Skessuhorn - 31.10.2018, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Snæfell sigraði Skallagrím, 81-78,
í æsispennandi Vesturlandsslag í
fjórðu umferð Domino‘s deildar
kvenna í körfuknattleik. Leikið var
í Stykkishólmi síðastliðið miðviku-
dagskvöld.
Mikið jafnræði var með liðunum
meira og minna allan leikinn. Snæ-
fell náði góðri rispu og sjö stiga for-
ystu seint í fyrsta leikhluta, 19-12
en Skallagrímur minnkaði muninn
í fjögur stig áður en upphafsfjórð-
ungurinn var úti, 19-15. Borgnes-
ingar komust fimm stigum yfir um
miðjan annan leikhluta, 24-29 áður
en Snæfell náði forystunni á nýjan
leik. Skallagrímur jafnaði í 35-35 á
lokamínútu fyrri hálfleiks og leikur-
inn í járnum.
Skallagrímskonur höfðu heldur
yfirhöndina framan af þriðja leik-
hluta, leiddi með örfáum stigum en
Snæfell fylgdi þeim eins og skugg-
inn. Gestirnir úr Borgarnesi náðu
sex stiga forskoti seint í leikhlutan-
um en Snæfell tók forystuna á nýj-
an leik fyrir lokafjórðunginn, 55-53.
Skallagrímur tók forystuna í upphafi
fjórða leikhluta áður en Snæfell jafn-
aði í 59-59. Liðin fylgdust að næstu
mínúturnar. Skallagrímur komst
síðan yfir en aftur jafnaði Snæfell.
Staðan var 70-70 þegar lokaflautan
gall og því þurfti að grípa til fram-
lengingar. Hún var æsispennandi,
rétt eins og leikurinn fram að því.
Liðin skiptust á forystunni fyrstu
mínútuna áður en Skallagrímur
jafnaði í 74-74. Snæfell komst síðan
yfir og lét forystuna aldrei af hendi
það sem eftir lifði leiks, þó alltaf hafi
verið mjótt á mununum. Lokatölur
urðu 81-78, Snæfelli í vil.
Kristen McCarthy átti sannkall-
aðan risaleik fyrir Snæfell. Hún
skoraði 42 stig, reif niður 24 fráköst
og gaf átta stoðsendingar. Katarina
Matijevic skoraði ellefu stig og tók
sex fráköst og Angelika Kowalska
var með tíu stig, sex fráköst og fimm
stoðsendingar.
Shequila Joseph var atkvæðamest
í liði Skallagríms með 22 stig og 15
fráköst, Bryesha Blair skoraði 19
stig og tók sjö fráköst, Ines Kerin
var með 16 stig og Maja Michalska
skoraði tíu stig, tók níu fráköst og
stal fimm boltum.
Snæfell hefur sigrað fjóra af fimm
leikjum vetrarins og hefur átta stig
á toppi deildarinnar. Skallagrímur
hefur tvo sigra og situr í sjöunda sæti
deildarinnar með fjögur stig. Næst
leika liðin í kvöld, miðvikudaginn
31. október. Snæfell mætir Haukum
á útivelli og Skallagrímur heimsæk-
ir KR.
kgk
Snæfell sigraði í framlengdum Vesturlandsslag
Kristen McCarthy átti stórleik þegar Snæfell lagði Skallagrím í Vesturlandsslagnum.
Ljósm. sá.
Knattspyrnumaðurinn Garðar
Gunnlaugsson og Knattspyrnufélag
ÍA hafa komist að samkomulagi um
að endurnýja ekki samning Garð-
ars við félagið, sem rennur út um
mánaðamótin. „Eftir miklar vanga-
veltur höfum ég og minn ástkæri
klúbbur, ÍA, ákveðið að nú skilji
leðir. Vegna vinnu þarf ég að flytjast
búferlum til Reykjavíkur og tel að
það muni henta mun betur vinnu-
lega, fótboltalega og fjölskyldulega
að ég stundi mína knattspyrnuiðk-
un í Reykjavík eða nágrenni,“ er
haft eftir Garðar í tilkynningu á vef
KFÍA. „Mig langar að þakka ÍA og
öllum sem koma að klúbbnum fyr-
ir ótrúleg ár. Betri liðsfélaga er erf-
itt að finna og ég mun sakna þeirra
mikið. Stuðningsmönnum ÍA vil ég
svo færa sérstakar þakkir fyrir að
hafa staðið við bakið á mér öll þessi
ár.“
Garðar Gunnlaugsson hóf feril
sinn með meistaraflokki árið 2001
og varð Íslandsmeistari með liðinu
sama ár. Tveimur árum síðan varð
hann bikarmeistari með ÍA þar sem
hann skoraði sigurmarkið í úrslita-
leiknum gegn FH. Árið 2004 gekk
Garðar til liðs við Val áður en hann
hélt út í atvinnumennsku þremur
árum síðar. Sem atvinnumaður lék
Garðar með IFK Norrköping í Sví-
þjóð, CSKA Sofiu í Búlgaríu, LASK
Linz í Austurríki og SpVgg Unter-
haching í Þýskalandi.
Árið 2012 sneri Garðar aftur
heim til Íslands, samdi við ÍA á nýj-
an leik og hefur leikið með Skaga-
mönnum síðan. Á sínum ferli með
ÍA hefur Garðar leikið 301 leik
og skorað í þeim 132 mörk. Hann
varð markakóngur Pepsi deildar
karla árið 2016 og varð fyrsti leik-
maður ÍA til að hampa þeim titli í
15 ár. „Hann á að baki glæstan feril
þar sem hann hefur verið góður og
traustur liðsmaður og skorað mörg
mikilvæg mörkin,“ segir í tilkynn-
ingu knattspyrnufélagsins. kgk
Garðar hættur með ÍA
Garðar Gunnlaugsson fagnar einu af 14 mörkum sínum með ÍA sumarið 2016, en
það sumar varð hann markahæsti leikmaður Íslandsmótsins. Hann skoraði 132
mörk í 301 leik með liði Skagamanna. Ljósm. úr safni/ gbh.
Skallagrímur sigraði ÍR, 99-96, í
æsispennandi leik í Domino‘s deild
karla í körfuknattleik á föstudags-
kvöld. Leikið var í Borgarnesi.
Heimamenn byrjuðu leikinn bet-
ur og leikur þeirra einkenndist af
góðri stemningu. Gestirnir voru þó
aldrei langt undan og fjórum stigum
munaði eftir fyrsta leikhluta, 27-23.
Jafnræði var með liðunum í öðrum
fjórðungi. ÍR-ingar jöfnuðu metin
í 38-38 þegar hann var hálfnaður.
Skallagrímur komst yfir að nýju og
hafði yfirhöndina það sem eftir lifði
fyrri hálfleiks. Borgnesingar leiddu í
hléinu, 53-45.
Skallagrímsmenn héldu gestunum
frá sér framan af þriðja leikhluta. ÍR-
ingar fundu hins vegar taktinn betur
eftir því sem leið á og náðu að kom-
ast yfir áður en lokafjórðungurinn
hófst, 69-75. Gestirnir voru sterk-
ari lengst framan af fjórða leikhluta
og voru komnir tíu stigum yfir þeg-
ar aðeins um ein og hálf mínúta lifði
leiks. Upphófst þá ótrúlegur loka-
kafli Skallagrímsmanna. Þeir gerðu
áhlaup á ÍR-inga, skoruðu hverja
körfuna á fætur annarri og gerðu
tíu stiga forskot gestanna að engu.
Þegar 24 sekúndur lifðu leiks kom-
ust þeir yfir. Gestirnir fóru af stað í
sókn en Skallagrímsmenn stálu bolt-
anum og skoruðu tvö auðveld stig.
Lokaskot ÍR-inga frá miðju geigaði
og Skallagrímur sigraði því með 99
stigum gegn 96.
Eyjólfur Ásberg Halldórsson var
besti maður vallarins á föstudags-
kvöld. Hann skoraði 25 stig, tók
tíu fráköst og gaf sjö stoðsendingar.
Aundre Jackson var með 25 stig og
sjö fráköst og Matej Buovac skoraði
21 stig.
Justin Martin var atkvæðamestur
gestanna með 25 stig og átta fráköst,
Hákon Örn Hjálmarsson var með 19
stig og sjö fráköst, Sigurkarl Róbert
Jóhannesson 17 stig, Gerald Robin-
son 16 stig og sjö fráköst og Sigurð-
ur Gunnar Þorsteinsson 16 stig og
fimm varin skot.
Skallagrímur hefur fjögur stig eft-
ir fyrstu fjóra leiki vetrarins og situr í
sjöunda sæti deildarinnar. Næst leik-
ur Skallagrímur í kvöld, miðviku-
daginn 31. október, þegar liðið sækir
Breiðablik heim. kgk
Frábær endurkoma
Skallagríms
Eyjólfur Ásberg Halldórsson var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins. Ljósm.
Skallagrímur.
Knattspyrnukonan Bergdís Fann-
ey Einarsdóttir hefur gengið í raðir
Pepsi deildar liðs Vals frá ÍA. Skrif-
aði hún undir þriggja ára samning
við Val.
Bergdís Fanney er aðeins 18 ára
gömul og er í hópi efnilegust knatt-
spyrnukvenna landsins. Hún hefur
leikið 57 meistaraflokksleiki fyrir
ÍA og skorað í þeim 22 mörk. Berg-
dís skoraði 15 mörk í 18 leikjum
með ÍA í 1. deild kvenna í sumar.
Þá hefur hún verið fastamaður í
U17 og U19 ára landsliðum Íslands
undanfarin ár.
kgk
Bergdís Fanney á
förum frá ÍA
Bergdís Fanney Einarsdóttir í leik með
ÍA. Ljósm. úr safni/ gbh.
Bandaríski markvörðurinn Tori
Ornela hefur skrifað undir nýjan
eins árs samning við Knattspyrnu-
félag ÍA. Mun hún því leika með
Skagakonum í 1. deild kvenna á
næsta sumar.
Tori er 26 ára gömul og gekk til
liðs við ÍA frá Haukum keppnis-
tímabilið í fyrra. Á vef KFÍA er haft
eftir Tori að hún sé ánægð með að
hafa framlengt samning sinn við lið
Skagakvenna og spennt fyrir kom-
andi tímabili í 1. deild kvenna í
knattspyrnu.
kgk
Tori framlengir
við ÍA
Tori Ornela og Helena Ólafsdóttir,
þjálfari ÍA, við undirritun samningsins.
Ljósm. KFÍA.