahópurinn fer einn-
ig í heimsókn í 1. bekk og hef-
ur ýmislegt verið gert. Þetta verk-
efni þykir gott til að brúa bilið milli
skólastiga. Meðfylgjandi myndir
tóku ljósmyndaleiðtogarnir Embla
Líf Andradóttir og Unnur Björg
Ómarsdóttir í GBF í heimsókn
barnanna úr Hnoðrabóli.
mm
Skólahópur leikskólans
í heimsókn
Pennagrein
Fyrir Alþingi liggur frumvarp um
að lögleiða spilavíti eða spilahallir,
sem er fínna orð yfir sama hlut. Við
í Vinstri hreyfingunni grænu fram-
boði leggjumst alfarið gegn lögleið-
ingu spilavíta og teljum það auka
þann gífurlega vanda sem spila-
fíkn er og vinni auk þess gegn lýð-
heilsusjónarmiðum. Flutningsmenn
frumvarpsins eru þingmenn úr röð-
um Framsóknarflokks, Sjálfstæðis-
flokks og úr Bjartri framtíð.
Margar ástæður eru fyrir því að við
Íslendingar eigum ekki að bjóða upp
á lögleg spilavíti. Við höfum kom-
ist ágætlega af án slíkrar starfsemi
hingað til og ég tel að samfélagsleg
og lýðheilsuleg rök séu sterk gegn
því að við lögleiðum slíka starf-
semi. Willum Þór Þórsson, flutn-
ingsmaður spilavítafrumvarpsins,
segir að þau séu góð viðbót við af-
þreyingu fyrir ferðamenn. Það skýt-
ur skökku við þegar kannanir með-
al ferðamanna sýna skýrt fram á að
langmestur hluti ferðamanna kemur
fyrst og fremst til Íslands vegna nátt-
úrunnar og vill njóta sérstakrar nátt-
úrufegurðar landsins. Mér finnst því
engin ástæða til að við Íslendingar
leggjum þá áherslu á spilavíti til að
trekkja að eða lokka hingað ferða-
menn. Eða viljum við verða Las Ve-
gas eða Mónakó norðursins? Væri
ekki nær að stjórnvöld komi loks
fram með alvöru uppbyggingu, sýn
og stefnu í ferðaþjónustu sem mik-
ið er beðið eftir meðal ferðaþjón-
ustuaðila og annarra hagsmunaðila
víða um land? Gleymum því ekki að
því miður þrífst oftar en ekki ýmis
konar vafasöm starfsemi í kring-
um spilavíti erlendis; vændi, jafnvel
mansal, eiturlyfjasala og marghátt-
uð glæpastarfsemi virðist oftar en
ekki verða eins konar hliðarbúgrein
spilavíta, þótt auðvitað séu til und-
antekningar á því eins og öðru.
Þúsundir Íslendinga
glíma við alvarlega
spilafíkn
Spilafíkn er alvarlegt þjóðfélags-
mein og ætla má að um 12 þús-
und Íslendingar glími við ein-
hvers konar sjúklega spilafíkn.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að
í áhættuhópnum séu ungir karl-
menn og til SÁÁ leita stöðugt fleiri
sem glíma við alvarlega spilafíkn
sem leitt hefur m.a. til fíkniefna-
vanda og glæpastarfsemi. Í frum-
varpinu er talað um að 21 árs og
eldri verði heimilaður aðgangur að
spilavítum. Við þekkjum vandann
sem margir spilafíklar glíma við og
við verðum að horfa til hagsmuna
fólks sem orðið hefur spilafíkn-
inni að bráð og sorglegar afleið-
ingarnar fyrir fjölskyldur þeirra
sem í mörgum tilfellum hafa misst
allar sínar eigur. Á undanförnum
árum hafa fjárhættuspil á netinu
á erlendum síðum aukist mikið og
ólöglegir pókerklúbbar verið upp-
rættir. Við höfum lögleitt starf-
semi spilakassa, flokkahappdrætti,
lottó og getraunir sem félagasam-
tök hafa notið hagnaðar af. Mikil-
vægt er að endurskoða og styrkja
lagaumhverfið sem er í dag um þá
starfsemi en að auka enn við vand-
ann með því að lögleiða spilavíti.
Á síðasta kjörtímabili lagði Ög-
mundur Jónasson fram frumvarp
sem reisa átti skorður við spila-
starfsemi í landinu og átti að tak-
marka aðgengi að netspilun á er-
lendum síðum. Frumvarpið náði
ekki afgreiðslu en ég tel þörf á
sterkari lagaumgjörð um þessi
málefni ásamt því að efla lög-
regluna í því að uppræta ólöglega
spilastarfsemi. Einnig þarf að taka
fastar á vanda spilafíkla og fjölga
þarf meðferðarúrræðum.
Sérstaða Íslands
eftirsóknarverð
Við Íslendingar erum oft feimnir
við að vera öðruvísi en aðrir. Vísað
er til þess að spilavíti séu leyfð t.d.
í Danmörku og Svíþjóð og að vítt
og breitt um heiminn þyki þetta
eðlilegur hlutur. En er ekki allt í
lagi að við séum ekki nákvæmlega
eins og allir aðrir ef við erum ekki
sannfærð um að þetta geri Ísland
eftirsóknarverðara eða mannlífið
betra, heldur auki frekar á vand-
ann vegna spilafíknar?
Þeir sem tala fyrir lögleiðingu
spilavíta telja að betra sé að fá
þessa starfsemi upp á yfirborðið,
að frelsið eigi að vera að leiðarljósi
og ljúka eigi forræðishyggju. En
frelsi eins getur verið helsi annars
og horfa verður til samfélagslegra,
siðferðislegra og lýðheilsulegra
sjónarmiða í þessu samhengi. Í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinn-
ar er kveðið á um að vinna skuli
að aukinni lýðheilsu í landinu. Ég
get ekki séð að lögleiðing spilavíta
sé skref í þá átt. Ég óttast nefni-
lega að sá hópur sem er veikast-
ur fyrir eigi eftir að verða helstu
viðskiptavinir spilavítanna. Will-
um Þór hefur sagt að stuðla eigi
að ábyrgri spilamennsku og að
einstaklingar gætu óskað eftir því
við spilavítið að þeir geti setti sig á
bannlista. Mundi virka fyrir alkó-
hólista að óska eftir því við starfs-
menn vínbúðanna eða kráa að vera
settur á bannlista? Ég held að það
sé mikil draumsýn að halda að
slíkt virki. Í frumvarpinu er talað
um að koma eigi fram með ýmis
úrræði fyrir spilafíkla og vinna að
forvörnum. Til hvers að lögleiða
spilavíti sem auka vandann og
leggja síðan til að auka fjármuni til
þess að koma í veg fyrir vanda sem
skapast ef hægt er að sleppa við
vandamálið með því að lögleiða
ekki slíka starfsemi? Ég vona að
þær skynsemisraddir heyrist, bæði
á Alþingi og úti í þjóðfélaginu,
að þetta sé ekki sú viðbót við ís-
lenskt samfélag sem við þurfum
á að halda. Ef það er forsjárhyggja
að leggjast gegn lögleiðingu spila-
víta þá er það góð forsjárhyggja að
mínu mati.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Höf. er alþingismaður VG í Norð-
vesturkjördæmi.
Spilavíti eru
„Víti til varnaðar“
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is