Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2018, Qupperneq 24

Skessuhorn - 31.10.2018, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 201824 Með hjálp nútímatækni geta knap- ar nú lært um frammistöðu sína á reiðvellinum og skipulagt þjálfun í samræmi við hana, en íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Locatify hefur í fyrsta sinn sett upp slík- an staðsetningarbúnað í reiðhöll í Strömsholm í Svíþjóð, í sam- vinnu við Ridsportens Innovatio- ner. Þetta nýja kerfi sýnir hversu hratt er riðið og hvernig hestur- inn hefur farið um reiðvöllinn, en með því að fá þessar upplýsingar er hægt að skoða hvað megi bet- ur fara til þess að bæta þjálfun og minnka það álag sem hestur- inn verður fyrir. Hægt er að sýna hárnákvæma reiðleið hvers knapa á skjá eftir þjálfun eða keppni og bera saman niðurstöðurnar. Tæknin sem notuð er nefnist á ensku Ultra WideBand (UWB) og gefur á sekúndubroti upplýs- ingar um staðsetningu með 30 cm fráviki. Leifur Björn Björns- son frumkvöðull setti búnaðinn upp í reiðhöllinni í Strömsholm að beiðni fyrirtækis sem vinn- ur að nýjungum í hestaíþróttum. Locatify hefur auk þess þróað vefkerfi þar sem hægt er að út- búa leiðsagnir, ratleiki og gagn- virkt upplýsingaefni, sem er gefið er út í sérmerktum smáforritum í snjallbúnaði, og virkjast sjálfkrafa á réttum stöðum. Til að staðsetja notanda utanhúss er GPS notað en innanhúss er notast við blát- annasenda eða UWB. Hingað til hefur UWB-tæknin verið sett upp á söfnum og sýningarsvæð- um en að setja þessa tækni uppá skeiðvelli er nýbreytni. Þess má geta að sambærilegur búnaður er í Snorrastofu í Reykholti, eins og greint var m.a. frá í þættinum Landanum á RUV. mm Tæknin virkjuð við þjálfun hrossa Á myndinni eru þau Madeleine Malmsten og Leifur B. Björnsson með nýja búnaðinn. Meðfylgjandi mynd var tekin síð- degis á mánudaginn um borð í Sverri SH-126 á Breiðafirði. Veiðin í þessum dagstúr var um níu tonn; sjö þeirra þorskur og tvö tonn af ýsu. Aflinn fékkst á landbeitta línu, 36 bala, sem lögð var í Flákanum. Það er Sverrisútgerðin sem ger- ir bátinn út, en skipstjóri í þessum túr var Gísli Marteinsson. Alfons Finnsson háseti tók myndina. mm Mokveiði á miðunum Héraðssýnig lambhrúta á Snæfells- nesi var haldin síðastliðinn laugar- dag. Annars vegar fyrir svæðið vest- an varnargirðingar að Hofsstöðum í Eyja- og Miklaholtshreppi en síð- ar um daginn sunnan varnarlínu að Haukatungu Syðri II. Alls voru sýnd- ir 35 hvítir hyrndir, 15 mislitir og tíu kollóttir hrútar. Dómarar á sýning- unni voru þeir Eyþór Einarsson og Lárus Birgisson. Hvítir hyrndir Efstur af hvítum hyrndum og sá hrútur sem stóð efstur á sýningunni og vann farandsskjöldinn var Hnyk- ill nr. 431 en hann hafði fengið alls 90,5 stig í forskoðun. Eigandi hans er Snæbjörn á Neðri Hól. Í öðru sæti með 88,5 stig var hrútur nr. 8131 í eigu Ásbjörns og Helgu í Hauka- tungu. Í þriðja sæti með 88 stig var hrútur nr. 124 í eigu Gaularbúsins. Mislitir Í flokki mislitra hrúta varð í fyrsta sæti með 87 stig hrútur nr. 374 svartbotnóttur. Eigandi hans er Óttar Sveinbjörnsson, Kjalvegi. Í öðru sæti með 88 stig var hrútur nr. 83, svartur, í eigu Arnars og Elísa- betar á Bláfeldi. Í þriðja sæti með 87 stig var hrútur nr. 237, grár, einnig í eigu Arnars og Elísabetar á Bláfeldi. Kollóttir Í flokki kollóttra hrúta varð í fyrsta sæti með 89 stig hrútur nr. 16 í eigu Eybergs og Guðlaugar á Hraun- hálsi. Í öðru sæti með 88 stig var hrútur nr19 í eigu Kristjáns Sig- urvinssonar á Fáskrúðarbakka. Í þriðja sæti með 89,5 stig var hrútur nr. 431 frá Hjarðarfellsbúinu. iss Verðlaunahafar fyrir bestu mislitu hrútana. Lambhrútasýning á Snæfellsnesi Með verðlaunagrip fyrir besta hrútinn á Snæfellsnesi 2018. Hrútasýning Búnaðarfélags Hval- fjarðar var haldin föstudaginn 19. október á Eystri-Leirárgörðum. Hún var vel heppnuð, lífleg og spennandi. Veitt voru þrenn verðlaun í þremur flokkum hrúta. Að auki voru veitt ný verðlaun - Heiðarhornið fyrir besta hrút sýningarinnar. Áhorfend- ur kusu fallegustu gimbrar sýningar- innar. Þrjár gimbrar í efstu sætunum voru síðan boðnar upp og rann af- rakstur sölunnar til Búnaðarfélags- ins. Kvenfélagið Lilja sá svo um að reiða fram veglegar veitingar. Úrslit urðu þessi (eigendur hrút- anna): Mislitir hrútar 1. sæti Marteinn Bóas Maríasson, Vestri-Leirárgörðum 2. sæti Marteinn Njálsson, Vestri- Leirárgörðum 3. sæti Baldvin Björnsson, Skor- holti Hvítir, kollóttir hrútar 1. sæti Marteinn Njálsson, Vestri- Leirárgörðum 2. sæti Marteinn Njálsson, Vestri- Leirárgörðum 3. sæti Hannes Magnússon, Eystri-Leirárgörðum Hvítir, hyrndir hrútar 1. sæti Ólafur Ingi Jóhannesson, Bjarkarási 8 2. sæti Marteinn Njálsson, Vestri- Leirárgörðum 3. sæti Guðmundur Sigurjónsson, Bjarteyjarsandi 1 Heiðarhornið, fyrir besta hrút sýningarinnar, kom í hlut Mar- teins Njálssonar. Áhorfendur kusu um fallegustu gimbrar sýning- arinnar. Efstu þrjár gimbrarnar voru síðan boðnar upp og rann féð til Búnaðarfélags Hvalfjarðar. Eigendur gimbranna voru: Guð- jón Friðjónsson Hóli, Marteinn Njálsson Vestri-Leirárgörðum og Ólafur Ingi Jóhannesson Bjark- arási 8. Snókur, verktakar ehf. var gef- andi verðlaunabikara og verð- launapeninga á sýningunni, en Marteinn Njálsson og Ólafur Ingi Jóhannesson gáfu Heiðarhorn- ið sem unnið var af listafólkinu í Grenigerði, Rítu og Páli. mm/ Ljósm. Kolbrún Sig. Hrútasýning í Hvalfjarðarsveit Stefán Trausti tók við Heiðarhorninu fyrir hönd Matta í Leirárgörðum. Svipmyndir frá sýningunni.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.