Skessuhorn - 31.10.2018, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 23
Síðastliðinn föstudag var verslun-
in FOK opnuð við Borgarbraut 57
í Borgarnesi í húsi sem í raun er
tengibygging milli fjölbýlishúss-
ins við Borgarbraut 57 og Hót-
el-59. Að versluninni standa hjón-
in María Júlía Jónsdóttir og Jón-
as Björgvin Ólafsson. FOK er lífs-
stíls- og gjafavöruverslun þar sem
til sölu er fatnaður, skrautmunir,
búsáhöld og fleira fyrir heimafólk
jafnt sem ferðafólk. Í tilefni opnun-
ar verslunarinnar var boðið til teitis
á föstudag og aftur á laugardag, en
nú verður verslunin framvegis opin
á almennum verslunartíma. mm
Verslunin FOK
opnuð í Borgarnesi
Spáð í fatnaðinn og peysa um það bil að skipta um eiganda.
Jónas Björgvin og María Júlía eiga verslunina en Kristín Amelía Þuríðardóttir
verður einnig við afgreiðslu í FOK.
Vigdís Pálsdóttir var fyrsti viðskiptavinurinn í versluninni. Hér er verið að afgreiða
hana.
Svipmynd úr versluninni.Strax og dyrnar höfðu verið opnaðar streymdi að fólk.
Helga Sesselja Ásgeirsdóttir, Þráinn Haraldsson, Indriði Valdimars-
son, Sveinn Arnar Sæmundsson, Jón Guðmundsson og Fjóla
Lúðvíksdóttir, voru viðstödd kaffisamsæti, söng og bingó sem
haldið var fyrir eldri borgara í Vinaminni.Þessar hressu konur reka vinnustofu við Kirkjubraut 54-56. Þær
voru með opið á laugardaginn og kynntu starfsemina. F.v. Sjöfn
Magnúsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Bryndís Siemsen, Guðrún Gerður
Guðrúnardóttir (Gaga Skorrdal) og Ingigerður Guðmundsdóttir.
Klifurfélag ÍA stóð fyrir Hrekkjavökuklifurmóti á Smiðjuloftinu
síðasta laugardag. Keppt var í fjórum aldursflokkum. Krakkarnir
voru hvattir til að mæta í búningum og helst mæta hryllilegir til
fara, enda hrekkjavakan tilefni mótsins. Púkar, uppvakningar,
draugar, vampírur og aðrar hryllingsverur klifruðu upp eftir
veggjunum hvattir áfram af foreldrum og öðrum ættingjum. Veitt
voru verðlaun í tveimur efstu aldursflokkunum og einnig var veitt
viðurkenning fyrir flottasta eða hryllilegasta búninginn. Ljósm. klj.
Þær Katrín Lilja Jónsdóttir og Ragnhildur Hólgeirsdóttir stóðu
vaktina í Eymundsson um síðustu helgi og kynntu starfsemi Lestrar-
klefans.is, sem er nýtt vefrit með bókaumfjöllunum. Ljósm. fá.
Marianne Erlingsen sýndi ullarvörur og fleira á Höfða.
Hjónin Borghildur Jósúadóttir og Sveinn Kristinsson opnuðu á
laugardaginn útilistarsýningu sína; Maður og náttúra, við Akranes-
vita. Á annarri og þriðju hæð í vitanum eru sýningar, bæði sýning
leikskólabarna og myndlistarsýning Aldísar Perlu.