Skessuhorn - 23.05.2018, Blaðsíða 40
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 201840
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Í Borgarbyggð eru malarvegir með
óbundnu slitlagi víða. Undanfarin
ár hafa framlög ríkis til lagningar
slitlags á tengivegi ekki verið hærri
en svo að þó að allt fjármagn sem
er í þeim flokki framkvæmda væri
sett í Borgarbyggð tæki það nokk-
ur ár að ljúka endurbótum í sveit-
arfélaginu.
Miklar breytingar hafa átt sér
stað á síðastliðnum áratugum, til
dæmis hjá bændum. Áður unnu
bændur heima við, börn voru í
heimavistarskólum og akstur var
minni en nú á tímum. Nú er öld-
in önnur og umferð hefur auk-
ist mikið á mörgum þessara vega.
Akandi ferðamönnum hefur fjölg-
að, þungaflutningar með fóður og
mjólk hafa aukist og sífellt fleiri
aka daglega um vegina til að sækja
nám eða vinnu. Með óbreyttum
fjárframlögum tekur áratugi að
endurbæta vegi og koma á viðun-
andi samgöngubótum.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
hefur, undir forystu okkar fólks,
verið í farabroddi í baráttu fyrir
nýrri nálgun. Við fjárlagagerð fyr-
ir árið 2016 hvatti hún Alþingi til
að taka málið á dagskrá. Í meiri-
hlutaáliti fjárlaganefndar það ár
er fjallað um nýja nálgun við sam-
gönguframkvæmdir og hugsanlega
fjármögnum með veggjöldum á
helstu stofnleiðum, en grundvall-
armál er að gæta jafnræðis í gjald-
töku. Þá fjallar meirihluti fjárlaga-
nefndar um aðrar vegaframkvæmd-
ir eins og malarvegi í sveitum.
Brýnt er að hraða sem mest
framkvæmdum á tengivegum í
sveitafélaginu. Hægt er að fara
hagkvæmari leið og leggja vegi
sem eru með einbreiðu slitlagi og
góðum útskotum fyrir bíla að mæt-
ast. Þannig er mögulegt að leggja
lengri vegakafla og flýta sem mest
bættum samgöngum. Við fyrir-
hugaðar framkvæmdir verður um-
ferðaröryggi ávallt haft að leiðar-
ljósi og unnið verður í samráði við
Vegagerðina ásamt íbúum með til-
liti til þarfa þeirra.
Fjármögnun framkvæmdanna
yrði svo háttað að sveitarfélagið
leggur til fjármuni svo hægt verði
að byggja upp vegi og leggja slitlag
þegar í stað á þá vegi sem verst er
ástatt um. Þekkt eru samstarfsverk-
efni sveitarfélaga og ríkis við mik-
ilvæga uppbyggingu. Form þeirra
samvinnu er þekkt og tryggilega
verður að ganga frá slíku samstarfi.
Slík leið getur fært okkur meiri og
hraðari framfarir en nú eru í aug-
sýn. Sjálfstæðisflokkurinn í Borg-
arbyggð ætlar að láta reyna á nýja
leið til framfara.
Nú eru sveitarstjórnarkosning-
ar í nánd og munu fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Borgarbyggð
beita sér enn frekar fyrir þessari
nálgun. Fjárhagur sveitarfélags-
ins hefur vænkast og hefur burði
til að styðja betur við mikilvæga
innviði eins og þá sem hér eru til
umfjöllunar. Í góðu samstarfi við
þingmenn kjördæmisins verður að
halda samtalinu áfram við Alþingi
og stuðla að því að auknir fjármun-
ir verði lagðir til vegaframkvæmda
í sveitafélaginu.
Sækjum fram með nýjar lausnir
Borgarbyggð til heilla.
Gerum lífið í Borgarbyggð betra.
Silja Eyrún Steingrímsdóttir og
Sigurður Guðmundsson.
Höfundar skipa 2. og 3. sæti
á framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Borgarbyggð fyrir
komandi kosningar.
Ný nálgun í vegamálum
Pennagrein
Laugardaginn 26. maí fara fram
sveitarstjórnarkosningar um land
allt. Í flestum sveitarfélögum eru
framboðslistar að kynna sín kosn-
ingamál og áherslur fyrir næstu
fjögur ár. Í því samhengi er nauð-
synlegt að huga að því að meta fyrir
hvað þessi framboð standa, hver eru
þeirra gildi og sýn á samfélagið sitt.
Á hverju byggja stefnuskrár fram-
boðanna sem liggja til grundvallar
þeirra framtíðarsýn á sitt samfélag.
Ég hvet kjósendur til að kynna
sér framboðin í sínu nágrenni og
velta því fyrir sér hverjum þeir
treysta til að fara með stjórn mála
í sínu nærumhverfi. Þar skiptir ekki
máli hvort um sé að ræða ákveð-
inn flokk eða framboð sem byggir
á krafti íbúanna sjálfra og vilja láta
rödd sína heyrast heldur þau gildi
sem þau standa fyrir.
Félagshyggja stendur fyrir raun-
verulegum gildum eins og sam-
kennd og velferð fyrir alla. Jöfn
tækifæri og jafn réttur fólks innan
samfélagsins er einn af hornstein-
um þess þjóðfélags sem við lifum
öll saman í. Öflugt lýðræði og opin
stjórnsýsla þar sem íbúar hafa að-
komu að málefnum síns samfélags
skiptir okkur öll máli.
Í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum fær hvert og eitt okkar tæki-
færi til að hafa áhrif á okkar nær-
umhverfi næstu fjögur ár. Það
skiptir máli að í sveitarstjórnum sé
fólk sem aðhyllist jafnaðarstefnu og
félagshyggju. Fólk sem þekkir sín
gildi um frelsi og jafnrétti og vill
vinna með samborgurum sínum til
að vinna að þessum gildum í sam-
félaginu.
Ég hvet ykkur kjósendur til að
skoða stefnuskrár framboðanna í
ykkar sveitarfélagi og fyrir hvaða
gildi þau standa. Framboð í anda
jafnaðarstefnu og félagshyggju
standa ykkur til boða til að vinna
að málum í ykkar þágu næstu fjög-
ur ár.
Það skiptir máli hverjir eru í for-
svari fyrir þitt sveitarfélag. Nýttu
atkvæðisrétt þinn á kjördag.
Ólafur Ingi Guðmundsson
Val þitt skiptir máli
Pennagrein
Pennagrein
Í komandi sveitarstjórnarkosning-
um þann 26. maí skipa ég 3. sæti
Miðflokksins á Akranesi.
Við í Miðflokknum á Akranesi
ætlum að bæta þjónustu í þágu
barna og foreldra í skólum og tóm-
stundastarfi. Við ætlum að hafa frí-
ar skólamáltíðir í grunnskólum til
að öll börn fái holla og næringar-
ríka máltíð yfir skóladaginn og til
að létta undir með fjölskyldunum.
Ástæðan fyrir þessu er brýn
og skýr. Í dag eru um 1000 börn
í grunnskólum bæjarins og yfir
mánuðinn eru um það bil 75%
þeirra skráð í mat. Lægra er hlut-
fallið hjá unglingum einkum þeg-
ar fiskur er í matinn, þrátt fyrir að
það sé boðið upp á salatbar sem
annan möguleika alla daga. Einn-
ig eru föstudagarnir talsvert lægri
vegna styttri skóladags hjá mörg-
um.
Ég er það heppinn að vera mat-
ráður og yfir mötuneyti Grunda-
skóla á Akranesi og hef þar um 630
börn sem ég þarf að gefa að borða
þegar þau eru skráð í mat. Reyni ég
og mitt teymi að gera það sem við
getum til að gera matinn áhuga-
verðan, lystugan og næringarríkan
bæði svo að krakkanir verði skráðir
í mat og líka svo að þau borði hann
og nærist vel. En ábyrgðin er á for-
eldrum í dag að skrá þau eða láta
þau fá pening með sér til að greiða
fyrir máltíðirnar.
Ég hef líka þá aðstöðu að geta
séð hvað þau börn sem taka með
sér nesti borða. Því miður er það
allt of oft ekki nógu næringarríkt
eða spennandi til að það nýtist sem
orkugjafi fyrir leik og lærdóm yfir
allan daginn.
Ekki ætla ég að vera dómari um
hvort að það sé vegna erfiðrar fjár-
hagsstöðu heimila, kunnáttu- eða
áhugaleysis um hollustu og nær-
ingu eða vitlausar forgangsröðun-
ar, að börnin eru ekki skráð í mat
eða fá full næringarríkt nesti með
sér í skólann. Enn eitt er víst og
það er að vandamálið er til staðar
og það er alvarlegt.
Ég sem matráður í grunnskóla
og íbúi vel fjárhagslega staðs bæj-
arfélags gremst og fyllist leiða og
sorgar yfir þessu og vill því berj-
arst fyrir því með flokki mínum í
bæjarstjórn að koma á fríum skóla-
máltíðum fyrir okkar verðmætustu
einskaklinga samfélagsins.
Gerum Akranes samkeppsins-
hæfara og setjum X við M.
Steinþór Árnason.
Höf. skipar 3. sæti á lista Mið-
flokksins á Akranesi fyrir komandi
kosningar til bæjarstjórnar.
Skólamáltíðir fyrir alla
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is