Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 20168
Strandveiðum
formlega lokið
LANDIÐ: Síðastliðinn
fimmtudag lauk strandveið-
um formlega hér við land, en
lengst var veitt á D-svæði sem
nær frá Hornafirði og vestur
um til Borgarbyggðar.
-mm
Skoða kaup á
skrifstofum
DALABYGGÐ: Á fundi
byggðarráðs Dalabyggðar 9.
ágúst síðastliðinn voru lagð-
ar fram hugmyndir þess efnis
að sveitarfélagið myndi festa
kaup á skrifstofuhúsnæði að
Miðbraut 11 í Búðardal. Hús-
næðið sem um ræðir er í eigu
Stéttarfélags Vesturlands en
Dalabyggð hefur haft afnot
af skrifstofunum um nokk-
urt skeið. Niðurstaða byggð-
arráðs var að fela sveitar-
stjóra að afla frekari upplýs-
inga, svo sem um vilja Stéttar-
félags Vesturlands til að gera
langtímaleigusamning við
Dalabyggð um húsnæðið. Af-
greiðslu málsins var að öðr-
um kosti frestað þar til frekari
upplýsingar liggja fyrir.
-kgk
Íslands-
meistaramót í
hrútadómum
STRANDIR: Hrútar verða
þreifaðir og þuklaðir í Sauð-
fjársetrinu í Sævangi við
Steingrímsfjörð á Ströndum
sunnudaginn 21. ágúst. Þá fer
fram hið árlega Íslandsmeist-
aramót í hrútadómum. Jafnan
er þátttaka góð í mótinu, bæði
í flokki reyndra hrútadómara
og eins í flokki óvanra hrúta-
þuklara. Vestlendingar úr
nærliggjandi sveitarfélögum
hafa oft fjölmennt á mótið og
voru einráðir á verðlaunapalli
í flokki reyndra hrútadómara
á síðasta ári. Guðmundur
Gunnarsson bar sigur úr být-
um, en hann er bóndi á Kjar-
laksvöllum í Saurbæ í Dölum.
Næstur kom Vilberg Þráins-
son, bóndi á Hríshóli í Reyk-
hólasveit og í þriðja sæti hafn-
aði Bjarki Reynisson á Kjar-
laksvöllum. Að venju verður
kjötsúpa á boðstólnum í há-
deginu og kaffihlaðborð allan
liðlangan daginn. -kgk
Víðtæk leit að
ungri konu
SV-LAND: Víðtæk leit hófst
síðastliðið laugardagskvöld að
ungri konu af höfuðborgar-
svæðinu sem saknað hafði verið
frá því á föstudag. Meðal ann-
arra tóku björgunarsveitir af
sunnanverðu Vesturlandi þátt í
leitinni. Þyrluáhöfn Landhelg-
isgæslunnar fann síðan konuna
heila á húfi á sunnudagsmorg-
un. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu vill koma á framfæri
þökkum til allra sem þátt tóku í
leitinni. -mm
Skákmót á
laugardaginn
REYKHÓLAHR: Eins
og Skessuhorn hefur áður
greint frá verður Minn-
ingarmót Birnu Norð-
dahl skákmeistara haldið
á Reykhólum laugardag-
inn 20. ágúst næstkom-
andi. Margir af fremstu
skákmönnum þjóðarinn-
ar hafa boðað komu sína.
Mótið hefst kl. 14 í íþrótta-
húsinu og verða tefldar átta
umferðir með tíu mínút-
ur á skákklukkunni. Kven-
félagskonur bjóða upp á
léttar kaffiveitingar í kaffi-
hléi og um kvöldið verð-
ur hátíðarkvöldverður í
íþróttahúsinu.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
6. – 12. ágúst
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 10 bátar.
Heildarlöndun: 48.248 kg
Mestur afli: Klettur MB:
28.308 kg í fjórum lönd-
unum.
Arnarstapi 7 bátar.
Heildarlöndun: 10.409 kg
Mestur afli: Bárður SH:
4.155 kg í þremur löndun-
um.
Grundarfjörður 18 bátar.
Heildarlöndun: 327.600
kg
Mestur afli: Hringur SH:
66.588 kg í einni löndun.
Ólafsvík 36 bátar.
Heildarlöndun: 203.111
kg
Mestur afli: Brynja II SH:
56.525 kg í sjö löndunum.
Rif 25 bátar.
Heildarlöndun: 84.139 kg
Mestur afli: Sæbliki SH:
38.869 kg í sex löndunum.
Stykkishólmur 11 bátar.
Heildarlöndun: 18.542 kg
Mestur afli: Blíða SH:
10.677 kg í sjö löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
66.588 kg 10. ágúst.
2. Fjölnir GK – GRU:
57.229 kg 8. ágúst.
3. Páll Jónsson GK –
GRU: 55.188 kg 7. ágúst.
4. Helgi SH – GRU:
46.723 kg 8. ágúst.
5. Grundfirðingur SH –
GRU: 46.657 kg 8. ágúst.
Eldur kom upp á urðunarstað Sorp-
urðunar Vesturlands í Fíflholtum á
Mýrum aðfararnótt þriðjudags í lið-
inni viku, en hans varð vart klukk-
an 7:45 á þriðjudagsmorgun þeg-
ar starfsmenn mættu til vinnu. Að
sögn Þorsteins Eyþórssonar staðar-
haldara er ekki óalgengt að sjálfs-
íkveikja verði á urðunarstöðum,
þegar nær að hitna í haugunum
áður en þeir eru urðaðir. Er þá iðu-
lega gripið til þess ráðs að kæfa eld-
inn með meira rusli og þjappa vel
yfir. Það var einnig gert á þriðju-
dagsmorguninn og gekk ágætlega
framan af. Þá brá hins vegar svo
við að troðarinn sem notaður er til
verksins bilaði og náði eldurinn að
blossa upp að nýju. Þorsteinn seg-
ir að um hádegisbil hafi ekki ann-
að verið í stöðunni en að kalla til
tiltæka vörubíla og voru þegar mest
var fjórir trailer-vörubílar sem óku
möl frá Hítará og sturtuðu yfir
hauginn. Stóðu malarflutningar
yfir fram á fimmta tímann nóttina
eftir. Þá loks náðist að drepa í síð-
ustu glæðunum. Alls var ekið um
þrjú þúsund rúmmetrum af möl
yfir eldinn.
Þorsteinn segir að eftir svona
bruna séu haugarnir vaktaðir sér-
staklega vel því alltaf sé ákveðin
hætta á að eldur nái að blossa upp
að nýju. Þorsteinn sagði jafnframt
að eldurinn í síðustu viku hafi ver-
ið sá mesti á urðunarstaðnum í Fífl-
holtum frá því starfsemin hófst.
Mikinn reyk lagði frá urðun-
arstaðnum á þriðjudaginn og var
hann til óþæginda fyrir íbúa vind-
megin við reykinn, en átt var sunn-
an- og suðvestanstæð. Meðal ann-
ars kvörtuðu íbúar í ofanverðum
Borgarfirði yfir megnri ólykt sem
lagði yfir sveitirnar, meðal annars
Norðurárdal og allt upp í Hálsa-
sveit.
Reykur gæti sést áfram
Hrefna B Jónsdóttir framkvæmda-
stjóri Sorpurðunar Vesturlands seg-
ir að unnið hafi verið samkvæmt við-
bragðsáætlun urðunarstaðarins, en
starfsemin er í samræmi við starfsleyfi
sem gefið var út af Umhverfisstofn-
un. Þar er m.a. kveðið á um frágang
úrgangs á urðunarstað og viðbrögð
ef eldur brýst út. „Lítil hætta er talin
stafa af reyknum fyrir umhverfið þótt
bruni sé aldrei góður sem slíkur. Þeir
sem eru í mestri hættu eru starfs-
menn sem unnu við að ráða niður-
lögum eldsins og slökkva í glæðun-
um. Þetta er með viðameiri frávik-
um sem hafa komið upp í starfsemi
urðunarstaðarins í Fíflholtum,“ sagði
Hrefna. mm
Mestu eldar frá upphafi á
urðunarstaðnum í Fíflholtum
Til marks um hversu hátt reykinn frá Fíflholtum lagði er þessi
mynd sem tekin var úr fjöruborðinu við Ægisbraut á Akranesi
síðdegis á þriðjudaginn. Ljósm. bþb.
Hér má sjá hversu miklir eldarnir í ruslinu voru á þriðjudags-
kvöldið. Ljósm. Jón Þór Þorvaldsson.
Í liðinni viku kom til landsins tíu
manna hópur víkinga frá Massa-
chusetts í Bandaríkjunum. Þetta eru
meðlimir í Hurstwick víkingaklúbbn-
um sem leggur stund á lestur Íslend-
ingasagna ásamt því að æfa bardaga-
tækni víkingaaldar. Forsprakki hóps-
ins er dr. William R. Short. Hingað
til lands er hópurinn kominn til að
fara út í Drangey og kvikmynda 82.
kafla Grettis-sögu, það er að segja
lokabardaga Grettis Ásmundarson-
ar. Fólkið mun fá aðstoð frá íbúum
á Sauðárkróki og víkingaklúbbur frá
Austfjörðunum mun einnig leggja
þeim lið. Hópurinn fer síðan af landi
brott í dag, 17. ágúst. Ætlunin er
að gefa myndina út á dvd diski sem
verður settur í almenna sölu á ama-
zon.com.
Fyrsti stoppistaður hópsins var
Borgarnes þar sem vistir voru keypt-
ar og matast áður en haldið skyldi til
Eiríksstaða í Haukadal til að taka upp
innitökur. Áður en lagt var af stað vest-
ur gaf hópurinn sér tíma til að fara í
stutta pílagrímsheimsókn til Borgar á
Mýrum þar sem meðfylgjandi mynd
var tekin (á myndina vantar tvo liðs-
menn). Áður kom þessi sami hópur
til landsins fyrir tveimur árum til að
taka upp lokakafla Gísla sögu Súrs-
sonar í Geirþjófsfirði. Sú mynd var
gefin út á dvd og er fáanleg á Ama-
zon.com. þg
Amerískir víkingar taka upp
myndefni hér á landi
Umferðaóhapp varð á
föstudaginn á þjóðvegi 54
skammt frá afleggjaran-
um inn á Skógarströnd á
Snæfellsnesi. Atvikaðist
það þannig að jepplingur
var að taka fram úr Ford
F-350 sem dró hjólhýsi.
Eitthvað misreiknaði öku-
maður jepplingsins lengd
hins bílsins og fór hann
ekki nógu langt fram fyrir
Fordinn. Vildi ekki betur
til en svo að hann fór utan
í jeppann og valt útaf. Ekki
urðu slys á fólki.
þa
Misreiknaði lengd þess
sem hann fór fram úr