Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2018, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 31.10.2018, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 17 Vökudagar á Akranesi 25. október - 4. nóvember Upplýsingar um dagskrána á www.skagalif.is ALZHEIMERKAFFI  Í BORGARBYGGÐ F I M M T U D A G I N N   8 .  N Ó V .  K L . 1 7 : 0 0  - 1 8 : 3 0   í F é l a g s b æ , B o r g a r b r a u t 4 Tenglar í Borgarbyggð Guðný Bjarnadóttir & Ólöf S. Gunnarsdóttir kynna sig. Vilborg Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna kynnir starfsemina. Kaffi og meðlæti í boði, svo tökum við lagið og gleðjumst saman. • • • •• • • Nánari upplýsingar: www.alzheimer.is & alzheimer@alzhiemer.is Menningarhátíðin Norðurljósin var haldin í fimmta sinn í Stykk- ishólmi um liðna helgi. Dagskrá- in í ár var að vanda þétt skipuð og fjölbreytt en lagt var upp úr því að allir gætu fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin var sett með opn- unartónleikum í Stykkishólms- kirkju á fimmtudagskvöldinu. Þar komu fram þær Hallveig Rúnars- dóttir sópran og Hrönn Þráins- dóttir píanóleikari og fluttu þær dagskrá um Íslenska sönglagið, ferðalag um söguna. Einnig komu fram Karlakórinn Kári, Söngsveit- in Blær og nemendur úr Tón- listarskólanum í Stykkishólmi. Þá heiðraði bæjarstjórn Stykkis- hólmsbæjar fjóra Hólmara fyr- ir störf sín í þágu menningar- og félagsmála, þau Hannes Gunnars- son, Björgvin Þorvarðarson, Þór- hildi Pálsdóttur og Kristján Lár- entsínusson. Sýning um aðdraganda fullveldis Á föstudeginum var m.a. Tón- listarskólinn í Stykkishólmi með opið hús og söngstund í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands, Söngsveitin Blær var með tón- leika og boðið var uppá ljóðalestur í heimahúsi. „Laugardagurinn var þétt skipaður en opnuð var sýning á Amtsbókasafninu sem haldin er af Ljósmyndasafni Stykkishólms og Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í tilefni 100 ára full- veldisafmælis Íslands. Þar er m.a. hægt að sjá manntal yfir þá íbúa sem hér bjuggu fullveldisárið 1918 auk þess sem hanga uppi myndir af Stykkishólmi og Hólmurum sem hér bjuggu á þessum tíma. Einn- ig var lesið upp úr bréfum sem Jón Sigurðsson fékk send frá Hólmur- um á 19. öld,“ segir Þórunn Sig- þórsdóttir einn af skipuleggjend- um Norðurljósahátíðarinnar. Myndlistasýning leikskólabarna Sævar Helgi Bragason, oft kall- aður Stjörnu-Sævar, hélt fræðslu- stundi bæði með börnum og full- orðnum um hvernig norðurljós- in verða til. Þá var 80 ára afmæli Umf. Snæfells fagnað og Leik- félagið Grímnir frumsýndi leik- verkið Blóðsystur eftir Guðmund L Þorvaldsson og Unglingadeild Leikfélags Kópavogs. Börnin í Leikskólanum í Stykkishólmi settu upp myndlistasýningu í gluggum verslunar Skipavíkur. „Þar eiga öll börnin eina mynd og þær voru settar í hæð barnanna í gluggan- um. Þetta hefur vakið mikla lukku og er mjög skemmtilegt,“ segir Þórunn. „Vel var mætt á alla viðburði og það var sérstaklega ánægju- legt hversu bæjarbúar voru dug- legir að mæta. Svona hátíð er ekki hægt að halda nema með góðum vilja heimamanna. Það voru marg- ir hópar sem lögðu fram óeigin- gjarna vinnu við alla þessa við- burði, það er ómetanlegt,“ segir Þórunn að endingu. arg/ Ljósm. sá Vel heppnuð Norðurljósahátíð í Stykkishólmi Opnunarhátíðin fór fram í Stykkishólmskirkju og komu þar m.a. fram Karlakórinn Kári. Þau Hannes Gunnarsson, Björgvin Þorvarðarson, Þórhildur Pálsdóttir og Kristján Lárentsínusson voru heiðruð fyrir störf sín í þágu menningar- og félagsmála.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.