Skessuhorn - 17.08.2016, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016 27
Náms- og starfsráðgjöf Tómstundanámskeið
Nám fyrir fatlaða Nám fyrir atvinnuleitendur
Nám fyrir innflytjendur Menntastoðir
Sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir
Markviss – ráðgjöf og gerð fræðsluáætlana
Raunfærnimat Áhugasviðspróf
Þjónusta við fjarnema
Lærum allt lífið
www.simenntun.is
„Langmikilvægasta viðhorfið sem myndast getur
– er löngun til að halda áfram að læra“
JOHN DEWEY
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
VINSÆLAR FARTÖLVUR FYRIR SKÓLANN
!
ÞJÓÐBRAUT 1 • AKRANESI
SÍMI 431 3333
13,3”
SKJÁR
INTEL M3
VINNSLUMINNI
1TB
SKJÁRVINNSLUMINNISKJÁRVINNSLUMINNI
INTEL M3
Mörg börn nota svokallaða sundpoka
undir eitt og annað sem þau þurfa að
hafa með sér á ferðum sínum. Pok-
arnir eru einfaldir og handhægir og
henta t.d. vel undir sundfötin, nest-
ið, skóna eða hvaðeina annað smá-
legt sem taka þarf með. Sumir pok-
anna eru með riflásum á böndunum
sem gefa eftir ef átak kemur á band-
ið. Þeir eru þó í minnihluta og mik-
ilvægt að átta sig á hættunni ef slíkir
riflásar er ekki til staðar. Dæmi eru
um að böndin hafi farið utan um
háls barna og þrengt að öndunar-
vegi. Slíkt gerðist á Akureyri í sumar
þegar drengur var að hjóla heim til
sín með sundpoka á bakinu og hafði
í ógáti sett böndin þannig að þegar
á þeim strekktist runnu þau utan um
háls hans. Þegar böndin drógust inn
í gjörð á hjólinu þrengdu þau hratt
að öndunarveginum.
Þorvaldur Þorsteinsson faðir
stráksins segir það hafa orðið hon-
um til happs að tvær eldri konur hafi
borið að. „Honum tókst ekki sjálf-
um að losa flækjuna sem var kom-
in utan um hálsinn og átti orðið erf-
itt með andardrátt. Konurnar los-
uðu böndin í hvelli og vil ég þakka
þeim kærlega fyrir snarræðið. Jafn-
framt minni ég foreldra á að ræða
þessa hættu við börn sín og brýna
fyrir þeim að þau vefji böndunum
aldrei utan um hálsinn.“
Tryggingafélagið VÍS tekur heils
hugar undir þessi varnaðarorð og
bendir á að til að minnka hættu á
svona slysum getur verið skynsam-
legt að stytta böndin á pokunum
svo þau flækist síður í eitthvað. Jafn-
framt sitja pokarnir þá bæði þægi-
legar og ofar á baki barnanna.
-fréttatilkynning
Sundpokar geta verið
varasamir