Skessuhorn - 17.08.2016, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 201618
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
Nýnemadagar verða haldnir á Há-
skólanum á Bifröst á morgun,
fimmtudaginn 18. ágúst og föstu-
daginn 19. ágúst. Þar verður farið
yfir það helsta sem nýnemar þurfa að
vita um fyrirkomulag námsins. Dag-
skráin hefst með formlegri skóla-
setningu og bjölluhringingu klukkan
13:00 á morgun. Kennsla hefst síð-
an mánudaginn 22. ágúst. Innritun
í nám stendur enn yfir en Vilhjálm-
ur Egilsson rektor telur að stúdentar
verði á sjötta hundrað talsins. „Nem-
endur eru ennþá að innrita sig í skól-
ann en það stefnir í að nýnemar verði
eitthvað á þriðja hundraðið sem
er nokkru færra en undanfarin ár.
Heildarfjöldi nemenda verður vænt-
anlega á sjötta hundrað en nákvæm
tala liggur fyrir þegar vika er liðin af
kennslu,“ segir hann. Undanfarin ár
hafa konur verið drjúgur meirihluti
nemenda, allt að tveir þriðju og rekt-
or segir ekkert benda til þess að það
hlutfall sé að breytast.
Akademískir starfsmenn í föstu
starfi við Háskólann á Bifröst eru ná-
lægt 30 talsins og starfsmenn þjón-
ustueininga og stjórnsýslu rúmlega
20. „Til viðbótar koma svo stunda-
kennarar sem kenna einstök nám-
skeið en fjöldi þeirra er mjög breyti-
legur,“ segir Vilhjálmur.
Nýtt meistaranám í
viðskiptalögfræði
Aðspurður um nýjungar á komandi
vetri segir rektorinn að stjórnendur
skólans séu að undirbúa nýtt meist-
aranám í viðskiptalögfræði sem ýtt
verði úr vör um áramótin. „Við erum
nú þegar með grunnnám í viðskipta-
lögfræði og viljum koma á fót meist-
aranámi í sama fagi,“ segir hann.
„Þetta hangir saman við samstarf sem
við höfum haft við Háskólann í Árós-
um og einn háskóla í Dublin. Þar er
verið að vinna með hugmyndir um
sameiginlega gráðu og gagnkvæma
viðurkenningu á námsleiðum. Þetta
er verkefni sem við fengum styrkt til
að vinna að og þessi nýjung verður
tengd því samstarfi,“ segir Vilhjálm-
ur. Að öðru leyti segir rektorinn að
unnið sé að því að styrkja námsbraut-
ir sem ýtt var úr vör síðasta haust. „Í
fyrra voru miklar nýjungar; nýtt nám
í miðlun og almannatengslum, bylt-
ingafræði og viðskiptafræði með
áherslu á þjónustu,“ segir Vilhjálm-
ur. Hann telur nám í miðlun og al-
mannatengslum ætla að festa sig
ágætlega í sessi en er byltingafræðin
á eftir að sanna sig betur. Viðskipta-
fræðitengt nám standi hins vegar
alltaf fyrir sínu, enda eitt af aðals-
merkjum skólans. „Þá má geta þess
að við urðum í fyrra fyrsti skólinn til
að bjóða upp á kennslu í lögfræði í
fjarnámi. Það gekk mjög vel og við
ætlum að þróa það áfram þannig
að til frambúðar verði boðið upp á
lögfræði í fjarnámi eins og í öðrum
greinum,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir að vinsælasta fagið
við Háskólann á Bifröst undanfarin
ár hafi verið meistaranám í forystu
og stjórnun. „Þetta nám er hugsað
fyrir fólk sem hefur ekki endilega
bakgrunn í viðskiptafræði, held-
ur breiðan bakgrunn en vill kom-
ast í stjórnunarstörf í sínum stofn-
unum eða fyrirtækjum. Þetta nám
hentar mjög vel fólki á breiðu sviði
í íslensku samfélagi til að fá fagleg-
an bakgrunn í stjórnunarfræðum,“
segir hann.
Hátt hlutfall fjarnema
Ein sérstaða Háskólans á Bifröst,
samanborið við aðra háskóla lands-
ins, er hátt hlutfall fjarnema. „Fjar-
námið er orðið ráðandi í náminu.
Að minnsta kosti þrír fjórðu hluti
allra nemenda á Bifröst eru fjar-
nemar og það skapar skólanum
ákveðna sérstöðu,“ segir Vilhjálm-
ur. „Staðnám og fjarnám er kennt
í sama rennsli. Hvort sem nemandi
er í staðnámi eða fjarnámi þá skil-
ar hann sömu verkefnum og tek-
ur sömu prófin á sama tíma. Fjar-
námið er því að öllu leyti sambæri-
legt staðnáminu og gefur mörgum
tækifæri til að stunda nám sem ann-
ars myndu ekki hafa það,“ útskýrir
Vilhjálmur en bætir því við að allt-
af sé góður hópur fólks sem vill búa
á Bifröst og mæta í kennslustundir
frekar en læra í fjarnámi.
Aðspurður segir Vilhjálmur með-
alaldur stúdenta á Bifröst vera háan
miðað við það sem gerist annars
staðar. Það sé meðal annars vegna
hás hlutfalls fjarnema. „Það er mik-
ið fjölskyldufólk í fjarnámi og hefur
lengi verið einkennandi fyrir skól-
ann, en eins er margt fólk sem þeg-
ar er á vinnumarkaði og vill bæta
við sig menntun samhliða vinnu,“
segir hann.
Stanslaus vinna að láta
enda ná saman
„Skólarekstur hefur aldrei ver-
ið áhyggjulaus en það er eins og
gengur. Þetta er alltaf heilmikil
glíma,“ segir Vilhjálmur aðspurð-
ur um rekstur skólans. „Við höfum
þurft að taka á alls konar fortíðar-
vanda og síðan lagt í ýmislegt sem
skilaði sér ekki til baka. En það er
eins og gengur, sumt skilar sér til
baka og annað ekki,“ bætir hann
við. Vilhjálmur segir að mikill halli
hafi verið á rekstri skólans fyrir ekki
löngu síðan. „Sérstaklega árið 2014
varð töluvert tap en það lagaðist
mikið í fyrra og við vonumst til þess
að reksturinn verði fyrir ofan strik-
ið á þessu ári. En svo vitum við ekki
almennilega hvar við stöndum fyrir
árið 2017, við erum ekki búin að fá
fjárlagatölurnar,“ segir hann. „Það
er stanslaust verkefni að láta enda
ná saman.“
Undirbúningur hafinn
fyrir aldarafmælið
Hvað varðar komandi ár segir Vil-
hjálmur að skólinn sé núna að marka
sér stefnu fyrir árin 2017-2020.
„Skólinn verður 100 ára árið 2018
og undirbúningur fyrir afmælið fer
að komast á fullan skrið. Við vilj-
um minnast þess með veglegum
hætti að skólinn sé að ná þeim ár-
angri að verða 100 ára gamall. Það
eru ekki margar stofnanir eða fyrir-
tæki sem ná þeim aldri,“ segir Vil-
hjálmur ánægður. „Skólinn hefur
vissulega þróast og breyst mikið á
þessum árum. En það sem skiptir
máli er að hann hefur alla tíð verið
trúr sínu hlutverki: Að mennta fólk
til forystu í atvinnulífinu og samfé-
laginu. Við munum halda áfram að
reyna að uppfylla það hlutverk okk-
ar, til gagns bæði fyrir atvinnulífið
og samfélagið í heild.“
kgk
Háskólinn á Bifröst:
Hlutverk skólans að mennta fólk til forystu í
atvinnulífinu og samfélaginu
Rúmlega 120 nemar úr öllum deildum skólans voru útskrifaðir síðasta vor.
Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans
á Bifröst.
Meistaranemar í lögfræði flytja mál í Héraðsdómi Vesturlands síðasta vetur. Er
það hluti af námskeiðinu Málflutningur fyrir dómi og veitir nemum þjálfun og
innsýn í starf lögmanna. Ljósm. bifrost.is.
Nemendafélag Háskólans á Bifröst stendur árlega fyrir keppni í sápubolta. Þar er
knattspyrna leikin á plastdúk sem á er volgt sápuvatn. Nemendur og starfsfólk samei-
nast í lið og klæða sig upp í ákveðnu þema.
Ljósm. fengin af facebook-síðu nemendafélagsins.
„Hvað er
skemmtilegast
við að byrja í
skólanum?“
María Una Óskarsdóttir,
5. bekk, Auðarskóla:
„Að fara í myndmennt og
íþróttir.“
Birna Rún Ingvarsdóttir,
5. bekk, Auðarskóla:
„Það verður gaman að fá að
prófa erfiðara heimanám og
vita hvað er að fara að gerast.
Ég hlakka líka til að kynnast nýju
krökkunum sem eru að koma í
skólann. Svo finnst mér gaman
að fara í sund og íþróttir.“
Benóní Meldal Kristjánsson,
3. bekk, Auðarskóla: „Íþrótt-
ir eru skemmtilegar en þær geta
verið aðeins erfiðar. Skemmti-
legast hjá mér er stærðfræði.
Sund er líka dálítið skemmtilegt
en íþróttir eru skemmtilegri. Mér
finnst skemmtilegast að fara á
Laugar í Tarzan leik.“
Rúnar Már Jónasson,
1. bekk, Auðarskóla:
„Það er gaman að fá skólatösku
og skóladót.“
Spurning
vikunnar