Skessuhorn - 31.10.2018, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 13
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2018
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudagur 15. nóvember
Föstudagur 16. nóvember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
8
Hvítárbrúin 90 ára
Opnun sögusýningar í Safnahúsi
1. nóvember kl. 19.30
Fimmtudaginn 1. nóv. verða liðin 90 ár frá
vígslu Hvítárbrúarinnar við Ferjukot.
Þann dag opnum við yfirgripsmikla sýningu
um brúna og er verkefnið helgað minningu
Þorkels Fjeldsted í Ferjukoti. Sýningarstjóri
er Helgi Bjarnason og hönnuður Heiður
Hörn Hjartardóttir.
Við opnunina verður boðið upp á
kaffihressingu. Verið hjartanlega velkomin.
433 7200 - safnahus@safnahus.is
Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi
Sýningin er í Hallsteinssal. Hún er einn
dagskrárliða á Menningararfsári
Evrópu í samvinnu við Minjastofnun
Íslands. Hún verður opnuð 1. nóv. kl.
19.30 með samkomu á neðri hæð
Safnahúss og stendur til 12. mars
2019. Opnunartímar: kl. 13.00 -
18.00 virka daga eða eftir
samkomulagi. Ókeypis aðgangur.
Ef breytingar verða á auglýstum
opnunardegi vegna veðurs verður það
tilkynnt á www.safnahus.is
Lau�arda�inn 24. nóvember 2018 o� hefst kl. 12:00
Lo�alandi, Reykholtsdal
Silfursti�amót – 48 spil
Kaffihlaðborð í hléi að hætti kvenféla�sins
Verðlaun:
1. sæti – 35.000 kr.
2. sæti – 25.000 kr.
3. sæti – �jafabréf í tvímennin� á Rvk. Brid�e festival 2019
13. sæti – �jafabréf í jólatvímennin� Brid�eféla�s Hafnarfjarðar 2018
24. sæti – �jafabréf í jólatvímennin� Brid�eféla�s Hafnarfjarðar 2018
Útdráttarverðlaun fyrir einstaklin�a (fyrir þá sem ekki hafa unnið til verðlauna)
Gjafabréf: Hótel Húsafell, Víð�elmir, Landsámssetrið,
Icelandair Hótel Hamar o� Íslandshótel
ÞORSTEINSMÓTIÐ
Í BRIDGE
Þátttöku�jald er 8.000 kr. á parið
Ath. �reiða þarf með reiðufé.
Skránin� á: BRIDGE.IS (viðburðada�atal)
í síðasta la�i 22. nóvember
Steini á Hömrum
Þorsteinn Pétursson kennari (1930-2017) hafði
mikla unun af spilamennsku. Aðalle�a spilaði hann
lomber o� brid�e o� varð m.a. Íslandsmeistari í
tvímennin�i eldri spilara árið 1994. Hann starf-
aði mikið að féla�smálum o� var m.a. formaður
Brid�eféla�s Bor�arfjarðar. Hann ásamt fleirum
beitti sér fyrir því að brid�e yrði kennt í héraðinu,
börnum sem fullorðnum, o� átti drjú�an þátt í að
Brid�eféla� Bor�arfjarðar var o� er eitt fjölmenn-
asta brid�eféla� landsins.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Vísur -
Til minnin�ar um Þorstein Pétursson
Í hrifningu geng ég hingað inn
og hugsa um minning eina.
Hjartanlega hláturinn,
sem hljómaði á Steina.
Kristján Björn Snorrason (2017)
Þrautagóður Þorsteinn var,
þá hann ái í vanda.
Séður, slyngur af estum bar,
með spilin milli handa.
Þórður Þórðarson (2018)
Á haustin er áratuga hefð fyrir því
að Íslendingar fylli á frystikistur á
heimilum sínum með ýmsu góð-
meti fyrir komandi vetur. Sigur-
björg Kristmundsdóttir, verslun-
arstjóri í Ljómalind og umsjónar-
maður Matarsmiðjunnar í Borg-
arnesi, tilheyrir hópi þeirra sem
birgja sig upp og nýtti hún einmitt
aðstöðuna í Matarsmiðjunni til að
taka slátur.
Prófaði Matarsmiðjuna
Sigurbjörg segir fólk almennt hafa
verið duglegt að nýta Matarsmiðj-
una. „Það er ákveðinn hópur sem
hefur verið að koma og ég á von á
flestum þeirra aftur. Ég væri þó til
í að fá fleiri til að nýta sér aðstöð-
una,“ segir hún og bætir því við að
sjálf hafi hún verið að prófa smiðj-
una í fyrsta skipti núna í haust. „Ég
er ekki með neina matvælafram-
leiðslu sjálf en ákvað að taka eld-
húsið á leigu til að taka slátur núna
í haust. Það var ekkert sambæri-
legt því að gera þetta heima hjá
sér. Þegar ég hef tekið slátur heima
er eldhúsið allt lagt undir og dug-
ar það varla til. Í Matarsmiðjunni
var allt til alls, stærri og betri tæki
en ég á og nóg pláss. Ég mun ekki
taka slátur heima hjá mér aftur á
meðan ég get fengið svona góða
aðstöðu,“ bætir hún við og brosir.
Matarsmiðjan fyrir alla
Sigurbjörg hefur tekið slátur í mörg
ár en lagði einmitt ekki í það síðast-
liðið haust vegna plássleysis. „Ég
bara nennti ekki að standa í þessu
heima hjá mér síðasta haust svo ég
tók ekki slátur. Ég get alveg sagt
að ég saknaði þess í vetur að eiga
slátur í frysti,“ segir hún. Aðspurð
hvort hún fari alltaf eftir sömu upp-
skrift þegar hún tekur slátur neitar
hún því. „Ég er með uppskrift frá
mömmu og tengdamömmu sem ég
hef notað til hliðsjónar en svo geri
ég bara eitthvað. Ég vigta ekki eða
mæli, það er allt slumpað,“ svar-
ar hún brosandi. „Það eina sem er
alltaf eins er að mörinn er grófur
og ég nota súputeninga í lifrapyls-
una.“
En hvað hefur hún með slátrinu?
„Ég vil það soðið með kartöflum
og sykri, stundum hef ég líka róf-
ur með. Svo er mikilvægt að drekka
alltaf mjólk með slátri, þó ég drekki
venjulega alltaf vatn með mat. Dag-
inn eftir geri ég svo grjónagraut og
set slátrið út í,“ svarar hún og segist
bíða spennt eftir því að fá sér slátur
fljótlega.
Allir sem hafa áhuga á að nýta
matarsmiðjuna geta haft samband
Tók slátur í Matarsmiðjunni
í Borgarnesi
við Sigurbjörgu og bókað tíma.
Engu máli skiptir hvort viðkom-
andi sé að framleiða matvöru til að
selja eða til einkanota. „Það væri
jafnvel hægt að leigja eldhúsið fyrir
jólabakstur eða til að elda og baka
fyrir veislur. Það eru allir velkomn-
ir en Vestlendingar ganga fyrir,“
segir hún að endingu. arg
Hér stendur Sigurbjörg vaktina í Ljómalind ásamt Valdísi Guðrúnu Sigvaldadót-
tur, til vinstri.
Hér má sjá Pétur Guðsteinsson, manninn hennar Sigurbjargar, taka slátur í
Matarsmiðjunni í Borgarnesi. Ljósm. aðsend.