Skessuhorn - 22.03.2016, Page 30
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 201630
„Hvað er það besta
við páskana?
Spurning
vikunnar
(spurt í Borgarnesi)
Karólína Guðmundsdóttir:
„Það besta er að þá eru allir í
fríi.“
Friðrik Óskarsson:
„Fríið.“
Sigríður Herdís Magnúsdóttir:
„Páskaeggin, ekki spurning.“
Elva Pétursdóttir:
„Páskaegg.“
Hörður Gunnar Geirsson (t.v.)
og Ágúst Ísfjörð:
„Páskafríið.“
Sjóbaðsfélag Akraness var stofnað
fyrir tæpum fimm árum. Síðan hef-
ur þeim jafnt og þétt farið fjölgandi
sem fara í sjóböð við Langasand og
svamla þar í öllum veðrum og vind-
um. Bjarnheiður Hallsdóttir hefur
stundað sjósund undanfarin ár og er
í stjórn Sjóbaðsfélagsins. Hún seg-
ir marga vera forvitna um sjóböð-
in og þekkir það að fá ýmsar spurn-
ingar því tengdu. Hún segir þó að
sjósundfólki verði oftast orða vant.
„Áhrifum sjósundsins er nefnilega
alls ekki hægt að gera skil með einu
orði eða einni meitlaðri setningu.
Þessu er erfitt að lýsa. Orðið núll-
stilling eða endurræsing finnst mér
komast næst því að lýsa áhrifum sjó-
sundsins hvað mig snertir. Kannski
nær þarna núvitundin hæstu hæð-
um? Þegar komið er í sjósundið skil-
ur maður allar áhyggjur og streitu-
valda eftir í fjörunni og öll skynjun
og vitund helgast af því að laga sig
að þeim aðstæðum sem bíða þegar
út í sjóinn er komið,“ útskýrir hún.
Hún bætir því við að starfsemi lík-
amans fari líka öll í einn farveg, að
reyna eftir mætti að halda á sér hita
við erfiðar aðstæður. „Þegar vaðið er
út í sjóinn, læsist kuldinn um líkam-
ann. En fljótlega eftir að fólk er lagst
til sunds, eða komið á kaf upp að
hálsi, færist yfir þægilegur doði sem
gerir fólki kleift að njóta verunnar
í sjónum. Stundum er hann spegil-
sléttur og þá er ekkert betra en að
synda rösklega meðfram ströndinni,
eða í átt til hafs – finna saltbragðið á
vörunum og njóta nálægðarinnar við
náttúruna, fuglana, fiskana, selina og
útsýnisins,“ heldur hún áfram.
Verða börn á ný
Sjóbaðsfélag Akraness stendur fyr-
ir sjósundi við Langasand þrisvar
í viku, allt árið um kring. Hist er
klukkan 11 á laugardags- og sunnu-
dagsmorgnum og klukkan 18 á
miðvikudögum. Bjarnheiður segir
að þar hittist ákveðinn kjarni fólks
sem fer stækkandi með hverju ári.
„Þetta er líklega líflegra yfir sum-
arið en þó fer þeim fjölgandi sem
mæta yfir veturinn. Síðasta sunnu-
dag mættu til dæmis tólf manns.
Þetta vex frekar en hitt og það eru
fleiri sem eru farnir að stunda þetta
árið um kring.“ Hún segir sjóinn
stundum óstilltan, að kraftmiklar
öldurnar lemji ströndina og að þá
sé gaman. „Þá lætur maður öldurn-
ar kasta sér fram og aftur, lætur þær
brotna á sér og stingur sér í þær. Við
þessar aðstæður verða allir börn á ný
og njóta þess að leika sér. Eftir sjó-
sundið fer fólk síðan skælbrosandi í
heita pottinn og hitar líkamann upp
aftur. Við tekur vellíðan sem end-
ist það sem eftir lifir dags,“ útskýr-
ir hún.
Dýfingakeppni
nýjung í ár
Á undanförnum árum hefur þró-
ast dagskrá hjá félaginu og bætast
nýir viðburðir við á hverju ári. Nýj-
ung í ár er dýfingakeppni í tilefni af
Degi hafsins. „Við reynum líklega
að fá bát sem siglir með okkur að-
eins út frá bryggjunni og höfum dýf-
ingakeppnina af þilfarinu. Svo förum
við aftur í vorferð á Bjarteyjarsand í
ár, líkt og við gerðum í fyrsta sinn í
fyrra. Þá syndum við í sjónum þar,
förum í pottinn og borðum kvöld-
mat,“ segir Bjarnheiður. Þá er boðið
upp á nokkur sund í sumar, þar sem
syntir eru allt að 1700 metrar. Ekki
taka þó allir félagar þátt í að synda
slíkar vegalengdir. „Það má eigin-
lega segja að það séu tvær deildir í
sjóbaðsfélaginu. Sumir synda en aðr-
ir ekki. Það eru ekki nærri því allir
sem kæra sig um að taka þátt í þess-
um löngu sundum, það er bara brot
af félögunum sem eru í því. Flestir
fara bara í sjóbað og láta það duga.“
Bjarnheiður segir ekkert hafa verið
sannað um hollustu þess að stunda
sjósund eða sjóböð, enda hafi senni-
lega ekki verið gerðar neinar mark-
tækar rannsóknir á áhrifum þess á
mannslíkamann. Hún segir það þó
mál bæði leikra og lærðra að sjó-
sundið hafi góð áhrif á blóðrásina,
hjarta og húð. „Það er fátt betra eft-
ir að hafa reynt vel á sig en að henda
sér í sjóinn og láta hann mýkja auma
vöðva. Áhrif á andlega heilsu eru
sömuleiðis álitin góð, allavega af
þeim sem stunda sjóinn að ráði.
Það er óhætt að segja að allir komi
endurnærðir og í góðu skapi upp úr
sjónum. Kostir sjósundsins eru ótal
margir og ávinningur óumdeildur,
kostnaður í lágmarki og skemmt-
un í hámarki. Ég get ekki annað en
hvatt alla til að prófa.“
grþ / Ljósm. Guðni Hannesson.
Drög að viðburðaáætlun Sjóbaðs-
félags Akraness fyrir árið 2016
(birt með fyrirvara um breyting-
ar).
26. maí: Vorferð á Bjarteyjar-
sand, með sundspretti, pottaferð og
kvöldmat (brottfarartími auglýstur
síðar).
04. júní: Dýfingakeppni í tilefni af
Degi hafsins (tími auglýstur síðar).
20. júní kl. 20: Álmaðurinn, þrí-
þraut (e.t.v með „skemmtiútgáfu“).
2. júlí kl. 11: Helgasund á Írskum
dögum, 900m.
16. júlí kl. 12:30: Skarfavararsund,
1.700m.
27. ágúst kl. 12:30: Helgusund í
Hvalfirði, 1700m.
10. desember kl.12: Jólastund eft-
ir sjóbað
24. desember kl. 09:30: Jólasjó-
bað.
31. desember kl. 09:30: Gamlárs-
bað.
Allir koma endurnærðir upp úr sjónum
Synt í sjónum við Langasand.
Langisandur hentar einstaklega vel til sjóbaða.
Félagar úr Sjóbaðsfélagi Akraness á Bjarteyjarsandi.
Stuð á Aggapalli á sjómannadaginn.