Skessuhorn - 17.08.2016, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 201614
Sveinn Rúnar Sigurðsson er fjöl-
hæfur maður með mörg járn í eldin-
um sem læknir, frumkvöðull á sviði
hugbúnaðar í þágu lækna og síðast
en ekki síst tónlistarmaður. Sveinn
Rúnar er lagahöfundur sem hef-
ur samið lög fyrir margar þekktustu
poppstjörnur landsins ásamt því að
eiga það met að vera sá lagahöfundur
sem hefur átt flest lög í undankeppni
Sjónvarpsins fyrir Eurovison, en
hann hefur tvisvar sinnum komist út
í aðalkeppnina með lag. Hann hefur
undanfarið unnið að nýju efni í tón-
listinni sem landsmenn munu heyra
í vetur. Sveinn er þó ekki starfandi
tónlistarmaður nema að hluta, held-
ur vinnur hann fullt starf sem læknir
og hóf í apríl síðastliðnum störf sem
yfirlæknir á heilsugæslustöð Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands á Akra-
nesi. Blaðamaður Skessuhorns settist
niður með hinum húmoríska Sveini
Rúnari á dögunum og ræddi við hann
um lífið og tilveruna en einkum um
læknis- og tónlistarstörfin.
Finnst leiðinlegt að sigla
lygnan sjó
Mikil endurnýjun hefur átt sér stað á
heilsugæslustöð HVE á Akranesi síð-
astliðna mánuði. Fimm læknar tóku
til starfa á vormánuðum og eiga það
allir sameiginlegt að hafa unnið á
heilsugæslunni í Grafarvogi. Lækn-
arnir sem um ræðir eru þau Rólant
Dahl Christiansen, Monika Emils-
dóttir, Guðmundur Benediktsson,
Elías Eyþórsson og loks Sveinn Rún-
ar Sigurðsson. „Heilsugæslan á Akra-
nesi hafði glímt við verulega mann-
eklu sem ef til vill hefði tekið lengri
tíma að leysa með stökum ráðning-
um. Við sem hingað komum höfum
öll unnið saman áður og ég viðraði
þá hugmynd við hópinn að það gæti
verið spennandi að ráðast í verkefnið
saman og þau tóku vel í hugmyndina.
Við fengum í raun hreint borð hérna,
tækifæri og frelsi til að skipuleggja
stöðina upp á nýtt og ég er þakklát-
ur stjórnendum HVE fyrir það svig-
rúm. Þetta eru ákveðin kaflaskipti hjá
heilsugæslunni þar sem sömu menn-
irnir hafa verið í brúnni í þrjátíu til
fjörutíu ár með Reyni Þorsteinsson í
fararbroddi. Reynir hefur unnið af-
skaplega gott starf hér á Akranesi og
við höfum góðan grunn að byggja á,
en vissulega fylgja okkur líka nýjar
áherslur og útfærslubreytingar. End-
anlegt markmið okkar er þó að bæj-
arbúum þyki gott að koma á heilsu-
gæsluna, velji sér heimilislækni og
nýti þá víðtæku þjónustu sem að við
getum veitt,“ segir Sveinn.
Akranes öðruvísi
í minningunni
Sveinn Rúnar bjó í Garðabæ þeg-
ar hann ákvað að hefja störf á Akra-
nesi en hann hefur nú flutt í miðbæ
Reykjavíkur til að forðast umferðar-
hnúta á leið sinni upp á Skaga. „Ég
var ekki alveg tilbúinn að taka skrefið
að flytja upp á Akranes að sinni en ég
færði mig aðeins nær helstu umferð-
aræðum. Ég óttaðist fyrst að það yrði
flöskuháls að koma hingað til vinnu,
að keyra á milli, en annað kom á dag-
inn. Í dag finnst mér aksturinn vera
hápunktur dagsins. Ég nota tímann
til að hvílast,“ segir Sveinn.
Sveinn Rúnar segist ekki hafa
mikla tenginu við Akranes en hann
eyddi engu að síður þónokkrum tíma
á Akranesi eitt sumarið á unglingsár-
unum. „Ég átti kærustu á Akranesi
eitt sumarið þegar ég var í Verzló og
hljóp í lok hverrar viku niður á höfn
til þess að taka Akraborgina,“ rifj-
ar Sveinn upp og hlær og bætir því
við að þetta ástarævintýri hafi þó ekki
staðið lengi yfir.
Hann segir Akranes ekki hafa ver-
ið eins líflegt bæjarfélag í minning-
unni. „Í minningunni, þegar ég var
að koma hingað reglulega með Akra-
borginni, fannst mér heldur litlaust
um að lítast hér á Skaganum. Ég get
sagt þér þetta núna því bæjarfélagið
hefur komið mér mjög á óvart. Góð-
ir veitingastaðir, glæsileg aðstaða til
íþróttaiðkunar og blómlegt tónlist-
arlíf. Ég kann óskaplega vel við mig
hérna. Það hefur verið tekið einstak-
lega vel á móti mér og allt gert til
að koma okkur aðkomufólkinu inn
í bæjarfélagið. Þetta er gott samfé-
lag og það er gaman er að vera hluti
af því.“
Tilkynnti snemma að
hann ætlað að verða
tónlistarmaður
Tónlist hefur verið fyrirferðamikil í
lífi Sveins. Hann var þó orðinn nokk-
uð stálpaður þegar hann hóf að leika
á hljóðfæri. „Ég kynnist píanói þegar
ég var fimmtán ára gamall. Ég kolféll
fyrir hljóðfærinu strax en auk þess féll
ég fyrir kirkjuorgeli og skráði mig til
náms í tónlistarskóla Þjóðkirkjunnar.
Ég lærði þar hjá Ungverjum, bæði á
kirkjuorgel og píanó. Þeir voru mjög
agaðir kennarar og hikuðu ekki við
að slá í hnakkann á manni eða putt-
ana ef illa gekk. Ég lærði aðallega að
spila klassíska tónlist og þar liggur
grunnurinn minn og ástríða í tón-
list. Ég er fyrst og fremst klassískur
píanóleikari og hef spilað mikið af
henni í gegnum tíðina; þá aðallega
rússnesk tónverk.“
Sveinn lauk píanónáminu 19 ára
gamall. „Ég tilkynnti foreldrum
mínum strax í kjölfarið að ég ætl-
aði mér að verða tónlistarmaður,
vildi læra meira og gera tónsmíð-
ar, sinna kennslu og gera tónleika-
hald að aðalstarfi. Foreldrar mín-
ir tóku bara frekar vel í þá hugmynd
og lofuðu mér því að herbergið mitt
myndi standa óhreyft og ég gæti allt-
af leitað til þeirra og fengið gistingu
og mat. Faðir minn er mikill húm-
oristi en þetta latti mig svolítið og
ég hef eiginlega ekki fyrirgefið þeim
þetta ennþá,“ segir Sveinn og brosir.
„Í fullkomnum heimi þar sem pen-
ingar myndu ekki skipta máli væri ég
tónlistarmaður. Ef maður fókuserar
nógu mikið á eitthvað, hvað sem það
er og leggur sig 100 prósent fram,
þá nær maður að lifa á því. Mamma
mín, Gunnella, er t.d. myndlistar-
kona og hefur með eljusemi náð
einstökum árangri, haldið sýning-
ar víða um heim og m.a. hlotið út-
nefninguna „Besti myndskreytari“ í
Bandaríkjunum árið 2007.“
Eurovison methafi
Þrátt fyrir að Sveinn hafi lagt mikla
áherslu á klassíska tónlist bæði í nám-
inu sem og spilamennsku sinni fór
hann snemma að semja dægurlög
fyrir fjölda listamanna. Hann hefur
samið lög fyrir tónlistarmenn eins og
Magna Ásgeirsson, Jónsa í Svörtum
fötum og Védísi Hervöru svo ein-
hverjir séu nefndir. Sveinn á einnig
metið að vera sá lagahöfundur sem
hefur átt flest lög í Söngvakeppni
Sjónvarpsins.
„Í dag á ég það vafasama Íslands-
met að hafa samið langflest Eurov-
ison lög allra. Ég hef ekki verið með
oft en mér hefur heldur aldrei ver-
ið hafnað. Öll lögin sem ég hef sent
inn hafa komist í undankeppnina á
Íslandi. Ég hef í þrígang átt þrjú lög
í undankeppninni. Ég held að regl-
unum hafi verið breytt mér til höf-
uðs því nú má bara senda inn tvö
lög í keppnina,“ segir Sveinn. „Það
er engum óskandi að sitja uppi með
þrjú lög í söngvakeppninni því um-
sýslan er gríðarleg. Það var heldur
aldrei ætlunin en dómnefndin hefur
haft eitthvað blæti fyrir mér í gegn-
um árin sýnist mér,“ segir Sveinn.
Fékk uppreisn æru
vegna kattarins Kela
Sveinn hefur tvisvar sinnum farið
með lag út í Eurovison. Í fyrra skipt-
ið var það lagið „Heaven“ með Jónsa
í Svörtum fötum og í seinna skiptið
var það lagið „Ég les í lófa þínum“
með Eiríki Haukssyni. Heaven fór
þó ekki í gegnum hefðbundna leið í
aðalkeppnina. „Ég var valinn til þess
að semja Eurovison lagið það árið.
Ég fékk símhringingu í janúar þar
sem ég var spurður hvort ég gæti tek-
ið þetta að mér sem ég gerði. Dag-
inn áður en ég fékk símhringinguna
hafði ég hætt með kærustunni minni.
Ekki þessari frá Akranesi þó, segir
Sveinn og brosir. „Ég átti í miklum
vandræðum með að skila af mér týp-
ískum gleðismelli með upphækkun
vegna þessa, svo úr varð líklega sorg-
legasta Eurovison lag Íslandssögunn-
ar. Þegar ég hitti Magnús Sigmunds-
son um vorið, til þess að smíða texta
við demóið, spurði hann mig bara
hvort einhver nærri mér hefði látið
lífið. Eftir útskýringar mínar fannst
honum tilvalið að þetta yrði svana-
söngur minn til kærustunnar. Þjóð-
in tók þessu lagi ekki vel og ég fékk
mikla, og oft á tíðum ómaklega,
gagnrýni og okkur gekk ekkert úti í
keppninni. Í miðju gagnrýnishafinu
ákvað ég að ég ætlaði að koma öðru
lagi út fyrir Íslands hönd í kosningu
þar sem þjóðin myndi velja framlagið
og það tókst mér með Eiríki Hauks-
syni,“ segir Sveinn.
Þrátt fyrir að hafa komist með lag
út með þjóðaratkvæðagreiðslu segist
Sveinn þó ekki hafa fengið uppreisna
æru vegna „Heaven“ fyrr en nokkru
síðar. „Árið 2012 fæ ég símhring-
ingu og í símanum var kona sem bjó
á Patreksfirði. Ég þekkti þessa konu
ekki neitt og hafði aldrei talað við
hana hvorki fyrr né síðar. Hún til-
kynnti mér það í símann að lagið
„Heaven“ með Jónsa minnti sig svo
á köttinn sinn hann Kela sem hafði
dáið nokkrum árum áður. Þegar ég
lagði á þá fannst mér ég vera kominn
í sátt við verkið því ef þú snertir ein-
hvern einhvers staðar með sköpunar-
verki þínu þá ertu búinn að ná ætlun-
arverki þínu, þó það sé bara einn ein-
staklingur,“ segir Sveinn.
Eurovison
fínn stökkpallur
Sveinn segist alls ekki sjá eftir þátt-
töku sinni í Eurovison og segir
keppnina vera finan stökkpall fyr-
ir tónlistarmenn. „Ef maður held-
ur rétt á spilunum getur maður nýtt
áheyrnina til marga hluta. Sannleik-
urinn er sá að það eru hundruð millj-
óna sem heyra lögin sem koma fram í
Eurovison. Flestir af þeim sem heyra
lögin er fólk sem hlustar á tónlist al-
mennt þó svo margt af því fólki hafi
kannski öðruvísi smekk heldur en ég.
Góð tónlist á erindi hvar sem er og
maður vill að tónlistin manns dreif-
ist sem víðast. Eftir Eurovison hef ég
fengið að vinna með alls konar fólki
frá hinum ýmsu löndum. Ég hef gef-
ið út lög í Danmörku, Úkraínu, Suð-
ur-Afríku og fleiri löndum.“
Sveinn segir að Eurovisonland sé
mjög skemmtilegur staður til að vera
á. „Ég myndi hvetja alla Íslendinga
til þess að prufa að fara á Eurovis-
onkeppni. Það er gaman að fara í
ferð rétt fyrir íslenska sumarið á stað
þar sem allt iðar af gleði og ham-
ingju. Ég hef verið staddur nokkrum
sinnum í hringiðu Eurovisonlands.
Það ólýsanleg upplifun. Maður hef-
ur séð ótrúlegustu menn tapa sér í
gleðinni í Eurovisonlandi. Maður
er svo í svona vikutíma að koma sér
aftur niður á jörðina, hætta að kyssa
alla á kinnina og losna við smámælg-
„Læknisfræðin heldur höfðinu við
en tónlistin fær hjartað til að slá“
-Rætt við Svein Rúnar Sigurðsson um læknastarfið, tónlistina og köttinn Kela
Sveinn Rúnar Sigurðsson læknir á Akranesi segir að læknisfræðin hafi haft góð áhrif á sig sem lagahöfund og tónlistarmann.