Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2017 21 Rosemary Lilja Ríkharðsdóttir, Búðardal „Fyrst og fremst he i lb r igð i ske r f - ið. Ég er með strák sem hefur þurft á aðstoð að halda og hefur meira og minna verið á stofnun í tvö ár. Öll hans meðferð hefur gengið mjög hægt vegna skorts á bæði starfsfólki og fjármagni. Maður finnur vel fyrir því þegar maður er í þessum sporum, hvernig það er seinagangur á öllu. Mér finnst líka sorglegt að sjá hvern- ig farið er með ellilífeyrisþega og það þarf virkilega að huga betur að þeim. Það þarf líka virkilega að byggja upp landbúnaðinn og hlúa betur að bændum og lambakjötinu okkar, koma því á framfæri, kynna það betur og ekki leyfa innflutning heldur styrkja það sem við eigum sjálf. Ég býð bara eftir að sjá framboðslista frá Flokki fólksins í mínu kjör- dæmi, en ég vil sjá Ingu Sæland á þingi.“ Jón Ingi Ólafs- son, Saurbæ „Fyrsta verk hjá stjórnmálamönn- um ætti að vera að sparka í rassinn á samkeppniseft ir- litinu svo bænd- ur og afurðastöðv- ar mættu hafa sam- starf um útflutning á lambakjöti. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég mun kjósa, allir kostir eru slæmir.“ Steinunn Matthíasdóttir, Búðardal „Mér er mjög of- arlega í huga hús- næðismál, sérstak- lega með ungt fólk í huga. Svo ættu heilbrigðismál og málefni eldri borg- ara að vera ofarlega á baugi. Ég er ekki búin að ákveða hvað ég mun kjósa.“ Hafsteinn Sverrisson, Hvalfjarðar- sveit Að stjórnmála- menn og konur axli ábyrgð á sín- um störfum, átti sig á því að á Alþingi starfi þau í umboði fólksins og fyrir fólkið eiga þessir aðilar umfram allt að vinna, en því miður hefur svo ekki verið hingað til. Stjórnmál á Íslandi verða aldrei neitt annað en um eiginhagsmuni líkt og hefur verið hingað til. Það mun ekki breyt- ast fyrr en þeim leikreglum sem Alþingis- menn eiga að vinna eftir verði breytt og sett verði á virkt eftirlit með störfum þingsins.“ Hafsteinn kveðst vera búinn að taka ákvörð- un um hverja hann kýs. Áki Jónsson, Akranesi „He i lb r igð i s má l myndi ég setja á oddinn. Ég er bú- inn að ákveða hvað ég mun kjósa en ég halla mér að vinstrinu.“ Hjalti Allan Sverrisson, Grundarfirði „Áhersla ætti að vera á að taka verð- trygginguna af. Málefni eldri borg- ara og öryrkja þurfa líka að komast í gegn um kerfið, því hefur verið lofað ár eftir ár að gera eitthvað í þeirra málefnum en aldrei gerist neitt.“ Hjalti Allan kveðst ekki alveg viss um hvað hann muni kjósa. María Lúísa Kristjánsdóttir, Hvalfjarðarsveit „Fjölskyldumál og húsnæðismál ættu að vera í forgrunni og ég er búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa.“ Þorbergur Eg- ilsson, Borgar- nesi „Ég er nú orðinn sjötugur og segi því að málefni eldri borgara og heil- brigðisþjónustan ætti að vera efst á baugi. Ég er búinn að ákveða hvað ég kýs. Það verður það sama og síðast.“ Jóhanna María Þorvaldsdóttir, Borgarnesi „Heilbrigðiskerf- ið ætti að vera of- arlega á baugi og svo þarf að betrum- bæta aðstæður fyr- ir barnafjölskyld- ur. Mér finnst t.d. barnabætur þurfa að hækka og leikskólagjöld að lækka. Nú er leikskóli formlega titlaður sem fyrsta skóla- stig á Íslandi og því þætti mér eðlilegast að skólaganga barna í leikskóla væri ókeypis.“ Jóhanna segist vera búin að ákveða hvað hún ætlar að kjósa. Guðrún Dadda Ásmundardótt- ir, Hvalfjarðar- sveit „Heilbrigðismál- in og þá fyrst og fremst málefni fatl- aðra, eldri borg- ara og þjónustu á heilsugæslustöðv- um. Það vantar sér- staklega sérfræðilækna fyrir fatlaða og geð- sjúka á heilsugæslustöðvarnar. Það er enginn geðlæknir sem kemur á heilsugæslustöðvar og enginn sérfræðingur í málefnum fatlaðra með geðsjúkdóma. Það er mjög erfitt að fá þjónustu fyrir allt sem er öðruvísi, t.d. fyr- ir þá sem eiga langveik börn. Það er engin pressa á að búa til úrræði fyrir þessa einstak- linga. Ég hef t.d. leitað svara til heilbrigð- isráðherra, framkvæmdastjóra Landspítal- ans og framkvæmdastjóra geðsviðs um hvort hægt sé að að fá stuðning fyrir fatlaða ein- staklinga með geðsjúkdóma og alveg sama hvað ég leita á þá gerist ekkert. Ég myndi vilja sjá heilbrigðisráðherra standa fyrir því að efla þessa þjónustu og t.d. fá heilsugæsl- una úti á landi til að búa til aðdráttarafl svo fólk fari frekar út í svona sérhæfingar. Við sem vinnum með fötluðum eigum erfitt með að finna lækna sem sérhæfa sig í fötluðum og það vil ég sjá breytast.“ Guðrún Dadda segir að öllu óbreyttu sé hún búin að ákveða hvað hún muni kjósa. „Þó með smá glugga opnum um hvað kemur fram á næstunni. Ég vil líka sjá hvernig listarnir verða settir upp áður en ég tek endanlega ákvörðun en mér finnst skipta miklu hverjir eru á framboðs- listunum.“ Inga Elín Cryer, Akranesi „Mér finnst heil- brigðismálin og allt í sambandi við leigumarkað og húsnæðismarkað eiga að vera efst á baugi stjórnmála- manna. Ég er enn frekar óákveðin um hvað ég mun kjósa.“ Anna Birna Ragnarsdóttir, Stykkishólmi „Ef þeir stæðu nú einhvern tímann við eitthvað væru það fyrst og fremst heil- brigðismálin. Fyrr- verandi einn heil- brigðisráðherra var svo ánægður með að biðlistar styttust, en hann gerði sér ekki grein fyrir að fólk hreinlega dó, sem var ein helsta ástæða fyrir styttri biðlistum. Það er svo margt sem þarf að laga. Vegakerfið er t.d. fyrir neðan allar hellur og svo þarf að taka á landbúnaðarmálum af skynsemi. Það vantar alla skynsemi í hvernig er farið með landbún- aðinn, sérstaklega sauðfjárbúskapinn. Næst myndu svo koma menntamálin. Ég er voða- lega óákveðin eins og er um hvað ég mun kjósa og ekki búin að taka neina ákvörðun.“ Guðrún Marín Sigurðardóttir, Borgarfirði „Þar sem málið er mér skylt finnst mér að stjórnmála- menn þurfi snar- lega að koma hags- munamálum sauð- fjárbænda í lag. Í þeim er allt í mikl- um ólestri þar sem töf og vandræðagangur hefur einkennt þeirra störf.“ Aðspurð um hvort hún sé búin að ákveða hvað hún ætl- ar að kjósa svarar Guðrún: „Nei það hef ég ekki, en ég er búin að útiloka suma.“ KOSNINGAR 2017

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.