Skessuhorn - 11.10.2017, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2017 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Snæfell bar siguorð af Skallagrími,
73-84, í Vesturlandsslag Domino‘s
deildar kvenna í körfuknattleik. Leik-
urinn fór fram í Borgarnesi á sunnu-
daginn. Leikurinn fór fremur hægt
af stað. Snæfell setti fyrstu stigin en
Skallagrímskonur áttu erfitt með að
finna taktinn og hefðu ekki geta keypt
sér körfu fyrstu mínúturnar. Snæfell
komst í 0-10 áður en Skallagrímsliðið
skoraði fyrstu stigin. Þegar þær loks-
ins fundu körfuna var sem leikurinn
snerist á punktinum. Þær tóku góð-
an sprett á sama tíma og Snæfellslið-
ið hætti að hitta og tapaði boltanum
hvað eftir annað. Skallagrímur jafn-
aði í 12-12 og leiddi 14-12 þegar leik-
hlutinn var úti.
Mikið jafnræði var með liðunum
í öðrum fjórðungi sem einkennd-
ist af mikilli baráttu. Snæfell jafn-
aði metin en Skallagrímur komst
yfir að nýju og leiddi með nokkrum
stigum allt til hálfleiks. Þá var stað-
an 34-28, Borgnesingum í vil.
Baráttan hélt áfram í síðari hálf-
leik. Snæfell jafnaði metin og spenn-
an farin að magnast í salnum. Krist-
en McCarthy var í miklu stuði þegar
þarna var komið við sögu en það var
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir einnig
og liðin skiptust á að skora. Snæfell
leiddi með fimm stigum að loknum
þriðja leikhluta, 55-60.
Kristen skoraði fyrstu fimm stig
lokafjórðungsins og kom Snæfelli
tíu stigum yfir áður en Skallagrím-
ur minnkaði muninn í fimm stig að
nýju. Liðin skiptust á að skora næstu
mínúturnar en þá var eins og lok
hefði verið sett á báðar körfurnar. Allt
þar til Kristen tók sig til og setti tvær
mikilvægar körfur seint í leiknum og
kom Snæfelli í 69-77 þegar rétt rúm-
ar tvær mínútur lifðu leiks. Skalla-
grímskonur freistuðu þess að komast
inn í leikinn með því að stoppa klukk-
una og senda gestina á vítalínuna. Þar
brást andstæðingunum ekki boga-
listin og þær kláruðu leikinn af lín-
unni. Snæfell hafði að lokum sigur,
73-84.
Ótrúlegur
leikur Kristen
Kristen McCarthy átti ótrúleg-
an leik fyrir Snæfell. Hún skoraði
hvorki fleiri né færri en 53 stig og
tók 14 fráköst að auki. Næst henni
kom Rebekka Rán Karlsdóttir með
15 stig, 5 fráköst og 5 stoðsending-
ar.
Carmen Tyson-Thomas var at-
kvæðamest leikmanna Skallagríms
með 25 stig og 12 fráköst. Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir var með 20
stig og 8 fráköst og Jóhanna Björk
Sveinsdóttir skoraði 12 stig og tók
10 fráköst.
Eftir fyrstu tvær umferðir Dom-
ino‘s deildar kvenna hafa bæði Snæ-
fell og Skallagrímur unnið einn leik
og hafa tvö stig í deildinni. Næsta
umferð verður leikin í dag, miðviku-
daginn 11. október. Skallagrímur
mætir Val á útivelli en Snæfell tekur
á móti Haukum í Stykkishólmi.
kgk
Kristen með 53 stig í sigri Snæfells á Skallagrími
Kristen McCarthy átti magnaðan leik og setti 53 stig fyrir Snæfell.
Ljósm. fengin af Facebook-síðu kkd. Snæfells.
Sigrun Sjöfn Ámundadóttir og stallsystur hennar í Skallagrími þurftu að játa sig
sigraðar. Ljósm. fengin af Facebook-síðu kkd. Snæfells.
ÍA tók á móti Hamri í annarri um-
ferð 1. deildar karla í körfuknattleik
á sunnudaginn. Leikurinn var jafn
og spennandi en að lokum fór svo að
gestirnir sigruðu naumlega, 72-76.
Gestirnir úr Hveragerði byrjuðu
betur en eftir það höfðu Skagamenn
heldur undirtökin í fyrsta leikhluta.
Þeir leiddu með örfáum stigum allt
þar til undir lok fjórðungsins að Ham-
arsmenn jöfnuðu í 17-17. Jafnt var á
með liðunum framan af öðrum leik-
hluta. Þá náðu gestirnir góðum kafla
og mest 13 stiga forskoti. Skagamenn
spýttu í og minnkuðu muninn í fimm
stig áður en flautað var til hálfleiks í
stöðunni 35-40.
Skagamenn komu ákveðnir til síð-
ari hálfleiks og jöfnuðu metin í 47-47
um miðjan þriðja leikhluta. Ham-
ar komst fimm stigum yfir en aftur
jöfnuðu Skagamenn og leikurinn í
járnum fyrir lokafjórðunginn 55-55.
Liðin skiptust á að leiða síðustu tíu
mínúturnar og höfðu aldrei meira
en fjögurra stiga forskot hvort á ann-
að. Skagamenn leiddu með tveim-
ur stigum þegar mínúta lifði leiks,
71-69 en gestirnir náðu að stela sigr-
inum á lokasekúndunum. Lokatölur
urðu 72-76, Hamarsmönnum í vil
og Skagamenn þurftu að sætta sig við
svekkjandi tap.
Derek Shouse var stigahæstur
Skagamanna með 20 stig. Tók hann 8
fráköst að auki. Fannar Freyr Helga-
son og Jón Orri Kristjánsson settu
báðir upp huggulegar tvennur. Fann-
ar var með 19 stig og 10 fráköst en
Jón Orri með 16 stig og 14 fráköst.
Eftir tap naumt tap í fyrstu tveimur
leikjum vetrarins eru Skagamenn án
stiga. Næst leika þeir í deildinni 22.
október þegar þeir mæta liði Gnúp-
verja á útivelli. Í millitíðinni mæta
þeir hins vegar liði Hattar í Mal-
tbikarnum. Bikarleikurinn fer fram í
íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akra-
nesi næstkomandi föstudagskvöld,
13. október. kgk
Naumt tap ÍA gegn Hamri
Fannar Freyr Helgason átti prýðisgóðan leik fyrir ÍA. Ljósm. jho.
Skallagrímur vann öruggan sigur á
Fjölni, 86-63, þegar liðin mættust
í annarri umferð 1. deildar karla í
körfuknattleik. Leikið var í Borgar-
nesi á sunnudaginn.
Heimamenn byrjuðu af krafti og
höfðu undirtökin snemma leiks.
Gestirnir hittu ekki úr skotum
sínum og héldu skipulaginu ekki
nógu vel. Fyrir vikið komst Skalla-
grímur í 12-3 um miðjan upphafs-
fjórðunginn. Gestirnir náðu þó að
minnka muninn í sex stig áður en
hann var úti, 20-14. Annar leikhluti
var eign Skallagríms frá upphafi til
enda. Þeir skoruðu nánast að vild
og héldu gestunum í skefjum, en
Fjölnir skoraði aðeins átta stig í
öðrum fjórðungi. Staðan í hléinu
45-22 fyrir Skallagrím og heima-
menn með unninn leik í höndun-
um.
Ekki fór mikið fyrir varnarleik
í upphafi síðari hálfleiks og liðin
skiptust á að skora auðveldar körf-
ur. Skallagrímsmenn höfðu á einum
tímapunkti 24 stiga forsystu en gest-
irnir náðu aðeins að koma til baka
eftir því sem leið á þriðja leikhluta.
Forskot Skallagríms var hins vegar
mikið, þeir leiddu með 17 stigum
fyrir lokafjórðunginn. Gangur leiks-
ins breyttist lítið í lokafjórðungnum,
nema hvað að Skallagrímur jók for-
skot sitt lítið eitt og vann að lokum
stórsigur, 85-63.
Zac Carter var stigahæstur leik-
manna Skallagríms með 19 stig, en
Eyjólfur Ásberg Halldórsson var
með 18 stig, 12 fráköst og 5 stoð-
sendingar. Kristján Örn Ómarsson
skoraði 13 stig og Darrel Flake var
með 10 stig, 6 fráköst og 5 stoð-
sendingar.
Skallagrímsmenn hafa sigrað tvo
fyrstu leiki vetrarins og hafa því fullt
hús stiga enn sem komið er. Næst
leikur Skallagrímur föstudaginn 13.
október. Þá mætir liðið Hamri suð-
ur í Hveragerði.
kgk
Stórsigur Skallagríms á Fjölni
Hjalti Ásberg Þorleifsson lyftir sér upp í leiknum gegn Fjölni.
Ljósm. Skallagrímur/ Ómar Örn.