Skessuhorn - 11.10.2017, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2017 11
mennina til nafns létu þeir þögnina
vera svar sitt við þeirri spurningu og
skrúfuðu upp bílrúðuna. Eftir að hafa
fylgst með atburðarásinni við Hraun-
fossa nokkra stund og rætt við starfs-
mann sinn, sem innheimti gjaldið
samkvæmt fyrirmælum þeirra, óku
mennirnir á brott.
Fyrsti vinnudagurinn
Allan þennan tíma stóð gjaldheimt-
umaðurinn sína vakt samkvæmt fyr-
irmælum vinnuveitenda sinna. Blaða-
maður gaf sig á tal við hann og rædd-
um við saman dágóða stund. Af þeim
samræðum að dæma fer þar vænsti
piltur, ungur maður frá Litháen.
Sagðist hann hafa byrjað að vinna fyr-
ir landeigendur Hraunsáss II þenn-
an sama morgun. Fékk hann þau
fyrirmæli að fara að Hraunfossum
og innheimta bílastæðagjald. Vissi
hann ekki til þess að gjaldtakan væri
umdeild og enn síður að deilt væri
um lögmæti hennar. Var honum því
nokkuð brugðið þegar þegar nokkrir
ferðalangar reiddust honum, neituðu
að borga, sögðu gjaldtökuna ólöglega
og hótuðu að hringja á lögregluna.
Þegar lögregla kom á vettvang um
fjögurleytið þennan dag kallaði hún
manninn í bílinn til sín. Ræddi hann
nokkra stund við lögreglu áður en
honum var hleypt út að nýju. Steig
hann þá upp í bílinn sinn, ók á brott
og lét gott heita af gjaldtöku þann
daginn. Lögreglumennirnir sögðust
ekki geta tjáð sig um málið við Skessu-
horn. Þannig lauk spennuþrungnum
degi við Hraunfossa. Blaðamaður
hripaði nokkra minnispunkta á blað,
settist síðan upp í blaðfákinn og hélt
heim á leið. kgk
Gengið hefur verið frá skipun nýrr-
ar verðlagsnefndar búvara. Krist-
rún M. Frostadóttir hagfræðing-
ur er formaður nefndarinnar til-
nefnd af Þorgerði Katrínu Gunn-
arsdóttur landbúnaðarráðherra.
Auk formannsins tilnefndi Þor-
gerður Katrín tvo af sjö í nefnd-
ina, þau Dóru Sif Tynes og Þór-
ólf Matthíasson hagfræðiprófess-
or við HÍ. Bændasamtök Íslands
skipa Sigurgeir Sindra Sigurgeirs-
son formann BÍ og Arnar Árnason
og loks skipa Samtök afurðastöðva
í mjólkurframleiðslu þau Rögnvald
Ólafsson og Jóhönnu Hreinsdótt-
ur. Samtök launþega, þ.e. BSRB
og stjórn ASÍ hafa ákveðið að nýta
ekki rétt sinn til tilnefningar í verð-
lagsnefnd. Samkvæmt lögum féll
það því í hlut velferðarráðherra að
tilnefna tvo fulltrúa auk Kristrúnar
formanns.
Skipan Þorgerðar Katrínar á
Þórólfi Matthíassyni prófessor í
verðlagsnefnd hefur farið einkar
mikið fyrir brjóstið á bændum.
Styðjast þeir við ummæli hans á
ýmsum vettvangi. Nýlega var haft
eftir Þórólfi í blaðaviðtali: „Gegnd-
arlaus offramleiðsla á kindakjöti er
rót þess vanda sem blasir við í sauð-
fjárbúskap.“ Þar sagði hann bænd-
ur verða að minnka framleiðsluna
og laga hana að markaðinum í stað
þess að seilast enn einu sinni í vasa
skattborgara. Eins og vel er kunn-
ugt hefur Þórólfur í áravís gagn-
rýnt mjög íslenskan landbúnað og
sagt bæði í ræðu og riti að hann sé
óhagkvæmur. Í morgunþætti á Rás2
síðastliðinn fimmtudag lýsti hann
þeirri skoðun sinni að honum þætti
t.d. íslenskur gouda ostur vond-
ur og því ætti fremur að flytja slíka
vöru inn. Sagði hann jafnframt að
Íslendingar borðuðu meira lamba-
kjöt en aðrar þjóðir og því myndi
neysla þess óhjákvæmilega minnka
hér á landi.
„Hann vill leggja niður land-
búnað og flytja inn landbúnaðar-
vörur. Ég vissi þessa skoðun hans
svo sem fyrir en að hann myndi
segja það svona blákalt kom mér á
óvart,“ sagði Þóra Sif Kópsdóttir
formaður Félags sauðfjárbænda á
Snæfellsnesi í samtali við Skessu-
horn eftir að hafa hlustað á Þórólf
í fyrrnefndum útvarpsþætti. „Menn
sem sjá ekki tækifæri og möguleika
í viðskipum eru útbrunnir í starfi.
Þennan mann skipar svo ráðherra
í verðlagsnefnd búvara. Ég á ekki
orð,“ segir Þóra Sif og segir skipan
Þórólfs köldustu kveðju sem ráð-
herra hefði mögulega getað sent ís-
lenskum bændum. mm
„Kaldasta kveðja sem mögulega
hefði mátt senda bændum“
Þórólfur Matthíasson í viðtali á RUV. Ljósm. ruv.is
Að morgni síðasta föstudags hófu
landeigendur að Hraunsási II í
Hálsasveit í Borgarfirði innheimtu
bílastæðagjalds við Hraunfossa. Eru
þeir málavextir raktir ítarlega hér
til hliðar. Blaðamaður var á ferð-
inni í Borgarfirði á föstudagsmorgun
þegar hann frétti af því að gjaldtaka
væri hafin. Hélt hann því rakleiðis
að Hraunfossum til að fylgjast með
gangi mála. Þegar þangað var komið
beið maður í gulu vesti sem innheimti
bílastæðagjald, frá 1.500 kr. og upp í
6.000. kr. eftir stærð bíla. Um 90%
af bílastæðinu tilheyrir landi Hrauns-
áss II en hinn hluti stæðisins tilheyr-
ir Hraunsási, sem er meðal annars í
leigu rekstraraðila veitingaskálans við
Hraunfossa. Til að komast að veit-
ingaskálanum þarf því að aka í gegn-
um land Hraunsáss II.
Gjaldtaka ólögmæt
að mati UST og
Vegagerðar
Þórhildur María Kristinsdóttir, land-
vörður hjá Umhverfisstofnun, var
send að Hraunfossum þegar gjald-
takan hófst. Hún átti að fylgjast með
og skrá þá bíla sem borguðu fyrir að
leggja á svæðinu. Hún vildi ekki tjá
sig efnislega um málið en sagði að
allir þyrftu að fara að lögum. „Sama
hvað það er eða hver á í hlut þá þarf
að fara að lögum og reglum,“ sagði
hún í samtali við blaðamann.
Mat Umhverfisstofnunar er að
gjaltaka inn á friðlýst svæði Hraun-
fossa krefjist leyfis stofnunarinnar.
Það hafi ekki verið veitt og hún sé því
ólögmæt.
Vegagerðin benti síðan á að veg-
urinn inn á svæðið væri skráður
sem tengivegur og vísaði til laga-
ákvæðis þess efnis að þjóðvegir séu
opnir almennri umferð. Vegagerð-
in, sem veghaldari þessa vegar, sagði
að gjaldtaka fyrir notkun hans fæli í
sér óleyfilega hindrun á umferð um
þjóðveg og væri óheimil nema með
leyfi Vegagerðarinnar.
Rekstraraðilar veitingaskálans
við Hraunfossa voru afar ósáttir við
gjaldtökuna, töldu hana ólögmæta og
vísuðu í álit UST og Vegagerðarinn-
ar. Sögðu þeir aðsókn að Hraunfoss-
um hafa snarminnkað frá því gjald-
takan hófst um morguninn og veit-
ingasala sömuleiðis. Bentu þeir all-
nokkrum gestum, sem hugðust snúa
við, á að leggja á þeim hluta bílastæð-
isins sem tilheyrði þeirra landi, end-
urgjaldslaust.
„Svona lagað
gerir mig reiðan“
Ásgeir Sverrisson leiðsögumaður
kom að máli við blaðamann og var
heitt í hamsi. „Ég þoli ekki þegar
ekki er farið að lögum. Þetta er ólög-
legt og óréttlát og svona lagað ger-
ir mig reiðan,“ sagði Ásgeir, en hann
hafði þá átt í nokkrum orðaskipt-
um við manninn sem rukkaði gjald-
ið inn á bílastæðið. Sagðist hann al-
mennt fylgjandi gjaldtöku, hún hefði
víðast hvar skilað sér í bættri aðstöðu.
Hins vegar kvaðst hann ekkert hafa
séð sem benti til þess að það væri ætl-
un landeigenda Hraunsáss II. „Af-
leggjarinn að Hraunfossum og bíla-
stæðið er lagt fyrir opinbert fé. Síð-
an koma hér einhverjir leigutakar og
ætla að fara að rukka fyrir notkunina.
Mér finnst þetta bara vera græðgi.
Verst finnst mér samt hvað þetta er
ósvífið, því þessir menn hafa engu að
tapa með því að rukka inn. Á sama
tíma er hér fólk sem hefur staðið fyrir
myndarlegri uppbyggingu á svæðinu,
rekstraraðilar veitingaskálans, sem á
allt undir góðu orðspori staðarins,“
sagði Ásgeir ómyrkur í máli.
Lágmarkskurteisi
að láta vita
Blaðamaður ræddi við rútubílstjóra
sem sagðist einfaldlega hafa neit-
að að borga. Kvaðst hann hafa sagt
bílastæðaverðinum að hann vissi ekki
betur en að gjaldtakan væri ólögmæt.
Þá hafði hann orð á að sér þætti lág-
markskurteisi þegar hefja ætti gjald-
töku að láta ferðaþjónustufyrirtæki
vita að slíkt stæði til svo þau gætu gert
ráðstafanir. „Ég sem rútubílstjóri hef
enga heimild til að skuldsetja minn
vinnuveitanda, sama hvort skuldin
hljóðar upp á 6.000 eða 600 þúsund
krónur. Það þarf að liggja fyrir hvar
þarf að greiða áður en lagt er upp í
ferðalagið,“ sagði hann.
Vildu ekkert tjá sig
Þar sem blaðamaður stóð og fylgd-
ist með atburðarásinni og ræddi við
fólk kom vínrauður Dodge jeppi ak-
andi inn á svæðið og lagði í eitt stæð-
anna. Í bílnum sátu tveir karlmenn.
Blaðamanni var bent á að þetta væru
fulltrúar landeigenda, sem stæðu fyr-
ir gjaldtökunni. Blaðamaður gekk
upp að bílnum og spurði menn-
ina hvort þeir væru fulltrúar land-
eigenda að Hraunsási II. Þeir vildu
ekki svara því en vísuðu á tengilið
við fjölmiðla, Hödd Vilhjálmsdóttur
lögmann. Þegar blaðamaður spurði
Spennuþrunginn föstudagur við Hraunfossa
Ásgeir Sverrisson leiðsögumaður átti í orðaskiptum við gjaldheimtumanninn þegar hann ætlaði að heimta gjald af
vegfarendum í bílnum á undan honum.
Ungi maðurinn innheimtir bílastæðagjald samkvæmt fyrirmælum vinnuveitenda
sinna.
Ferðamenn sem hugnaðist ekki að greiða gjaldið tóku að leggja utan vegar,
meðal annars fyrir ofan svæðið. Þar er blindbeygja og erfitt að komast upp á
veginn aftur.
Þegar lögregla kom á vettvang kallaði
hún gjaldheimtumanninn inn í bíl til
sín og ræddi við hann.
Blaðamanni var bent á að í þessum
vínrauða Dodge jeppa væru fulltrúar
landeigenda. Þeir vildu ekkert tjá sig
við blaðamann.
Einn gesta Hraunfossa þennan
föstudag kom að máli við blaðamann
og vakti máls á því að kennitölu fyrir-
tækisins væri hvergi að finna á kvittun
fyrir gjaldinu.