Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2018, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 31.10.2018, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 11 * Fjölbrautaskóli Vesturlands Innritun á vorönn 2019 Fjölbrautaskóli Vesturlands Vogabraut 5, 300 Akranesi Sími 433-2500 skrifstofa@fva.is www.fva.is Námsbrautir í boði Stúdentsbrautir – 3 ára brautir Náttúrufræðabraut Félagsfræðabraut Opin stúdentsbraut Íþrótta- og heilsusvið Listnámssvið Opið svið Tungumálasvið Viðskipta- og hagfræðisvið Afreksíþróttasvið Iðnnám Húsasmíði Húsgagnasmíði Vélvirkjun Grunndeild bíliðngreina Rafvirkjun Sjúkraliðanám Framhaldsskólabraut Starfsbraut Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám Dagskóli Innritun fyrir nám í dagskóla á vorönn 2019 fer fram rafrænt á menntagatt.is eða á skrifstofu skólans dagana 1.-30. nóvember. Dreifnám Opnað hefur verið fyrir umsóknir í húsasmíðanám, vélvirkjanám og sjúkraliðanám í dreifnámi fyrir vorönn 2019*. Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðunni, www.fva.is og umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans fyrir 1. desember 2018. Nánari upplýsingar gefa Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, gudruns@fva.is og Jónína Víglundsdóttir, áfangastjóri, jonina@fva.is.  Við afgreiðslu umsókna nemenda í dreifnám gerir skólinn fyrirvara um inntöku, m.a. vegna hópastærða Snorrastofa í Reykholti Sögusýning og fyrirlestur Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur í Reykholti Sími 433 8000 www.snorrastofa.is snorrastofa@snorrastofa.is Árið 1918 í Borgarfirði Laugardagurinn 3. nóvember 2018 kl. 14 Í hátíðarsal Snorrastofu, héraðsskólahúsinu Á sýningunni raðast saman munir og minningar; ljósmyndir, sendibréf og önnur slík minn ingar brot sem skapa stemningu – tilfinningu fyrir tíðaranda ársins. Fréttir af borgfirskum málefnum eru einnig fengnar úr prentuðum blöðum – og ennfremur stuðst við hand rituð blöð sem Þorsteinn Jakobsson (1884–1967) skráði. Óskar Guðmundsson fylgir sýningunni úr hlaði með fyrirlestrinum, Borgfirðingurinn í heiminum og heimurinn í honum. Páll Guðmundsson á Húsafelli flytur tónlist. Verið öll velkomin FULLVELDI ÍSLANDS 100 ÁRA LEIÐBEININGAR UM NOTKUN OG MEÐFERÐ MERKIS Laust fyrir klukkan fimm á sunnu- dagsmorgun barst björgunarsveit- inni Ósk í Búðardal beiðni um aðstoð vegna bíla sem sátu fast- ir á norðanverðri Bröttubrekku. Vonskuveður var á brekkunni um þetta leyti, um 25 m/s og snjó- koma. Starf björgunarsveitar- manna gekk þó vel. Greiðlega gekk að losa bílana og koma þeim niður af brekkunni. Menn og tæki voru komnir í hús laust fyrir kl. sjö sama morgun, þreyttir og blautir eftir annasama nótt, að því er fram kemur á Facebook-síðu björgun- arsveitarinnar. kgk Bílar sátu fastir á Bröttubrekku Svipmynd frá vettvangi. Ljósm. Björgunarsveitin Ósk. Alþýðusamband Íslands hefur nú í fyrsta skipti í 102 ára sögu félags- ins kosið konu til að gegna forystu, en Drífa Snædal var á föstudag- inn kjörin forseti ASÍ. Hlaut hún 65,8% atkvæða, en mótframbjóð- andi hennar Sverrir Mar Alberts- son hlaut 34,2%. Drífa Snædal er 45 ára viðskipta- fræðingur frá Háskóla Íslands auk þess að vera með meistarapróf í vinnumarkaðsfræðum og vinnurétti frá Háskólanum í Lundi. Drífa hef- ur starfað sem framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands frá árinu 2012 en áður var hún fram- kvæmdastjóri Vinstri hreyfingar- innar – græns framboðs og Sam- taka um Kvennaathvarf. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness var kjör- inn 1. varaforseti ASÍ með um 60% atkvæða. Guðbrandur Einarsson, formaður VS og LÍV, var einnig í framboði. Áður en til kosning- ar kom hafði Ragnar Þór Ingólfs- son formaður VR dregið framboð sitt til 1. varaforseta til baka. Krist- ján Þórður Snæbjarnarson formað- ur Rafiðnaðarsambands Íslands var sjálfkjörinn í embætti 2. varforseta. mm Drífa kosin forseti ASÍ og Vilhjálmur fyrsti varaforseti Ný forysta ASÍ. F.v. Vilhjálmur, Drífa og Kristján. Bæjarráð Akraness samþykkti á síð- asta fundi sínum samkomulag við Þroskahjálp. Í því felst að húsbygg- ingarsjóður Þroskahjálpar mun sækja um og Akraneskaupstaður úthluta sjóðnum lóð að Beykiskógum 17 í því að skyni að reisa þar leiguíbúðir ætlaðar fötluðu fólki, ásamt viðbót- arrými. Bæjarráð samþykkti úthlutun lóðarinnar. Einnig var samþykkt að veita Þroskahjálp stofnframlag, sam- tals 16% af byggingarkostnaði, sam- kvæmt ákvæðum laga um almennar íbúðir. Gert er ráð fyrir því að Þroska- hjálp sæki um stofnframlag frá Akra- neskaupstað og ríkinu nú í október- lok með umsókn til Íbúðarlánasjóðs. Áætlað er að byggingakostnaður vegna íbúðanna verði um 160 millj- ónir króna. Stofnframlag Akranes- kaupstaðar yrði því 26,6 milljónir. Þar af eru gatnagerðargjöld um 11,8 milljónir króna. Stofnframlag bæjar- félagsins er skilyrt við endurgreiðslu í samræmi við lög um almennar íbúð- ir. „Fallist ríkið á ósk félagsins um að falla frá endurgreiðslu á sínum hluta áskilur Akraneskaupstaður sér rétt til að taka málið á ný til ákvörðunar,“ segir í fundargerð bæjarráðs. kgk Beykiskógar 17 eru á horni Beykiskóga og Seljuskóga. Leiguíbúðir fyrir fatlaða á döfinni á Akranesi Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.