Skessuhorn - 31.10.2018, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 9
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er sjálfseignarstofnun, starfar á sviði fullorðinsfræðslu
og rekur þrjár starfsstöðvar á Vesturlandi – á Akranesi, í Borgarnesi og á Snæfellsnesi.
Starfsemi Símenntunarmiðstöðvarinnar hefur farið vaxandi undanfarin ár og fjölmörg tækifæri
eru til staðar til að starfa að fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum í landshlutanum innan
fullorðinsfræðslunnar og í samstarfi við hagsmunaaðila hverju sinni. www.simenntun.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi óskar eftir að ráða verkefnastjóra. Starfsstöðin er í Borgarnesi, en í starfinu felast
fjölmörg tækifæri til að starfa að fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum um allt Vesturland.
Viltu vera með okkur og sækja fram?
Upplýsingar veita:
Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Gyða Kristjánsdóttir, gyða@hagvangur.is
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Skipulagning, umsjón og kennsla á námskeiðum
Símenntunarmiðstöðvarinnar
• Ráðgjöf og upplýsingamiðlun til stofnana, fyrirtækja og einstaklinga
varðandi sí- og endurmenntun
• Úttekt á sí- og endurmenntun innan fyrirtækja og gerð símenntunaráætlana
• Uppbygging á samstarfi við stofnanir og fyrirtæki á svæðinu
• Þátttaka í ýmsum þróunar- og samstarfsverkefnum á sviði framhaldsfræðslu
• Umsjón með samfélagsmiðlum og vefsíðu
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun, s.s. á sviði náms- og starfsráðgjafar og/eða
menntavísinda
• Víðtæk reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking á atvinnulífi á Vesturlandi er kostur
• Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
• Frumkvæði, framsýni og skipulagshæfni
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Góð tölvukunnátta og færni í að tileinka sér tækninýjungar
VERKEFNASTJÓRI
Umsóknarfrestur er til og með 12. nóvember 2018.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og
kynningarbréf. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Um tillaga um deiliskipulag í landi
Óss á Skógarströnd í Dalabyggð
Sveitarstjórn Dalabyggðar staðfesti á fundi sínum þann
18.október 2018 fundargerð umhverfis– og skipulags-
nefndar Dalabyggðar um að auglýsa tillögu á deiliskipu-
lagi frístundarbyggðar í landi Óss á Skógarströnd sam-
kvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagssvæðið er á jörðinni Óss á Skógarströnd þar
sem skilgreint er svæði fyrir frístundrbyggð F1 í aðal-
skipulagi Dalabyggðar 2004-2016. Svæðið er um 39 ha
að stærð og tekur til 18 frístundarlóða á bilinu 0,5 - 1,5
ha með nýtingarhlutfall ekki hærra en 0,3 ha.
Skipulagsuppdrættir og greinagerð liggja frammi á skrif-
stofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal, þar sem
auglýst er eftir athugasemdum við deiliskipulagstillöguna
frá 31. október til 14 desember 2018.
Enn fremur verða gögnin aðgengileg á
heimasíðu sveitarfélagsins www.dalir.is.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipu-
lagsfulltrúa, Miðbraut 11, 370 Búðardal, eða á netfangið
byggingarfulltrúi@dalir.is merkt “Ós deiliskipulag„
Búðardal 25. október 2018
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Umhverfis- og auðlindaráðherra
hefur móttekið skýrslu starfshóps
um regluverk vegna vindorkuvera.
Skýrslan felur í sér greiningu á því
hvort í lögum og reglugerðum sé
fjallað með nægjanlegum hætti um
starfsemi vindorkuvera og fram-
kvæmdir vegna þeirra. Niðurstaða
starfshópsins er sú að ekki sé þörf á
sérlöggjöf um vindorkuframleiðslu.
Hins vegar er það mat starfshópsins
að tilefni sé til tiltekinna breytinga
á lögum og reglum.
Í skýrslunni er bent á að vind-
orkustarfsemi sé nýtt viðfangsefni
hér á landi og að þörf sé á auk-
inni þekkingu þeirra sem koma að
slíkum málum hvort sem um er að
ræða ríki, sveitarfélög eða einka-
aðila. Skipulagslöggjöf og löggjöf
um mat á umhverfisáhrifum taki á
slíkum framkvæmdum og starfsemi
auk þess sem skylt sé að taka mið
af annarri viðeigandi löggjöf vegna
ýmiss konar áhrifa á umhverfið af
slíkum framkvæmdum, svo sem á
landslag, ferðaþjónustu, dýralíf,
hljóðvist o.fl. Starfsemi og fram-
kvæmdir vegna vindorkuvera er
háð leyfum og eftirliti af hálfu hins
opinbera eins og gildir um annars
konar virkjanir. mm
Ekki þörf á sérstakri löggjöf
vegna vindorkuvera
Ung kona sem býr í sveitinni
skammt ofan við Borgarnes varð
fyrir því óláni í síðustu viku að
missa úr vasa sínum 30 þúsund
krónur í peningum. Kallaði hún
eftir viðbrögðum samfélagsins
og höfðaði til heiðarleika fólks
og skrifaði um ólán sitt á íbúas-
íðunni Borgarnes á Facebook.
„Núna langar mig að láta reyna á
hversu öflugu samfélagi við búum
í. Á leið minni um Borgarnes í
gær hef ég misst upp úr vasanum
á úlpunni minni 30.000 kr annað
hvort í Nettó eða í Framköllunar-
þjónustunni, ekki er ég svo hepp-
in að einhver hafi rekist á þenn-
an aur?“ Viðbrögðin létu ekki á
sér standa því starfsmaður í Nettó
Borgarnesi svaraði um hæl: „Aur-
inn bíður þín í skúffunni á kassa 1
í Nettó. Miskunnsamur Samverji
kom með hann í gær.“ Það reynd-
ist vera hollenskur ferðamaður á
leið um Borgarnes sem fann seðl-
ana og bað starfsmann Nettó fyrir
þeim. Fallegt.
mm
Heiðarleika er sannarlega enn að finna
Svipmynd úr Nettó í Borgarnesi. Ljósm. úr safni.