Skessuhorn - 17.08.2016, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016 15
Heyrðu umskiptin -fáðu heyrnartæki til reynslu.
Erum með margar gerðir og verðflokkaReSound heyrnartækja. ReSound er
í fremstu röð í framleiðslu heyrnartækja í heiminum í dag. Miklar vinsældir
ReSound má rekja til frábærra gæða tækjanna og einnig til þess að Apple
valdi ReSound sem samstarfsaðila í samþættingu á heyrnartækjum við
iPhone-snjallsíma. Í samkeppni á heyrnartækjamarkaðinum
hefur ReSound náð verulegu forskoti.
Heyrnarþjónustan Heyrn • Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur • s:534-9600 • www.heyrn.is •
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
120 ára vígsluafmæli Akraneskirkju
Hátíðarguðsþjónusta
nk. sunnudag, 21. ágúst, kl. 14.
Biskup Íslands, sr. Agnes M.
Sigurðardóttir, prédikar.
Að guðsþjónustu lokinni verður
kirkjugestum boðið til
kaffisamsætis í Safnaðarheimilinu
Vinaminni.
Fjölmennum til kirkju á merkum
tímamótum í sögu safnaðarins.
Verið velkomin!
ina þegar maður kemur heim,“ segir
Sveinn hlæjandi. Ég er reyndar ekki
eini Eurovisionfari heilsugæslunn-
ar því hjúkrunarfræðingurinn okkar,
hún Hulda, söng bakraddir í Dan-
mörku árið 2000.
Margt framundan
Í september eða október ætlar Sveinn
að halda tónleika í Vinaminni ásamt
nafna sínum Sveini Arnari organ-
ista Akraneskirkju. Á tónleikunum
vill Sveinn kynna sig betur fyrir bæj-
arbúum. „Ég hef ekki mikið verið í
sviðljósinu og það hefur verið með-
vitað þar sem það getur flækst fyr-
ir samtalinu við sjúklinga. Ég er þó
duglegur að vinna í tónlist og er að
vinna töluvert mikið af nýju efni fyrir
marga tónlistarmenn sem mun vera
gefið út í vetur.”
Auk þess að sinna störfum sín-
um sem læknir og semja tónlist hef-
ur Sveinn unnið að hugbúnaði und-
anfarin ár sem ber nafnið MedSys.
Hugbúnaðurinn á að draga úr þeim
tíma sem læknar hafa hingað til þurft
að verja í skráningu upplýsinga um
sjúklinga sína. Í febrúar á þessu ári
skrifaði Landlæknisembættið undir
samning um kaup á hugbúnaðinum
en hjá fyrirtæki Sveins starfa forrit-
arar og hönnuðir í Úkraínu, Þýska-
landi, Bandaríkjunum og Rúmen-
íu, „Ég hef eytt miklum tíma og
lagt hart að mér við að koma þess-
um hugbúnaði á laggirnar. Þörfin er
mikil og tölvuumhverfi lækna hér á
Íslandi er óviðunandi. Ég kann mjög
vel við mig í hugbúnaðarþróun-
inni. Ég vann til fjölda ára sem for-
ritari þegar ég var í skóla. Hugbún-
aðarvinnan sameinar bæði læknis-
fræðina og tölvuáhuga minn. Ég get
vel hugsað mér að færa mig í frek-
ari hugbúnaðarvinnu í framtíðinni,“
segir Sveinn.
Tónlistarmaður
sem varð læknir
Sveinn segir að læknisfræðin hafi haft
góð áhrif á hann sem tónlistarmann.
„Ég held að læknisfræðin hafi hjálp-
að mér að vissu leyti í minni laga-
smíði. Sem læknir fæ ég frá fyrstu
hendi að upplifa bæði gleði og sorg.
Maður fær innblástur af slíku en auk
þessa hef ég verið svo heppinn að
hafa upplifað slíkt sjálfur og sköpun-
arkrafturinn nærist á slíkum mótív-
um. Aftur á móti fer læknastarfið og
tónlistin illa saman tímalega séð. Ég
hef lítinn tíma til að sinna tónlistinni
vegna læknisverka sem og fyrirtækja-
rekstrinum. Það horfir þó til sólar í
þeim efnum á næstu misserum”.
Sveinn segist myndi velja tónlist-
ina fram yfir læknastarfið ef til þess
kæmi. „Læknisfræðin heldur höfð-
inu við en tónlistin fær hjartað til að
slá. Ég er tónlistarmaður sem lærði
læknisfræði,“ segir Sveinn að end-
ingu. bþb
Sveinn er höfundur lagsins „Heaven“ með Jónsa í Svörtum fötum sem fór út fyrir
Íslands hönd í Eurovison 2004. Sveinn fékk gagnrýni fyrir lagið en uppreisn æru
mörgum árum síðar og tengist það kettinum Kela, eins og lesa má um í viðtalinu.